Morgunblaðið - 11.07.1971, Blaðsíða 5
—u----- , ..- ---------—r^-4————1 ■ -M* * f*
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JÚL.Í 1971
Áttræöur á morgun;
Sigurður Þórðarson
frá Laugabóli
HANN er fæddur á Laugabóli
i ísafirði, ættaróðali sínu, þann
12. júlí 1891, sonur hjónanna
Þórðar Jónssonar bónda þar
Halldórssonar og síðari konu
hans Hallfríðar Eyjólfsdóttur,
Höilu skáldkonu. í afmælisgrein
um Sigurð sjötugan stendur:
„Að Sigurði standa merkar
ættir á báðar hendur, bændur,
embættismenn og listamenn. —
Hann ber glögg einkenni mikilla
erfða í mannkostum og fjölþætt
um hæfileikum, sem samfara
góðri og traustri menntun
mynda merkilegan persónuleika,
manngerð minnisstæða þeim, er
giöggt þekkja.“
Sigurður var við nám í Flens
borgarskóla og tók þaðan gagn
fræðapróf 1907. Verzlunarprófi
lauk hann frá Brþdrene Páhl-
mans Handelsakademi i Kaup-
mannahöfn 1913. Þar starfaði
hann 1913 og 1914 sem hraðrit-
ari hjá Andelsanstalten ,,Tryg“
og síðar hjá Jakobi Gunnlaugs
syni við skrifstofustörf og inn-
heimtu. Kaupfélagsstjóri var
hann á Arngerðareyri 1915—35.
Síðan stórbóndi á ættaróðali
sinu Laugabóli 1935 til ársloka
1962.
Hann hefur gegnt fjölda trún
aðarstarfa i héraði sínu. Verið
hreppsstjórí, hreppsnefndarmað -
ur, í stjórnarnefnd Djúpsbátsins,
formaður skólanefndar héraðs-
skólans í Keykjanesi, endurskoð
andi hans og prófdómari, átt
sæti í skattanefnd og sóknar-
nefnd. Hann var útgefandi
fyrstu sönglaga Sigvalda Kalda-
lóns og að Ijóðabók móður
sinnar Höilu skáldkonu.
Kvæntur er Sigurður Ástu
Jónsdóttur gistihúseiganda Ja-
sonarsonar á Borðeyri.
I áðurnefndri afmælisgrein
um Sigurð segir:
„Fjölhæfar gáfur og hæfileik
ar Sigurðar hefðu dugað honum
til margvíslegra starfa í þjóðfé-
laginu. Af honum mátti gera
marga menn eins og Gissuri bisk
upi ísleifssyni. Hann hefði sómt
sér vel sem forstjóri stórra fyr
irtækja. Hann hefði orðið fyrir
myndarembættismaður i fleiri
en einni grein, ef hann hefði
gengið þann veg. Hann hefði
getað orðið aðsópsmikill stjórn
málamaður, en þó líklega rek-
izt illa í sporaslóð flokkaskipu-
lagsins. En hann valdi sér hið
góða hlutskiptið, að rækja
tryggðir við ættaróðal, vera
bóndi í þess orðs virðulegustu
merkingu. Hann ber í brjósti
mikinn metnað og stolt fyrir
hönd stéttar sinnar.
Það gerist of sjaldan, að
menn af gerð Sigurðar Þórðar
sonar, með menntun hans og
fjölþætta hæfileika hafi
þann metnað að helga ættaróð
ali líf sitt og starfskrafta. Það
varðar miklu, héraðið, landið
allt og þjóðina, að tignarheitið
bóndi sé borið uppi af sem mest
um mannkostum, góðri og
traustri menntun, heilbrigðum
metnaði og stórhug.
Sigurður hefur verið ham-
ingjumaður i einkaiífi sínu. Við
hlið hans hefur staðið hin ágæta
Útgerðormenn - skipstjorar
Höfum fyririiggjandi 32 volta gírmótora, á keðjustýri,
einnig sjálfskiptingar, stýrismæia og stýrisrofa.
Gústaf Ágústsson hf.,
Simi 26787. Box 7034.
og mikilhæfa eiginkona hans
frú Ásta Jónsdóttir. Hefur henn
ar hlutur eigi verið minni en
hans í því að gera garðinn fræg
an.
Þegar þau höfðu setið óðal
sitt við rausn og mikinn mynd
arbrag í 27 ár var Sigurður kom
inn á áttræðisaldur og þau bæði
farin að heilsu.
Voru þá ekki önnur úrræði
fyrir hendi en að selja Laugaból
og fá sér staðfestu við hæfi.
Fiuttust þau hjónin þá til Akra-
ness og hafa búið þar þangað
til þau fluttust þaðan á þessu ári
og búa nú á Dvalarheimilinu Ás
ar III. í Hveragerði í vistlegum
húskynnum, snyrtilegum innan
húss sem utan.
Þótt nokkuð skorti á að hús-
rýrni þar jafnist á við hýbýli
Laugabóls, þá minnir hið nýja
vistlega heimili þeirra á gamla
glæsilega heimilið þeirra á
Laugabóli, þar sem sömu ger
semar búnaðar og rnuna prýða
stofur þeirra og í hug-ai og
hjarta vakin minningin um
Laugaból.
Á áttræðisefmæli Sigurðar
Þórðarsor.ar munu margir minn
ast þeirra hjónanna, ánægju-
legra kynna og komu sinnar að
Laugabóli.
Við hjónin og fjöiskylda okk
ar þökkum þeim órofa vináttu
og tryggð. Við biðjum þeim allr
ar blessunar og að ævikvöldið
megi verða þeim sem friðsælast
og bjartast.
Með vinarkveðju.
Aðalsteinn Eiríksson.
Á afmælisdaginn 12. júlí verð
ur Sigurður Þórðarson og frú
Ásta að heiman.
Stór iðnaðar- og skrifstofuhæð
til sölu við Ármúla.
TilboÖ sendist blaðinu merkt: „7543“.
Lokað
vegna sumarleyfa frá 17. júlí — 3. ágúst.
Bílaryðvörn hf.
Skeifan 17 — Sími 8 13 90.
<
c
LANDSINS MESTA ÚRVAL AF LÍF-
STYKKJAVÖRUM BÆDI A YNGRI
SEM ELftRI.
V Ó S T S E N ft U M .
lympía.
Sími 1518(» Laugavegi 26.
Nýtt líftryggingafélag
er tekið til starfa
LÍFTRYGGINGAMIÐSTÖÐIN P
Að Líftrygo-iiigamiftstöðinni hf., seni
nýlega tók til starfa, standa 18 hlut-
hafar, þar á meðal Tryggingamiðstöð-
in hf. Líftrygginganiiðstöðin hf. er í
sömu hiisakynnum og Tryggingamið-
stöðin hf. að Aðalstradi (» (Morgun-
blaðshúsinu. 5. hæð) og síminn er sá
sami — 1 94 60.
FJÖLBREYTTNI OG
NÝR GRUNDVÖLLUR
Líftryggingamiðstöðin hf. býður upp
á fjórar tegundir líftrygginga, þar
sem komið er á móts við kröfur al-
mcnnings um skynsamlegri og nú-
tímalegri háttu á iíftryggingum. Þess-
ar fjórar tcgundir líftrygginga flokk-
ast þannig: 1) FÖST TRYGGING.
2) ÓVERÐTRYGGÐ STÓRTRYGG-
ING, 3) VERÐTRYGGÐ STÓR-
TRYGGING og 4) SKULDATRYGG-
ING.
LÍFTRY GGING
ER SJÁLFSÖGft
Almenningi finnst nú orðið sjálfsagt
að líftryggja sig, a.m.k. ættu allir
þeir, sem standa í húsbyggingum eða
eru skuldugir, að taka einhvers konar
líftryggingu til langs eða skamms
tíma. Líftryggingarskilmála er sjálf-
sagt að ræða í góðu tómi, því að þeir,
sem vilja líftryggingu, þurfa eðlilega
margs að spyrja um réttindi sín og
skyldur. Það er til dæmis ákaflega
athyglisvert að kynna sér líftrygg-
ingu þá, sem felur í sér bætur vegna
slysaörorku.
REYNDIR
TR Y GGIN GAMENN
Iljá Líftryggingamiðstöðinni hf.
starfa aðeins reyndir tryggingamenn,
sem hafa sett sér þá meginreglu, að
útskýra í smáatriðum kosti og tak-
markanir líftrygginga, þannig að við-
skiptavininum sé fullkomlega ljóst
hvaða form líftryggingar hentar hon-
um bezt. Tryggingamenn okkar eru
reiðubúnir að koma hvenær sem er
til fyrirtækja og cinstaklinga til að
ræða þessi mál.
LÍFTRYGGINGAMIDSTÖÐIN F
AÐALSTRÆTI 6 — SIMI 1 94 60.
4
<4