Morgunblaðið - 11.07.1971, Qupperneq 15
MORGUMBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ 1^71
15
i
Sextugur á morgun:
Halldór Gunnarsson
ísafirði
Á MORGUN mirmist góður vin
ur mmn á fsafirði, Halldór Gunn
arsson hafnsögumaður, merkra
támamóta í lífi sínu, en þá fyll
ir hann sjötta tuginn.
Halldór Gunnarsson er fæddur
12. júlí 1911 í Vigur í ísafjarð-
ardjúpi og við Djúp hefur hann
alið allan sinn aldur. Foreldrar
hans voru hjónin Guðfinna Hálf
dánardóttir og Gunnar Halldórs
son í Vigur, síðar formaður og
útvegsbóndi að Hóli í Bolungar
vík, merkur formaður þar um
slóðir á sinni tíð.
Annar sonur þeirra hjóna var
Högni, sem látinn er fyrir
nokkrum árum, en hann vai
lengi umsvifamikill athafnamað
ur á ísafirði, og siðustu árin að
aleigandi og forstjóri Vélsm.
Keilis í Reykjavík.
Ungur að árum hóf Halldór
Gunnarsson sjómennsku við
Djúp, eins og háttur var ungra
manna í sjávarplássum við hin
fengssælu mið Vestfjarða. Var
hann um fjölda ára á síldveið-
um og línuveiðum, en árið 1941
lauk hann hinu meira fiski-
mannaprófi frá Stýrimannaskól
anum.
Halldór varð skipstjóri á Djúp
bátnum, eða gamla Fagranes-
inu á stríðsárunum og gegndi
því erfiða og annasama starfi
um 16 ára skeið. Framan af
þeim áxum var farsvæði Djúp-
bátsins miklu stærra en nú er.
Auk ferða um Djúpið og vestur
á firði allt til Dýrafjarðar, fór
Djúpbáturinn margar ferðir
milli ísafjarðar og Reykjavík-
ur á styrjaldarárunum með far
þega og vörur, þótt farkostur
inn væri ekki stór, en þessu
ollu miklir samgönguerfiðleikar
á þessum tímum. Þá er þess
einnig að geta, að þegar Hall-
dór tók við skipstjóm á Djúp-
bátnum, voru hinir stóru hrepp
ar norðan Djúpsins, Grunnavík
ur- og Sléttuhreppur enn í
byggð, og voru þar margir við
komustaðir allt norður fyrir
Horn og austur undir Geirólfs
gnúp, þar sem eru sýslumörk N-
ísafjarðársýslu og Strandasýslu.
Lætur að líkum, að oft hafa
sigiingar á þessum úfna sæ ver
ið erfiðar og háskalegar, en um
an.nað var ekki að ræða, en að
halda uppi ferðum til þessara
afskekktu byggðarlaga, því að
íbúar þeirra áttu allt undir sjó
Jeiðinni.
Halldór Gunnarsson var mjög
vinsæll og vel látinn af þeim
mikla fjölda manna við Djúp
og firði, sem nutu margháttaðr
ar fyrirgreiðslu og aðstoðar
hans og skipverja hans, enda
voru erindin mörg og margvís-
leg, sem sinna þurfti og var
lipurð og hjálpfýsi Djúpbáta-
manna annáluð á þessum árum,
og er svo vissulega enn um þá,
sem nú skipa þar rúm.
Frá 1964 hefur Halldór Gunn
arsson verið hafnsögumaður á
ísafirði og notið trausts og álits
í tíðum mjög erilsömu og erfiðu
starfi.
23. september 1933 kvæntist
Halldór Guðbjörgu Bárðardótt-
ur Jónssonar bónda á Ytri-Búð
um og konu hans Sigrúnax Guð
mundsdóttur. Steig Halldór þar
mikið gæfuspor, því að eigin-
inkona hans hefur reynzt hon-
um elskuríkur og umhyggjusam
ur lífsförunautur, og búið manni
sínum og stórri fjölskyldu fal-
legt heimili og menningarlegt,
og bæði hafa hjónin verið sam
hent um að hlynna að velferð
og framgangi barna sinna. Er
frú Guðbjörg hin mesta atgerv
is- og mannkostakona, sem ver
ið hefur kennari við Bamaskóla
isafjarðar mörg undanfarin ár.
Þau hjón eignuðust sjö mann
vænleg og myndarleg börn, sem
öll bera með sér reisn og þokka
sinna geðþekku foreldra. Böm-
in eru:
1. Sigrún, gift Hringi Hjörleifs
syni skipstjóra á Flateyri.
2. Guðfinna, gift Áma Ragn
arssyni kaupmanni í Reykjavík.
3. Ragna, gift Elvari Ingasyni
málara á ísafirði.
4. Bárður, menntaskólakenn-
ari á Akureyri, kvæntur Álf-
hildi Pálsdóttur.
5. Guðrún, gift Áma Sigurðs
syni prentara á ísafirði.
6. Ásgerður, verzlunarstjóri á
ísafirði.
7. Kolbrún, skrifstofumær á
ísafirði, báðar þær síðasttöldu
í foreldrahúsum.
Mér er í barnsminni er Högni
heitinn Gunnarsson heimsótti
tíðum foreldra mína, og er mér
óx aldur og þroski kunni ég
enn betur að meta frábærar gáf
ur og glæsibrag, sem hann hafði
til að bera. Kynni okkar Hall-
dórs urðu mörgum árum síðar,
og varð ég síður en svo fyrir
neinum vonbrigðum af þeim,
og eftir því sem árin hafa liðið,
hefur mér fundizt Halldór likj
ast æ meir bróður sínum.
Halldór Gunnarsson er fríður
maður, vel á sig kominn og
hinn vörpulegasti. Framkoman
er hýr og aðlaðandi og HaLldór
er góður vinur vina sinna. Nú
hin síðari ár hefur hann orðið
að slaka nokkuð á klónni vegna
lasleika, er hann kenndi, en
allt það hefur hann borið með
ró og jafnaðargeði.
Margar ánægjustundir hefi
ég átt á heimili þeirra Guðbjarg
ar og Halldórs, sem ég vil nú
þakka af alhug, og um leið og
ég óska afmælisbarninu ynni-
lega til hamingju, sendi ég þeim
hjónum og þeirra fjölskyldu
beztu óskir um gæfu og gengi á
ókomnum árum.
Halldór Gunnarsson er nú
staddur að Orlofsheimili BSRB
að Munaðarnesi í Borgarfirði.
Íbúð með húsgögnum
óskast til leigu dálítinn tíma fyrir 3 tékkneska tæknimenn.
Úpplýsingar á morgun I sima 85411.
BLIK H/F., Höfðabakka 9.
VECCFÓDUR
Enska vinyl veggfóðrið í sí-auknu úrvali.
Nýtízku litir og mynztur, verðið hvergi betra.
J. Þorláksson & Norðmann hf.
snið fyrir þig- snið fyrir mig-efni sem hœfa háðum
VIÐ LÆKJARTORG
r/W\
BE2T aö auglýsa í Morgunblaðinu