Morgunblaðið - 21.07.1971, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 21.07.1971, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1971 5 Qlafur Mixa, læknir: íslenzkir Indíánar í Kanada ÞAÐ sagði mér kona frá Winni pég, að íslendingar væru allt að þvi illa þokkaðir í þeirri borg. Ég móðgaðist vitaskuld niður fyrir allt eins og sannur íslend ingur, fjarskalega hörundsár, og spurði, hvernig í ósköpunum það mætti vera. Kvað hún ástæðuna vera þá, að stúdentar af íslenzk um ættum í háskólum þar rök- uðu ávallt til sín heiðurspening um og verðlaunum, svo að ann ars konar Kanadamenn sætu eft ir súrir með tvær hendur tóm- ar. Þetta væri næstum óbifan- leg hefð. Þess má geta, að sögu konan var af íslenzkum ættum. Á ferðalagi í afskekktum skógi í Alberta vár numið stað ar i smáþorpi, Water Valley (Yatnsdalur?), við krambúðina þar til að skoða eigandann. —- Eins og vonir höfðu staðið til, var hann glaðklakkalegur, þybb inn náungi og fjarskalega skraf hreyfinn eins og títt er um menn í slíkri stöðu. Hann var akozkur og þótti lítið til koma, þegar undirritaður fór að gorta af þjóðerni sínu. Hann kallaði eitthvað langt inn i búð, og gekk þá óðara fram anbað sýnishorn af okkar kynstofni, eiginkona hans, Josephine Sigurdsson; var var það kona höfðingleg. Og hljómar ekki íslenzk tunga einn góðan gang inni í Albertaskóg- um, eins og ekkert sé! Kvaðst konan eiga í fórum sínum fálka orðu eina, sem hún viti ekki al mennilega, hvernig eigi að nota. Faðir sinn sálugi, Ófeigur Sig- urdsson, hafi fengið hana forð- um fyrir að vera íslenzkur og sem slíkur mikill áhugamaður um framgang þeirrar þjóðar í nýræktarmálum við Medicine-á, auk þess sem hann hafði vísað íslenzkum forseta til vegar í Markerville eitthvert árið. Ekki sagði ég henni að skila orðunni. í stærstu fundarhöll Winnipeg borgar var alþjóðlegt læknaþing háð á sl. ári undir forystu ís- lendings, dr. Paul Thorláksson, sem er þekktur læknir í Kan- ada. Hann er á íslandi, er þetta er ritað. Og sem maður ráfar um kristalskreytt salarkynnin geliur við íslenzkur hlátur ein hvers saðar, og þarna er þá hóp ur Kanadamanna að tala ís- lenzku eins og það sé sjálfsagt. Maður slæst strax í hópinn og er tekið vel. Enn svellur ylur i brjósti. Svo að ekki sé minnzt á Bethelheimilið í Gimli. Þrösk- uldurinn á því húsi eru Atlants álar. Þegar inn er komið, er Kanada i annarri heimsálfu. — Margt af því aldna fólki, sem þarna býr og talar aðeins ís- lenzku, hefur aldrei ísland aug um litið. Það horfir bara út á Winnipegvatn með íslands sogu í augum, og úti á vatninu róa enn íslendingar til fiskjar. Aftur í Alberta: Við erum villt þar sem við erum að litast um eftir heimili Stephans G. Stephanssonar, þar sem hann orti á andvökunóttum eftir erf- iði dagsíns. Við skálmum að næsta bóndabæ, bönkum uppá og spyrjum, hvort húsráðend- um sé kunnugt um hús og leiði þessa skálds. Þau spyrja þá, hvort við séum íslenzk, og þeg ar við játum því, biður bónd- inn, Jóhann Jóhannsson okkur velkomin á reiprennandi ís- lenzku og spyr hvort við vilj- um ekki þiggja molakaffi og með því, hún Liilian (Lilja) hafij einmitt verið að hella upp á. Það var kátt yfir kaffinu og klúkkaði í þeim hjónum yfir að sjá alvöru íslendinga þarna uppi undir Klettafjöllum. Þau hjón höfðu fyrst séð ísland ári fyrr; og eru aftur að skoða það nú. Og þeir, sem kynnu að eiga leið. um norðurslóðir Kanada, á heimskautssvæðum, gætu kann ski rekizt á Raymond (Hró- mund) Thorsteinsson, jarðfræð- ing sem er þar á þönum og hefur troðið fæti um slóðir, sem ekki hafa verið troðnar af mönn um síðan Vilhjálmur Stefánsson kom þar fyrstur allra. Raymond á dagbókarbrot eftir Vilhjálm, sem hann fann norður þar. Þannig mætti lengi telja um íslenzkt þjóðlíf á strjáli í Kan- ada. Til er jafnvel saga ein- hvern veginn á þá leið, að ís- lendingur var að mæla fyrir simastaurum uppi á heiðum norður í Manitobafylki. Gengur hann þá fram á gríðarstóran Indióna. Þeir. kasta stuttum kveðjum hvor á annan og kynna sig. Kvaðst Indíáninn heita Jón og vera Jónsson og eiga ættir að rekja í Skagafjörð norður. Og gekk síðan hvor sina leið. Þetta er sennilega saga á borð við sumar Kjarvalssögur: lyga- saga, en gæti verið sönn. — í þessu víðáttumikla landi skýt- ur íslendingum upp þegar minnst varir. Þeir hafa sett svip sinn á þessa þjóð, hjálpað til að byggja hana og móta, einkum í sléttufylkjunum, þar sem þeir brutu landið, oft i geysilegu basli. Dr. Walter J. Líndal, dóm ari, nefnir bók sina um Vestur- íslendinga: The Icelanders of Canada, a Strand og the Can- adian Fabric, sem gæti útlagzt: Þættir úr mynztri Kanada. Þeir hafa orð á sér fyrir að hafa að lagazt vel þjóðinni og hafa, þrátt fyrir rányrkju í verðlauna kistur háskóla, gott orð á sér eftir allt saman. Þeir eru stoltir yfir þessu og montnir af þjóð- erni sínu eins og vera ber. Það fást harðfiskur og skyr í Winni peg. Sigmar Johnson frá River ton sendi okkur hangikjötslæri á næstsíðustu jólum, og hafi hann hjartanlega þökk fyrir. — Þetta fólk talar íslenzku fram í rauðan dauðann. Til hvers vita fáir. Það virðist vera eitt- hvað ósköp fánýtt að kyrja þessa tungu, sem enginn skilur nema maður sjálfur. En það er bara svona. Og þeir kveða einn ig kvæðin sín. Ég hef heyrt á segulbandi kveðinn Guttorm Guttormsson og fleiri stanzlaust í a.m.k. 30 mínútur á langlín- unni milli Riverton og Winni- peg. Sam Austmann, formaður hins nýja Leifs Eiríkssonar fé- lags í Calgary, syngur óvallt ís- lenzk Ijóð, þegar hann er í sér stakri stemningu. Tárið. Hvað er svo glatt. Ó, fögur er vor fósturjörð. Hann hefur ekki heldur (verið á íslandi. „The Saga singers“ frá Edmonton æfa allt árið íslandssöngva og kyrja þá svo um Albertabyggð- ir. Edmonton er höfuðborg Al- bertafylkis. Þar er kröftugt ís- lendingafélag. Þeir krýna sína fjallkonu hvert ár. Börnin gera vinnubækur um ísland. Einn af helztu viðhaldsmönnum þeirrar starfsemi, Gunnar Thorvaldsson, er nú á íslandi að svipast eft';r ættingjum. — í Alberta iifa synir og dætur Stephans G. sem orti svo innblásna óða um sitt fjarlæga land. Og í Calgary lifir dóttir þess manns, sem samdi þjóðsöng íslands: Helen Sveinbjörnsson Lloyd sá ísland í fyrsta sinni í fyrrasumar. Kona mín, Ásthildur og önnur íslands dóttir, Margrét Sig- valdadóttir Geppert tóku sig til og fiskuðu upp úr heilli síma- skrá Calgaryborgar öll- þau nöfn sem hefðu á sér íslenzkt snið, og voru þau síðan hringd upp. í flestum tilvikum stóð heima, að þar voru komnir afkomend- ur Snorra og Njáls. Sumir klökknuðu við að heyra aftur móðurmálið eftir langa þögn. Á örskammri stund voru boðaðir saman 40—50 meðlimir i nýtt íslendingafélag. Einn frumkvöð ull þeirrar félagsstofnunar er dr. Clive Cardinal, prófessor í germönskum og skandinavískum fræðum við Calgaryháskóla, heitur áhugamaður um íslenzk ar menntir, sem hann hefur kynnzt af lestri íslenzkra skálda. Hann mun heimsækja landið seinna í sumar. Og dr. Walter Líndal gaf Calgaryháskóla allt islenzka bókasafnið sitt, sem er höfðingleg gjöf, næststærsta ís- lenzka bókasafn í Kanada á eftir safni Winnipegháskóla. Hví er ég nú að tína saman þessa strjálu punkta? Vegna þess að mér þykja þeir mark- verðir og ekki skaðlegt, þótt einhver vitneskja um þetta ó- kunna fólk, Vestur-íslendinga, ríki meðal mörlandans. Áhugi okkar á frændum okkar í Kan- ada er yfirleitt i engu samræmi við þeirra áhuga á okkur, sem virðist vera vaxandi. Fráfræði mín um afdrif þriðjungs þjóðar á ofanverðri siðastliðinni öld var sérlega sár, er hingað kom. Hvað hafði þetta fólk eigin- lega verið að gera hérna? Og hvað er að gerast nú? Fræði mín um þau mál voru stórgöt- ótt, en ég leyfi mér að hugga mig við og halda því fram, að ég hafi ekki verið einn um þenn án fræðsluskort, og er það ekki vanzalaust. Ekki er við því að búast, að hér verði töluð íslenzka eða sungin kynslóð eftir kynslóð. Yngsta fólkið gerir það ekki nú. Eftir eina kynslóð verður „dönsk tunga“ að mestu gleymd i Kan ada. En hvort skal þá gleymt sjálft landið? Á meðan Vestur- Islendingar sýna svo sannverð- ugan áhuga á upprunalandi sínu væri leitt, ef við dottuðum og létum lönd og leið samband við þá og einkum það unga fólk, sem er að vaxa úr grasi og þarfnast sterkari hvatningar til viðhalds vissum tilfinningum gagnvart gamla landinu. Dr. Líndal segir, að margt ungt fólk af islenzku borgi brotið hafi komið til sín og sýnt áhuga á því að kynnast betur þessu sér stæða landi og leggja eitthvað af mörkum til gagnkvremra kynna milli landanna beggja. Það væri eins og þetta fólk llvítt: Kobert Fischer. Svart: Bent Larsen. 1. e4 c5 2. BÍ3 d6 3. «14 cxd 4. Bxd Bf6 5. B«3 Bc6 e. Bc4 «t6 7. Bb3 Be7 8. Be3 0—0 9. 0—0 Bdl 1«. f4 Dcl H, ts BxB 12. BxB exf 18. Dd3 fxe 14. Bxe RxB 15. DxB Be6 16. Ilf3 Dc6 17. Hel DxD 18. HxD d5 19. Hg3 g6 20. Bxd5 Bd6 21. HxB Bxll 22. He7 Bd6 fyndi til hins alræmda íslend jngastolts í beinum sér en vissi ekki beint af hvers konar völd- um og þyrfti endilega að útkljá málið. Vis.sri íslenzkri hefð og arfleifð má og á að halda við í Kanada fyrir þá, sem vilja. Okkur ætti að vera nokkurt keppikefli að einhverjir viljí. Það er gott að eiga góða frænd ur og vini. Kanada er gott land að skipta við. Það hefur ótrú- lega framtíðarmöguleika. — Frændur hér gætu verið haukar í horni. Vestur-íslendingar, sem nú hafa verið í heimsókn á ís- landi, komu færandi hendi. Ætt um við ekki að gera meira en segja bara takk. Þess vegna: Þarf að bæta kynni íslenzks æskufólks á því, hvers konar fólk Vestur-íslendingar eru, og hvað þeir hafa gert, þarf að stuðla að aukningu námsmannastyrkja á báða bóga Framh. á bls. 19 23. Hxb Ha-c8 24. c4 a5 25. Ha7 Bc7 26. a3 Hf-e8 27. Kfl He7 28. Bf6 HeT 29. Bc3 hf 30. Ha6 Bef 31. Bd2 Hd3 32. Ke2 Hd4 33. Bc3 Hcxc4 34. BdxH HxB 35. Kd3 Hc5 36. Hxa HxH 37. BxH Bxb 38. a4 Kf8 39. Bc3 BxB 40. KxB Ke7 41. Kd4 Kd6 42. aö f6 43. a6 Kc6 44. a7 Kb7 45. Kd5 Il4 46. Kc6 gefið Fyrir sykursjúka Niðursoðnir ávextir, marmelaði, sykur, saft, hrökkbrauð, súkkulaði og konfekt. VERZLUNIN ÞÖLL, Veltusundi 3 (gegnt Hótel Islandsbifreiðastæðinu). Simi 10775. Til sölu — Til sölu Einbýlishús og sérhæðir í Kópavogi. Stórglæsileg sérhæð með bílskúr í Hafnarfirði. í skiptum 110 fm hæð í Lækjum fyrir minna í Lækjum, Heimum eða Laugarás. I skiptum í Vesturbæ 120 fm fyrir 3 herbergi í Háaleiti, Hvassa- leiti eða Mýrum. Vantar góðar 2ja og 3ja herbergja ibúðir — í sumum tilfellum STAÐGREIÐSLA. FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN AUSTURSTÆTI 12. Símar 20424 — 14120. — Heima 85798. Vei varið hús fagnar vori.... VITRETEX heit/r plastmálningin frá SUPPFÉLAGINU. Hún ver steinveggi gegn vatnsvedrum haustsins og frosthörkum vetrarins. VITRETEX plastmálning myndar óvenju sterka húð. Hún hefur þvi framúrskarandi veðrunarþol. Samt sem áður ,,andar" veggurinn út um VITRETEX plastmálningu. Munið nafnið VITRETEX það er mikilvægt - þvi: endingin vex með ViTRETEX rBukÁiii Framleiðandi á íslandi: S/ippféfagið íReykjavíkhf Málijingarverksmidjan Dugguvogi — Símar 33433 og 33414 Fischer — Larsen: 5. skákin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.