Morgunblaðið - 21.07.1971, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1971
11
Einar Sveinn Erlingsson: r
Bréf f r á Astr alí u
MÉR DATT í hug að ýmsum
löndum mínum þætti gaman að
fá fréttir frá Ástralíu. Ég hef
búið hér í landi um 3ja ára
skeið og þykist hafa kynnzt
landsháttum lítillega. fslending
ar hér í Perth munu vera um
120. Vegnar þessu fólki sæmi-
lega eða eins og hægt er í þessu
hagkerfi. Fiest fjölskyldufólkið
ér að kaupa hús og er algeng út
borgun um 10—20% húsverðs-
ins, en lánastofnanir sjá um af
ganginn.
Lánastofnanir þessar eru gey-si
öflugar og standa á gömlum
merg. — Vextir af lánum
til húsakaupa eru um
6—12% eftir því, hvað mik-
inn hluta liúsverðsins þarf að
fá lánaðan. Aliir keppast við a.1
mata þessar lánastofnanir. Því
er það algengt hér í landi að
húsmæður vinni úti til að
breikka bilið milli þessarar
„mannætu" er allt vinnandi
fólk verður að egna á sig ætli
það að freista þess að eignast
hús yfir höfuðið. Verð á hús
um er hér mjög hátt (algengt
verð á 3ja herbergja húsi er um
15 til 16 þúsund dalir eða um
IVz milljón kr.), þegar haft er
í huga, hvað hægt er að spara
hér til húsa, svo sem hitalagnir,
einanigrun, tvöfalt gler og oftast
eru þau afhent ómáluð að inn
an og oft ekki dúkar á gólfum.
Eins eru innréttingar mjög af
skornum skammti og allur frá-
gangur lélegur miðað við það,
sem við eigum að venjast á ís-
landi í þeim efnum. Gætu okk
ar háþróuðu byggingameistarar
kennt þeim margt hérna megin
á hnettinum.
Verðbólga virðist vera að
renna á hérna, en ekki mun hún
borga skuldir manna eða gera
þær að engu, eins og gerðist
á íslandi, því að allt er vísitölu
tryggt í bak og fyrir. Já, ekki
gerðu allir sér grein fyrir, hvað
þeir áttu þessairi skuldaætu að
þakka og spörkuðu oft í hana
að óverðskulduðu.
Náttúruauðæfi eru mikil hér
í Vestur-Ástralíu og raunar
meiri en nokkur hefur hugmynd
um, og eru þeir svo til nýbyrjað
ir að hagnýta þau. En sá galli
er á, að þeir hafa notað mikið
erlent fjármagn til að hrinda
þessum framkvæmdum af stað
og kemur því tiltölulega lítill
hluti gróðans inn í landið. Marg
ir námubæir hafa risið upp í
kringum þessa starfsemi og ber
þar hæst Mount Newman og
Tom Price í járnvinnslunni. Þá
hafa þeir fundið mikinn nikkel
í Kambalda, sem er um 40 mílur
frá Kalgoorlie, gullborginni
frægu, er átti mikinn þátt í
mannflutningunum til Vestur-
Ástralíu á sinum tíma.
Ekki er hægt að sjá á ytra
útliti staðarin-s, að þama renni
gullið upp úr jörðinni og ber
mest á fremur illa hirtum görð
um og húsum og finnst mér stað
urinn hinn sóðalegasti, er ég
hef séð i Ástralíu. Kambalda er
aftur á móti nýr Og þrifalegur
bær og er byggður algjörlega
upp af Western Mining-félaginu
er vinnur þarna nikkel úr jörðu
af miklum krafti. Allgott er að
vinna fyrir þessi námufélög og
gera þau mjög vel við siitt fólk,
en galli er á fyrir fjöiskyldu
fólk, sem hefur unglinga í skól
um, því að á þessum stöðum
eru aðeins bamaskólar.
Eyja er nefnd Barrow Island
og er um 900 mílur fyrix norðan
Perth og um 100 mílur undan
ströndum. Þana fannst mjög góð
olía fyrir skömmu. Ég starfaði
þarna um nokkurra mánaða
skeið sem vélstjóri á flutninga-
skipi, og var starf okkar fólgið
í að flytja matvæli og tæki út
í eyjuna. Skip þetta, sem ég var
á, líktist mest innrásarpramma
eins og þeir gerðust í siðasta
stríði og keyrðum við þennan
flatbotnaða dall á land og var
hann opnaður að framan, svo
hægt var að aka tækjum út og
inn í hann. Aðgrynni er þarna
mikið og yrði óhemjudýrt að
byggja höfn, svo að þessi lausn
þótti heppilegri. Skip þau er
lesta olíuna verða að liggja um
4 mílur undan eynni og kemur
sér vel hin góða veðrátta, en
sjór er hér spegilsléttur allt ár
ið um kring.
Japönsk skip komu hér alloft
með olíuleiðslur, og losuðum við
þau á hafi úti, en eins og kunn-
ugt er, kaupa Japanir mikið af
járngrýti frá Ástralíu, og ekki
er ósennilegt að rör þessi séu
úr áströlsku efni. Iðnaður hér í
Vestur-Ástralíu er skammt á
veg kominn og selja þeir svo til
al'it sitt hráefni úr landi óunn
ið. Mikið ber hér á japönskum
vörum og þykir Áströlum nóg
um. Þeir gera allmikið til að fá
fólk til að kaupa ástralska fram
leiðslu, en þetta gengur hálfilla,
þegar hægt er að fá japanskar
vörur betri og ódýrari, og skell
ir fólk gjarnan skollaeyrum við
aðvörunum þessum (en auðvit
að ógna þeir iðnaðinum í hvert
sinn, er þeir hafna honum og þá
afkomu sinni um leið).
FASTBACK '69
Til sðlu Mustang Fastback, árgerð 1969, nýinnfluttur.
Til sýnis og sölu eftir klukkan 8 í kvöld á Sólheimum 10,
sími 85189.
FERÐAKLmVRIM
BMimm
Hdlendisierð
Lagt verður af stað föstudaginn 6. ágúst, komið sunnudaginn
15. ágúst.
Norður Kjöl, Blöndudal, Svartárdal og eins og leið liggur til
Mývatns, þaðan Herðubreiðarlindir, Dyngjufjöll (Askja), Hóls-
fjöll, Dettifoss, Forvöð og Vestralandsbjörg, Hólmatungur,
Hljóðaklettar, Ásbyrgi, kringum Tjörnes, gist í Laxárdal, ef ekki
verður búið að sökkva honum. Bárðardalur, Sprengisandur,
Tungnafellsjökull, Veiðivötn, Þóristungur, Jökulheimar og heim.
Klúbbfélagar eru beðnir að panta fyrir sig og gesti sína sem
fyrst, því þegar eru margir búnir að skrá sig.
Ferðaklúbburinn Blátindur,
Austurstræti 14.
Þorleifur Guðmundsson,
símar 16223 og 12469.
En það eru fleiri en Ásjlröl-
um, er stendur ógn af japanska
iðnaðarveldinu, jafnvel Banda-
ríkjamenn, feður sjálfvirkninnar
og hins háþróaða iðnaðar, eiga
í vök að verjast fyrir þeim gulu,
er sækja æ fastar á mið fram-
leiðandans méð æ betri vöru.
Ástralir eiga bágt með að líta
Japani réttum augum, eftir hina
hömulegu meðferð þeirra á ástr
ölskum stríðsföngum og þarf
engan að vmdra. Samt virðist
þetta ekki hafa háð viðskipta-
lífinu.
Mjög lítið ber á lituðu fólki
hér í Ástraliu, enda er landið
lokið fyrir því. Það eru aðeins
hinir áströlsku aborigine
blökkumenn, sem sést bregða
fyrir og ber mest á þeim í N-
Ástralíu. Stjórnin gerir talsvert
fyrir þetta fólk, sem er ekki
vinnugeíið, en ótalinn fjöldi
þess lifir ennþá vill'tu lífi og
hefur ekki komizt í snertingu
við hina svokölluðu menningu.
Sagt er að þessi frumstæðasti
maður á jörðinni geti lifað þar
sem engum öðrum er fært
vegna hita og vatnsleysis. Fólk
þetta, sem kom frá Ásáu fyrir
ótöldum öldum lifir margt sams
konar lífi og forfeðurnir. Það
hefur aðlagað sig landinu á
undraverðan hátt, svo sem að
geta lifað vatnslaust í eyði-
mörk aðeins á þeim safa, er það
nær úr rótum jurta. Er sagt, að
ein vörn þess fyrir sólinni sé
hið fræga boomerang-vopn
þess. Missi það marks, er því
er kastað að bráðinni, fer það
í hring og sparar þannig veiði
manninum göngu eftir því í
brennandi sólinni. Aborigine-
maðurinn er ekkert skyldur
Afríku-negranum og sannast það
bezt við blöndun hvita manns-
ins. Hverfa einkenni hans smám
saman við blöndunina, og er
ekki ólíklegt að hann hverfi eít
ir þvl sem álfan byggist.
Oft hef ég heyrt talað um
hér í Ástralíu að hætta sé á,
að kengúrunni verði útrýmt, en
vonandi verður henni bjargað,
áður en of seint er. Væri skaði
að, ef Ástralía týndi þessu sér
kennilega einkenni sínu.
Ástralir sækja pubbana mjög
vel og á loftslagið sinn þátt í
því, enda er mjög gott að fá sér
svalandi bjórglas eftir heitan
dag. Ekki ber mikið á fylliríi á
þessum stöðum, en þó meira en
á Bretlandseyjum, þar sem mað
ur sá varla drukkinn mana —
Minnist ég þess frá stríðsárun
um, að oft var gaman að koma
þar í land og taka þátt í þeirri
sérstöku stemningu, er ríkti á
þessu öðru heimili Bretans. All
ir sungu án tillits til hæfileika
og brandararnir voru látnir
fjúka og var oft hlegið dátt.
Það er persónuleg skoðun mín,
að á þessum stöðum, er fólkið
náði svo vel hvert tii annars,
hafi það einnig öðlazc þann
kjark og samstöðu, er þurfti til
að sigra hinn hættulega andstæð
ing, þýzka nasistann. Og sé svo
að pubbinn hafi eitthvað að
gera með að stilia saman
strengi fólks, gæti hann líka
komið okkur ísl-endingum að
gagni, jafnframt því að bjórinn
gæti orðið drjúgur útflutnings-
liður. Nú, jafnvel þótt þetta
kostaði, að Bakkus konungur
næði aftur nokkrum templurum
á sitt vald, ættum við samt að
hætta á það.
Tilboð óskast
í Dodge darta 1970, skemmdan eftir veltu.
Bifreiðin er til sýnis að Bílaverkstæðinu Múla, Hamarshöfða 10
Bifreiðin selst í núverandi ástandi.
Tilboð sendist Hagtryggingu hf. fyrir kl. 17.00 23. þ. m.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Skrifstofustarf
Óskum eftir að ráða skrifstofustúlku sem fyrst til vélritunar
og annarra skrifstofustarfa.
Hnskukunnátta æskileg. — Gott kaup.
Nánari upplýsingar í skrifstofu okkar.
PÁLL JÓH. ÞORLEIFSSON HF.,
Skólavörðustig 38. Símar 25416 og 25417.
Gler
er
ekkert
grín!
Spaug og spé á ekkert erindi í bílaglers-
framleiðslu. [ þeirri grein verða menn að
taka sjálfa sig alvarlega. Það gera fram-
leiðendur Tudor bílaglersins. Það hefur
reynslan sýnt og sannað. í þeirri vöru
finnst ekkert spé og örýggið er innbyggt
í gler þeirra.
Glerverkstæði okkar býður yður því ein-
ungis Tudor öryggisgler í bílinn. Með því
mæla okkar þrautreyndu fagmenn í gler-
vinnslu. Þeim treystum við, og til þeirra
er yður einnig óhætt að leita, vanti yður
gler í bílinn. Þeir vita að bNagler er ör-
yggisatriði, því á það reynir á hættu-
stund — og þá verður það að standa sig.
Allt á sama staó Laugavegi 118 - Simi 22240
EGILL.
VILHJALMSSON HF