Morgunblaðið - 21.07.1971, Síða 12

Morgunblaðið - 21.07.1971, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1971 Fallvaltri stjórn steypt í Súdan SÍÐAN herforingjar undir forystu Jaafar Nimeris hers höfðingja brutust til valda í Súdan 25. maí 1969 og mynduðu byltingarstjórn, hafa þeir átt fullt í fangi með að halda völdum sín- um vegna andstöðu öfga- manna til hægri og vinstri. Andstaða kommúnista hef- ur nú orðið Nimeri og stjórn hans að falli, en lít- ill vafi leikur á því, að hann naut töluverðrar hylli í Súdan, og var hon- um jafnan vel fagnað á ferðum hans um landið. Nýlega sagði hann við blaðamenn, sem komu í heimsókn: „Nú tölum við ekki meira um stjórnmál í kvöld. Við skulum heldur tala um viskí.“ Nimeri og herforingjar hans urðu fyrst að brjóta á bak aftur mótspyrnu öfgasinnaðra Múhameðstrúarmanna undir forystu madisins, sem er af- komandi hins kunna andstæð- ings Breta í orrustunni við Omdurman fyrir aldamótin o,g leiðtogi Ummaflokksins, sem hefur jafnan verið áhrifamik- ill i súdönskum stjórnmálum. Uppreisn, sem þeir gierðu síðla árs 1969, var fljótlega brotin á bak aftur. Stuðnings- menn madisins voru einangr- aðir og bornir ofurliði á eynni Aba á Hvitu Níl. Eftir þetta einbeittu Nim- eri og „ungu liðsforingjarnir" sér að því að berjast gegn kommúnistum, og komst sú barátta á alvarlegt stig í nóv- ember í fyrra. Maghoub, aðal ritari kommúnistaflokksins, og tugir kommúnistaieiðtoga voru handteknir. Þremur af 11 ráðherrum byltingarstjórn arinnar var vikið frá af þvi að þeir voru kommúnistar eða áhangendur þeirra. Kunn astur þessara þriggja ráð- herra var innanríkisráðherr- ann, Hamadailah majór, sem hefur komið mikið við sögu byltingarinnar nú. Hann hafði lýst yfir: „Ógerningur er að fram- kvæma sósíalisma án hj'álpar kommúnista sem einstaklinga og verkamanna sem stéttar." • STRÍÐSYFIRLÝSING Útvarpsræða sem Nimeri hershöfðingi hélt í febrúar jafngilti stríðsyfirlýsingu á hendur kommúnistum. Hann sagði: „Ekkert getur lengur rétt- lætt tilveru kommúnistaflokks ins. Flokkurinn hefur fyrir löngu einangrað sig, og félög- um hans verður vikið úr öll- um embættum i ríkissjórn- inni, embættismannastjórn- inni og verkalýðshreyfing- unni. Kommúnistaflokkurinn hefur reynt að skaða efna- hagslíf landsins, einingu þjóð- arinnar og samskiptá við er- lend ríki. Hann hefur beitt sviksamlegum og viðurstyggi legum aðferðum, fótum troð- ið hugsjónir okkar og grund- vallarreglur og ekki hi'kað við að stunda glæpsamlega starfsemi og undirróður til þess að ná fram markmiðum sínum. Upp frá þessu verður hver sá sem lýsir sig komm- úniista eða félaga í flokknum knésettur. Það er skylda sér- hvers borgara að útrýma þeim . . .“ Áhrif kommúnista ógnuðu völdum Nimeris alia tíð, þótt hann bannaði flokk þeirra fljótlega eftir valdatökuna. Kommúnistar hafa haft menn i mikilvægum valdastöðum á ýmsum sviðum og verið nokk urs konar riki.í rí'kinu. Flokk ur þeirra er talánn stærsti kommúnistaflokkur í Arba- heiminum með um eina mil'lj- ón félaga, þótt virkir komm- únistar séu aðeins taldir um 5000. Þrátt fyrir brottvikn- ingu hinna þriggja ráðherra í fyrra, héldu sjö kommúnist ar eða áhangendur þeirra sæt um sínum i stjórninni, enda tóku þeir afstöðu gegn Mah- goub aðalritara, sem hins hefur að mestu farið í kaup á hergögnum, sem hafa streymt til landsins síðan Nimeri tók völdin. Marxistinn og blökku maðurinn Josef Ganang, sem fór með mál Suður-Súdans í stjórn Nimeris, var líka tal- inn manna líkiegastur til þess að geta bundið enda á uppreisn sunnanmanna og stuðlað að sáttum við blökku- menn. Ekkert lát er á baráttu biökk'umanna í Suður-Súdan gegn Múhameðstrúarmönnum úr norðri. Enn eiga fjölda- morð sér stað og stöðugur straumur flóttamanna er til nágrannalandanna Uganda, Kongó og Eþiópiu. „Við erurn útilokaðir frá ábyrgðarstöð- um, reynt er að þröngva okk- Nimeri h<krshöfðingi. • v - ■ ÉLMU- mmm l'ppreisnarmenn í Snðiir-Siidan. vegar nýtur stuðnings yfir- gnæfand'i meirihluta ó- breyttra kommúnista. Þessir sjö ráðherrar hafa krafizt þess í vaxandi mæli að undan förnu, að mynduð yrði „þjóð fylking" með þátttöku komm únistaflokksins, sem yrði leyfður á ný. Áhrif kommún- ista hafa aukizt mikið meðal atúdenta að undanförnu, og ’iáskólinn í Khartoum hefur verið lokaður siðan í apríl vegna mótmælaaðgerða og óeirða. • SOVKZK AOSTOO Stuðingur Rússa við Nim- eri, fyrst og fremst stórfelld hernaðaraðstoð, hefur vakið furðu í ljósi baráttu hans gegn kommúnistum og hún hefur sett þá og önnur komm- únistaríki, sem hafa veitt honum stuðning, í nokkurn vanda. Ráðunautar og ýmsir fulltrúar frá kommúnista- löndum hafa fjölmennt til Súdans síðan Nimeri tók völd in, og er á það bent að starfs menn austur-þýzka sendiráðs ins eru 250. Áhrifamenn í Súd an hafa verið uggandi vegna þess hve landið hefur sífellt orðið háðari kommúnistalönd um og aðstoð þeirra. Barátta Nimeris gegn kommúnistum heima fyrir var skoðuð í ljósi þess að hann vildi iosa um hin nánu tengsl við kommúnistarikin. Stuðningur kommúnista heima fyrir og utanaðkom- andi aðstoð kommúnistaríkja hafa hins vegar verið taidn nauðsynleg vegna borgara- styrjaldar þeirrar sem hefur geisað í Suður-Súdan síðan 1956. Arðurinn af út'flutningn um til kommúnistaiandanna ur til að taka múhameðstrú og tala arabísku, við höfum ekki sömu menntunaraðstöðu, fólk okkar er kúgað og ofsótt. Efnahagsiíf Suður-Súdans er vanrækt,“ segir í yfirlýsingu frá blökkumönnum. Ríki blökkumanna í Afríku hafa samúð með uppreisnarmönn- um, en óttast að láta hana í ljós tii þess að spilla ekki fyr ir einingu Afríku. Ýmsar kirkjustofnanir og frjáislynd öfl á VesÞurlöndum styðja uppreisnarmenn. En mest munar um stuðning Eþíópíu og ísraels. Israelar þjáifa uppreisnarmen.n og útvega þeim vistir og hergögn. Eþíó- píumenn senda fiUigvélar hlaðnar vistum og hergögn- um, sem aðallega hafa verið tekin herfangi af múhameðsk um uppreisnarmönnum í Eritreu. • VERSNANDI ÁSTANI) Ástandið í Suður-Súdan fer versnandi, og er ekki hægt að ferðast út fyrir setuliðs- bæi án herverndar. Stjórnin hefur smám saman reynt að skipa fleiri blökkumenn í ábyrgðarstöður. Rússar hafa aðstoðað við stækkun flug- vallarins i aðalbænum, Juba, en ekki virðist um viðtæka aðstoð af þeirra hálfu að ræða. Rússneskir l'eiðbeinend ur og ráðgjafar eru í Suður- Súdan, en þeir stjórna ekki hernaðaraðgerðum. Garang, sem nú er líklegt að verði jafnvel áhrifameiri en áður, hefur tekið sér kommúnista Austur-Evrópu tiil fyrirmyndar í ýmsum til- raunum sem hann hefur gert Kortið sýnir Súdan. til þess að breyta ástandinu í Suður-Súdan og binda enda á aðskílnaðarstefnu blökku- manna. Ungir menn, þjálfaðir í Au.stur-Þýzkalandi haía tek ið að sér að stjórna æskulýðs hreyfingu blökkumanna. Ga.r- ang sagði nýlega, að innan skamms yrði hafizt handa um að slkipuleggja ýmiss kon ar „félagsstarfsemi“ í þorp- um Suður-Súdans, þar sem flestir í'búarnir búa. Stjórn Nimeris fylgdi sáttfúsari stefnu i garð blökkumanna en fyrri stjórnir, sem létu brenna þorp og stóðu fyrir fjöldamorðum. Allf jölmennir hópar hafa snúið aftur til heimila sinna úr felustöðum í frumskógum og fenjasvæð- um og hafið fyrri störf. Gar- ang hefur heitið þvi, að Suð- ur-Súdan fái sjálfstjórn eftir þrjú ár, en blökkumenn eru vantrúaðir á að það loflorð verði efnt. • HARÐAR AÐGERDIR Þegar Nimeri skar upp herör gegn kommú.nistu.m fyrr á þessu ári var ein helzta ástæðan, að sögn hans sú, að þeir voru andvígir þátttöku Súdans í fyrirhuguðu ríkja- sambandi Egypta, Sýrlend- inga og Libýumanna. Ýmis- legt annað en harðnandi bar- átta gegn kommúnistum sýndi, að Nirneri færðist stöð ugt meir í hægri átt, meðal annars það að hann náðaði Múhameðstrúanme'nn úr Ans- ar-sértrúarflokknum, sem gerðu uppreisn í fyrravor og leysti þá úr haldi. Á byltingarafmælinu í maí gekk Nimeri skrefi lengra í baráttunni gegn kommúnist- um og tilkynnti að verkalýðs- félög, stúdentafélög, kvenfé- lög og æskulýðsféiög yrðu endurskipulögð eða leyst upp. Hann boðaði um leið stofnun hreyfingar, Sósíalistasam- bandsins, sem ætti að afla stjórninni aukins stuðnings, þar sem hún hefði treyst u.m of á stuðning hersins. Með þessu bjó hann í haginn fyr- ir víðtækar breytingar, sem hafa átt sér stað á undanförn um vikum og leitt til falls hans. Hann greip tii harka- legra ráðstafa.na til þess að þagga niður í áhrifamönnum kommúnista, og voru 70 kommúnistar handteknir í júní, þar á meðal nær öil mið stjórn flokksins og 130 komm únistar voru settir undir eftir lit. „Kommúnistar hafa sí- fellt reynt að spilla fyrir starfi okkar siðan í m,ai 1969,“ sagði talsmaður Nimeri- stjórnarinnar nýlega, en hin- ar harkaiegu ráðstafanir gegn kommúnistum hafa orðið tii þess að stuðningsmenn þeirra hafa tfiikið völdin. G.H.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.