Morgunblaðið - 09.09.1971, Qupperneq 4
4
MORGUNBCAÐÍÐ, FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1971
A
*
k
/77 IttLA I.EMm.l X
ÍA.LURr
HVERJFISGÖTU103
VW tsniMrtffnil-VW 5 mimí -VWwefiw^
VW 9 murn -landrovar 7 muna
IITf A
BÍLALEIGAN
Bergstaðastrsti 13
Sími 14970
Eftir lokun 81748 aða 14970.
8ÍLA1EIGA
CAR RENTAL
TZ 21190 21188
I
BÍLALEICA
Keflavík, sími 92-2210
Reykjavik — Lúkasþjónustan
S ^'1'la.idsbraut 10. s. 83330.
LEIGUFLUG
FLUGKENNSLA
FLUGSTÓÐÍN HF
Simar 11422. 26422.
Bilaleigan
SKÚLATÚNI 4SÍMI15808 (10937)
Ódýrari
en atJrir!
SnoDfí
LEICAM
AUÐBREKKU 44-44.:
SIMI 42444.
§ Bætir bætiriim ekki?
Bóbert Pétursson skritfar:
„Reykjavík, 19. júlí 1971.
Kæri Velvakandi!
Við, sem eigum bíla, hljót-
um að íylgjast vel meS því,
sem auglýst er ai varahlutum,
olíum og hvers konar þjóra-
ustu við bíla okkar. Margt af
þvi, sem auglýst er, á vafa-
laust ekki heima hér, þar sem
veðráttaui og vegir eru vissu-
lega meS öðrum hætti en
eriendts.
Eitt af því, sem auglýst hef-
ir veriS mikið, eru oliuvörur
með STP-merkinu. Nærtækt
dæmi er STP-oliubætir.
Ekki veit ég, hvort þetta,
sem ég ætla að bera fram
spurningu um, heyrir undir
FlB (Félag ísienzkra bifreiða
eigenda) eða Neytendasamtök-
in, — eða hvers vegna ekfci
báða aðila? Báðir telja sig bera
fyrir brjósti hagsmuni almenn
ings, en FlB að sjáifsögðu fyrst
o.g fremst félagsmanna sinna og
bifreiðaeigenda í heild.
1 bandaríska vikuritinu
„Newsweek" 28.6.’71, var birt
grein, þar sem skýrsla frá
Neytendasamtökunum (Con-
stimers Report) varar við
Hópferðir
Tii leigu ? lengri og skemmri
ferðir 8—?0 farþega bíiar.
Kjartan Ingimarsson
sími 32716.
notkun STP. Þar að auki 1
tveimur dönskum bílablöðum,
Skandinavisk Motor-Joumal
nr. 6/69 og Forenede Danske
Motorejere 2/8/69, sem að því
er mér skilst er getfið út á veg-
um bifreiðaeigendafélaganna
dönsku, eru ISka birtar grein-
ar um notagildi STP-olíubæt-
is, og þar er einniig tekin
ákveðin afstaða gegn notkun
hans.
Fróðlegt væri að heyra,
hvort til dæmis Neytendasam-
tökin hér viðurkenndiu grein-
ar í svo augljóslega viður-
kenndum timaritum og einnig
hvort FlB viðurkennir sMk
tímarit, er þau fjalla um slik
mál. Bifreiðaeigendur hljóta að
eiga kröfu á, að fá úr þvi skor
ið.
Róbert Pétursson,
Bóistaðarhlíð 50,
Reykjavík".
0 Enn um hundana
Eins og sjá má af næstu
tveimur bréfum, eru menn enn
að hugsa um hundamálið, þótt
endanleg ákvörðun hafi verið
tekin.
H.jálmar Jónsson í Possvogi
skrifar:
„Kaeri Velvakandi!
Ég ias grein í dálkum þín-
um frá Guðrúnu Jónasdóttur,
sem ég þakka henni hjartan-
lega fyrir að hafa skrifað. Ég
tek fyliilega undir hennar orð.
Hvað ætla ráðamenn að láta
þetta málaþras standa lengi?
Eru þeir smeykir við þessa fá-
mennu kliku, sem að þessu
hundahaldi stendur? Það er lít-
iii hluti af allri þjóðinni. Nei,
góðu menn. Þið skuluð hugsa
mál ykkar áður en þið leytfið
hundahald í Reykjavilkurborg.
Hér, þar sem ég bý, getur mað-
ur ekki sofnað fyrr en eftir
Nýit einbýlishús
Til söiu í Þodákshöfn.
Fyrirspurnir berist blaðinu fyrir 15. þ,m., merkt: „Nýtt 5842".
Af œlingamenn
Óskum að ráða mælingamenn fyrir vegagerð á Suðurlandsvegi.
ISTAK
Suðurlandsbraut 6,
Simi 81935, kl. 8,30—16,30.
Útboð
Tilboð óskast í vegalagningu frá Grafningsvegi að væntanlegu
sumarbústaðahverfi Starfsmannafélags Reykjavíkurtoorgar víð
Úlfljótsvatn.
Útboðsgögn fást afhent á skrifstofu Starfsmannafélags Reykja-
víkurborgar í Tjarnargötu 12 (bakhús) næstu daga kl. 16,30—
18,00.
Tilboðin verða opnuð þar föstudaginn 24. sept. n.k. kl. 17,00.
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar.
miðnætti vegna hundagelts. Og
hvemig haldið þið að það yrði
i stórum sambýlishúsum, etf
leyfa setti hunda á tveimur eða
þremur hæðum í húsinu? Það
væri alveg óhætt að loka fyr-
ir útvarp og sjónvarp i þeirri
bloklk. Það er alltaf verið að
skora á borgarana að halda
borginni hreinni og án meng-
unar, en svo kemur þetta fólk
og vill saurga hana. Nei, góðu
menn, burt með alla hunda af
borgarsvæðinu. Annars fer
iila, og þið munuð iðrast þess.
Við viljum hafa frið I okkar
íbúðuim, við viljum hafa hreina
borg, oig við viljum vera laus
við mengun. Að lokum þetta:
Þiði, ráðamenn, ef þið leyfið
hundahald í borginni, fáið þið
marga mótmælendur 4 móti
ykkur, og mér þætti það ekk-
ert óliklegt, að það yrði ykk-
ur ertfið ganga um ókomna
framtið. Með þökk fyrir birt-
inguna".
— Nú, en þetta er allt
í bezta lagi, Hjálmar góður,
borgarstjórn stóð fast við fiyrri
ákvarðanir, eins og aliir munu
vita.
Fimmtud. 2. september 1971.
§ Gott er að búa
í Hafnarfirði,
segir Sigurveig Giiðmunds-
dóttir og skrifar siðan:
„Svo er að sjá af opinberum
tillkynningum, sem hin vinsam-
legu yfirvöld í Hafnarfirði
hafi leyst hundavandamál vor
af sannarlegum Salómonsvís-
dómi. Væri þvi ekki undarlegt,
þó að ýmsum hundavinum í
Reykjavík dytti í hug að nema
iand í HaLfnarfirði.
Veri þeir velkomnir —. Dýra
vinir eru gott fólk, og eru
dæami um það í þjóðsögum, að
menn hafi komizt til himnarík-
is fyrir það eitt að vikja mat-
arögn að músaranga. — Nú er
þjóðsagan samþjöppuð vizka al
mennings i landinu, og má af
þessu álykta, hversu góða
heimvon þeir muni eiga, sem
bjarga lífi hunds, því að varla
mun nokkur telja hund mein-
dýr á borð við mús.
0 Verður starsýnt
á vallganginn
— Meðal annarra orða: Það
virðist einkennilega ríkt í ýms
um íslenzkum ferðamönnum að
verða starsýnt á vállgang
manna og dýra erlendis, þar
sem þeir koma. — Þetta
er mjiög merkilegt rannsókn-
arefni. Til dæmis heyrði ég
ferðasögu íslenzka, frá París
fyrir nokkru. Fólik þetta kom
meðal annars I hið heimsfræga
listasafn í Louvrehöllinni. —
Hvað sáuð þið þar eftinmitmi-
legast? spurði ég. Þao sögðu
þá langa sögu um itla og
óskynsamlega sta&setningu náð
húsá í tétiu listasafni. og
hversu þeim þótti gaman að
komast á kamra þessa, þegar
þeir loksins fundust. Annað
virtust f erðalangarn ir ekári.
hafa lagt á mirmið frá heim-
sókninni í Louvre. Þetta er
likt hugarfar og hjá þeim, sem
eru sivaðandi í hundaskSt,
hvar sem þeir fara erlendis.
0 Meira samband við
náttúrima í Hafnarfirði
Viðvíkjandi meinbri innrás
reykviskra hundaeigenda í
Hafnarfjörð, þá er rétt að
benda á, að Hafnfirðingar geta
verið í nánara sambandi við
náttúruna en Reykvikingar.
Hér þarf ekki að eiga bíl til
þess að komast þrautalítið inn
á alveg ósnortið land, t.d. má
klifra eftir girðingatröppum
Einars á Setbergi, þess merka
bónda, og ganga síðan milli
hrauns og hlíða með hundinn
sinn, alla leið að Beitarhúsa-
brekiku og Kershelli. Böm og
hundar verða beiníínis forkiár
uð á þeirri leið. — Þeir, sem
eru að skokka af sér menning-
arbyrðina, eiga það til svona
innst inni, að láta sér hálfieið-
ast þvílikt erindislaust fiakk,
sem einu sinni hefði verið kall-
að svo. En það er einn, sem
verður það yfir sig hrifinn atf
brokki húsbónda síns, að
hvaða hjassi sem er hlýtur að
hlaupa léttar. Þessi eini er
hundurinn. Enginn förunautur
er á við hann, uppi á Hlíðar-
þúfum og Asfjalii eða suður i
hraunum.
0 „Reykvíkingum
bannaður aðgangur“
Það er gott, að tímamir hafa
breytzt frá þvi ég var ung. Þá
voru haldin svo fin böll í
Hafnarfirði að þetta var aug-
lýst: „Reykvikingum bannaður
aðgangur". — Nú er önnur tíð.
Allir Haínfirðingar, lærðir sem
leikir, standa nú glaðir á gægj
um eftir hundavinunum góðu
£rá Reykjavík sem fara nú að
flytjast í þann hýra Hafnar-
fjörð.
| Einn mesti og varanlegasti
unaðsigjafi lifsins er sam-
band mannsins við lifandi og
ósnortna náttúru, þar sem sál-
in Lofar Almættið í kyrrð og
næði með börnum og hundum.
Sigurveig Guðmundsdóttir,
Hvertfisgötu 52 B,
Hatfnarfirði".
TIL ALLRA ATTA
NEWYORK
Alla daga
REYKJAVfK
OSLÓ
Mánudaga
Miðvikodaga
Laugaidaga
KAUPMANNAHÖFN
Mánudaga
Miövkudaga
Laugardaga
L0FTLEIDIR
»