Morgunblaðið - 09.09.1971, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUÐAGUR 9. SEPTEMBER 1971
21
Helzta vandamálið
skortur á starfsfólki
Rætt við Laurids M. Knutzen
yfirmann Hjálpræðishersins
í Evrópu
YFIRMAÐUR lijálpræðishws-
ins í Evrópu, Laurids M.
Kmitzen, kom hinjíað til lands
fyrir nokkrum dögum ásamt
konu sinni, og hafa þau hald-
ið samkomur á Akureyri og
ísafirði. í gær komu þau svo
til Reykjavíkur og ætia að
stjórna hcr fjórum samkomum
á vegnm Hjálpræðishersins.
Þau eru bæði af dönsku bergi
brotin, en liafa um langt
skeið verið búsett í London.
Knutzen tók við embætti scm
yfirmaður Hjálpræðishersins í
Evrópu fyrir tveimur árum
síðan, en Hjálpræðisherinn
telur yfir 60 þúsund meðlimi
í þeim tólf löndum sem hann
starfar í Evrópu.
Blaðamaður Mbl. hitti Knut-
zen að máli í gær, og spurði
hann fyrst hver væci tilgang-
urinn með ferð hans hingað.
— Ég kem hingað fyrst og
fremst til þess að kynnast
landi og þjóð. Þetta er í fyrsta
skipti sem ég kem hingað til
lands, en ég hef lengi haft
áhuga á því, reyndar allt frá
því í aesku, þegar mig
dreymdi um að sjá þetta land
sem Gunnar Gunnarsson
skrifaði um í bókum sínum.
Einnig langaði mig mjög til
að sjá þá aðstöðu sem okkar
fólk býr við hériendis
— Mitt álit er, að við höf-
um hér á landi mjög öflugan
Hjálpræðisher, sem kemur til
móts við ýmsar þarfir í þjóð-
félaginu, þótt ek'ki beri mikið
á því. Ef Hjálpræðisherinn
væri hins vegar eklki til stað-
Laurids M. Knutzen
ar, held ég að fólkið fyndi
strax fyrir því. Hjálpræðis-
herinn hér hefur ekki aukist
tölulega, á undanförnum ár-
um, en það starf sem hann
vinnur hér nú er betra en það
hefur nokkurn tímann verið.
Við verðum að samræma
störf okkar lifnaðarháttum
fólks á hverjum tíma, og ég
hef lagt á það áherzlu við fc-
laga mína í Hjálpræðishern-
um, að við verðum að fylgja
tímanum. Það sem ég hef
kynnzt af starfsemi Hjálp-
ræðishersins hér á landi lofar
mjög góðu um vakandi starf,
en þar með er ég ekki að segja
að við getum gert betur.
— Stærsta vandamálið hér
er ekki fjárskortur eins og
víða er, heldur skortur á
starfsfólki, þ. e. íslenzku fólki.
Við höfum lengi þurft að
senda hingað útlendinga, þá
helzt frá Noregi, en það fólk
verður ekki verulega virkt
fyrr en eftir langa dvöl hér,
vegna kunnáttuleysis í mál-
inu. Þetta er að mínu áliti það
sem helzt stendur í vegi fyrh
öflugu starfi hér á landi.
— Er ísland eina landið þar
sem þið eigið við þetta vanda-
mál að stríða?
— Nei, Island er ekki eina
landið þar sem við mætum
þessum erfiðleikum, heldur er
svo víða í Evrópu. Jafnvel í
Englandi er ekki nægum
manmafla til að dreifa, en í
því landi liggja rætur Hjálp-
ræðishersins hvað dýpst, enda
var hann stofnaður þar fyrir
rúmum hundrað árum síðan.
— Að seinustu vil ég bera
íslendingum minar innileg-
ustu þakkir fyrir þann velvilja
sem þeir hafa sýnt Hjálpræð-
ishernum, og fyrir þá hjálp
Sem þeir hafa veitt. Enn-
fremur er ég þakklátur stjórn-
völdum landsins fyrir þann
skilning sem þeir hafa sýnt
málstað okkar og þeim stuðn-
ing sem þau hafa veitt starfi
okkar.
Ég er sjálfur mikill bjart-
sýnismaður, og mín trú er
sú að veröldin fari batnandi,
og við stefnum öll að betri
samskiptum manna í milli.
Hjálpræðisherinn hefur í
starfi lagt sinn skerf að þess-
ari þróun, og það veit ég að
fólk metur.
—Ibúöaveró
F'ramhald af bls. 32.
og tilkostnaður
mennt hækka.
og verðlag al-
Athyglisvert er — sagði Ragn
ar, að útborganir í íbúðum eru
orðnar geyssháar og virðist ó-
trúlegt, hve fólk hefur mikla pen
inga handa i milli. Ekki kvaðst
svar mitt
EFTIR BILLY GRAHAM
HVI5RS vegna freistast ég til að hugsa I.jótar hugsanir?
Ég hef reynt að losa mig við þær, en mér virðist óniögu
legt að bæg.ja illnni hugsiiniiin frá mér. Hvernig get ég
komizt hjá freistingum?
ENGINN maður hefur nokkurn tíma komizt hjá freist-
ingum. f>að er jafnvel sagt um Drottin, sem var synd-
laus, að hans hafi verið freistað á allan hátt eins og
okkur, en án syndar (Hebr. 4,15).
Þér segið, að illar hugsanir sæki á yður. Svo var
einnig um frelsarann. Hans var freistað „eins og vor“,
segir Biblían. Það er Satan, sem gerir atlögu að yður.
Svo var og um frelsarann. Þegar hann þoldi freist-
inguna miklu í óbyggðinni, neytti Satan allra bragða
til að freista hans, og enginn efi er á því, að brögð
hans hafa verið slungin, og samt segir Biblían: „Hann
var án syndar.“
Að vera Kristi líkur í þessum heimi er ekki að losna
við freistingar. Kristins manns verður freistað á allar
lundir, og samt mun hann fara með sigur af hólmi
fyrir sakir Krists. Það er að vera líkur Kristi að vera
„freistað á allan hátt, án syndar“.
Vondar hugsanir sækja á beztu menn, en kristinn
maður heldur fast við Ritningarnar, sem segja: „Yfir
yður hefur ekki komið nema mannleg freisting, en Guð
er trúr, sem ekki mun leyfa, að þér freistizt um megn
fram, heldur mun hann ásamt freistingunni einnig sjá
um, að þér komizt út úr henni og fáið staðizt“ (1. Kor.
10,13).
Á freistingastund knýr Satan dyra, en við þurfum
ekki að bjóða honum inn.
hann geta gert sér grein fyrir
því hvað ylli þessu, en ein há
úborgun gæti oft og tíðum geng
ið aftur í allt að 10 sölium. Hann
kvað Húsnæð'smálastjórnarlán
til kaupa á gömlum íbúðum hafa
haft mjög jákvæð áhrif á fast-
eignamarkað'nn og þau þyrfti
að auka fremur en hitt. Lán
þessi hafa haft þau áhrif að ó-
samræmi miiii verðs gamalla og
nýlegra ibúða hefur minnkað.
Vagn E. Jónsson, hæstaréttar-
lögmaður og fasteignasali kvað
efitirspurn eftir íbúðarhúsnæði
miklu meiri en framboð. SMkt
ástand hefur verið í heilt ár.
Vagn kvað meginskýringu á
þessu ástandi vera þá að allt
of lítið væri byggt og fram-
kvæmdir í ibúðabyggingum
væru á allt of litlu svæði — all-
ar byggingaframkvæmdir væru
nú t.d. bundnar við Breiðholtið.
Hann kvað nauðsynlegt að leyfa
íbúðarbyggingar i miklu meiri
mæli og á stærra svæði, eigi að
fást einhver hemill á verðlagið.
Vagn E. Jónsson kvað ibúða-
verð hafa hækkað mjög mikið
frá þvi í fyrra og engin merki
kvaðst hann greina um breyt-
ingu á þvi ástandi. Erfitt væri
þó að spá um það hvað fram-
tíðin bæri í skauti sér í þessu
efni. Heldur kvað hann útborg-
anir hafa hækikað, en það væri
þó ekki áberandi mjög. Hann
kvað Húsnæðismálastjórnarlán
tii kaupa á gömlu húsnæði held-
ur hafa hjáipað tii að keyra verð
ið upp á gömlu íbúðarhúsnæði.
Á árunum 1966 og fram til árs-
ins 1970 kvað hann ibúðaverð
hafa staðið nolckurn veginn i
stað, a.m.k. hafi hækkun verið
mjög lítil, þrátt fyrir það að all-
ar aðrar vörur hækkuðu mjög
mikið. Á árunum 1970 og ’71
hefur hækkun fasteignaverðs
aftur á móti verið mjög mikil.
Kvað Vagn hækkunina vera
afleiðingu gengisfellinga, sem
svo seint ’nefðu komið fram í
verðiíiu.
Vagn sagði að lokum að ibúða
skorturinn ylli því að framboð
væri svo miklu minna en eftir-
spurn og kvað hann mörg ár
myndu fara í það að koma þeim
mátum í jafnvægi.
Bryndís Eysteinsdóttir hjá
Árna Grétari Finnssyni, fast-
eignasaia í Hafnarfirði, sagði, að
eftirspurn hefði verið mun meiri
en frarriboð f*rá ávamótum a.m.k.
en fasteignasalan hefur aðallega
til sölu fasteignir i Hafnarfirði
og Kópavogi. Bryndís kvað mikla
eftirspurn vera í sambýlishúsum
við Álfaskeið, við Sléttahraun og
Smyrlahraun og yfirleitt eftir
íbúðum í norðurbænum. Allar ný
bygginga.r væru mun dýrari en
gamalt húsnæði og stafaði það
einkum af þvi að eftirspurn eftir
nýju húsnæðj væri meiri.
Bryndís sagði að verð hefði
hækkað mikið og hlutfallsiega
kvað hún hafa orðið mesta hækk
un á íbúðum, sem afhendast til
búnar undir tréverk. Hún kvað
einn ljóð á húsnæðismálalánum
til kaupa á gömlu húsnæði og sá
væri að lánin væru allt of lág,
enda sæktu um þau svo til allir,
sem stæðu í slikum íbúðarkaup
um og lítið kæmi því í hlut hvers
og eins. Bryndís kvað töluverða
hreyfingu vera í fasteignamarkað
inum í Hafnarfirði.
Jón Arason, héraðsdómslög-
maður og fasteignasali kvað eft
irspurn töluvert meiri en fram-
boð. Hjá sér hefði komið mikill
fjölkippur í sölu rétt fyri.r kosn-
ingarnar i vor, en heldur hefur
salan dalað aftur — sagði Jón.
Hann kvað verð hafa farið hækk
andi, en í flestum tilvikum þetta
50 til 60% af heildarkaupverði.
Jón sagði að mikil eftirspurn
væri eftir sérhæðum, þ.e. hæð-
um, þar sem allt væri sér — inn-
gangur, hiti, þvottahús o.fl. Mik
ill hörgull væri á slíku húsnæði
og einkum í Háaleitishverfi og
Vesturbænum. Eins væri hörgull
á .raðhúsum. Heldur sagði Jón,
að húsnæðisstjórnarlán til kaupa
á gömlum ibúðum, hafi haft á-
hrif til þess að minnka það mis
ræmi, sem væri rnilli nýs og
gamals húsnæðis. Þó kvað hann
þau lán ekki nógu há og færri
fengju en vildu.
Jón Arason sagði að brýn nauð
íjyn væri á því að endurskoða vísi
tölulán húsnæðismálastjórnar.
Þau væru ávallt miklu hærri en
kvittanir fólks gæfu til kynna,
þa.r eð vísitöluálag hleðst einnig
á höfuðstól lánanna. Þess eru
dæmi að fólk hafi skuldað milli
100 og 200 þúsund krónur, þegar
það hefur talið sig vera búið að
greiða lánin að fullu. Þessi lán
eru mjög slæm — sagði Jón og
nauðsynlegt að taka þau til gagn
gerrar endurskoðunar.
- Cahlll
Frambald af bls. 1.
um Cahill, þegar hann kom
út úr skrifstoáu irska flug-
félagsins „Air Linigus” í New
York i kvöld en það eina, sem
hann vildi segja við þá var
„Styðjið okkur“. Þar með
settiist harnn irvn í bifreiðina.
sem átti að aka með hann á
Ken nedy-fhig völl.
— Skólaganga
F'rainliald af bls. 32.
Fjöldi þeirra einstakling'a, sem
framhaldsskólanám stunda, er
því milli 55 til 60 þúsund og
lætur nær.ri að það sé um þriðj
ungur þjóðarinnar.
Stefán Ólafur sagði að hér á
landi væri óvenju hátt hlutfall
þjóðarinnar við nám og ætti það
rætur sínar að rekja til hversu
ör fólksfjölgunin hefði verið eft
i.r strið og fram yfir 1963—64 og
yngri árgangarnir því miklu fjöl
mennari en þeir eldri. Gat Ólafur
þess að i Svíþjóð þætti hlutfall
námsfólks mjög hátt, en þó væri
það ekki nema um 25% þannig
að við gerðum enn betur hér.
Kennsla er nú óðum að hefjast
í skólum að ioknum sumarleyf-
um. Haustpróf standa nú yfir
fyri.r þá nemendur, sem ekki
náðu framhaldseinkunn á lands-
prófi sl. vor, en voru með 5,6—
5,9 í aðaleinkunn. Um 170 nem
endur á öllu landinu höfðu rétt
til að þreyta prófið að nýju, en
ekki vitað hvort þeir notfæra sér
það alli.r, þar sem prófið er tek
ið á mörgum stöðum og heildar-
upplýsinga.r liggja ekki fyrir.
— N-írland
Franihald af bls. 1.
verið í fangelsum án dóms —
og til að leysa upp n-írska þing-
ið, þar sem mótmælendur hafa
meirihluta.
Á pólitískum vettvangi þessa
máls hefur litið miðað í samkomu
lagsátt. Lítill árangur virðist
hafa orðið af viðræðum þeirra
Edwards Heaths forsætisráð-
herra Bretlands og Johns Lynch,
forsætisráðherra írska lýðveldis-
ins, — en þó fylgdi það í kjölfac
viðraéðna þeirra, að brezki innan
ríkisráðherranm Regi'nald Maudl-
ing, lagði fram tillögu um viðræð
ur allra, sem hlut ættu að deilun
um á Norður-írlandi, skyldi þar
rætt um hvað ge.ra mætti til að
auka áhrif kaþólskra þar.
En undirtektíi nar hafa ekki
orðið jákvæðar. Heiztu stjórnar
andstöðuhóparnir á N-írlandi,
sósíaldemókratar og samtök ka-
þólskra gerðu öllum ljóst, að þeir
kærðu sig ekki um slíkar viðræð
ur, að svo konmu máli. Fyrsta
skretið til þess að bæta ástandið
í landinu væri að sleppa pólitísk
um föngum, sem haldið væri án
dóms — auk þess sem þessir
aðilar gerðu þá kröfu, að fulltrú
ar stjórnarinna.r í Dublin tækju
þátt í slíkum viðræðum, ef af
þeim yrði. Bernadetta Devlin
sagði í London, að enginn kaþólsjr.
ur maður mundi ræði við Maudl
ing fyrr en föngunum hefði verið
sleppt.
Brezki verkamannaflokkurinn
hefur aftu.r farið þess á leit við
Heath, að hann kalli brezka þing
ið saman til aukafundar um á-
standið á Norður-írlandi — en
ekki er búizt við, að hann verði
við þeim tilmælum.
- EBE
Framhald af bls. 1.
og Kanada, Ástralíu og Nýja-
Sjálandi og hækkað verð á mat-
vælium. „Bretland hefði getað
tekið miklu harðari afstöðu, en
stjórnin fórnaði beztu spilunum,“
sagði hann.
Samþykkt TUC er talln mi'kill
siigur fyrir Verkamanmaflokkinn
sem hefur lagzt gegn aðild sam-
kvæmt þeim skilimál'Uím sem
samið hefur verið um. Ársþing
flokksins verður haldið bráðlega.
Hjartans þakkir færi ég öll-
um þeim, sem sýndu mér vin-
arhug á einn og annan hátt
á áttræðisafmæli mínu 29.
ágúst og gjörðu mér daginn
ánægjulegan.
Guð og gæfan veri með ykk-
ur.
Kristín frá Brckkti,
nú á Hrafnistu.
Ég þakka innilega auðsýnda
vinsemd á áttræðisafmæli
mínu.
Guð blessi ykkui- öll.
Margrét H.jörlcifsdóttir,
Hallveígarstíg 9.