Morgunblaðið - 07.10.1971, Blaðsíða 7
MORGUtNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBBR 1971
v-
Blaka með eina mynda sinna, en þeim hefur hún ekki gefið
neitt nafn.
Sagði að ég væri skáld i listinni
„Biaka" — Guðrún Jónsdótt-
ir öðru nafni hefur verið að
sýna myndir sínar undanfarnar
þrjár vikur uppi í Mokkakafíi
hjá Guðmundi. Á iaugardaginn
kemur lýkur sýningunni hennar.
Blaka sagði við okkur nokkur
orð í tilefni af þessu.
— Sýningu minni er að
ljúka á laugardagskvöldið kem
ur. Margir hafa komið og skoð-
að. Ég hef selt tvaer myndir. Ás
geir Ásgeirsson fyrrverandi for
seti keypti aðra þeirra. Áður en
ég hélt þessa sýningu, hafði ég
selt nokrar myndir vinum mín
um, sem komu heim til mín, og
ekki má ég heldur gleyma því,
að frændkona min, sem býr í
Kanada, Valgerður Ruby Daw-
son (hún er systir Pearl Páima
son, fiðluieikara) fékk hjá mér
20 myndir til að fara með vest-
úr um haf og sýna með sölu
fyrir augum.
— Hún hefur nú selt þær ail-
ar og vil'l fá fleiri til að haida
söiusýningu. Gissur Elíasson
prófessor við Manitoba há-
skóiann i Winnipeg keypti eina
mynda minna, og skrifaði mér
nokkrar línur í tiiefni af þvi.
Ég tek það fram, að hann er
mér með öllu ókunnugur, og
þeim mun vænna þótti mér um
orð hans.
Sagði hann, að ég hefði með-
fædda hæfileika, sem ekki væri
hægt að iæra í háskólum, en
kannski að sumu leyti hægt að
þróa upp með ærinni vinnu.
Væri ég skáld í listinni og bað
hann mig lengstra orða að
halda áfram uppteknum
hætti að mála það sem ég sæi
innra með mér, ekki endilega
það, sem ailir aðrir sæju i nátt
úrunni.
Hann hefur mikið umgengizt
list, og þótti mér ekki minnst
varið i þessi hiýiegu orð hans
fyrir þær sakir.
Nýlega fékk ég svo bréf frá
frænku minni í Winnipeg þar
sem hún fer þess á leit við mig,
að ég sendi sér fleiri myndir til
að setja á sýningu. Ég er að
hugsa um að verða við þessari
beiðni hennar. Hún sýndi tvær
mynda minna á Islendingadeg:
þar í borginni, og kvað þær
hafa vakið athygii. t>vi skyldi
ég ekki lofa þeim að sjá fleira?
— Ég hef aidrei lært neitt að
mála eða teikna, en ég hef afar
gaman af þvi, og þessar myndir,
sem ég sýni nú í Mokka, hef ég
eins og reyndar aliar hinar mál
að við hlið móður minnar sem
hefur verið sjúkiingur. Það var
þægilegt að hafa liti og blað þar
á litlu borði, og ég hafði gam-
an af því að gera þetta á fal-
legum kvöldum og í góðu veðri,
þvi að ég fer lítið út. Það hefur
verið mér mikil ánægja að setja
þær saman, og ég er að hjgsa
um að halda áfram uppteknum
hætti.
Þriggja
mínútna
samtal
úr hversdagslífinu
HOSMÆÐUfl Stórkostleg lækkun á stykkja þvotti, 30 stk. á 300 kr. Þvott ur, sem kemur í dag, tiibúinn á morgun. Þvottahúsið Eimir Síðumúla 12, sími 31460. BROTAMÁLMUR Kaupi allan brotamálm lang- hæsta verði, staðgreiðste. Nóatún 27, sími 2-58-91,
TEIKN iST OFUfl Tækniteiknari vanur ýmsum teiknistörfum óskar e. starfi % daginn eða heimavinnu. Uppt. í síma 50755 fyrir hád. og á kvöldin. KEFLAVlK Tíl sölu 4ra herb. Ibúð í fjöl- býlkshúsi. Verð kr. 1200 þ.. útb. kr. 750 þ. Fasteignasate Vilhjá'æs og Guöfinns, sím- ar 1263 og 2376.
HLlÐAR — NORÐURMÝRI Kona óskast til að gæta 1 áns gamals barn® frarn að áramótum. Uppf. í sima 25731 milli kl. 5 og 7. UNGT BARNLAUST par óskar eftir að taka á leigu 2ja—3ja berb. ibúð, belzt í Kópavogi. SSrrri 40376.
IbUð óskast 3}a—4ra herb. íbúð óskast tíl teigu nú þegar. Uppl. í sima 19230. * HESTAFÓÐRUN Getum tekið nokkra hesta 1 fóðrun í vetur. Uppl. í srme 41499.
TIL SÖLU Ohevrolet árg. '55 sendiferða m tiil niðurrifs. Seist ódýrt Up>pl. i sima 8171, Grindavlk erftir kl. 7 á kvöldin. PEKINGENDUR Höfum til sölu Pekirrgendur — stofn. Fara i varp eftir ára- mót. Uppl. í sfmum 66381 og 66384.
BARNGÓÐ KONA óskast strax tif að gæta 8 mán. gamals barns, hálfan eða allan daginn, sem næst Akurgerði. Uppl. i síma 32912. SENDIBlLL TIL SÖLU Auistin árg. '71, 400 kg. ek- inn aðeins 15 þ. km. Stení 25891.
KJÖT — KJÖT 5 verðflokkar. Úrvals dilka- kjöt. 1. verðfloikkur. Beint úr gálga og sagað kr. 97.50 kg. Sláturhús Hafnarfjarðar, sím- ar 50791, heima 50199. ATVINNA Kona sem getur skrifað ensk verzlunarbréf og unnið venju lega skrifstofuvinnu óskast hálfan daginn. Tilb. sendist Mbl. fyrir laugardag merkt Vön 4376.
iBÚÐ TIL LEIGU Ti'l leigu 2ja herb. íbúð í há- hýsi við Austurbrún með eða án húsgagna. Laus um 20. þ. m. Leigist til 12 mán. m. a.m. k. 6 mán fyrirframgr. Leigu- tifb. merkt Panaram 3206 sendist blaðinu f. 10. þ. m. IbUÐ ÖSKAST 2 reglusamar stúlkur í góðri atvinnu óska eftir 2ja—3ja herb. íbúð til leigu. Góðri um- gengni heitið. Uppl. í sím® 10776 kf. 5—8 í dag og á morgun.
M
árnad iiuilla
Sigurður Óli Ólafsson, fyrrum
alþingismaður, er 75 ára í dag.
Hann verður að heiman.
Sigurður fæddist á Eyrar-
bakka, og voru foreldrar hans
Óiafur Sigurðsson, bóndi og
eöðlasmiður á Eyrarbakka, og
kona hans Þorbjörg Sigurðar-
dóttir. Eftir tveggja vetra nám í
unglingaskóianum á Eyrarbakka,
stundaði hann ýmis störf, en
árin 1927—64 var hann kaupmað
ur á Selfossi. Sigurður áitti sæti
í hreppsnefndum, var sýslunefnd
anmaður um árabil, og skólafor-
maður Héraðsskólans á Laugar-
vatni. Hann átti sæti á Alþingi
sem þingmaður Sjáifstæðisfiokks
ins frá 1950—67.
Kona Sigurðar er Kristin Guð
mundsdóttir.
GAMALT
OG GOTT
Gulls hjá niftum ungum er
Ari sviftur vonum,
hefir skipti og hallar sér
heizt að giftum konum.
Tryggvi H. Kvaran.
Vísan er um ókvæntan mann,
sem var i þingum við gifta konu.
Þú ert Gvendur gæðaskinn,
þótt greind sé ekki hjá þér.
Ég heid ég þekkti hundssvipinn
þótt haUsinn væri ekki á þér.
Tryggvi H. Kvaran.
Ur bókinni Ég skal kveða við
þig vel eftir Jóhann Sveinsson
frá Fiögu.
Grímur Þórarinsson i Garði í
Keiduhverfi kom inn í veitinga
hús í Húsavík. Hafði þar löng-
um verið háreysti og ölteiti, en
nú voru menn daufir i dálkinn.
Þá kvað hann:
Sorgar stranga svipinn ber
sérhver spangaviður.
Á drykkjuvangi dapurt er
drengir hanga niður.
Ort um kaupmann:
Yfir bárur ágirndar,
eiligrár og slitinn,
reri árum rógburðar
rann af hári svitinn.
fsleifnr Gíslason Sauðárkróki.
(Bók Jóhanns Sveinssonar Ég
skal kveða við þig vei).
Spakmæli dagsins
Uppeldi þýðir ekki, að mönn-
um sé kennt eitthvað, sem þeir
vita ekki. Það þýðir að kenna
þeim að hegða sér örðuvísi en
þeir gera. Það er ekki að
kenna unglingum að þekkja staf
ina eða kenna þeim að íara með
tölustafi og láta þeim síðan eft
ir að beita stærðfræðinni til íjár
svika og nota iestrarkunnátt-
una til þess að sesa með henni
girndirnar. Þvert á móti er það
fólgið í því að venja þá á al-
eflingu og fullkomna sjálfs-
stjórn líkama og sálar. Það kost-
ar samvizkusama, stöðuga og
stranga vinnu og verður að ger
ast með góðvild, yfiriegu, varn
aði, fyrirmælum og hrósi, en um
fram allt með fordæmi.
— J. Ruskin.
PENNAVINIR
Aage Storengen, Vislies gt.
34,2300 Hamar, Norge, 23 ára,
óskar eftir bréfaskiptum með
frímerkjaskipti fyrir augum.
Rudolf Clerici, 21 árs, Via Uni
one 29,22074 Loma 220 (Como),
Italia, sem er læknanemi óskar
eftir bréfasambandi við íslenzk
an stúdent.
Tarlok S. Ohabra, 181 Sector 21
A, handigarh-22, India skrifar:
Hef hundruð pennavina fyrir ís
land, frá 14—60 ára aldurs. AXl-
ir velkomnir. Þrir alþjóðasvar-
seðlar óskast meðfylgjandi i
bréfi.
NÝJAR ÍBÚÐIR
TIL SÖLU
Til sölu 4ra herb. íbúðir ásamt 1 herb. í
kjallara við Lundarbrekku í Kópavogi,
(Fossvogsmegin).
Seljast fokheldar til afhendinga fyrir
1. febrúar 1972.
Tvennar svalir, fallegt útsýni.
SKIP & FASTEIGNIR,
SKÚLAGÖTU 63, SÍMI 21735.
EFTIR LOKUN 36329.