Morgunblaðið - 07.10.1971, Síða 12

Morgunblaðið - 07.10.1971, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1971 Finnskur sálmasöngflokkur í heimsókn: „Vaxandi áhugi á kristinni trú með- al ungs fólks á Norðurlöndum sagöi fararstjóri hópsins, séra Torsten Josephson undan hjá þessari stúdenta- hreyfingu. — Við höldum árlega kristi legt norrænt stúdentamót, og var það síðasta haldið í Viborg í Danmörku í sumar. Fram- undan er svo mót í Uppsölum í Svíþjóð á næsta sumri, og þess má geta, að þar verður íslendingur, séra Jónas Gísla- son, meðal helztu ræðumanna, en íslendingar hafa ekki starfað í þessari hreyfingu um árabil. Reyndar hafa nokkrir íslendingar sótt þessi sam- norrænu mót, t.d. sóttu 9 Is- lendingar mótið í Viborg í sumar. Ástæðan fyrir því, að ís- lendingar hafa ekki tekið virkari þátt í starfinu, er vafa Torsten Josephson HÉR á landi er nú staddur á vegum Kristilegs stúdentafé- lags söngflokkur frá Helsing- fors í Finnlandi sem kallar sig „The Finish-American Gos- pelteam", eða finnsk-ameríski sálmasöngflokkurinn. í söng- flokknum eru sex ungmenni, en einnig er með í förinni Thor sten Josephson. framkvæmda- stjóri kristilegu sænsku stúd- entahreyfingarinnar, og er hann jafnframt fararstjóri. Söngfiokkurinn hefur nú þeg- ar komið fram á tveimur sam komum í Reykjavík, og er ætl unin að hann syngi á kirkju- tónleikum í Neskirkju í kvöld og i Dómkirkjunni á sunnu- dagskvöld. Morgunblaðsmenn voru við staddir hjá kórnum í Nes- kirkju á þriðjudag, en áætlað er að taka upp tvær dagskrár um söngflokkinn í hljóðvarp og eina í sjónvarp. Við notuðum tækifærið á meðan á upptöku stóð, og ræddum stuttlega við farar- stjórann, Torsten Josephson. Torstein er starfandi prestur við sænsku þjóðkirkjuna, en sinnir auk þess framkvæmda- stjórastöðu kristilegu sænsku stúdentahreyfingarinnar, sem fyrr segir. Hann er ein aðal driffjöðurin í kristilegu stúdentahreyfingunni á Norð- urlöndum og hefur staðið að undirbúningi ýmissa móta sem haldin hafa verið á henn- ar vegum. Við spurðum hann fyrst hvaða verkefni væru fram- Martin Lindblom laust sú, að þeir eru hvað verst í sveit settir af Norður- landaþjóðunum og kostnaður mikiii við ferðalög yfir hafið. Nú er hins vegar ætlunin, að reyna að styrkja þá, sem áhuga hafa á að sækja mótið í Uppsölum næsta sumar, og vonast ég til að margir verði til að notfæra sér það. — Finnst þér áhugi á kristi legu starfi hafa aukizt undan- farin ár á Norðurlöndum? — Já, tvímælalaust. Það er eins á Norðurlöndum svo víða annars staðar, að áhugi á hinum trúarlega þætti mann lífsins hefur stórlega aukizt undanfarin ár. Fólkið, — aér- staklega unga fólkið, — hefur nú meiri áhuga á Jesús og kristinni trú en það áður hafði. Það er tómt innra með sér og leitandi eftir fyllingu í sál sinni, og það finnur hana í kristinmi trú. Sú er ástæðan fyrir hinn siívaxandi „Jesús- hreyfingu“ sem nú ryður sér til rúms meðal ungmenna víðs vegar um heim, og er hvað mest áberandi í Bandaríkjun- um. — Nú er margt af því fólki sem er í þessum „Jesúshreyf,- ingum“ hippar og eiturlyfja- neytendur. Sækir þetta fólk hefðbundnar messur eða kom- ið þið á einhvem hátt til móts við það? — Það er rétt, að þarna er fólk af öllu tagi. Sumir hverj- ir sækja messur og aðrir ekki. Við reynum að koma til móts við það á ýmsan hátt svo sem með því að veita því aðstöðu til samkomuhalds, og stuðlum að því að það fái aðstöðu tli starfsins í skólum. Við getum vitaskuld ekki breytt boðskapnum, en við get um gert hann frambærilegri fyrir unga fólkið, og vinnum stöðugt að því. Loks sagðist Torsten vera mjög þakklátur fyrir þær móttökur, sem hópurinn hefði fengið hér, og sagðist hann hvergi hafa fengið slík- ar móttökur í þau 12 ár, sem hann hefur starfað fyrir kristileg stúdentasamtök. Þá ræddum við næst við Martin Lindblom, en hann syngur tenór með hópnum. Hann starfar sem safnaðar- ritari hjá evangelisk-lútersku söfnuðunum i Helsingfors, cn jafnframt þvi hefur hann lagt stund á söngnám hjá Sib- elius-akademíunni, og hefur haft með höndum einsöngs- hlutverk í nokkrum orator- ium, Mattheusarpassíunni og fl. í finnska útvarpinu og víðar. — Það fyrsta sem mér kem- ur í hug við komuna til ís- lands er, að loftslagið hér hlýtur að vera erfitt fyrir söngmenn þar sem það er svo síbreytilegt. — Hefur söngflokkurinn ferðazt víða til að koma fram á samkomum? — Við höfum ferðazt víða um bæði Finnland og Sví- þjóð, en þetta er það lengsta sem við höfum enn sem kom- ið er farið til að syngja. Ann-Kristin Perret syngur sópran og er einsöngvari söng flokksins. Hún er gift stjórn- anda hópsins, Henrik Perret, Henrik Perret Kita Bergmann en þau voru gefin saman 25. sept. sl., þarm'.g að þetta er jafniframt brúðkaiupsferð þeirra hjóna. Ann-Kristin legig ur stund á hjúkrunarniátn, og lýkur því væntanlega í febr- úar næstkomandi. — Jú, það er að vísu stund- um erfitt að samræma söng- inn náminu, en þetta bjargast alltaf einhvern veginn. Nú sem stendur er misserisfri í skólanum, að öðrum kosti hefði ferðin hingað ekki ver- ið möguleg. — Ég hef nú ekki séð ýkja mikið af landinu, en ég hef það á tilfinningunni að þetta geti orðið mjög vel heppnuð ferð. Rita Bergmann er mezzo- sópran hópsins. Hún hefur stundað nám við Sibeliusar- akademiuna í Helsingfors og hlaut í fyrra styrk til að nema tónlist, einkum söng, við aka- demíuna í Stokkhólmi. Hún starfar nú sem kirkjuorgan- isti og kórstjórnandi i Hels- Ann-Kristin Perret ingfors. Þess má til gamans geta, að hún er sú eina í hópn um, sem er ógift. — Þetta er í annað skipti, sem ég kem hingað til lands, en í fyrra kom ég hingað með finnskum kór á Norræna kirkjukóramótið, og dvaldist þá í viku. Ég hafði mjög gam an af þeirri ferð, og er ánægð yfir því að vera komin hingað aftur, reyndar er ég búin að hlakka lengi til þess. Ann Lindblom er alt-söngv- arinn í hópmum, og giift Martin Lindblom. Hún stund- ar nám í félagsráðgjöf, en vinnur auk þess sem einka- ritari. Stjórnandi hópsins er eina og áður er sagt Henrik Perr- et. Hann syngur ýmist tenór eða bassa og leikur auk þess á píanó þegar með þarf. Hen- rik stundar nám í guðfræði við háskólann í Helsingfors, og hefur auk þess stjórnað mörgum kirkju- og æskulýðs- kórum í heimaborg sinni. Ben Martin er bassasöngv- ari hópsins. Hann er banda- riskur að þjóðerni, en hefur búið í Finnlandi síðan árdð 1961 og er kvæntur finnskri konu. Ben er fastráðinn ein- söngvari við kammerkór út- varpsins í Helsingíors, en hann er útlærður söngvari frá Sibelíusarakademíunni með hæsta vitnisburði. Þegar við Morgunblaðs- menn kvöddum hópinn, voru þau að hefja upptöku á negra- sálmi þar sem Ben söng fjör- legan einsöng. Þar sem tími þerira var naumur, verðum við frá að hverfa að sinni, stað ráðnir í því að mæta á ein- hvern af tónleikum þeirra hér. Ben Martin H ipurinn við upptöku í Neskirkju Ann Lindblom

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.