Morgunblaðið - 17.10.1971, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 17.10.1971, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1971 Útgáfubækurnar haustiö 1971: Fjöldi nýrra bóka á markaðinn í haust Bókaútgfáfurnar eru nú í óða 5nn að undirbúa útg'áfubaekur sínar fyrir jólamarkaðinn mikla sem er orðinn fastur fylgifisk- ur jólaliátíðarinnar. Morgun- blaðið hefur að venju snúið sér til forsvarsnianna bókaútgáfu- fyrirtækjanna og leitað frétta af heiztu bókum sem væntan- legar eru nú á haustmánuðun- um, en 23. sept. s.l. birtist fyrsta yfiriitsgreinin um jólabækurnar. ALMENNA BÓKAFÉLAGDD Hjá Almenna bókafélaginu kennir ýmissa grasa í bókaút- gáfunni þetta árið. Hér fer á eft ir yfirlit yfír þær bækur sem út koma hjá AB á þessu hausti: Svartfugl, Gtmnar Gunnarsson, í nýrri þýðingu höíundar sjálfs. Þessi bók er upphaf á nýrri út- gáfu verka Gunnars Gunnars- sonar. fslenzk nútímaljóðlist, Jóhann Hjálmarsson. 1 bókinni er fja.ll- að um þau skáld, sem aiit frá Jóhanni Sigurjónssyni hafa, að mati höfundardns, stuðlað öðrum fremur að endurnýjun ljóðsins bæði að þvi er tekur til efnis og forirts. Vísur jarðarinnar, ljóðabók; Þorgeir Sveinbjarnarson. Bók þessa lauk höfundur við að búa til prentunar nokkru áður en hann iézt í febrúar s.l. Þorgeir Sveinbjarnarson varð áður þjóð kunnugt skáld af tveimur Ijóða bókum sinum, Vísum Bergþóru, 1955 og Vísum um drauminn, 1965. Lýsingar í stjórnarhandriti (Illumination in a Manuscript of Stjóm), dr. Selma Jónsdóttir listfræðingur. Ailstórt rit og Gunnar Gunnarsson. fagurlega úr garði gert, sem fjaliar um lýsingar (mynd- akreytingar) í Stjórn, einu glæsi- legasta handriti fornislenzku. Bóik þessi sætir tíðindum bæði fyrir fræðilegar og skarplegar röksemdir höfundar og þar að auki fyrir prentun mynda og annars umbúnaðar, en bókin er algjörlega unnin af íslenzkum fagmönnum i islenzkum fyrir- tækjum. Kristnitakan á fslandi, Jón Hnefil Aðalsteinsson. Bók þessi er mikilsvert framlag til ís- lenzkrar sagnfræði og hefur að geyma árangur margra ára rann sófknarstarfs, sem beinzt hefur að því að bregða ijósi yfir iannri sögu þessa afdrifaríka atburð- ar. Ösköp, frumsamin skáldsaga eft ir ungan lögfræðing. Guðjón Ai- bertsson. Þetta er nútímaleg saga skráð af kunnáttu og gáf um. Ósköp geyma í hnitmiðuðu formi mikta og áhrifaríka sögu. Vikivaki, Gunnar Gunnars- son, önnur bókin í nýrri útgáfu verka Gunnars. fslendingar, nokkur drög að þjóðarlýsiingu; Guðmundur Þorgeir Sveinbjarnarson. Finnbogason, stytt útgáfa. Merkilegt sígiit fróðleiksrit um landið og þjóðina sem það bygg ir. Þrjár ljóðabækur: Hverfist ei hvað: Kristinn Reyr. Þar og þá: Steiminn Signrðar dóttir, en eftir hana kom út hjá AB árið 1969 ijóðabókin Sífell- ur. Ljóðabók, sem ekki hefur hlot ið endanlegt nafn eftir ungan menntamann Aðalstein Ingólfs- son, þetta er fyrsta bók höfund ar. Frá Heiðarbæ til himinfjalla, níu sögur; Guðmimdur G. Haga lín. Þessar sögur hafa ekki birzt Jóhann Hjálmarssou. áður og fullyrða má, að enginn verður fyrir vonbrigðum, sem les þær, því að sjaldan hefur sagna- gleði höfundar Verið meiri en einmitt nú. Sveinn framtíðarskáld; um- sjón Björn O. Björnsson. Sveinn Jónsson, sem kallaður var framtíðarskáld, þegar hann var í menntaskóla, orti mikið á þeim árum og voru við hann bundnar miklar vonir. Að stúd- entspróri loknu sigldi hann til Kaupmannahafnar, en þar varð framtið hans önnur en ætlað hafði verið. — Bók þessi grefur upp minningu um sérkennileg- an mann, sem að öðrum kosti má ætla að algjörlega hefði orð ið gleymskunni að bráð. Norðan við stríð: Ný skáld- saga eftir Indriða G. Þorsteins- son. Síðasta bókin í „trí- lógiu“, hernámssaga að norðan. Um bækur Indriða þarf ekki mörg orð, og ekki er vafi á því að þessarar bókar er beðið með eftirvæntingu. Leikhúsið við Tjörnina: Sveinn Einarsson. 75 ára saga Leikfélags Reykjavíkur i máli og myndum. Bðk þessi verður Guðinimdiu- G. Hagalín. mjög vönduð að efni og umbún- aði — kjörgripur. Þjóðsagnabókin I. bindi, dr. Sigurður Nordal hefur unnið undanfarin ár að úrvali ís- lenzkra þjóðsagna,. sem hugsað er að gefa út I 3 bindum. í haust kemur fyrsta bindi og vænta má næstu binda árið 1972. Ólafur Oddsson cand, mag hefur verið aðstoðarmaður dr. Sigurðar við útgáfuna. Gjafabókiin í ár verður eftir Jóhann Gunnar Ólafsson fyrrv. bæjarfógeta og fjallar um bóka- menn og bókasöfn. SETBERG Hér fer á eftir stutt yfirlit um útgáfubækur Setbergs haust ið 1971, sem eigandi útgáfunn- ar Arnbjöm Kristinsson tók saman. Fyrst skal nefna bókina „Mörg er mannsævin“ eftir Stefán Júlíusson rithöfund. Þetta eru fimim ævisagnaþættir: 'um skáldið Örn Arnarson, vær- ingjann Einar Guðmundsson, blinda manninn Halldór Brynj ólfsson, vormanninn GunnTaug Kristmundsson og togarakarl- inn Guðmund Knútsson. Tveir þessara manna voru þjóðkunn ir, sérkennilegir persónuleikar, atigervismenn hvor á sínu sviði. Þrír þáttanna eru um minna þekkta menn, en þó er persónu saga þeirra næsta merk og í frá sögninni af þeim spegiast marg- ir fletir á þjóðlifi, atvinnuhátt- um ag sögu. „Mörg er manns- ævin“ er sextánda bók Stefáns Júlíussonar. „Hverra manna“ heitir bók eft ir Árna Óla. Þar segir hann sögu sinnar sveitar, Keldu- hverfis í N orður-Þingey ja r- sýslu. Ámi Óla sýnir í þessari bók af hvaða bergi Keldhverf- ingar voru brofcnir og dregur upp mynd af því hvernig um- horfs var í sveít hans á sein- asta skeiði hinnar löngu land- námsaldar. Þar segir og frá ýmsum ættum, sem þar hafa bú ið og ennfrerruur eru i bókinni sögur og sagnir af merkum ein staklingum. Þá kemur ný bók í flökknum um mikilmenni okkar tíma, bók um Franklin Delano Roosevelt fyrrum forseta Bandaríkjanna. Bókin uim Roosevelt er skriíuð af Gylfa Gröndal, ritstjóra Vikunnar, en hann skrifaði aðra bók í þessuim flokki, um Robert Kennedy. Áður hefur Setberg gefið út þessar bækur í sama bókaflokki: Winston Churchill, John F. Kennedy og Abraham Lincoln, aliar eftir Thorotf Smith, bókina um ÐeGaulle eft- ir Þorsfcein Thorarensen, Robert Kennedy eftir Gyifa Gröndal og Albert Schweitzer eftir Sig- urbjörn Einarsson. Forlagið gefur og út nokkrar þýddar og frumsamdar barna- og unglingabækur. Islenzku frumsömdu bækurnar eru þesis- ar: „Steini fer í skóla“ eftir Axel Guðmimdsson og er þetta fjórða og síðasta bók hans, en Axel lézt á siðastliðnu sumri. Þá er drengjabök eftir Ragnar A. Þorsteinsson, kennara, öan- ur bók hans „Röskir strákar í stórræðum'*. Loks er sjötta og síðasta bókin í flokknum um Önnu Heiðu eftir Rúnu Gísla- dóttur, „Anna Heiða átján ára“. BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR Eftirfarandi bækur eru vænt anlegar frá Bókaforlagi Odds Björnssonar á þessu hausti: Fjórða bindi i hinu mikla rit- verki sr. * Benjamins Kristjáns- sonar, Vestur-íslenzkar ævi- skrár, en sem kunnugt er hefur ritverk þetta vakið verðskuld- aða athygli bæði austan hafs og vestan, enda er æviskrárrifcun Vestur-íslendinga lykill að frek ari og vaxandi kynnum miili fól'ks báðum megm hafsins. Sr. Benjamín Kristjánsson hefur unnið mikið þrekvirki með skrá setningu æviskránna. Þriðja og jafnframt lokabindi endurminninga Sæmundar Dúa- sonar, Einu sinni var. Sæmund- ÖNNUR GREIN ur bregður hér upp myndum af daglegu lífi og athöfnum þess fólks, sem hann kynntist í Fljót um í Skagafirði um og eftir sið ustu aldamót. 1 þessu bindi eru 70 frásagnir og bókinni lýkur á nafnaskrá. Hrafnhildur heitir nýjasta ást arsagan eftir hina vinsælu skáldkonu Ingibjörgu Sigurðar- dóttur. Þetta er 14. skáldsaga Ingibjargar. í fyrra kom út skáldsagan Eiginkonur læknanna eftir Frank. G. Slaughter. Bók þessi vakti mikið umtal og seldist al gjörlega upp fyrir jólin. Nýja Slaughter-skáldsagan í ár nefn ist Hættuleg aðgerð. spennandi saga í þýðingu Hersteins Páls- sonar. 1 ritsafn Armanns Kr. Einars sonar bætast nú við tvær bæk- ur, Falinn fjársjóðnr og Týnda Sigurður Nordal Indriði G. Þorsteinsson. flugvélin, en það eru tvær fyrstu Árnabækurnar, sem hafa verið algjörlega ófáanlegar und anfarin ár. Tvær af hinum vinsælu Öddu bókum þeirra Jennu og Hreið- ars Stefánssonar koma í nýrri útg&fu, en það eru Adda og litli bróðir og Adda iærir að synda. Þá kemur ný, spennandi saga eftir hinn vinsæla unglingahöf- und Guðjón Sveinsson. Nefnist hún Svarti skugginn og eru söguhetjurnar þær sömu og í fyrri bókum Guðjóns. HÖRPUÚTGÁFAN Hörpuútgáfan á Akranesi mun að vanda senda nokkrar bækur á jólamarkaðinn, Hér fer á eftir stutt yfirlit sem Bragi Þórðarson tók saman. Atreifur og aðrir fuglar, eft- ir Guðmund Böðvarsson. Nafn bðkarinnar vekur eflaust fbr- vitni. Atreifur er einn af sam- ferðamönnum höfundar, glett- inn og skemmtilegur náungi. Þetta er rammíslenzk bók, þar sem höfuindur segir í söguformi frá samferðafólki sinu. Hlý og djúp lífsást og mannúð og næm ari skynjun íslenzkrar náttúru en öðrum skáldu-m hefur heppn- azt að tjá i ljóði gæða verk hans hljóðlátum töfrum. Og sjálfsagt mun einsdæmi 1 veröld inni, að óskólagenginn bónda. maður glírni við að þýða Hinn guðdómlega gleðileik Dantes eða önnur slík öndvegisverk heimsbókmehntanna og hljóti fyrir það óskipta þökk þjóðar sinnar. Slíkt afrek vinnur borg firzki bóndinn, Guðmundur Böðvarsson, og bera fá verk síð ari tima reisn íslenzkrar alþýðu menningar ijósara vitni. Mörgum mun þykja sennilegt að höfundur Saltkorna í mold sé liðtækur sagnahöfundur, og þvi mun bók þessi lesin með nokkurri eftirvæntingu. Refskinna eftir Ref bónda — Braga Jónsson. frá Hoftúnum á Snæfellsnesi. Sagnaþættir af sér kennilegu fólki, þjóðsögur og skopsögur hafa longum verið vinsælt lestrarefni íslendinga fyrr og síðar. Skáldið og fræði maðurinn Bragi Jónsson frá Hof túnum — Refur bóndi — hefur tekið saman efni þessarar bók- ar. Ekkert af því hefur birzt á prenti áður. Um árabil hefur hann viðað að sér frásögnum af skemmtilegu og sérkennilegu fólki á Snæfelisnesi og víðar, Framh. á bls. 19 Árni Óla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.