Morgunblaðið - 17.10.1971, Page 15

Morgunblaðið - 17.10.1971, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1971 15 Reykjavíkurbréf ----- Laugardagur 16. okt.-- „Frelsi landsins og virðing meðal þjóða“ Við setningu Alþingis flutti íorseti Islands hr. Kristján EMjám að vanda stutta, en Sgæta ræðu. Þar sagði hann m.a.: „Þjóðin hefur með almennri þáftttöfeu kjörið yður til að fara imeð mikilvægustu málefni sín. Hún lítur til Alþingis og þeirr- ar ríkisstjórnar, sem ábyrgð ber fjrrir því, til varðstöðu um það, sem helgast er, frelsi landsins og virðingu meðail þjóða, og hún set- ur traust sitt á yður til giftu- samlegra úrræða í hinum mörgu þjóðfélagsmá'lum, sem kenna má við líðandi stundu og úrlausn- ar kref jast.“ Þegar forseti Islands vék að „varðstöðu um það, sem helgast er, frelsi landsins og virðingu meðal þjóða“ veittu þingmenn þvi athygli, að einn af nýju ráð- herrunum kipptist við og leit í áttina til pontunnar. Skrýtinn var svipurinn á honum, en ekki sfcal þó gerð tilraun ti'l að skýra frá þvi, hverju hann lýsti. Ráð- herrann róaðist þó brátt, því að ræðumaður hélt ekfci lengra á þessari braut heldur vék að öðm. Sjálfsagt rennir lesendur grun í, hver sá ráðherra muni vera, sem varð sérlega órótt, er forseti landsins vék að því, að þingmönnum bæri að standa Vörð um frelsi landsins og virð- ingu meðal þjóða og mest væri I þvi efni ábyrgð rikisstjómar- innar og þar méð ráðherranna hvers og eins. En til að einskis missfcilnings gæti, skal tekið fram, að maðurinn heitir Magnús Kjartansson. Frjálsræði í mjólkur- sölumálum Lengi hefur það fyrirkomulag verið gagnrýnt, að kaupfélögin og mjólkursamlögm einokuðu dreifingu mjólkur víða um land til mikils óhagræðis fyrir neyt- endur, en kaupmönnum hefur Víðast hvar verið neitað um að fá mjólk til sölu. Þau sporin eru orðin býsna mörg, sem hús- mæður og aðrir þeir, sem inn- fcaup annast, hafa orðið að ganga, vegna þeirrar þver- móðsku, sem ráðamenn i þessu efni hafa sýnt. Nú hafa borizt af þvi fregnir, að Mjólfcurbú Flóamanna vilji rýmka sölufcerfið, en aðrir aðil- ar virðast vera tregir til, eins og fregnir sem hér í biaðinu hafa birzt um þetta efni, bera með sér. Vonandi tekst nú að knýja fram breytta skipun í þessum málum, enda hafa engin rök ver ið færð fram fyrir því, að nauð- syn beri til að hafa einokunar- fyrirkomulag á verzlun með mjólkurvörur. Stundum er að vísu reynt að halda því fram, að það séu hagsmunamál bænda, að samtök þeirra annist dreif- ingu á þessum vörum, en það er hrein fjarstæða. Hagsmunir bænda eru þeir, að vörur þeirra seljist sem greiðast og á sem beztu verði. Þess vegna á að hafa vörur þeirra á boðstól- um sem víðast og reyna að gera neytendum til hæfis, en ekki að egna þá gegn bændum og sam- tökum þeirra. Þetta ætti hvert mannsbarn að geta skilið. Sextíu atvinnu- pólitíkusar 1 sjónvarpsþætti siðastliðið þriðjudagskvöld var rætt um starfshætti Alþingis, og þar boð aði Eysteinn Jónsson þá kenn- ingu sína af miklum tilfinninga- hita, að nauðsynlegt væri að all- ir 60 þingmenn iandsins væru atvinnustjórnmálamenn. Þeir ættu engum öðrum störfum að sinna en þingstörfunum og helzt ætti Alþingi að standa svo til allt árið. Eysteinn Jónsson hefur áður boðað þessa kenn- ingu sina, en þó aldrei jafn ákaft og nú. Og má kannski segja að það sé eðlileg afleið- ing af þeirri ákvörðun að stór- hækka laun þingmanna. Annars þurfti málflutningur Eysteins Jónssonar ekki að koma á óvart, en hitt vakti vissulega furðu, að þeir þrír þingmenn aðrir, sem mættir voru í þessum sjónvarpsþætti, virtust ýmist sammála Eysteini eða a.m.k. töldu þeir ástæðu- laust að ráðast á þessi sjónar- mið hans, og enginn við- mælendanna í þættinum benti á, að þessi þróun gæti verið hættu leg. En hvað er það þá, sem fetst í þessum kenningum Eysteins Jónssonar? Jú, þingmennirn- ir allir eiga að vera sama mann- gerðin, menn, sem gera það að ævistarfi sínu að sitja á Alþingí, marka þjóðinni lög og stjóma þróun mála. Þeir eiga efcki að stunda nein önnur störf við hlið annarra landsmanna, heldur að vera sérstök stétt manna — að vísu geysifin stétt. Nú er það alveg rétt, að til eru þeir þingmenn, sem hafa gert stjórnmálin að starfi sínu og ekki hugsað sér að hverfa til annarra starfa. 1 þeirra hópi er Eysteinn Jónsson, og víst skal það játað, að hann er að mörgu leyti merkur þingmaður. Sjálf- sagt verður það líka ætíð svo, að einhverjir forustumenn flokka verði atvinnustjórnmála- menn og hugsi ekki um annað, en bréfritari er þeirrar skoðun- ar að það væri kvíðvænleg þró- un, ef allir þingmennimir ættu að verða steyptir í þetta mót. Á því leikur ekki minnsti vafi, að þekking á þjóðmáilum og þörfum borgaranna vex við það, að menn taki þátt- i hinni dag- legu lifsbaráttu, einn sé bóndi, annar sæki sjó, hinn þriðji reki- sitt eigið fyrirtæki o.s.frv. En menn verða ekki hæfari ti'l að fást við hin margvíslegu við- fangsefni, þótt þeir stundi ein- tóman lestur þingskjala og greinargerða. Þvert á móti ein- angrast þeir í hugarheimi stjórn málamanna, sem ekki er alltaf sérlega geðslegur. Ef fylgt yrði stefnu Eysteins Jónssonar mundi af því leiða, að Alþingi yrði nokkurs konar klúbbur fínna manna eða „inn- byrðis vátryggingarfélag fuli trúanna sjálfra" eins og Einar Benediktsson einhvern timann komst að orði. Hver eiga laun þingmanna að vera? Þegar laun alþingismanna voru hækkuð var það -gert af brýnni nauðsyn. Þeir höfðu ver- ið smánarlega lágt launaðir, þannig að menn gátu með engu móti lifað af þeim launum, sem þeim voru greidd. En þar að aufci hafa þingmenn margvisleg gjöld, bæði vegna ferðalaga og risnu. Hækkun þingfararkaups ins var því nauðsynleg, þótt hún hafi kannski verið i ríf- legra iagi, en urn það má ætið deila. Það var annað atriði í hinum nýj-u reglum, sem gaf byr undir væn-gi þeim kenningum, sem hér er fjallað um, en þar sagði, að embættismenn utan af landi, sem á þingi sætu, skyldu ein- ungis hafa 7/10 hluta embætt- islauna sinna, en hins vegar fullt þingfararkaup. 1 þessu ákvæði felst yfirlýsing um það að líta beri á þingmannsstarfið sem átta og hálfs mánaðar starf á ári hverju og þeir, sem önnur störf hafa með hönd- um jafnframt þingmennskunni, gætu þess vegna efcki sinnt þeim nema sem svaraði til þriggja og hálfs mánaðar árlega, ef ekki er tekið tillit til eðlilegra sumar- ifría, en ella væri þingmanns- starfið um 8 mán. og tími til annarra starfa rúmir 3 mán., eða aðeins fjórðungur heils starfs. Því var spáð, þegar þessar reglur voru settar, að þær mundu leiða til þess, að kröf- umar yrðu háværar um, að þingmannsstarfið yrði eina starf ið, sem þingmenn sinntu. Og nú er það komið á daginn, að bar- átta er hafin fyrir því, að reglan verði sú, að menn sinni engu öðru en stjórnmálunum, ef þeir hafa komizt inn á þing. Miðað við að þróunin verði þessi, er þingfararkaup sízt of hátt, en tímabært er að aliir þeir, sem andvígir eru slíkri þró un berjist hart gegn henni, þvi að „atvinnupólitíkusar" virðast nú ætla að herða róðurinn fyr- ir stefnu sinni. Hve lengi á þing að sitja? Nú er sem sagt farið að tala um það, að Alþingi eigi að sitja allt árið — með einhverjum stutt-um hléum að vis-u, likt og jólaleyfum og venjulegu sumar- fríi. Menn hljóta því að spyrja, hvort störfin séu svo mikil á þingi, að þetta sé nauðsynlegt. Satt er það, að störf þing- manna eru ekki einungis seta á þingfundum, ra-unar er það nán- ast aukaatriði, því að mikil störf eru unnin í hliðarsölum Alþing- is og úti um allan bæ og allt iand, að ógleymdum heimil- um þingmannanna sjálfra. Og Ijóst er það, að kjósendur geta með betri samvizfcu beðið þing- mann sinn um að snúast í ýms- um einkaerindum, ef þeir vita, að hann þartf efcki að vinna fyrir sér með öðru en þvi að hafa afskipti af stjórnmálum, þaðan hafi hann full árslaun. Fyrir tveim árum urðu á Al- þingi nofckrar umræður um þing störfin, þar sem Eysteinn Jóns- son hélt fram þeim kenningum, sem hann enn boðar. Þá hrakti Bjarni Benediktsson í-tarlega í merkri ræðu rök þa-u, sem Eysteinn Jónsson færði fram og benti á að þingtímann mætti stytta. Gæti þi-ng staðið skem-mri tíma á ári en verið hefur, og eins væri nauðsynjalaust að hafa þingfundi alla virka daga vik- unnar, og því gætu þingmenn jafnvel í ríkara mæli en verið hefur sinnt öðrum störfum, bæði þeir sem í fjölbýli búa og í ná- lægð við Reyfcjavik og eins hin- ir, sem fjær búa, því að sam- göngur babna nú ár frá ári og menn geta vel skroppið tíl sinna heima, ef þingfundir væru t.d. ekki nema 3 daga vikunnar. Tvö stutt þing á ári Vel mætti hugsa sér, að þing fcæmi sa-rnan tvisvar á ári, t.d. tvo mán. á hausti og 2—3 mán. síðari hluta vetrar, þannig að þingmenn gætu með góðu móti sinnt öðrum störfu-m hálft árið, en auðvitað yrði þá að vera skerpa í þinghaldinu þann tima, sem ALþingi væri að störfum. Reynslan er sú, bæðí hér og annars staðar, áð afgreiðsla þingmála dregst mjög úr höml-u, og oftast fer svo, að slðustu daga þingsins eru mjög mifclar annir, og þá er lokið við eitt og annað, sem vissulega hefði verið unnt að afgreiða áður. Og einhvern veginn er það svo, að hvort sem þingið dregst á lang- inn eða ekki þá bíða mál af- greiðsl-u til síðustu daga. Að þvi er varðar önnur störf í þágu kjósenda og hinna ýmsu héraða en þingst-örfin sjálf, þá geta alþingismenn a-uðvitað ekki síður sinnt þeim á milli þinga — og raunar betur margir hverjir, því að þeir eru þá á heimavíg- stöðvum. En a-uk þess er athygl- isverð sú tillaga, sem einn- ig kom fram í nefndum sjón- varpsþætti, að þingmenn hefðu fri flugfargjöld hvert á land, sem er allan ársins hring, því að víst er það leið til þess að styrkja tengslin við kjósendur og þekkja hagi landsmanna allra. En mergurinn málsins er sá, að það væri mjög miður farið, ef allir þingmenn væru á kafi í stjómmáilunum allt árið. Fjöldi ágætismanna m-undi aldrei gefa sig til framboðs, ef það skilyrði fylgd-i, að menn mættu ekki sinna öðrum störf-um. Hvort tveggja er, að ýmsir frambjóð- endur hy-ggjast ekki vera á þi-ngi til langframa, þótt þeir gefi kost á sér eitt eða tvö kjör- tímabil og vilja þvi efcki fórna stöðum, sem þeir hafa með hönd- um, en naumast getur það talizt verjandi til langframa að ha-lda í starf, sem sjálfur löggjafinn er búinn að lýsa yfir, að menn megi ekfci sinna nema sem svar- ar í árs-fjórðung. Og svo er á hitt að líta, að þeir, sem sjálf- stæða atvinnu st-unda, hvort heiid-ur þar er um að ræða bænd ur, útvegsmenn eða iðnrekend- ur, fcæra sig iítt um það að fóma fyrirtækj-um sinum til að öðlas-t j>ólitíska upphefð og þa-u áhrif, sem þingmennsku eru sam fara. Enginn vafi er þess vegna á því, að Alþingi yrði mun lág- reistara, ef sú stefna sigraði, sem nú er boðuð. Þar yrðu all- ir steyptir í sama mótið og þar væri ekki kominn saman þver- Skurður íslenzfcs þjóðlífs, held- -ur samfélag sérstakrar mann- gerðar, sem minni tengsl ættí við landið og sjöinn en nú er. Opin í báða enda Þegar Framsóknarflokkur- in-n afgreiddi stefnu-skrá sina á flokksþingi á síðastliðnum vetri, sagði Kristján Benediktsson, framkvæmdastjóri Tímans, að hún væri „opin í báða enda“. Þessi orð urðu fleyg, sem von- legt var, enda undirstrifc- uðu þau enn rækilegar já, já — nei, nei stefn-u Framsóknar- flokksins en áður hafði verið gert. Nú hefur vinstri stjórnin undir forustu Framsófcnar- flofcksins sent frá sér sín fyrstu fjárlög, og um þau má segja það sama og stefnu Framsóknar- flokksins, að þau eru „opin í báða enda“. 1 frumvarpinu eru margháttuð rikisútgjöld vanáætl uð, þrátt fyrir þá gífurlegu hækkun, sem á frumvarpinu er og nemur 3 milljörðum króna eða 27,5%. Að hinu leytin-u er svo ekki mörfcuð nein stefna varðandi tekjuöfl-un ríkissjóðs, en augljóst, að veru-lega mikilia tekna verður að afla, ef ekki á að afgreiða fjárlög með tekju- halla á mifclum þensl-utímum. Þrátt fyrir hina geysimiklu veltu í þjóðfélaginu og gífurleg- ar tekjur, sem rikissjóður þess veg-na hefur fengið, er því aug- ljóst, að langt er í land, að fjár- lög séu í þeirri mynd, að unnt sé að afgreiða þau, og þe,ss vegna verður mjög fróðlegt að fylgjast með framvindu mála á sviði rikisútgjalda og skattíla-gn- ingar. Skal engu um það spáð, hver niðurstaðan verður, en landsmenn bíða átekta. Leifur Haraldsson tók þessa mynd nýleg'a yfir Seyðisfjörð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.