Morgunblaðið - 17.10.1971, Síða 17

Morgunblaðið - 17.10.1971, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1971 17 Þórður Gísli Guð- jónsson — F. 5. okt 1902. D. 28. scpt. 197 L I HRAÐFLEYGU viðtali frétta- manxis nú nýverið við einn roerkasta þjóðarleiðtoga á Norð- urlöndum i seinni tíð, Einar Gerhardsen, lét þessi marg- reyndi stjórnmálaskörungur og stríðshetja þess getið, að hann heÆði um árabil verið vegagerð- armaður og þótt sá starfi góð- ur. Taldi hann líklegt að vinna við vegalagningu hefði orðið sitt ævistarf, ef samferðarmenn hans og félagar hefðu ekki hvatt hann tii annarra starfa. 1 þessari markverðu yfirlýs- ingu manns, sem hefur um ára- bU gegnt forystuhlutverki og mun óumdeilt vera talinn einn af mætustu mönnum Noregs, feist sá djúpstæði sannieikur, að við vitum ekki einatt, hvar réttast er að leita afburða- mannsins, og hver á í raun og sannleika mestan trúnað og virðingu skilið. f viðtali forsætisráðherrans fyrrverandi kom glögglega fram, að hann taldi vegavinnu- starfið sér jafnverðugt og þjóð- félaginu jafnmikUvert og þann starfa, sem hann var siöar kvaddur tU að gegna. Þetta viðhorf hins viðsýna og gagnmerka þjóðskörungs mun þvl miður ekki vera nægilega ríkt í huga okkar, eða ráða manngUdismati fjöldans að jafnaði. f»ó komumst við naum- lega hjá því stundum, þegar við kveðjum langreyndan samferðar mann og vin að Láta okkur bjóða í hug, hvort mannkostirnir, trú- leikinn, iðjusemin og athöfn öU hefði ekki verið þann veg, að á betra hefði ekki verið kosið i fari þeirra er fremstir ganga. Minning Þessar hugleiðingar kunna að eiga við, þegar slíkur mann- kosta- og drengskaparmaður, sem Þórður Guðjónsson, er kvaddur, en hónum eru þessar linur tUeimkaðar. Stundum getur orðið fuU erfitt að átta sig á því, er sam- ferðanmenn okkar hverfa skyndi lega af sviði þessa jarðlífs. Svo fór mér, er Þórður Guðjónsson var kallaður af æðri máttarvöld- um 18. sept. síðaistUðinn. Þórður GisU Guðjónsson var fæddur í Reykjavík 5. okt. 1902, sonur hjónanna Guðjóns Jóns- sonar, trésmiðs, og konu hans, Guðrúnar Jónsdóttur. Var Þórð- ur í hópi eUefu barna þeirra hjóna. Ekki er að efa, að oft hefur verið þröngt í búi hjá þeim hjónum með slíkan bama- hóp og því var það, að Þórður varð að yfirgefa æskuheimih sitt, meðan hann var enn i bernsku. Um skeið dvaldlst hann á ýmsum sveitaheimUum í Borg- arfirði og ekki er að efa, að stundum hafa sporin verið þung á þessum árum hjá Utlum dreng fjarri foreldrum sinum og systkinum, enda mun það hafa sett svip á Uf hans aUt æ síðan. — Síðar lágu spor Þórðar aftur til Reykjavíkur eftir að hafa starfað • við margs konar land- búnaðarstörf viða um Kjósar- sýslu. — Um 15 ára skeið vann hann við bú Högna HaUdórs- sonar, að Langholtsvegi 145 hér í borg. Mun hann hafa átt at- hvarf hjá þeim hjónum allt til hinztu stundar. — Síðasta ára- tuginn starfaði Þórður við Ræktunarstöð Reykjavíkurborg- ar i Laugardal og þar hófust kynni okkar. Oft er vandséð, hvaða sam- ferðamönnum og fyrirrennurum við, sem enn hjörum, eigum mest að þakka. Við, sem áfram dundum við moldina í Laugar- dalnum, erum þó ekki í neinum vafa um, að samfylgdina hans Þórðar megum við þakka, ekki aðeins frá liðnum árum, heldur einnig fram í tímann, þvi að ekki gleymist góðlátlegi félag- inn. Félaginn, sem hjálpar okk- ur enn um sinn til að meta réttilega það bezta í fari þeirra, sem eftir koma og áfram halda. Vonandi starfa þeir með sama hætti og þessi gagnvirki og gagnmenntaði verkamaður, sem aldrei hafði níðzt á netnu, er honum var tiltrúað. Ekki verður vitað, hvort Þórð- ur Guðjónsson hefði getað orðið slíkur forystumaður, sem fyrr var getið, ef hann hefði verið til þess kvaddur, en hitt vita þeir, er þekktu hann, að flesta þá kosti hafði Þórður til að bera, sem orka bezt og duga lengst til þess að færa einum og öll- um þá gæfu og leiðsögn, sem ein dugar, jafnvel þótt hún dugi skammt. Hann vildi öllu og öll- um gott gjöra, það vita þeir vinir hans, sem þekktu hann bezt og sakna hans mest. En öll megum við vita, að slíkar verða mannvirðingar mestar. Blessuð sé minning hans. Steingr. Benediktsson. Starfsmaður óskast Mann vanan búskap vantar á kúabú í Garðahreppi, strax. Upplýsingar í síma 42816 milli kl. 6 og 7 síðdegis. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA. Skoðið ATLAS FRYSTI- KISTURNAR Skoðið vel og sjáið muninn í efnisvali # frágangi ^ tækni Ungir frískir menn geta fengið hreinlega verksmiðjuvinnu á fjölmennum vinnu- stað nú þegar. Tekið á móti umsækjendum tii viðtala á morgun. FATAVERKSMIÐJAN SPORTVER H/F. Skúlagötu 61. litum og formi FREGNIN FLAUG UM LANDIÐ — flelrí og fleiri sjá að hér er kominn bíllinn sem þeir biðu eftir. Við viljum reyna að tryggja að biðin verði ekki of löng hjá öllum sem á eftir koma. Samt getum við ekki pantað bíla flugleiðis, svo það er um að gera að ákveða sig sem fyrst. Allir þekkja Cortinuna, — en nú er hún næstum óþekkjanleg — endurbætt frá grunni. Hjá Ford-umboðinu Kr. Kristjánsson, Suðurlands- braut er hún til sýnis. Orð gefa fátæklega mynd — látið eigin sjón og reynslu dæma. CORTINA HR.HRISTJÁNSSDN H.F. U M B 0 II III SUDURLANDSBRAUT 2 • SIMI 3 53 00

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.