Morgunblaðið - 17.10.1971, Page 24

Morgunblaðið - 17.10.1971, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1971 Hrúturinn, 21. marz — 19. april. Reyndu að lesgja eins lítið á þifi og þú möfiulefia fietur. Nautið, 20. apríl — 20. mai. Fólk er þrasfijarnt þessa stundina, en það er engin ástæða til þess, að þú eifiir að láta það þig neinu skipta. Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní. l»ú hefur færzt dálítið um of f fang, og verður að slá af í svipinn. Krabbinn, 21. júní — 22. júlí. Ef þú gefur einkamálunum meiri gaum en þú hefur gert, get- urðu komið hag þínum í gott horf. Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst. Reyndu að láta hávaðann í öðrum eins og vind um eyrun þjóta. Mærin, 23. ágrist — 22. september. hú verður að gera eignakönnun og skipuleggja þótt óraunhæít sé. Vogin, 23. september — 22. október. Lagfærðu allar skekkjur í fjárhag þínum hið fyrsta. Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember. I»ú kannt að enda sem efnalega velstæður maður, en það skapar öfund. Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember. Alvarleg hugsun kemur þér að furðanlegri niðurstöðu. Steingeitin, 22. desember — 19. janúar. hú ert nærri því að ganga of langt en það er ekkert óvirðulegt að fylgja fast eftir hugðarefnum. Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar. _\ form J>ín ættu að vera skýr, ef allir eig'a að njóta góðs af. Fiskarnir. 19. fehrúar — 20. marz. Óákveðin afstaða þarf ekki að tefja fyrir vinnu þinni. ar, blandaðist ofurlitlu suði frá miðstöðvarofninum. Vísai’nir á klukkunni sýndu 10.45. Stynjandi dróst ég fram úr, með óbragð í munninum og Nú eða... næst er þér haldið samkvæmi; FERMINGAR- AFMÆLIS- eöa T7EKIF7ERISVEIZLU erum við reiðubúnir að útbúa fyrir yður: Kalt borð, Heita rétti, Smurbrauð, Snittur, Samkvæmissnarl. Auk þess matreiðum við flest það, sem yður dettur í hug, — og ýmislegt fleira! Soelkerinn HAFNARSTRÆTI 19 hausinn eins og hann hefði ver- ið brotinn upp og settur saman aftur eins og bezt vildi verkast. Fyrir nokkrum klukkutímum, þegar ég fór að hátta, hafði ég lokað öllum gluggum og kveikt öll ljós. Ég gekk nú um með veikum burðum, slökkti ljósin og opnaði gluggana til þess að hleypa hreinu lofti inn. Mér fannst sú tilhugsun óþolandi að eiga nú að horfast í augu við nýjan dag með öllu hans mót- iæti og mig langaði mest til að fara upp í aftur og sofa vikum saman. En bráðum kæmi hr. Parrott, svei honum! Ég hafði engan tíma til að sofa. Það virt ist ótrúlegt, að ég fengi nokk- urn tíma að sofa framar. Ég hugsaði með mér, meðan ég var að gefa kettinum og hita kaffið: Hann verður vandamál. Hann er þegar orðinn það. Fjandinn hirði hann — hvers vegna getur hann ekki spurt alla hina fyrst og lofað mér að sofa? Ég gekk inn í baðherbergið og undir steypuna hálfringluð. Kalda vatnið hafði góð áhrif á blóðrásina og eyddi smám sam- an þeirri tilfinningu, að ég hefði sofið í ruslafötunni. Enda þótt heilsufarið væri ekki upp á það bezta, var ég samt orðin nægi- lega hress til þess að geta farið að velta fyrir mér alls konar sundurlausum og hryliilegum hugsunum. Það voru nú fyrst og fremst minar eígin áhyggjur, sem hóf- ust í gær með bréfi Melchiors og uxu svo álíka og baunagras- ið hans Jacks í sögunni — áhyggjur, sem komu mér einni við og alls ekki lögreglunni — það er að segja færi hún ekki að sletta sér í þær fyrir til- verknað þessa andstyggilega hr. Parrotts. Þarna var morð, sem kom mér raunverulega ekk ert við, nema þessi Parrott og slepjulegi fulltrúinn héldu áfram að klína því á mig. Og svo var þessi síðasta ákoma þegar ég var loksins komin heim í morgun — að finna, að ein- hver hafði komizt inn í íbúðina mina, og hin algjöra óvissa um, eftir hverju hann hafði verið að sækjast. „Ég trúi ekki á tilviljanir," hafði fulltrúinn sagt. —Ekki svona tilviljanir. Það gerði ég heldur ekki. Ekki á morð og innbrot sömu nóttina, ef ekki var neitt sam- band þar í milli. Jæja, það skyldi nú ekki endurtaka sig. Jafnskjótt sem Gordon Parrott væri farinn, skyldi ég láta hús- vörðinn setja læsingar á glugg ana. Kaffið var farið að sjóða í könnunni, þegar ég reikaði aft- ur fram í eldhús á nærklæð- unum, i slopp utan yfir mig. Ég var að brenna mig í kverkun- um með kaffinu, þegar dyra bjallan hringdi og ég velti sykur karinu um koll. Sykurinn, sem fór niður, settist í inniskóna mína og marraði andstyggilega undir fæti og skildi eftir sig feril út að dyrum. Hver er það? kallaði ég, hás af hræðslu og timburmönnum. — Það er Pa-rrott. Hleypið mér inn. — Ég er ekki klædd, sagði ég og hreyfði mig ekki. Farið þér burt og komið aftur seinna. — Það er sama þótt þér séuð ekki klædd. Ég þarf að tala við yður. — Já, en ég er ekki klædd, öskraði ég aftur. - ég er ekki i neinu. — Ef þér ætlið að snúast svona við þessu, skipa ég yður að opna í laganna nafni! Ég opnaði dyrnar. — Komið þér inn. Það er sjálfum yður að kenna. Ég benti með hendinni um íbúðina, þar sem allt var á rúi og stúi og benti loks á sjálfa mig, fáklædda og ómál- aða. — Þér litið ágætlega út, sagði hann blátt áfram. — Hvernig líður yður? Hann fleygði hatt- inum sínum og frakkanum og JÓLASKÓRNIR FYRIR TELPUR OG DRENGI ERU KOMNIR Verða seldir nœstu daga að Laugavegi 103 — Kaupið jólaskóna strax — Fáum ekki aðra sendingu fyrir jól SKÓBÚÐ AUSTURBÆJAR LAUCAVECI 103 BARNAMYNDATÚKU Munið okkar vinsælu barnamyndatökur. Pantið tímanlega fyrir jól. Við útbúum jólakort eftir myndum. frá okkur. BARNA- & FJÖLSKYLDU Austurstræti 6 — Sími 12644.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.