Morgunblaðið - 03.11.1971, Side 10

Morgunblaðið - 03.11.1971, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1971 , ,Str engj ahl j óm urinn minnti á Dettifoss64 — sagði Björn Ólafsson, fulltrúi Íslands í Heimssinfóníuhljómsveitinni „I»að er skoðun mín, að sé það nokkuð, sem sé sameinandi í heiminum i dag, þá sé það tónlistin. Enda er það í sam- ræmi við það, sem einn ágæt- ur íslendingur sagði við mig, en hann starfar hjá Samein- uðu þjóðunum: — Hjá Sam- einuðu þjóðimum eru haldn- ar ræður um mikilvæg mái- efni fyrir tómum bekkjum, en þegar haidnir eru hljómieik- ar sem þessir, þá er troðfullt hús og allir hlusta.“ Þannigr fórust Birni Ólafssyni, kons- ertmeistara, orð á fundi með fréttamönnum, þar sem hann skýrði frá för sinni til Banda ríkjanna. þar sem hann lék í Heimssinfóníuhljómsveit- inni sem fulltrúi Sinfóníu- hljómsveitar fslands. Heimssinfóníuhljómsveitin, World Symphony Orchestra, var skipuð 141 hljóðfæraleik- ara frá rúmlega 60 löndum og flestum ríkjum Bandaríkj- anna. Þessir hljóðfæraleikar- ar voru saman í eina viku, dagana 19. tii 26. október og léku á þessum tima á þrenn- um hljómleikum í Bandaríkj- unum. Það voru ýmis félaga- samtök, stofnanir og fyrir- tæki í Bandaríkjunum, sem stóðu fyrir þessari samvinnu hljómlistarmanna úr öllum heiminum, þeirra á meðal Pe- ople-to-Peopie-samtökin, fé- lög Sameinuðu þjóð£inna í Bandaríkjunum, fyrirtæki Walt Disneys, flugfélögin Pan American Airlines og Eastem Airlines og ýmsir fleiri aðilar. Undirbúninigurinn stóð í um hálft ár og unnu fjölda- margir að þessu verkefni. Sinfóniuhljómsveit Islands var boðið að tilnefna fiðlu- leikara í hóp 1. fiðlu, og varð Björn Ólafsson, konsert meistari fyrir valinu. Hann fór utan til New York 15. okt., en 19. okt, hófst hin elg inlega dagskrá hljómsveitar- innar. Þann dag var sameigin legur morgunverður hljómlist armannanna og fékk þá hver þeirra sérstaka orðu til að bera þessa daga og var borð- inn í fánalitum viðkomandi lands. Síðan hófust æfingar og var æft í þremur hljóm- leikasölum í New York; Camegie Hall, sem Bjöm taldi bezta hljómleikasal sem hann hefði nokkurn tímann komið í, Radio City Music HaJl og síðan í Lincoln Cent- er, þar sem fyrstu hljómleik- amir voru haldnir. Stjóm andi hljómsveitarinnar var bandariski hijómsveitarstjór- inn Arthur Fiedler, sem er heimsfrægur fyrir stjórn Boston Pops-hljómsveitarinn- ar, en hann er nú orðinn 77 ára gamall, en þó enn i fullu fjöri. Efnisskráin á hljómleik Björn Ölafsson, konsert.nieistari, nieð gjafirnar til minning; ar um Heimssinfóníuhljómsveitina. (Ljósm. Mhl. Kr. Ben.) unúm var þessi: „Fanfare for the Common Man“ eftir Cop- 'land, Hátiðarforleikur op. 96 eftir Sjostakovitch, Forleikur og „Liebestot" úr „Tristan og Isolde“ eftir Wagner, „Furur Rómaborgar" eftir Respighi, Dans eftir argentínska tón- skáldið Ginastera og Svita úr „Gaite Parisienne" eftir Off- enbach. Var sama efnisskrá- in á öllum þrennum hljóm- leikunum. Síðan var haldið til Or- lando á Florida og þar voru haldnir hljómleikar fyrir ut- an Öskubuskuhöllina i hinum nýopnaða „Heimi Walt Disn- eys“, sem er risastór skemmti garður með gifurlega miklurn og fullikomnum útbúnaði tll að skemmta fólki. Voru hljómleikarnir þáttur í vígslu „heimsins“. Síðustu hljómleikamir voru svo í Framh. á bis. 15 Kartöflubændur sitja með umf ramf ramleiðslu Uppskeran 30-40 þúsund tunnum of mikil — Varnarmái Framhalci af bls. 32. för varnariiðsins, og þess vegna vildu kommúnistar i lengustu lög halda varnarmálunum innan ríkisstjórnarinnar, en utan Al- þingis. Þvi spurði hann, hvort málið yrði iagt fyrir Alþingi, áð- ur en utanríkisráðherra legði til- lögu sínar fyrir ríkisstjómina eða eftir að hann gerir það. Utanrikisráðherra: Ég hef ekki gert mér grein fyrir því. En ég undirstrika, að ákvörðunin í mál- inu verður Alþingis. Og siðar sagði utanríkisráðherra: Það veður ekkert skref stigið, án þess að Alþimgi fái að viita um það og hafi um það úrskurðarvald. Vegna ummæla Sveins Bene- diktssonar um það, að fullrar að- gátar væri þörf í öryggismálum Islendinga, sagði utanríkisráð- herra: Við ætlum að vera áfram í NATO og við ætlum að endur- skoða, hvað við þurfum af hendi að láta til þess að standa við skuldbindingar okkar. Það er að- staða fyrir NATO. Það er aðvör- unarkerfi. En spumimgin er í mínum huga: Er þörf á herliði. Kotaðir bílar til sölu árg. í þ. kr. ■71 Vauxhall Viva 255 '70 Opel Rekord 350 '70 VauxhaH Victor 260 '69 Vauxhali Victor, stat. '68 Scout 800 250 '67 Opel Caravan 305 '67 Chevrolet Malibu 275 '67 Opel Caravan, 6 cyl. 275 '66 Scout 800 195 '66 Chevrolet Nova 195 '66 Chevrolet Chevy V. 160 '67 Toyota jeppi 210 '67 Dodge Coronet 280 '66 PMC Gloria 150 KARTÖFLUUPPSKERAN hefur orðið svo góð á þessu hausti, að offramleiðsla virð- ist vera á kartöflum. Sam- kvæmt talningu sem Græn- metissalan hefur gert, mun uppskeran nema um 140— 150 þúsund tunnum, en árs- notkun í landinu mun vera nálægt 110 þúsund tunnur. Tölurnar eru þó ekki ná- kvæmar, því nokkuð hefur orðið að áætla, að því er Jó- hann Jónasson, forstjóri Grænmetissölunnar tjáði Morgunblaðinu. Sagði hann að þetta væri ör- ugglega mesta kartöfluuppskera, sem nokkurn tíma hefði fengizt hér á landi. Árið 1939 var geysi- góð uppskera miðað við niður- setningu, en þá var ekki svo mikið sett niður, enda ekki komnar til stórvirkar vélar. Sú uppskera var aldrei mæld, því megnið af henni ónýttist vegna kartöflumyglu. Jónas sagði að Grænmetissal- an hefði að sjálfsögðu ekki við meiri kartöflur að gera en þær sem hún selur, en 65 verzlanir á landinu taka að auki við kart- öflum og selja. Væri reynt að kaupa hlutfallslega af mönnum, eftir þvi sem hægt væri, en hvað yrði um það sem ekki gengi út væri óráðið. ENGIN VERKSMIÐ-IA Mbl. hringdi i framhaldi af þessu til Magnúsar Sigurlásson- ar, fréttaritara blaðsins í Þykkvabænum, en þar var fram- leiddur stór hluti af kartöflum á markaðinum. Sagði Magús í athugun hvort hægt yrði að gera eitthvað við umframfram- leiðsluna. En gallinn væri sá að engin verksmiðja væri hér til, til þess að vinna úr kartöflum sterkju eða eitthvað annað, og því nýttist ekki umframfram- leiðsla eða smákartöflurnar, sem alltaf legðust til. Sagði Magnús að framleiðend- ur væru gramir yfir því, að hafa engin ítök í Grænmetisverzlun- inni, sem er eign Framleiðslu- ráðs og fyndist seinagangur á könnun á hugsanlegum verk- smiðjuiekstri og nýtingu á þess- ari vöru til annarra hluta en beinnar neyzlu. En enginn mað- ur, sem þama ætti hagsmuna að gæta, væri í stjórn Grænmetis- sölunnar. — Lækna- miðstöð Framh. af bls. 2 hluta, en sem störfuðu að hluta hjá læknamiðstöðinni. Bæjarráð fór þess á leit, að nefndin starfaði áfram að undir- búningstofnunar læknamiðstöðv- ar fyrir Akureyri og hefði hún samband við heilbrigðisyfirvöld landsins um málið. Lögð yrði fyrir bæjarráð kostnaðar- og fjármögnunaráætlun fyrir stöð- ina. Þessi afgreiðsla bæjarráðs hefur nú verið samþykkt í bæj- arstjórn. — Sv. P. — Flugfélögin Framliald af bls. 32. herra, þótt vandinn sé þjóðfélags legur að vissu leyti. Það var skýrsla um þú fundi, sem fulltrúar félaganna voru nú að gefa ráðherrunum, er efnt var aftur til fundar hjá samgöngu- málaráðherra og fjármálaráð- herra. Sagði Hannibal að flugfélögin mundu halda áfram viðræðum og teldi hann farsælasta lausn, ef þau gætu leyst þessi mál með sem minnstum ríkisafskiptum. Hjólaði á bíl Um kl. 6,50 í gækvöldi ók drengur á skellinöðru á bíl á gatnaimótum Nesvegar og Kaplaskjólsvegar. Tvíbrotn- aði hann á öðrum fæti við áreksturinm. Skrifstofur Meistarasambands bygginga- manna og Meistarafélaganna í Skipholti 70, verða lokoðor eftir hddegi í dog vegna jarðarfarar Gríms Bjarnasonar, pípu- lagningameistara. Fiskibátur til sölu Til sölu er 26 rúmlesta eikarbátur, byggður. 1962, búinn 240 ha Scania vél, frá árinu 1970 I bátnum er Elac-fisksjá, 48 sjm, Decca-radar, 4^ tonna togspil og álklædd lest. Bátur og bún- aður í mjög góðu ástandi. Allar upplýsingar veitir Jónatan Sveinsson, lögfr., Reykjavík, í síma 83053, eftir kl. 17, og Símon Ellertsson, Dalvík, sími 96-61163. <c ► Ut m !! í «tuttumáli TJÓN Á VARÐSKIPI Talsvert tjón vairð á va<rð-, skipimi Ægi, þegar olíudæl- ^ ur, sem dæla olíu af dráttar- spili og akkerisvindum slkips- ins, biluðu. Gerðist það þegar J skipið var að fara úir höfnl síðast, og þurfti það að sraúaí við inn, til að láta gera við þetta. Er þetta tafsöm viðgerð, að því er Pétur Sigurðsson, for- stjóri Landhelgisgæzlunnar tjáði blaðinu. Fór meiri( hluti áhafnar Ægis á meðan yfir í varðskipið Albert, sem, er við landhelgisgæzlu. GÆZLA AUKIN VI» FLUGVÉUARNAR Lögreglan í Glasgow vinn- ur að því að reyna að hafa upp á þeim, sem hringdi og kvað sprengju vera í Flug- félagsvél, en eklki hefur enn ■hafzt upp á þeim, sem þar var að verki. Gæzla hefur verið aukin við flugvélar félagsims í Glasgow, þar sem tvívegis hefur verið um sllkt sprengjugabb að ræða. Er gæzlan auikin við sjálfa flugvélina þar meðan hún hefur viðdvöl, og einnig í sambandi við vörur, farþega- farangur og annað, sem fer um borð, en slíkt er gert á vegum löggæzlunna-r í Gla3- gow. FYRIRLESTUR UM ÍSL. BÓKMENNTIR Guðmundur G. Hagalín, sem er gistifyrirlesari við Háskóla íslands í vetur, flyt ur fyrirlestra um íslenzlkar bókmenmtir á fimmtudögum kl. 18,15 í 1. kennslusitofu Há- skólanis. An nar fyrirlestur hanis verður á morgun, fimimtudaginn 4. nóvember, og er öllum heiimill aðgang- ur. — (Frétt frá H. f.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.