Morgunblaðið - 03.11.1971, Page 25
MORGUNBLAÐÍÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVBMBER 1971
25
IflK i
fréttum áSSki
0 Y. - SLl
HVAB
HRÆÐSLA
ER NÚ 1»AÐ?
Rudi Omankowski, línudans
ari, sýndi íbúum Björgvinjar í
Noregi nýlega listir sínar á eft
irminnilegan hátt. Hann lét
strengja línu á milli tveggja stor
hýsa og gekk síðan eftir henni
á milli þakanna — með bundið
fyrir augun! Áhorfendur stóðu
á öndinni af spenningi — en
Rudi fór léttilega alla leiðina —
utan eitt augnablik, er hann
hrasaði, en datt þó ekki niður
en varð að setjast á línuna. —
Voru sumir helzt á þeirri skoð
un eftir á, að þetta hefði aðeins
verið hluti af sýningu hans —
til að gera hana meira spenn
andi. -En sýningin var hluti af
fjársöfnun og á meðan Rudi
„spásséraði" uppi i „háloftun
um“, gengu skátastúlkur og
dre-ngir á milli manna fyrir neð
an og söfnuðu peningum í
bauka.
„Pú ert kát og góðlynd, jat'n
vel þegar þú ert köliuð ,Bo)la‘.
— tfwf —
NY GERÐ AF HÖXTUM
Þessi hattur kom fram á tízku
sýningu hattaframleiðanda í
Englandi nýlega og fylgdu lion
um þau meðmæli, að hann
hæfði konum á öllum aldri við
öll tækifæri. Okkur finnst hann
líkastur spaghettibúnti, en eitt
hvað verða konunnar að ha,fa á
höfðinu!
Anna prinsessa er mjög
gefin fyrir að prýða höf-uð sitt
alls konar höttum og hér sjáum
við tvö sýnishorn. Þann efri
þarf væntanlega ekki að út-
skýra neitt frekar, en sá neðri
er hluti af einkennisbúningi
brezks hermanns, en Anna
klæddist þes-sum búningi, er
hún heimsótti brezka he-rdeild
í Hong Kong. — Eins og sjá
má á neðri myndinni, hefur
henni ekki þótt ástæða til að
taka af sér eyrnalokkana!
☆
IIÆTTA Á NÆSTA LEITI - Eftir John Saunders og Alden McWiliianis
I KNOW My HORSES, PETE.'...
AND I KNOW PEOPU6/ BEUEVE
ME ...HEE.HEE...ITAL BEA
PERFECT COMBINATION/
/f k Wf/,utAmy
.Jæja, Raven, eins og þeir segja: Sé
þig í réttarsalnum. Kannski er ég sá
tieppni. Hvað meinarðu, Canton? (2.
mynd) Ég fæ að minnsta kosti heiðar-
Ieg réttarhöld. Ég er ekki viss um að
vinkona þin, Helena Handolph, trúi á
lagaleiðina. (3. mynd). Ég er ekki viss,
frú Kandolph. Ertu viss tim að þú viljir
setja herra Raven á Hvirfilbyl? Ég þekki
hestana mína, Pétur, og ég þekki fólk.
Trúðu mér, he, he, þeir eru eins og skap-
aðir hvor fyrir annan.
FORBOÐNI AVÖXTURINN
FREISTAÐI
Tveir ungir merin í Chester í
Englandi voru handteknir, grun
aðir uim innbrot 1 íbúðarhús. —-
Við rannsókn kom í ljós, að þjóf
arnir höfðu þitið í epli á staðn
um og tannaförin í eplunum
féllu nákvæmlega að taningörð
um félaganna. Þeir sáu sitt ó-
vænna og játuðu á stundinni —
og um leið játuðu þeir á sig um
50 innþrot af svipuðu tagi!
☆
SPAKMÆLI
Yfirleitt lltur bóndinn með
heilbrigðu raunsæi á afstöou
mannsins til hins eilífa. Hann er
hvorki hugsæis- né efnis-
hyggjumaður, heldur einmitt
raunsæismaður, maður veruleik
ans. Þeim mun sannari er líka
hans sanni trúarþáttur. Hann
blæs sig ekki út, gengur ekki
alltaf um með ímyndað heims-
stjórnarstærilæti í kollinum.
Hann veit, að rétt eins og hann
sjál'fur meðhöndlar sæðið, með-
höndlar Guð sjálfan hann. Þann
ig verst bóndinn þeirri heimsku
og þeim belgingshætti, sem eru
kátbrosleg í fari hinna „and-
l-egu stórmenna". — Bóndinn er
í eðli sínu trúaður vegna þess,
að hann er aldrei sjálfum sér
nægur. Hann finnur, að hann
er undirgefinn æðri hendi.
— E. Berg-grav.
MORGUNBLAÐSHUSINU