Morgunblaðið - 14.11.1971, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1971
7
ÁIWAl) IIIOILLA
75 ára er 5 dag Gu&mundur
Ólafsson, bóndi, Ytra-FelQi, Fells-
sti'önd, Dalasýsliu.
80 ára verður á morgun 15.
nóvember frú Sigriður Guð-
imu ndisdóttir Rauðarárstíg 11.
Hún tekur á móti gestum í dag
14. nóv'ember milli 3—7 að heim
ili dóttur sinnar oig tengdason-
ar í Skiphölti 5.
70 ára er i dag frk. Elín Tómas
dóttir, Austurbrún 6. Hún
dwelst efiir hádegi í dag, að
heimili Viigfú-sar bróður síns og
konu hans, að Rauðagerði 18.
1 dag er 94 ára T. F. Júlinius
son fyrrverandi skipstjóri.
Hann dvelur nú á sjúkrahúsi.
Valgarð Briem.
Hinn volalði sér aldrei glaðan dag, en sá, sera vel liggur a, er
sífellt í veizlu. (Orðskv. 15.15).
I dag er stunímidagur 14. nóvember og er það 318. dagur árs-
ins 1971. Kf'tir lifa 47 dagar. 23. sunnudagiir eftir Trinilatis.
Tungl fiærst jiirðn. ÁrdegisJiáflæði kl. 4.05. (Úr ístamls alrnan
akinu).
Almennar upplýsingar um lækna
þjónustu í Reykjavík
eru gefnar í símsvara 18888.
Lækningastofur eru lokaðar á
laugardögum, nema á Klappar-
stig 27 frá 9—12, simar 11360 og
11680.
Næturlæknir í Keflavik
12., 13. og 14. Jón K Jóhannss.
15.11. Kjartan Ólafsson.
Asgrimssafn, Bergstaðastræti 74
er opið sunnudaga, þriðjudaga
og fimmtudaga frá kl. 1.30—4.
Aðgangur ókeypis.
Listasafn Einars Jónssonar
(gengið inn frá Eiriksgötu) er
opið f;rá kl. 13.30—16. Á sunnu-
dögum
Náttúrugripasafnið HverlisgötU 116,
Opíð þriöjud., limmtud., laugard. cg
sunnud. kl. 13.30—16.00.
Uáðgjafarþjónusta Geðverndarfélags-
ins er opin þriðiudaga kl. 4.30—6.30
siðdegis að Veltusundi 3, slmi 12139.
Þjónusta er ókeypis og öllum heimii.
Sýning Handritastofunar Islanda
1971, Konungsbók eddukvæða og
Flateyjarbók, er opin á sunnudögum
«1. 1.30—4 e.b. í Árnagarði við SuOur
götu. Aðgangur og sýninearskrá
ókeypis.
Notið helgina til gönguferða!
Basar kristilega sjómannastarfsins
Kvenfélag krisitilega sjömsuina
starfsins hefur basar í sjómanna-
heimilinu að Skúlagötn 18 í dag.
Hér er fámannur, en áhugasam-
ur hópur ísl. kvenna að verki,
sem hefur það niarkmið að
stofna kristilegt s.jómannaheim-
ili í Reykjavík. Þessi basar er
liður í fjáröfluniarstarfi fyrir
íslcnzkt sjómannaheimili í
Reykjavík, sem flestir munu
sammála um að bráð nauðsyn
sé á að geti tekið til starfa sem
fyrst.
Margir góðir nmnir eru á boð-
stólum og er þess vænzt, að þeir
sem áhuga haii á að styrkja
þet.ta málefni, noti tækifærið og
fjölmenni á basarinn, og það
heldur fyrr en seinna, því að
munirair miinu seljast fljótt npp,
esf að likiim lætnr. Myndin að of-
an er tekin af nokkruni mun-
anna, sem til sölu verða á basarn-
um.
DAGBÓK
Nýr hæstaréttarlögmaður
Nýlega hefur Valgarð
Briem lokið tilskildum próf-
uim til að öðlast leyfi til mál
flutnings fyrir Hæstarétti.
Valgarð Briem er fæddur
31. janúar 1925 i Reykjavík.
Foreldrar: Anna f. Claessen
og Ólafur Briem. Námsferilil:
Verzlunarpróf frá Verzunar
sikóla Islands vorið 1945.
Bmbættispróf í lögfræði frá
Hásikóla íslands í janúar
1950. Framhaldsnám í sjó-
rétti og niðurjöfnun sjótjóna
í London 1950—1951. Löggilt-
ur niðurjöfnunarmaður sjó-
tjóna árið 1951. Héraðsdóms-
lögmaður árið 1953. Hæsta-
réttarlögmaður 15. október
1971.
Valgerð réðst til Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur 1. ágúst
1951 og jafnframt bví slarfi,
íramkvæmdastjóri Umferðar-
nefndar Reykjavíkur frá ár-
inu 1955. 1. okt. 1959 skipað-
ur forstjóri Innkaupastofnun
ar Reytkjavikurborgar.
Gegndi þvi starfi til 1. des.
3966, en stofnaði þá fyrirtæk
ið Hf. Útboð og Samninga og
er forstjöri þess. Rekur jaín-
írarnt lögfræðis'arfsemi. Sett
ur sýsiuimaður Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu um tima
árið 1961.
Valgarð var formaður Mál
fundafélags Verzlunarskóla
Islands 1942, formaður Vóku,
félags lýðræðissinnaðra stúd
enta 1948—9, varaformaður
Orators, félags laganema og
ritstjóri Úl.ffljóts 1947—1948,
í stjórn Heimdallar á árunum
1943—1949, formaður Bygg-
imigiasamvinnuifélags starfs-
manna Reykjavíkurborg-
ar 1964—1967, í stjórn Nem-
endasambands Verzlunar-
skóla Islands 1946—50, 1967
og síðan, formaður Samtaka
sjálfstæðismanna í Nes- og
Melahverfi 1969—1971. í
stjórn Oddfeliowstúkunnar
Nr. 5 Þorsteins frá 1968 og
síðan.
Valigarð var ritari nefndar,
sem Borigarráð Reykjavikur
skipaði til þess að gera ti!!-
lögur um bifreiðageymsiuhús
í Reykjavi.k 1956—1967. Rit-
ari Þjóðhálíðarnefndar
Reykjavíkur 1963—1965 og
formaður sömu nefndar 1966
og 1967. Fonmaður nefndar,
sem fjármálaráðherra sJkipaði
28. júní árið 1962 til
þess að endurskoða lög um
tollbeimtu og tolleftirlit. For
maður nefndar, sem dóms-
málaráðherra skipaði 9. 8.
1967 til þess að annast fram-
kvæmd breytiingar á Ísíamdi
úr vinstri í hægri umferð.
Átti sæti i kjömefnd Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík
fyrir alþingiskosningar 1971.
Eiginkona Valgarðs er
Benta Jónsdóttir, sýslu-
manns Steingrknssonar.
Menn og málefni
SÁ NÆST BEZTI
Eitt sdnn hittust þeir á fömum viegi hér í bænum Helgi Sæ-
mundsson og Leifur Haraldsson heitinn.
-— SæQl vert þú, litli skratti, saigði Helgi.
Leifur svaraði um heel:
— S-s-satt er það: L-fl-J^itill er ég. En 1444jófur er ég ekki.
„Koratron“-buxur á að þvo;
þær eru til þess gerðar. Þarf aldrei að
pressa. Halda alltaf Iögun og brotum.
Þægilegri meðhönlun á buxum,
hefur aldrei verið auðveldari.
VIÐARÞIUUR
Spónlagðar viðarþiljur í miklu úrvali.
Einnig framleiddar eftir beiðni.
Verzlið þar sem úrvalið er mest.
TIMBURVERZLUNIN
VÖLUNDUR H.F.
Klapparstíg 1, sími 18430.