Morgunblaðið - 14.11.1971, Page 12

Morgunblaðið - 14.11.1971, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1971 Prince Albert Það kunna fleiri en Bandaríkjamenn að meta þetta reyktóbak •*• Jóhann Hjálmarsson skrlfar um J B! * o: Kl M [] E] N i N n n [] R Arfur þjóðanna VIÐ SAGNABRUNNINN. Söfiur og ævintýri frá ýmsum löndum. Alan Boucher endursagöi. Helgi Hálfdanarson þýddi. Myndir eftir Barböru Árnason. Mál og: monning. Reykjavík 1971. ALAN BOUCHER segir um sög- urnar og ævintýrin í Við sagna- hrunninin, að efni þeirra sé sígilt og „virðist eiga erindi til allra, á Öllum aldri og í hvaða landi sem þeir búa, því að undirstaðan er arfur þjóðanma, samofinn irunsta eðli manmkynsinis, draum- um þess og vonum“. íslenskir lesendur hafa löng- um fagnað sögum og ævintýrum af þessu tagi og ég spái því að Við sagnabrunimimm muni njóta milkilla vinsælda. í bókinni eru eimungis úrvalssögur og Alam Boucher hefur af sikáldlegri nær- fæmi endursagt þær, svo að víða eru sögumar með nýjum svip, sem þó er trúr frumheimildum. Heigi Hálfdanarson hefur þýtt sögumar á fagurt mál og Bar- bara Árnason myndskreytt þær á sinn sérstaka geðfellda hátt. Mál og menning gefur bókima út með glæsilegu sniði. Allt hjálp- ast að til að gera Við sagna- brunniinn að einni eigulegustu bóikinni á markaði haustsins. Það er alltaf fagnaðarefni að fá tæki- færi til að geta þess, sem vel er úr garði gert. Sögurnar í Við sagnabrunninn eru tuttugu að tölu og uppruni þeinra ólíkur. í bókinni er til að mynda ein grænlenisk saga, ein írsk, tvær rússneskar, ein ara- bísik, ein indversk, ein japöms'k og ein saga frá Vestur-Afríku. Frá Englandi er Bjólfsþáttur, en í honum segir frá jötnii, sem Grendill heitir, en hann er þyrstur í mannsblóð og skelfir Hróðgeir konung dansfea og menn hans. Kappinm Bjólfur leggur Grendil að velli og grand- a,r skessunni móður hans og hlýt- ur að vonum mikla frægð fyrir afrek sitt. Bjólfsþáttur er óhugn- anlegur, eins og til dæmis lýs- ingin á því þegar þeir hittast Bjólfur og Grendill og sá síðar- nefndi flýr af hólmi: ,,því Bjólf- ur hafði með heljarafli rifið arm hans frá bol, slitið sinar og undið bein úr liðum“. Rollantskviða fjallar um bar- áttu Karlamagnúsar við Serkja á Spánd, hinn hugdjarfa Rollant greifa, sem lætur lífið fyrir guð og föðurlandið. Rollantskviða er með bestu þáttum bókarinmar, þótt reyndar sé erfitt að gera upp á milli þeirra. Hin kunina rómverska saga um Andrókles og ljónið er hér í prýðilegum búningi og frá Grikklandi eru sögur af Ódysis- Tveir kappar. Myncl eftir Barböru Árnason. Alan Boucher eifi, einnig hin magnaða saga Þeseifur og Mínótárr, sem er saninkallað gersemi. Skemmtileg er hin langa jap- anisika saga um Mánaprinsessuna, sem Alan Boucher segist hafa fundið „af einkenmilegri tilvilj- un í mjög fallegri lítilli bók, sem var handmáluð og prenfuð á silki í Tókíó á 19. öld í enskri þýðingu eftir ókunnan þýðanda, en þessa bók hafði vinur minn keypt í fornbókabúð í Lundún- um.“ Indverska sagan Piltur finmur fjársjóð hefur líka til að bera fjarrænan ævintýrablæ og rússneska sagan um t.rumbuna er dæmigert ævintýri um þá kæneku, sem sigrar veraldlegt vald. Grænleniskar sögur og ljóð bera heillandi menniingu vitni. Sagan Urðarfeöttur, fyrista saga bókarinnar, sem er dæmisaga, býr yfir þeirri dulrænu frum- stæðra þjóða, sem hinar svo- kölluðu siiðmenntuðu þjóðir geta ekki státað af. Mun aðarlausi drengurimn í sögunnd, sem á í eirfiðleikum með að sam- lagast umihverfi sínu, verður tákn djúptæks vanda, sem er sí- fellt nýr. Leið hanis inn í mann- legt samfélag er löng og ströng. Hamn er himn særði einistakling- ur, það, sem býr í okkur öllum, en við kappkostum þó oft og tíðum að beina spjótum ökkar gegn, vegna hinnar lífseigu kröfu um að allix séu steyptir í sama óhaggainlega mót. í Við sagmabruninimin finnum við arf þjóðanma. Hafi Alan Boucher þökk fyrir að færa okk- ur þessa verðmætu bók. Frá Þórsnesingum, Eyrbyggjum og Álftfirðingum KYRBYGGJA SAGA. Þorsteinn frá Hamri sá um útgáfuna. Myndir og skreytingar gerði Hringur .lóhannesson. Helgafell. Ke.vk.javík 1971. HELGAFELL heldur áfram að gefa út Islendingasögur með nú- tímastafsetningu, nú síðast Eyr- byggju í umsjá Þorsteins frá Hamri og með myndum eftir Hring Jóhannesson. Þessi nýja útgáfa Eyrbyggju hefur tekist einstaklega vel, frágangur bók- arinnar allur hinn snyrtilegasti, myndirnar nýr landvinningur fyrir Hring Jóhannesson, hinn snjalla myndlistarmann. Þörvald- ur Skúlason og Gunnlaugur Scheving hafa myndskreytt Is- lendingasögur af eftirtektar- verðri list, en ég sé ekki bet- ur en Hringur Jóhannesson standi þeim jafnfætis að mörgu leyti. Hann er ekki sporgöngu- maður þeirra í myndrænni tækni, heldur gæðir teikningar sínar þeim persónulega og heil- steypta svip, sem einkennir hans eigin myndlist. Myndir Hrings hljóta að vekja miklar vonir um íslenska endui’reisn í mynd- skreytingu bóka og vonandi verða honum fengin verðug verkefni á næstu árum, svo að hann geti enn betur sýnt hvað í honum býr. Forn minni eru áberandi í skáldskap Þorsteins frá Hamri. Þorsteinn er handgenginn forn- um íslenskum bókmenntum og þess vegna var vel til fundið að láta hann annast útgáfu Eyr- byggju. I eftirmála gerir Þor- steinn grein fyrir vinnubrögðum sínum á eftirfarandi hátt: „Texti útgáfu þessarar er að öllu leyti samhljóða útgáfu Einars Ólafs Sveinssonar í Islenzkum fornrit- um að öðru leyti en þvi að hann er hér færður til nútimarithátt- ar; undantekníng eru þó vísurn- ar, en dróttkvæður kveðskapur verður trauðla skráður með nú- tíðarstafsetníngu án þess að hrynjandi háttarins fari með öllu forgörðum, enda verður forn kveðskapur eingu ljósari lesandanum þótt stafkrókum sé hnikað til ýngri ritháttar. Ég Framh. á bls. 22 Höfuðið kvað stöku þessa, — Mynd eftir Hring Jóhannesson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.