Morgunblaðið - 29.12.1971, Blaðsíða 1
285. tbl. 58. árg.
MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 1971
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Frá útför skáJdsins Alexanders Tvardovskys í Moskvu. Sovézki rithöfundurinn Alexander Solz
henitsyn sést hér ásanit ekkju hins látna og fleiri sjTgjendum. — Sjá grein á bls. 2.
Loftárásum á Norður-
Víetnam haldið áfram
Saigon, París, 28. desember.
AP.—NTB.
BANDARÍKJAMENN héldu í
dag áfram loftárásiun á Norður-
Víetnam, hinum mestu sem þeir
hafa gert í þrjú ár, og sam-
kvæmt góðum heimildiun verð-
nr þeim haldið áfram á morgun,
fjórða daginn í röð. í Hanoi er
þvi haldið fram, að sjötta banda-
ríska þotan hafi verið skotin
niður í gær rétt norðan við
vopnlausa beltið.
Bandaríska stjórndn lætur
ekkert uppi um árangur og
fl'ugvéla'tap í loftárá.sunum,
en talsmaður heristjómariinn.ar
ítrekaði að loftáréisimar mundu
standa í „takmarkaðan tíma“ og
a@ um „vamarviðbrögð" væri
að ræða. Hann vildi ekki svara
spumingu um, hvað átt væri við
með „takmörkuðum tíma“ og
sagðist ekki vita hvort ákveðin
tknalengd væri höfð í huga eða
hvort loftárásirtnar tafcmörkuð-
ust af einhverju markmiði sem
að væri keppt. Hann benti á að
lengstu samfelldu loftárásimar
til þessa hefðu verið gerðar í
maí 1970 og staðið fjóra daga.
í París ákváðu bæði satmn-
ingamenn Bandaríkjanna og
Norður-Víetnams að aflýsa fyr-
irhuguðum samniingafundi í
dag, og í fyrsta skipti var ekki
ákveðið hvenær næsti fundur
yrði haldinn. Samndngamenin
Bandaríkjanna og Suður-Víet-
nams ákváðu að aflýsa fundin-
um meðai annars vegna nýlegra
eldflaugaárása á Saigon og
árása á bandarískar könnunar-
flugvélar yfir Norður-Víetnam.
Talsmaður Viet Cong sakaði
Nixon forseta um að spilla fyrir
sáttaumleitunum með loftárásun-
um, sem fælu í sér útfærslu á
stríðinu, og sendiherra Norður-
Víetnam varaði frönsfcu stjórn-
ina fonmlega við því að loftárás-
Framhald á bls. 3.
Saragat
hættir
Róm, 28. des. — NTB
GUISEPPE Saragat, Ítalíuforseti
lét i dag af embætti eftir sjö ára
embættistínia og nýkjörinn for-
seti, Giovanni Leone úr Kristl-
lega demókrataflokknum, tekur
við embætti sínu á morgun. —
Stjórn Emilio Colombo for-
sætisráðherra mun siðan biðjast
lausnar, og óljóst er hvort sósíal
istar haldi áfram stjórnarsam-
vinnunni, m.a. vegna þess að
þeir studdu ekki Leone. Lýðveld
isflokkurinn hefur krafizt endur
skoðunar á stjórnarstefnunni.
Fer Lindsay
í framboð?
Keppir að útnefningu sem
íorsetaefni demókrata
Pakistanar fá
nýja viðvörun
Harðir landamærabardagar
Nýju Delhi, 28. desember.
NTB. — AP.
INDVERSKI landvarnaráðherr-
arm, Jagjiwan Ram, sagði í dag
að ógnun Pakistana við frið á
Indlandsskaga væri ennþá áþreif-
anlegur veruleiki og varaði Zul-
fikar Ali Bhutto forseta við til-
raunum til þess að grafa nndan
fullveldi Indlands. Ram sagði að
Bhutto biðu sömu örlög og fyrir-
rennara hans, Yahya Khan, ef
hann reyndi ekki að tryggja frið
á landamærunum, og gagnrýndi
jafnframt afstöðu Nixons Banda-
ríkjaforseta til deilu Indverja og
Pakistana.
Samtimis héldu indverskar og
pakistanskar hersveitiir áfram
bardögum þriðja dagimn í röð,
og var hér um að ræða fyrstu
meiriháttar bardagana - sdðan
vopnahléð tók gildi 17. desember.
Tveir majórar og þrír óbreyttir
hermenn féllu samkvæmt ind-
verSkum fréttastofufréttum þeg-
ar Pakistanar gerðu sfcotárás á
Ganganagar-svæðimi — og þrír
liðsforingjar og 26 óbreyttir her-
menn særðust í öðirum bardögum
á söanu slóðum Indverjar segja
að árásum Pakistana hefði veríð
hruindið og skotbardögum sé
haldið áfram. Indverjar eru sagð-
ir reyma að forðast að meirihátt-
Framhald á bls. 3.
Frá hótelbrunanum mikla í Seoul: Hótelgestur stekkur út um
glugga á dýnu til þess að draga úr fallinu og annar hótelgest-
ur býr sig undir að fara að dæmi hans. í gær voru átta manns
ákærðir fyrir vanrækslu er hafi leitt til þess að 162 manns
biðu bana í eldsvoðanum, og eru í þeirra liópi hóteleigandinn og
enibættismenn sem báru ábyrgð á eldvörnum.
Miami, 28. des. — NTB-AP
JOHN Lindsay, borgarstjóri S
New York tilkynnti í dag, að
bann niyndi keppa að því að
verða útnefndur forsetaefni
Demókrataflokksins í næstu
forsetakosningum S Bandaríkj-
unum. Lindsay, sem er fimmtug-
ur að aldri, var á sínum tíma
kosinn S fulltrúadeild Bandarikja
þings sem frambjóðandi repú-
blikana og síðan borgarstjóri i
New York, einnig sem fram-
bjóðandi þeirra. Fyrir fjórum
mánuðum sagði Lindsay sig úr
Repúblikanaflokknum og sakaði
flokkinn um að hafa bælt niður
alla innri andstöðu og hrakið
framfarasinnuð öfl burt.
Lindsay kunngerði ákvörðun
sína nú í Florida, en þar fara
fram forkosningar um forseta-
frambjóðanda fyrir Demókrata-
flokkinn 14. marz n.k. Hann
kvaðst myndu tala fyrir munn
þess hluta bandarisku þjóðarinn-
ar, sem stjómin í Washington
virðir að vettugi. — Þetta er
rikisstjóm, sagði Lindsay, —
sem er fús til þess að fara til
Peking og Moskvu, en ekki til
Harlem eða Watts (svertingja-
hverfi í Los Angeles) né ann-
arra þeirra staða, þar sem
Bandaríkjamenn bíða hjálpar.
Þið heyrið ekkert frá sölum
valdsins í þessu landi nema berg
málið af ykkar eigin hrópum um
hjólp.
Umfangsmikil leit að
bankaræningj um
Saarbrúcken, 28. des.
AP — NTB
ÞOKA hamlaði umfangsmikilli
leit mikils fjölda vopnaðra lög-
reg'Iumanna í dag að þremur
vopnuðiim mönnum, sem flýðu
fótgangandi inn í skóglendi i Saar
með 311.000 mörk, sem þeir
rændu í gær úr banka í Köln.
Lögreglan hefur að mestu um
kringt skóglendið, sem er skammt
frá frönsku landamærunum. ■—
Ekki er talið ósennilegt að ræn-
ingjarnir reyni að laumast yfír
landamærin. Svæðið sem hefur
verið umxringt er 20 ferkílómetr
ar að flatarmáli og kallast skóg
lendið Kirkeler-skógur.
Tveir lögreglumenn, sem bamka
ræningjarnir tóku í gíslingu en
létu siðan lausa, hafa gefið á-
hrifarika lýsingu á níu tíma öku
ferð með ræningjunum frá Köln
til Saar. Allan timaiin þrýstu ræn
ingjarnir rifflum að lögreglu-
mönnunum, en annar þeirra var
yfirmaður rannsóknarlögreglunn
ar í Köln, Werner Hamacher.
Hamacher ók bifreiðinni og
Frainh. á bls. 31