Morgunblaðið - 29.12.1971, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 29.12.1971, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBKR 1971 I Kópavogur — Heímilishjólp Konur óskast til starfa hjá Heimilishjálpinni í Kópavogi, bæði allan daginn og hluta úr degi. Upplýsingar I síma 42387 eftir hádegi. DUET Hinir heimsfrægu hollenzku Pcmatella vindlar. Viðurkenndir fyrir gæði. Svara kröfum hinna vandlátustu. Afeð notkun skotpalla minnkar stórlega hættan á óhöppum við flugeldaskot. SKOTPALLAR fást í flestum flugeldasölum í Reykjavík og nágrenni. Framleiðentíur. Breyttur skrifstofutími Eftir áramótin breytist skrifstofutími heildverzlana okkar og verður þá þannig: Kl. 8.30—12.00 og kl. 13 00—17.00 alla virka daga nema laugardaga. en þá er lokað. Ó. JOHNSON OG KAABER HF.. HEIMILISTÆKI SF. Verkamenn Óskum að ráða nú þegar nokkra laghenta verkamenn, helzt úr Kópavogi. Upplýsingar í skrifstofu fyrirtækisins næstu daga. Ekki svarað í sima. VERK HF., Lauagavegi 120. Auglýsing frá fjármálaráðuneytinu um bann við tóbaksauglýsingum Skv. 2. mgr. 7. gr. laga nr. 63/1969 um verzl- un ríkisins með áfengi, tóbak og lyf, sbr. lög nr. 59/1971 um breytingu á þeim lögum, eru óheimilar allar auglýsingar á tóbaki í blöð- um, útvarpi, sjónvarpi, kvikmyndahúsum og utandyra, frá og með 1. janúar 1972 að telja. Athygli forráðamanna fjölmiðla og þeirra, sem verzla með tóbak er vakin á þessu laga- ákvæði og á skyldu auglýsenda til að fjar- lægja útiauglýsingar um tóbaksvörur strax og lögin hafa tekið gildi. Fjármálaráðuneytið. 27. desember 1971. Hattar, húfur, grímur, kastrúllur ranar, lúðrar, blöðrur og margt fleira nn i,», i, &- HAFNARSTRÆTI 18, LAUGAVEGI 84, LAUGAVEGI 178. — „Þegar ég var gamall“ ' r«i« fyrir tíu árum — en ég er núna. Menn upplifa oft einhvers konar sálarkreppu um sextugt og stundum fyrr, ekki aðeiiis vegna þess að þeir finna að ell- in færist yfir, heldur vegna þess að þeir óttast hana, ótt- ast hrörnunina og kvíða þvi að þurfa að neita sér um ýmsar lystisemdir. Ég lék mikið golf áður fyrr. Ég valdi þennan stað fyrir hús ið mitt meðfram vegna þess að golfvöllur er hér í nánd. En nú er ég hættur öllu slíku. Ég hef snert af liðagigt í fæti og hún gæti versnað. Þegar ég ákvað að hætta að leika golf, var ég niðurbrotinn maður. Ég þorði ekki að koma nálægt goifvellinum í þrjá eða f jóra mánuði. Nú er mér alveg sama. Ellinni fylgja stöðugt fleiri afneitanir. En menn óttast ekki svo mjög endalokin, held ur að endalokin beri að á óskemmtilegan hátt. Nú óttast ég ekki ellina sem slíka, heldur það eitt að geta ekki skrifað lengur. Tilhugs- unin um það skelfir mig mjög." „Ég er engin hetja,“ sagði hann. „Ég gæti ekki tekið að mér ábyrgðarmikla stöðu, hvorki á stjórnmála- eða hern- aðarsviði. Og ég er ekki met- orðagjarn. Hvað mig snertir mætti leggja metorðagirndina til jafns við sókn I stuttar un- aðsstundir. Fyrsta unaðsstundin rennur upp, þegar þjónustustúlkan tekur hlerana frá glugganum á morgnana. Þá sé ég til himins. Ég sé, hvort sólin skín eða hvort það rignir. Skíni sól, verð ég gagntekinn fögnuði, en rigni, verð ég það engu siður. Svo drekk ég fyrsta kaffiboll- ann af hreinni nautn. Smávægi legir hlutir, mundu margir segja, en ekki i mínum augum. Daglega fer ég í tvær lang- ar göngur. Sé hvasst hér I sveitinni, læt ég aka mér til Lausanne. Þar er skýlla. Ég læt aka mér að útjaðri borgar- innar og geng um hana þvera. Ég horfi á fólkið á götunni. Það lítur ekki í kring um sig. Stikar áfram hlaðið áhyggjum sínum. En ég geng hægt og virði fyrir mér það, sem fyr ir augu ber: vegfarendur, lag- lega stúlku, falleg hálsbindi í búðarglugga, sóiargeisla í gluggarúðu. Ég þekki næstum alla glugga í borginni. Þegar ég fer gangandi um sveitina heima, þekki ég hvern graskúf. Þegar fjólurnar fara að blómstra, veit ég hvar þær er að finna. Ég veit hvar jarð- arberin eru, sem vaxa villt úti í náttúrunni og ég fylgist með því, hvemig þau roðna meira dag frá degi.“ Hann á sér það lokatakmark að sjá manninn skýrt og í heild með kostum og göllum. „Veröld in býr öll í einum manni, ein- um hjónum eða einni fjöl- skyldu," sagði hann. IHorgitnþWÍJiþ margfnldor markad ydar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.