Morgunblaðið - 04.01.1972, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐLÐ, WtlOJUDAGUR 4. 'JANÚAR 1972
13
Menningarsjóður Akraness
heiðrar sr. Jón M. Guðjónsson
Gefur standmynd við bókasafnið
Akranesi, 3. janúar.
FYRSTA janúar 1972 voru 30
ir liðin frá þvfi er Aikranes
fékfk kaupstaðarréttindi. Aí
þessu tilefni bauð stjórn
Menningarsjóðs Alkraness
bæjarstjóm og nokkrum gest
um tii kaffidrykikju að Hótel
Alkraness, sunnudaginn 2.
janúar. Þar tilkynnti sjóðs-
stjórnin, að í tilefni þessara
timamóta hefði hún ákveðið
að gefa kaupstaðnum stand-
myndina „Lesandi drengur"
eftir Magnús Á. Árnason og
yrði hún sett upp á ióð bóka-
safnsins.
Sömuleiðis hafði sjóðs-
stjómin álkveðið að heiðra
séra Jón M. Guðjónsson með
100 þúsund króna heiðurs-
gjöf vegna hins ómetanlega
starfs hans við stofnun og
úppsetningu Bygigðasafns
Akraness og ngérsveita að
Görðum á Akranesi. En þar
er nú verið að byggja nýtt
hús fyrir Byggða- og lista-
safn. Prestsihjónin sr. Jón M.
Guðjónsson og Lilja Pálsdótt-
ir voru heiðursgéstír og veittu
heiðursgjöfinni móttöku.
Minningarsjóður Akraness
hefir í mörg ár veitt verulega
byggingastyrki til þessara
tveggja stofnana. En bóka-
safn Akraness mun nú eftir
mánuð hefja starf í nýjum og
giæsilegum húsakynnum.
—HJÞ
★
í tilefni þessarar fréttar
hafði Mbl. samband viö sr.
STUNGINN Á HOL
MEÐ HÁRGREIÐU
SAUTJÁN ára pittur vaa- stung-
fam á hol með lokkagreiðu
skömmu eftir að árið 1972 gekk
í gsurð. Það var jafnaldri hans,
sem sla.k:k, þegar til átaka kom
rnilli þeirra í þrætu. Pilturinn
var fluttur í sJysadeild Borgar-
spitaians og þaðan í Landspítal-
ann, þar sem skurðaðgerð var
gerð á honum. í gær var líðan
hans sögð eftir atvikrun.
PiRannir tveir vwu gestkom-
andi hjá þeím þriðja á gamiárs-
kvöid. Skömimu eftir miðnættið
koon upp þræta miífii þeirra
tveggja og sfiðan tU áftaka. Tók
þá ajranar þeirra upp greiðu siina
.— lokkagxeiðu með 8 sm teini,
og 'keyrði hann í kvið hins. —
Brotnaði teinininn aí og sat hann
eftir í kviðnum. — Piitamir voru
unidir áhriifum áfengis.
Þegar átökin voru um gaoð
gengin, fór piitur sá, sem húsum
réð, með þann særða heim tái
hans og þar sem hann var iMa
bóiginn í andliti, ákváðu foreidr-
ar bams að fara með hanai í
slysavarðstofuna. Þar kom svo
holisitungan einnig í ijós og var
pffltwrirm þá fhjttur til aðgesrðar
S LandspátaJann.
Þess má geta, að 33 ára maður
Hggur þungt haldinn i gjörgæzliu-
deiid Borgarspit aians eftir að
koma stakk hann á hoi með hntffi
aðfaramótt annars jóladags. Hef-
ur enn ekki reynzt unmt að yfir-
heyna hann.
Bæði þessi mál eru enn í ranin-
sókn.
Jón M. Guðjónsson,
Jón M. Guðjónsson, sem er
höfundur að Byggðasafninu á
Akranesi. Hann hyrjaði að
safna munum 1956, og afhenti
svo safn sitt, sem þá var nokk
ur hundruð munir, Akranes-
kaupstað og hreppnum sunn-
an Skarðsheiðar.
Sr. Jón gerði Htið úr því
að þetta starf hans væri af-
rek og Jaunavert. —- Þetta er
tómstundastarf hjá mér, sagði
hann. Ég gríp í það, þegar
ég hefi tíma, sný mér að því
frá vandabundnum embættis-
störfum og ég hefi átt marg-
ar ánægju- og hvíldarstundir
við þetta. Mig hefur langað
til að gera það og fengið min
laun í ánægjunni af því. Mað-
Lesandi drengpur.
ur gerir þetta fyrir sjálfan
sig, og ef aðrir geta notið
þess, þá er það gott.
Jón sagði, að í Byggðasafn-
ið væri nú komið nokkuð mik
ið af munum. Marigt hefði að
sjálfsögðu farið forgörðum af
þvfi ekki var byrjað fyrr. En
furðu margir munir hefðu
leynzt og væru að koma inn.
En ekki væri aðeins sótzt eft-
ir eldigömlum munum, heldur
líka munum er hefðu verið í
notkun fram undir þetta, en
væru að hverfa. En marfcmið-
ið væri að sýna þróunina og
halda þannig áfram. Svona
söfnun tæki aldrei enda. Tim
inn liðfi og allt væri breyting-
um háð.
Eldur í brezkum tog-
ara út af Straumnesi
Bretar undirbúa brottflutning:
Mikið lögreglulið
kvatt út á Möltu
Valetta, London, 3. janúar.
AP-NTB.
BRETAR eru byrjaðir að undir-
búa brottflutning alls herlið og
hergagna frá Möltu, en hafa til-
kynnt, að þeir muni ekki leggja
sérstaka áherzlu á að allt verði
á brott fyrir 15. janúar næstkom
andi, eins og Dom Mintoff, for-
sætisráðherra Möltu hefur kraf-
ízt. Alls eru nú á Möltu 3.500
hermenn og 7000 ættingjar
þeirra, og talsmaður í varnar-
málaráðuneytinu hefur sagt að
útilokað sé að flytja aiit þetta
fólk, og öll tæki sem fjarlægja
þarf, fyrir 15. janúar.
í kvöld sagði Mintoff að hann
mundi kalla á erient herlið ef
þjóðarhagsmunir Möltu krefðust
þess. Hann lagði áherzlu á að
ekkert erlent herlið gæti komið
til Möltu ám leyfis stjórnvalda.
„Við eigum alls staðar vini og
bandamenn. Ef nauðsyn krefur
verður kallað á herlið frá öðrum
löndum og það kemur vafa-
laust," sagði hann.
Brottflutningur herliðsins kem
ur í kjölfar þess að brezka stjóm
in neitaði kröfu Mintoffs um að
greiða 18 milljón sterlingspund á
ári fyrir aðstöðu á eynni.
Mörg hundruð lögreglumenn
hafa verið kvaddir út til að vera
á verði þegar þing Möltu kemur
saman á nýjan leik í kvöld. Blöð
sem styðja stjóim Mintoffs, hafa
undanfarna daga leitazt við að
æsa fólk upp gegn Bretum, og
öfluigur vörður er við byggingar
sem þeir nota.
Kröfugöngur eru fyrirhugaðar
af stuðningsmönnum Mintoffs.
Búast má við mjög hörðum
deilum í þinginu. Borg Olivier,
leiðtogi stjórnarandstöðunnar,
og fyrrverandi forsætisráðherra,
mun án efa krefjast þess að Min-
toff skýri frá því hvaða áætlanir
hann hafi um að bæta tekjumissi
sem verður vegna brottfarar
brezka liðsins.
Talið er að heildartekjur Möltu
af dvöl Breta séu um 22.5 millj-
Farmannadeilan:
ón sterlin-gspund á ári, og er
þar talið með leigugjaid fyrir að-
stöðuna og það fé sem brezkir
hermemn og fjölskyldur þeirra
eyða. Þá hafa um 7000 Maltar
atvinnu i sambandi við herstöð-
ina.
Dom Mintoff, forsætisráð-
herra, flaug til Libyu í síðustu
viku til viðræðna við Gaddafi,
forseta, en hefur ekki skýrt frá
árangrinum af þeirri för. Min-
toff gerði sér tiðförult til Libyu
síðastliðið sumar, þegar samn-
ingar um dvöl brezka liðsins
stóðu sem hæst, en var jafnan
tregur til að skýra frá niðurstöð
um viðræðna sinna við Gaddafi.
Telja má líklegt að Libya veiti
Möltu einhverja fjárhagsaðstoð,
og einnig Rússar, sem hafa mik-
inn áhuga á Möltu sem hugsan-
legri flotastöð, fyrir sívaxandi
Miðjarðarhafsflota sinn. Stjórn-
málafréttaritarar telja að þótt
Mintoff hafi verið ótvíræður i
þessum siðustu kröfum sínum,
sem hann lagði fram rétt fyrir
jólin, sé þó ekki útilokað að ein-
hvers konar samkomulag náist.
HULL togarinn Cussin, sem er
nær 1600 tonna verksniiðjutog-
ari, ieitaði hafnar á fsafirði á
nýársdag, efttr að eldur hafði
komið upp í skipinti, er það var
á veiðum norðvestur af Strauni-
nesi. Engan skipverja sakaði, en
þeir höfðu barizt við eldinn í
fjórar klukkustundir áður en
þeim tokst að slökkva hann.
Eidsins varð vart ktufckan 3.15
á nýársinótt í eiinum hásetafclef-
anna sem eru miðskips. Varð
eidsins efcki vart fyrr en klefinn
var aleída orðirm og tókst skip-
veirjum ekiki að hefta útbreiðslu
hans. Brunnu nærtliggjandi há-
setakiefar og hvíldarherbergi
þeirra og það sem inni í þekm
var, m. a. fatnaður sjómanna. Eitt
varðskipanna islenzku og brezkt
eftiriitsskip komu á vettvang, en
þá hötfðu skipverjar togarans náð
yfirtökunum í slökkvistarfinu og
kom þvi ekki til kasta þessara
hjálparskipa, og hélt togarinn tffl
Isafjarðar. Þegar þangað kom
var ákveðið að skipið skyldi
sigla heim vegna viðgerðar, en
að söign Guðmunds Karlssonar
konsúls Breta á ísafirði og um-
boðsmanns brezkra togara þar,
var gert réð fyrir að viðgerðin
myndi taka ailt að tveimur vik-
um.
Togarinn Cussin hafði verið
hér á Isiandsmiðum í tæpiega
mánaðartáma og var með um 200
tonn ai heilfrystum fiski er hann
sigldi heim til Hu9d um klufckan
5 á nýársdag.
Aðspurður um breztea togara
hér við land, sagði Guðmundur
að brezka eftirlitssfcipið Mirknda
hefði skýrt sér svo frá að brezkiir
togarar væru nú afflir út aif Auet-
uriandi en þeir væru i færrn 3agi
niú um áramótin.
Maurice Chevalier
Chevalier
látinn
Samgönguráðherra á
f undi með deiluaðilum
SAMNIN GAFUNDUR í far-
mannadeilunni hófst í gær kl. 14
og stóð enn, er Mbl. fór í prent-
un. Sáttanefnd þriggja manna
undir forsæti Loga Kinarssonar,
hefur enn ekki borið fram sátta-
ttllögu í deilunni. Með Loga í
sáttanefndinni eru Benedikt Sig-
urjónsson, hæstaréttardómari og
FmU Ágústsson, borgardómari.
Þegar hefur náðst samkomu-
lag um viss atriði í deiiunni, en
eftir er þó að ná samkomulagi
um á'kveðin atriði, þ. á m. um
kaupið sjálft. Samgömgwmálaráð-
herra, Hannibal Vaidimarsson
var á fundi með deffluaðilum fyr-
ir áramótin og í fyrrakvöld eft-
ir matarhié kom hann einnig á
fundinn og sat hann.
Urið
fundið
STARFSSTÚLKA að Hrafnistu
hefur fundið úr það, sem sakn-
að var af Jóni Helgasyni heitn-
um, sem varð fyrir bíi á Brúna-
vegi á aðtfangadag. Úr þetta, sem
var gamail ættargripur, fannst
í götujaðrinum, þar sem bana-
siysið varð.
París, 3. janúar. AP-NTB.
HINN heimsfrægí franski
söngvari og leikari, Maurice
Chevalier, sem lézt í París sl.
laugardag, verður jarðsettur
í Paris við hlið móður sinnar
á morgim, miðvikudag. Che-
valier, sem var 83ja ára að
aldri iézt af völdum nýrna-
sjúkdóma og hafði legið
þungt haldinn um nokkurt
skeið.
Chevalier var um meira en
50 ára skeið einn af frægustu
og vinsælustu listamönnum
Frakklands og hafði skemmt
Frökkum um 73 ára skeið,
er hanm lézt, en hann kom
fyrst fram á skemmtun 10 ára
gamall. 16 ára gamall hafði
hann skapað sér það nafn, að
hann fékk fastan samning við
næturklúbbinn Parisiana. Eft
ir það hélt stjarna hams stöð-
ugt áfram að hækka og hann
ferðaðiist um allan heim. M.a.
dvaldist hann i Bandaríkjun-
um i 7 ár og lék þá í nokkr-
um kvikmyndum, þ. á m.
Gigi. Hann lék í mörgum kvik
myndum, en naut sin ætið
bezt er hann kom fram á
sviði. Var undantekning ef
ekki var fullt hús, þar sem
Chevalier skemmti.
Chevalier fæddist í fá-
tækrahverfi í Paris, en ei
hainn lézt var hann vellauð-
ugur maður. Er fréttist um
lát Chevaliers í Paris,
streymdu þúsundir manna að
heimili hans til að láta í ijós
samúð og frönsk blöð skýrðu
frá láti hans með stóru fyrÍT-
sagnaletri. George Pompidou
Frakklandsforseti, sem var
mikill aðdáandi Chevaliers,
sagði við lát hans, að Che-
valier hefði verið einstakur
maður og sú aðdáun og hrifn-
ing sem hann naut, hafi verið
einstök. Frakkar hafi séð
sjálfa sig i honum og útlend-
ingar hafi litið hann sem að-
aismerki hins káta og hlýja
Frakklamds.