Morgunblaðið - 04.01.1972, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐ.JUDAGUR 4. JANÚAR 1972
23
Jón Þorbjörnsson
járnsmiðui
Fæddar 20. október 1905
Dáinn 30. desember 1971
ENN hefur miiskunnarlaus og ó-
væginn sjúkdómiur lagt að velli
á skömmum tíma góðan og trygg
an mann, langt um aldur fram.
Jón Þorbjömsson, járnsmiður,
Holtaigerði 28, Kópavogi, lézt í
Landjakötsspífala 30. des. sl. eftir
skamma legu, 66 ára að aldri.
Höfðum við þá verið samstarfa
menn i 26 ár, fyrst í Vélsmiðj-
unni Keili í 6 ár, síðan mjög nán
ir samstarfsmenn á járnsmíða-
verkstæði Ölgerðar Egils Skalla-
grímssonair í um það bil 20 ár.
Allan þann tíma minnist ég þess
ekki, að okkur hafi nokkurn
tímia orðið sundurorða.
Ég á erfitt með að trúa og
sætta mig við, að eiga ekki eftir
að hitta hann á okkar vinnustað
eins og öll undanfarin ár.
Jón var dagfarsgóður og prúð
ur, glaður í vina- og kunningja-
hóp, hafði yndi af að ferðast um
landið í fríum sinum með konu
sinni, börnum og vinum.
Hafði Jón er hann lézt, búið í
hamingjusömu hjónabandi með
konu sinni Kristjönu Einarsdótt-
ur í rúm 35 ár. Áttu þau 5 börn,
sem nú sakna góðs föður, 15
barruabörn kveðja elskulegan
afa, og tengdabörnin góðan og
hjálpsaman tengdaföður.
Var heimili þeirra og sam-
heldni foreldra og barna til fyrir
myndar.
Jón var yngstur af 4 börnum
Þorbj örns Finnssonar og konu
hans Jónínu Jónsdóttuir. Jón war
móðurbróðir minn, en hann var
- Minning
mér meir en frændi, hann var
sannur vinur og félagi minn og
mjög góður samstarfsmaður.
Þakka ég honum nú að leiðar
lokum fyrir allt okkair góða sam
starf, tryiggð hans og vináttu við
mig og fjölskyldu mina á liðnum
árum.
Mér er óhætt að fullyrða, að
alliir sem starfað hafa með Jóni,
á undanfömum árum hefðu ósk-
að eftir miklu lengra samstarfi.
Við kveðjum hann með hjart-
ans þakklæti og þér kæri frændi
þakka ég fyrir allt, sem þú varst
mér.
Jana mín! Þér, börnum ykkar,
tengda- og bamabömum, send-
um við hjónin innilegar samúðar
kveðjur, Guð blessi minningu um
góðan drengskaparmann.
Sverrir Jónsson.
Starfsmaður óskast
(þróttabandalag Reykjavíkur óskar að ráða dugiegan mann til
að starfrækja skíðalyftur við Skíðaskálann í Hveradölum svo
og til umsjónar og eftírlits með skólanum.
Tilb sendist afgr Mbl. fyrir 10. þ.m merktt „ÍBR — 5550".
Framtíðarstörf
Óskum að ráða strax. eða sem fyrst, starfsmenn til að gegna
eftirtöldum störfum:
Deildarstjóri þjónustudeildar
Starfið innifelur skipulagningu og stjórn á varahluta- ábyrgð-
ar- og eftirsöluþjónustu fyrirtækisins
Umsækjendur þurfa að hafa gott vald á ensku og einu
norðurlandamáli. Tæknileg menntun æskiieg. en ekki skilyrði.
Fulltrúi á skrifstofu
Starfið snertir innflutning fyrirtækisins og bréfaskriftir í sam-
bandi við hann. Ennfremur umsjón með spjaldskrá yfir pantanir
viðskiptamanna og útskrift á sölunótum.
Umsækjendur þurfa að hafa gott vald á ensku og einu
norðurlandamáli. Verzlunarmenntun eða stúdentspróf skilyrði.
Afgreiðslumaður í varahlutaverzlun
Starfið sem um ræðir. tekur til afgreiðslu og sölu varahluta
í varahiutaverzlun fyrirtækisins.
Umsækjendur þurfa að hafa nokkra kunnáttu í ensku og
einu norðurlandamáli Verzlunarmenntun æskileg, en ekki skif-
yrði.
Nánari upplýsingar um framangreind störf veitir fram-
kvæmdastjórinn.
Umsóknareyðublöð verða afhent væntanlegum umsækjend-
um á skrifstofu fyrirtækisins
Dráttarvéiar hf.
Suðurlandsbraut 6 — Sími 3 35 40.
Friðjón Bjarnason
prentari -Minning
Fæddur 8. marz 1912
Dáínn 27. des. 1971
FRIÐJÓN Bjarnason prentari er
látinn aðeins 59 ára að aldri. —
Hann hafði átt við mikla van-
heilsu að stríða um nær þriggja
ára skeið. Við, sem fylgdumst
með honum, máttum því vita, að
hverju stefndi, þar sem þata
horfur voru litlar eða engar. —
Sjálfur barðist Friðjón við sjúk-
dóm sinn af slíkum hetjuskap,
að einstakt má telja og lét aldrei
bilbug á sér finna.
Nú siðast hélt hann jólahátíð-
ina með konu sinni og fjölskyldu-
vinum og hlýjaði þar öllum með
ljúfmennsku sinni og gamanisemi.
— Engum okkar kom þá til hug
ar, að „maðurinn með ljáinn“
væri svo nálægur. — Á jólunum,
hátíð ljóssins, leiðá menn ógjarn
an huganm að slíku.
Friðjón Bjarnason var fæddur
8. marz 1912 í Reykjavík. Foreldr
ar hiarxs voru hjónin Bjarni Jó-
hannesson prentari og kona hana
Sigurbjörg Ámundadóttir.
Hann nam ungur prentiðn, sem
síðan varð hans ævistarf. Friðjón
var sérlega vandvirkur og vel-
virkur prentari. Fóru þar saman
staðgóð þekking, smekkvisi og
snyrtimennska svo að af bar.
Friðjón gerðist félagi Hins is-
lenzka prentarafélags 1934 og.
mun hafa verið þar virkur félagi
alla tíð enda maður félagslynctur
að eðlisfari, tillögugóður og ráð-
holluir. — Þeir sem minna máttu
sín í þjóðfélaginu áttu samúð
hans óskipta. — Það sýndi hiann
ávallt í orðum og athöfnum.
Friðjón Bjarnason var bóka-
miaður og víðliesinn, listhneigður
og hafði yndi af góðri tónlist
Hann var sjór af fróðleik um
menn og málefni og stálminnug-
ur. Á yngri árum var Friðjón
ágætlega íþróttum búinn og
hafði þá sérstakt dálæti á kniatt-
spymu- og skautaíþrótt. Lengi
hélt hann þeirri venju að bregða
sér á skauta og tók þá gjarnan
vini síma af yngri kynslóðinni
með.
Friðjón var ávallt hinn trausti
vinur og þá ekki sízt þeirra yngri
í fjölskyldunni. Honum var ein-
staklega lagið að eignast vináttu
og trúnað barna og unglinga. Af
þessu hafði ég náin persónuleg
kynmi, þar sem synir mínir voru
meðal þeirra, sem voru svo ham-
ingjusamir að eiga hann að trún
aðarvini og félaga. — Þeir sakna
nú vinair í stað og kveðja hann
með söknuði og trega.
Friðjón Bjarnason var gæfu-
maður í einkalífi. — Hann kvænt
ist eftirlifandi konu simni, Gyðu
Jónsdóttur 1951, hinni ágætustu
konu, sem bjó manni sinum írið
sælt og fagurt heimili. — Við vin
ir þeirra þökkum þeim samveru
stundirnar þar.
Fyrir nær þremur árum kenndi
Friðjón þess meins, er nú hefur
orðið honum að aldurtila. Sjúk-
dómsbaráttan varð löng og erfið.
— í þeirri erfiðu baráttu var
Gyða við hlið hans öllum stund-
um, er hún mátti og hlúði að hon
um með ástúð og varfærni.
Ég og fjölskylda mín vottum
Gyðu dýpstu samúð i hennar
miklu sorg.
Sigurður Ingason.
Ungur maður
með argonsuðupróf og rafsuðupróf, nýkominn erlendis frá,
óskar eftir að komast í samband við bl'kksmiðju eða blikk-
smið með samvinnu í huga
Tiiboð merkt „Hagkvæmni — 771" sendist Mbl.
Stúlka óskast strax
til starfa í veitingahúsi hér í borg.
Engin kvöldvinna og frí um helgar.
Tilboð sendist blaðinu „Strax merkt: 2546“
OrÖsending
til bifreiðaeigenda
Meðan beðið er eftir ákvörðun yfirvaida um iðgjöld af bif-
reiðatryggingum fyrir árið 1972 getur Brunabótafélagið ekki
gefið út tryggingaskírteini né endurnýjað éldri tryggingar á
venjulegan hátt Félagið mun þó ábyrgjast tryggingar þeirra
ökutækja sem hjá því eru tryggð fyrst um sinn.
Reykjavík. 30 desember 1971.
Brunabótafélag islands.
M ICIansskóli Rermanns ítagnars
Sími 8-2122 og 3-3222.
Innritun nýrra neinenda hefst í dag.
Reykjavík: Kennt er í „Miðbæ“, Háaleitis-
braut 58—60 og Fáksheimilinu.
Seltjarnarnes: Kennt er í Félagsheimilinu.
Kópavogur: Kennt er í Æskulýðsheimilinu,
Álfhólsvegi 32.
Ný 4 mánaða námskeið byrja mánudaginn
10. janúar m. a. nýr flokkur fyrir hjón byrj-
endur á Seltjarnarnesi og úr vesturbæ í Fé-
lagsheimiiinu á Seltjarnarnesi.
Byrjendur og framhaldsnemendur teknir á
öllm aldri í alla flokka.
Hringið og við munum reyna að finna rétta
fiokkinn fyrir yður.
DANSKEMINARASAIVI8AND ÍSLANDS 0H