Morgunblaðið - 07.01.1972, Page 5
MORÓtJWBLÁÐIB,' FÖSTÚbAÓtfR 7.' JÁNÚAR 1972
5 A
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
HVERS vegna eiga kristnir nienn stöðugt við vandamál
að etja? Undanfarið ár hef ég átt í sifeildu stríði. Haidið
þér, að Guð sé að refsa mér fyrir eitthvað?
ÉG veit, að spurning yðar er ekki sprottin af því, að
þér viljið varpa rýrð á kristindóminn. Mergurinn máls-
ins er sá, að kristnir menn eru ekki ónæmir fyrir þján-
ingum. En munur er á þjáningum þeirra og hinna,
sem eru ekki kristnir. Það er tilgangur í þjáningum
kristinna manna. Guð trúir yður fyrir að þola þján-
ingar, svo að þér getið sýnt, að kristinn maður geti
verið þolinmóður í þjáningum. „En vér vitum, að
þeim, sem Guð elskar, samverkar allt til góðs, þeim,
sem kallaðir eru samkvæmt fyrirhugun.“
í annan stað hefur Kristur heitið að vera með okkur
í þjáningum okkar. „Varpið allri áhyggju yðar á hann,
því að hann ber umhyggju fyrir yður.“ Ef Kristur
héti mönnum algeru frelsi frá þjáningum, mundi all-
ur heimurinn snúa sér til hans ;— en á röngum for-
sendum.
Hafið þér nokkurn tíma hugsað um skuggana í
þessu sambandi? Engir skuggar eru til, nema sólar
njóti. Það eitt, að skuggarnir eru til, ber því vitni, að
sólin skín einhvers staðar. Guð hefur skipað þannig
málum í alheiminum, að endurlausnarmáttur hans er
að verki, jafnvel í hinum mestu sorgaratburðum. Nei,
Guð er ekki að refsa yður. Hann er að reyna að um-
mynda yður í líkingu við sig.
Ég er sannfærður um, að við getum aðeins þekkt
Guð í raun og veru í þjáningum. Ég hef komizt að
raun um, að ég er því nær honum, sem ég þjáist meira
ÓVÆNT TÆKIFÆRI — NÝJASTA TÍZKA
HÁRGREIÐSLUSÍNING
Næstkomandi sunnudag kl. —2 í Súlnasalnum HÓTEL SÖGU,
Tveir brezkir hárgreiðslumeistarar munu sýna þar það
allra nýjasta í hárgreiðslum og klippingum
Þeir hafa unnið m. a. hjá VIDAL SASSON og BEKNANDO, sem
klippa stjörnur eins og the REATLES, ÖNNU prinsessu. MIU
FARROW og TWIGGY.
TÍZKUSÝMING
TÍZKUV ERZLUN UNCU KONUNNAR, FANNY
SÝNIR NÝJUSTU TÍZKUNA
SNYRTISÝNING
SNYRTISTOFAN MAJA (INCIBJÖRG DALBERC) SÝNIR
Miðasala er liafin að hárgreiðslustofunni Kleópötru, Týsgötu 1,
sími 20695.
Sigþór Jóhannsson
formaður Varðbergs
AÐALFUNDIJR Varðbergs í
Reykjavík var haldinn fyrir
skömniu. Fráfarandi forniaður,
Jón E. Ragnarsson, flutti skýrslu
stjórnarinnar uni starfsemina á
sl. starfsári, en hún var með
sania sniði og- undanfarin ár, þ.e.
aðallega fólgin i fundahaldi
með innlenduni og erlendiun fyr-
irlesiirum úr hópi fræðimanna
og stjórnmálamanna, upplýsinga-
dréifingu og skyldri starfsemi,
ráðstefnuhaldi og þátttöku í
fundum og ráðstefnum erlendis.
Sumir fundir félagsins voru
haldnir sameiginlega með Sam-
tökum um vestræna samvinnu.
Þriggja daga ráðstefna um varn-
armálin og Atlantshafsbandalag-
ið var haldin í byrjun október-
mánaðar, og voru Jóhann Haf-
stein, Sigurður Guðmundsson og
Þórarinn Þórarinsson, John K.
Beling, flotaforingi og Björn
Bjarnason framsögumenn. Mikla
athygli vakti fundur, sem hald-
inn var með Einari Ágústssyni,
utanríkisráðherra, í nóvember.
Þá fór fram stjórnarkjör.
Stjórnin hefur nú skipt með sér
verkum og er þanniig skipuð:
Formaður: Sigþór Jóhannsson.
1. varaformaður: Ólafur Ingólís-
son. 2. varaformaður: Jón E.
Ragnarsson. Ritari: Guðmundur
í. Guðmundsson. Gjaldkeri: Víg-
lundur Þorsteinsson. Meðstjórn-
endur: Eysteinn R. Jóhannsson,
Þráinn Þorleifsson, Markús Örn
Antonsson og Bjarni Magnússon.
Varastjórn: Hi’ólfur Halldórsson,
Björn Stefánsson, Árni Bergur
Eiríksson, Kári Jónasson, Jón
Vilhjáimsson og Anton Kærne-
sted.
Endurskoðendur Varðbergs
eru Björn Helgason og Hrafn
Haraldsson, en framkvæmda-
stjóri er Magnús Þórðarson.
Staðlað stærðakerfi
í byggingariðnaði
IÐNÞRÓUNARSTOFNUN ís-
lands hefur látið prenta eftir-
taida staðla:
ÍST 20 — Mátkerfi fyrir bygg-
ingariðnaðinn, ÍST 20.1 — Bygg-
ingarmát, ÍST 20.2 — Hönnunar-
mát, ÍST 21 — Hæðamál i bygg-
ingum, og ÍST 22 — Eldbúsinn-
réttingar.
Nefnd skipuð eftirtöldum
mönnum hefur unnið að gerð
þessara staðla: Geirharður Þor-
steinsson arkitekt, Þórður Jason-
arson tæknifræðingur, Þór Bene-
diktsson verkfr. Geirharður Þor-
steinsson vék úr nefndinni vegna
anna áður en hún lauk störfum
og tók þá Sigurjón Sveinsson
arkitekt sæti hans. Nefndin hef-
ur lokið þýðingu bæklingsins
Mátkerfið ABC, sena nú er í
prentun, en þar eru grundvallar-
atriði mátkerfisins útskýrð.
Staðlar þessir leggja grundvöll
að samræmdum stærðum ein-
stakra byggingarhluta og bygg-
ingarinnar í heild. Þetta þýðir
þó ekki að allir sams konar bygg
ingarhlutar þurfi að vera jafn-
stórir, heldur eru valdar úr
ákveðnar stærðir. Stærðum á
byggingarhlutum ætti að fækka
úr óendanlegum fjölda niður í til
tölulega fáar. Staðlar þessir eru
í samræmi við alþjóðlega staðla
um mátkerfi.
Þess má geta, að hjá Norður-
landaþjóðunum öllum hefur það
nú verið gert að skilyrði fyrir op
inberum lánveitingum til fjölbýl
ishúsa, að byggingarnar séu
hannaðar í samræmi við mátkerf
ið. Má gera sér vonir um, að svo
verði einnig hér, þannig, að með
takmörkun stærðafjölda á bygg-
ingareiningum skapist markaður
fyrir fjöldaframleiddar bygg-
ingavörur.
(Frá Iðnþróunarstofnun ís-
lands).
Samvinna
og samkeppni
Það er samvinna milli Flugfélagsins og BEA, en jafnframt sam-
keppni um að ná sameiginlegu takmarki: tíðum og reglubundnum
ferðum milli íslands og Bretlands, aukinni þjónustu ag auðveldun
farþega til framhaldsflugs, hvert sem ferðinni er heitið.
Flugfélagið og BEA bjóða íslenzkum farþegum 5 vikulegar ferðir
að vetrarlagi og 11 ferðir í viku að sumarlagi milli Reykjavíkur,
Glasgow og London með fullkomnustu farkostum, sem völ er á:
Boeing 727 og Trident 2.
Aðalsmerki okkar er:
þjónusta, Hraói, þægindi