Morgunblaðið - 07.01.1972, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JANUAR 1972
19
Rannsóknir á Mars:
EFNIFRÁ UPPHAFI
SÓLKERFISINS ?
Apollo 16 á að fara til tungls
ins i marz, en þessa dagana
beinist athytglin einkum að
plánetunni Mars. Umhverf-
is hana sveima þrír gervihnett-
ir, Mariner-9, frá Bandaríkj-
unum og Mars-2 og Mars-3 frá
Sové t rík ju n u m. Sovéaku vís-
indamennirnir vildu komast
eins nálægt plánetunni og hægt
var, og því var hylki skotið
frá Mars-3, en það átti að
lenda á yfirborði plánetunnar
og senda þaðan upplýsingar.
1 hylkinu voru tæki til að
mæla efnasamsetningu loft-
hjúpsins, vindhraða, efna- og
eðlisfræðilega eiginleika yfir-
borðsins, og loks myndavélar
til að senda myndir til móttöku
stöðva á jörðinni.
Myndasendingar hófust á til-
settum tíma, sem gefur tii
kyn-na að lendingin hafi heppn
azt ágætlega. En þær stóðu að-
eins í 20 sekúndur, og mynd-
irnar voru mjög óljósar, sem
getur stafað af sandstorminum
sem geisaði á Mars þegar hyik
ið lenti. Þegar myndasending-
arnar hættu, hættu einnig öun
ur tæki hylkisins að starfa, en
ekki er vitað um ástæðuna.
Sovézlku og bandlarísku viis-
indamennirnir hafa haft með
sér náið samstarf við konnun
Mars. Beint fjarskiptasamband
er milli bandarísku stjórnstöðv
arinnar í Kaliforníu, og þeirr-
ar rússnesku.
Mariner-9, átti ekki að
senda neitt hylki til lendingar
á Mars, heldur taka myndir og
gera ýmsar rannsóknir úr f jar-
lægð. Sandstormurinn sem fyrr
var getið, gerði myndatökur til
gangslátlar framan af því að
hann náði yfir mjög mikinn
hluta plánetunnar. Mariner
var.því skipað að beina mynda
vélum sínum að hinum tveim
tunglum Mars, og árangur-
inn af því varð sýnu meiri.
Mariner náði m.a. beztu mynd-
um sem hafa náðst af Phobos,
en það er stærra tunglið sem er
á braut um Mars, og talið eitt
hið forvitnilegasta í sólkerfinu.
Margir visindamenn telja jafn-
vel að Phobos og systurtunglið
Deimos, séu athygliverðari
rannsóknarefni en móðurplánet
an, og það eru ýmsar ástæður
fyrir því.
Til dæmis hefur engum tek-
ist að skýra furðulega „hegð-
un“ Phobosar, sem minnir á
„hegðun“ jarðneskra gervi-
hnatta. Af 32 tunglum sólkerf-
isins, er Phobos það eina sem
fer hraðar á braut sinni, en
móðurplánetan snýst. Sólar-
hringurinn á Mars er aðeins
nokkrum mínútum lengri en 24
klukkustundir jarðarinnar, en
Phobos fer hringferð sína á ell-
efu klukkustundum, og er hér-
um bil eins nálægt Mars
og fylgitungl mögulega getur
verið. Brautin er hérumbil
hringlaga og fjarlægðin aðeins
3.750 mílur, og ef Phobos væri
nær myndi aðdráttarafl Mars
rifa hann í sundur.
Phobos er aðeins tíu mílur í
þvermál og jafnvel í beztu
stjörnukíkjum á jörðu niðri,
sést hann aðeins sem ljósdep-
ili. Deimos, er enn minni, að-
eins um fimm milur í þvermál.
Það eru nú nærri eitt hundrað
ár síðan þessi tvö fylgitungl
Mars voru uppgötvuð, en vís-
indamenn vita enn mjög lítið
um samsetningu þeirra, þétt-
leika eða yfirborðseinkenni.
Litla „vísindastöðin“ sem Mars-3 skaut niður á yfirborð Mars.
Hún starfaði ekki lengi, en lendingin tókst vel, sem er áfangi
út af fyrir sig.
Hraðbátar njóta að vísu töluverðra vinsælda á Islandi, en þó mun ekki vera tii liér annað
eins „tryllitæki" og það sem sést hér á myndinni. Þessi bátur vann Beaverbrook verðlaun-
in í liraðbátakeppni sem Daily Express stóð fyrir síðast liðið sumar. Hann er knúinn tveirn
nýjum 250 lia dieselvéhim frá Ford. Uppliaflega ætlaði Ford aðeins að framleiða Jiessa
vélategund fyrir útvalda hraðbátasiglara, til notkunar í keppnum, en eftirspurn varð svo
mikil að ákveðið var að setja liana á almennan markað. Fuliu nafni heitir hún „Ford Tur-
boplus Marine Engine Disel og kuúin tveim þeirra náði 0.30 yfir fimmtíu sjómíina hraða.
Phobos, liið stærra af fylgitiinglum Mars. Það er óreglulegt
að lögun, en sumir vísindamenn telja að þar megi finna efna-
sambönd sem eru óbreytt frá „fæðingu" sóikerfisins.
Vegna þess hve þau eru lítil,
telja sumir vísindamenn að þau
hafi aldrei hitnað jafn mikið og
stærri „hlutir" í sólkerfinu.
Afleiðingin af því gæti ver-
ið sú að hin upprunalegu efna-
fræðilegu og eðlisfræðilegu ein
kenni efna þeirra gætu verið
óbreytt frá því sem þau voru
þegar sólkerfið myndaðist. Sam
kvæmt því er mögulegt að á
Phobos og Deimos megi finna
einu efnasamböndin sem hafa
verið óbreytt allt frá „fæð-
ingu“ sólkerfisins, ög menn
geta rétt ímyndað sér hvort vís
indamenn klæjar ekki í fing-
urna eftir sýnishornum.
Afstæðiskenningin
sönnuð með tilraun
á 2 vísindamönnum
í októbermánuði á síðasta
ári, fóru tveir bandariskir
visindamenn i tvær ferðir um-
hverfis jörðina, i þotum. Um
borð voru einnig fjórar „kjarn
orkuklukkur", svo nákvæm-
ar að þær geta mælt tima í
hundruðum milljónasta úr sek-
úndu. Önnur flugferðin var
farin í austur en liin í vestur,
og eftir báðar, voru klukkurn-
ar bornar saman við „móður-
klukku“ í Washington.
Samanburðurinn sýndi að vís
indamennirnir tveir voru sek-
úndubroti yngri, en ef
þeir hefðu setið heima. Þessi til
raun er því talin sú fyrsta sem
gerð hefur verið á mönnum til
að sanna afstæðiskenningu
Gras úr
gömlum
dekkjum
Bandarikjamenn eru i ntikl-
um vandra*ðum með hvað þeir
eiga að gera við milljónir gam-
alla bíldekkja, sem árlega hrúg
ast upp i landinu, og bílafram-
Ieiðendur vinna i sífellu að þvi
að finna not fyrir þau. Good-
year rannsóknarsveitin fann
eina lausn sem er óvenjuleg,
en nokkuð snjöll.
Hún komst að þeirri niður-
stöðu að með því að taka burt
víra og annað drasl úr dekkj-
unum, skera þau niður og lifa
með sérstökum litum, megi búa
til úr þeim ágætis gervigras,
sem leggja megi þar sem um-
ferð er of mikil fyrir venju-
legan girassvörð. Gervigrasið
getur verið eins stíft eða eins
mjúkt og menn vilja, og það er
augljós kostur að þeir sem hafa
það, geta lagt sláttuvélinni og
brosað blítt til frúarinnar.
Einsteins. f mjög stuttu máli er
kenningin m.a. á þá leið að tím
inn líði hægar í, eða hjá hlut-
um sem eru á mikilli ferð en
þeirn sem eru nær kyrrir.
Kenning Einsteins hefur áð-
ur verið staðfest i tilraunum
með kjarna agnir, en það
var ekki fyrr en með tilkomu
„kjarnorkuklukknanna“ og
hraðfleygra þotna, sem hægt
var að gera tilraun á mönnum.
Einstein-kenningin felur m.a.
í sér að ef geimkönnuðum tekst
einhvern tíma að ferðast nógu
hratt í geimskipum sínum,
munu þeir eldast mun hæg
ar en samtíðarmenn þeirra á
jörðinni.
Árið 1967, missti þessi kona
hægri liandlegginn í umferðar-
slysl í Kaliforníu. I átta tíma
aðgerð, tókst Iæknuni við Los
Angeles County General Hospi
tal, að festa hann á aftur. Síð-
ar var gerð á lienni þriggja
tima aðgierð til að tengja taug-
ar sem urðu útundan í fyrstu
aðgerðinni. Hún er nú löngu
búin að ná sér og getur beitt
handleggnum eins og ekkert
hafi fyrir komið.