Morgunblaðið - 05.02.1972, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.02.1972, Blaðsíða 11
MORjGUNBLAÐIÐ, LAU'GARDAGUR 5. FEBRÚAR 1972 11 Hermóður Guðmundsson: Opið bréf til Lárusar Jónssonar SJÓMENN tala um að kúvenda farkostum simium þ&gar gripa þajrí til skjóta ráða að verjast áíöUium el illt er i- s]ó. ' Nú sýnist mér, Lárus Jónsson, að þú hiarfir, éinhverra hluta vegna, tekið Þann nieyðarkost að kúvehda sikoðanafleytu þirtni i. „lifsins ólgu sjó“, samanber grein þitna í Morgunblaðinu 27. þ.m. Ég minnist viðræðna við þig, þegar þú varst framkvæmda- stjóri Fjórðungssambands Norð- lendinga, á Hótiel K.E.A haustið 1969, þar sem þú lýstir því yfir að raforkumál Norðurlands baeri að lieysa fyrst með samtengingu við Búrfellsvirkjuh. í>etta samtal fór frarn á þvi herrans ári 1969, þegar þú hafð- ir um árabil haft gullið fæki- færi til þess að beita pólitískri aðstöðu þinni til framkvæmda í virkjunarmálum Norðurlands, sem innsti koppur í búri þáver- andi fjármálaráðherra. Hver e,r svo ástæðam fyrir kú- vendingunni, Lárus? Hvaða áfali er það sem þú þarft nú að verja fleytu þína fyrir? Nýkjörinn þingmaður ætti þó að hafa áhuga og óbundnar hend ur tiil þess að framfyigja skoðun um sínum og óhugamálum. Hvað fékk þig til að breyta svo um skoðun að þú teljir nú óöruggt og óskynsamlegt það sem þú taldir raunhæfasta úrræðið 1969? Og er það ekki rétt hjá mér, Lárus, að Akureyringar teldu það nægilega gott og öruggt, fyr ir nokkrum árum, að Austfirð- ingar fengju sína raforku með línu frá Laxá? Er það þó nær hiekningi lengri leið og yíir úr- komusamara iaindsvæði að fara yfir en frá Sigöldu til Norður- lands. í grein þinni er á þér að skiija að skipun samstarfsnefndar um raforkumál Norðurlands muni greiða fyrir lausn þessara máia úr þeirri úrræðaleysis-sjálf- heldu, sem fyrrveraindi stjórn skildi við þau í. Á ég að trúa þvi, að þér finnist reynslan af skipun orkumálanefndar Aust firðinga og Norðlendinga, á sín- um tíma, hafa reynzt svo vel að ástæða sé til að taka þá nefndar- skipun til fyrirmyndar nú? Eða var það ekki þessi nefnd, sem átti siinn gilda þátt í því að orkumál þessaira landshluta drógust aftur úr vegna ósam- komulags um stefnumörkun og virkj unarstaði? Ég held að fiestum Norðlend- ingum sé ljóst, að um eina sam- eigiinlega stefnu er ekki að ræða í fjórðungnum um raforkufram- kvæmdir. Hvernig mætti siíkt lika vera, þair sem nær allir raf- orkumöguleikar, allt frá Hrúta- firði til Langamess eru nær ónot- aðir, og lítt eða ekki rannsakað- ir enn? Hitt er víst að stefna ríkis- stjórnarinnar í raforkufram- kvæmdum, sem er stefna hag- ræðingar og jafnvægis, á mestu fylgi að fagnia á svæðinu, onda hefur jafnaðarverð á rafmagni verið eitt mesta baráttumál lands býggðarinnar og bændasamtak- anna um fjölda ára, Grund völlur verðjöfnunar er samtenging orkusvæða undir yf- irstjórn ríkisine. Það vekur furðu mína að þú skulir skrifa og. tala eins og þú hefuir gert um stefnu Norðlend- inga í raíorkumálum, eins og þú getir skipað Norðlendingum und ir eitt merki gegn haigsmuinum þeirra sjáifra. Hvemig miundi fara fyrir okk- air fámemnu þjóð, með takmark- aða framkvæmdaigeitu, ef fjár- munum þjóðaæinmar yrði sóað í algjöru skipulagsleysi án sam- ræmdrar heildarstefnu? Nei, í ekki stærra þjóðfélagi gengur ekki að stofna mörg smáríki, Lárus. - Skýrasta dæmið um smáríkja- stefnuna er Laxárævintýrið, ævin týri fjársóunar, smákónga- drambs og öfugþróunar. Getum við ekki verið sammála um, að óæskilegt sé að berjast fyrir því siém hlaut nafnið — „Hagsmuna- samtök Norðlendinga í raforku- málum“ — á 50—60 manna fund inum, sem þið Akureyringar boð uðuð til í útvarpi, sjónvarpi, blöðum og með sendiferðum manna á milli? Svona íámennur fundur hefði vairla verið talinn ályktunarfær í Landeigendafélagi Laxár og Hermóður Guðmundsson Mývatns, hvað. þá fyrir heilan landsfjórðung. Tæpaist er hægt að ímynda sér, að þú eða aðrir ábyrgir menm í þessum félagsskap viti svo um það sem á eftir fór, þ.e.a.s. undir skriftasöfnunina, þar sem tekin voru börn um fermingaraldur og látin skrifa undir skjalið ykkar. Með slíku framferði eru brotin lög og heimilisihelgi rofin. Mig furðar sannarle'ga ekki þótt einn af framámöninum ykkar í saimtökunum teldi liggja svo á að láta strika nafn sitt út aí þessum lista, að hainn sendi vott- fest símskeyti með kröfu um út- strikun. Það fannst mér heiðarlega að staðið. Sé það tilgangur þinn, Lárus, með áróðri þinum, að kynda und ir áframhaldandi ófriðareldi i kjórdæmi þínu, gegn þingeysk- um bændum og ráðgerðu sam- komulagi við þá, í þeim tilgangi að reyna að taka mað valdi eign- Lárus Jónsson ir þeirra og mainnréttindi gegn tögum og dómum, og öllum venjulegum siðaireglum um sam- skipti manna á meðal, væri það lítill heiður þingmannsnafni þínu. Eða hafa ekki tálvonirnar um Laxá ruglað nógu lengi dóm- greind ráðamanna Akureyrar í raforkumálum, þótt þingmenn þeirra geri sér ekki leik að því að halda áfram að blekkja þá með ábyrgðarlausum æsinga- skrifum og undirróðri, gegn raunsæum úrræðum ríkisstjórn- ar, er mundi tryggja Norðlend- ingum jafnréttisstöðu við aðra landsmenn? — Geta Norðlend- ingar krafizt meira, ég segi nei. Nei, Lárus, Laxá verður aldrei látin af hendi til frekari orkuöfl- nnar. Þó að þú eigir ef til vill eftir að verða einhvers staðar smákóngur, þá verður það ekki yfir bændum við Laxá og Mý- vatn. — 30/1 1972 SA SEME/NU S/NN/HEFUR ÁTT AMERÍSKAN BÍL V/LL EKK/ ANNAÐ MERCURY COMET Fyrir utan óviðjafnanlega aksturseiginleika, meta eigendur bandarískra bíla hvað mest þá staðreynd að allur viðhaldskostnaður er iangtum minni og ending þeirra allt að tvöföld á við það sem menn eiga að venjast. Bjóðum nú hinn glæsilega Mercury Comet á hagstæðara verði en nokkru sinni fyrr. Gerið samanburð við evrópska bíla á verði og gæðum. SýningarbílI á staðnum. BÍLL Á ETRQPSSH TERSI •“•"'•KH.KRI5TJÁN550N H.f. SUDURLANDSBRAUT 2 SÍMI 3 53 00 í FORDSKÁLANUM SUÐURLANDSBRAUT 2 (VIÐ HALLARMÚLA) í DAG KL. 9-5 OG SUNNUDAG KL. 2-5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.