Morgunblaðið - 05.02.1972, Blaðsíða 26
........... ■ -- ■ " - ""f...i-TT-i-------
MORGUNÐLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 1972
Margur er knár
þótt hann sé smár
— rússneski sigurvegarinn
í 30 km göngunni er
aðeins 1,64 m á hæð
*
KÚSSNESKA grönKUgarpimim
Vedenin tókst í gær að sanna,
að margur er knár þótt hann
«é smár. Vedenin, sem er her-
maöur aó atvinnu og er aöeins
1,64 m á haeð og vegur 64 kg,
eigraöi örugglega í 30 km göng-
nmni og sýndi þar meö að sigur
hans í heimsmeistarakeppninni í
ffýrra var engin tilviljun.
Göngukeppnin var mjög spenn-
andi og lítill munur á fyrstu
mönnum. Þegar millitíminn var
gefinn upp eftir 10 km var
Simasjov frá Rússiandi í fyrsta
sæti á 30:24,24 min, en í öðru
sæti var Harviken frá Noregi
sem hafði gengið vegalengdina
á 30:32,52 min. MiJJitími Veden-
ins var hins vegar 30:52,78 mín
og svo til sama ttma hafði helzti
göngugarpur Norðmanna, Pál
Tyldum.
En á næstu 10 km breyttist
röðin mikið og var þá Vedenin
skyndilega kominn í fyrsta sætið
á 1:05,39,72 klst. og Tyldum orð-
inn annar á 1:05,50,18 klst. Var
sýnt, að keppnin um gullverð-
launin myndi standa milli þess-
ara tveggja. Vedenin hafði frem-
ur lágt rásnúmer, en hins vegar
hafði Tyldum verið næstur mjög
aftarlega i röðinni, og heyrði
því um tíma Rússans meðan
hann var enn í brautinni. Keyrði
hann sig áfram til hins ítrasta
á síðasta hluta leiðarinnar og
leit um tíma út fyrir að honum
tækist að sigra i greininni. En
á siöustu 1500—2000 metrunum
var úthald Norðmannsins farið
að gefa sig og hann varð að
hægja ferðina. — Ég hreinlega
sprakk, sagði hann við frétta-
menn að keppninni lokinni.
Það skyggði nokkuð á keppn-
ina í göngunni að Gerhard
Grimmer frá A-Þýzkalandi gat
ekki tekið þátt í henni. Var hann
eitt af fórnarlömbum inflúens-
unnar, sem gengur í Sapporo.
Grimmer hafði búið sig mjög vei
undir keppnina í Sapporo og
verið sigursæll að undanförnu.
En fieiri urðu að láta sér lynda
að liggja í rúminu og fylgjast
með keppninni í gegnum fjöl-
miðla. Norðmaðurinn Odd Mart-
insen, sem hlaut silfurverðlaunin
í þessari grein í Grenoble 1968,
lá einnig rúmfastur. Fleiri
urðu einnig fyrir vonbrigðum.
Finnar höfðu gert sér góðar von-
ir um að eiga menn i efstu sæt-
unum, en sá þeirra, er beztum
árangri náði, var Mæntyranta,
sem lenti í 19. sæti.
Úrslit:
V. Vedenin, Rússl., 1:36,31,15
Pal Tyidum, Noregi, 1:37,25,30
John Harviken, Noregi, 1:37,32,44
Gunnar Larsson, Sviþj., 1:37,33,72
Demei, V-Þýzkalandi, 1:37,45,53
F. Simasjov, Rússl., 1:38,22,50
Alois Kæhn, Sviss, 1:38,40,72
Gert-Dietmar Kiaus,
A-Þýzkalandi, 1:39,15,54
Ard Schenk í 500(1 m hlaupinu á Makomanai-Ieikvanginiim í
Sapporo. — Fyrsti sigurvegarinn í skautahlaupi á leiknnum
og ekki er ósennilegt að hann eigi eftir aö krækja í fleiri gull-
verðlaun í hlaupumim.
Schenk hafði heppn-
ina með sér
— hljóp þegar skilyrði voru
bezt og sigraði
— ÞAÐ er rétt, að ég á mögu-
leika á aö vinna þrenn gull-
verðlaun, en ég býst ekki við
því að svo verði, sagði „Hol-
lendingurinn fljúgandi", Ard
Schenk, er hann hafði sigrað
með yfirburðum í fyrstu
skautagreininni, sem keppt
var i Sapporo, 5000 rn hlaup-
Inu. Hinar tvær greinarnar,
sem Schenk á vonir um gull í,
eru 1500 m hlaup og 10 km
hlaup, en sjálfur segist hann
vera ánægður, verði hann
meðal 10 fyrstu i 500 m hlaup-
inu.
Ard Schenk hljóp í 1. riðli
5000 m hlaupsins og með hon-
um Giovanni Cloder frá ítaliu.
Þrátt fyrir slæm skilyrði á
brautinni, smjókomu og nokk
um vind, hljóp Schenk frá-
bærlega vel og tími hans
reyndist vera 7:23,61 min eða
rúmri sekúndu lakari tími en
Olympíumet Norðmannsins
Maiers er í þessari grein.
Eftir þennan árangur
Schenks var honum þó ekki
spáð sigri. Margir frábærir
skautahlauparar áttu eftir að
fara í brautina menn, sem
höfðu náð betri tíma en þetta
í vetur. Þeir höfðu það einnig
með sér að vita tíma Schenks
og gátu þvi keppt að þvi að
bæta hann.
En það átti eftir að koma á
daginn að Schenk hafði verið
heppinn að vera í fyrsta riðli.
Brautarskiiyrðin versnuðu
heldur en bötnuðu eftír því
sem á kepphina leið, og einn
af öðrum lauk riðlunum án
þess að það tækist að bæta
tíma Scheniks. Auðséð var þó,
að margir höfðu á því hug.
Einkum og sér í iagi þó Norð-
mennirnir. Beztum tima
þeirra náði Roar Grönvoid,
sem hljóp i þriðja riðli á
á 7:28,18 mán. Hann setti
strax á fuila ferð, en nokkuð
dró af honum er á hlaupið
leið, enda erfitt að hlaupa sök-
um snjókomunnar.
Og svo fór að lokum, að
engum tókst að ná betri tíma
en HoUendingurinn og hans
fyrsti Olympíusigur var orð-
inn staðreynd.
Úrslit:
Ard Schenk, Hollandi, 7:23,61
Roar Grönvold, Noregi, 7:28,18
Sten Stensen, Noregi 7:33,39
Göran Claeson, Svíþj., 7:36,17
Willy Olsen, Noregi, 7:36,47
Kees Verkerk, HoM., 7:39,17
V. Lavrusjkin, Rússl., 7:39,26
Jan Bols, Hollandi, 7:39,40
Vjatjeslav Vedenin frá Rússlandi nálgast markiö í 30 km göng-
tinni, sem hann sigraði í eftir harða. keppni við Norðmennina
Tyldum og Harviken.
Japanir góðir í
skíðastökki
- en gangan verður þeim erfiðari
í GÆR fór fram í Sapporo
stökkkeppni í norrænni tví-
keppni, en sem kunniigt er þá
ern greinar hennar stökk og
ganga. Mjög mikill fjöldi áhorf-
enda fylgdist með þessari keppni
og geysilegur fögnuðnr brauzt
út meðal -lapananna er þaö var
tilkynnt, að Hideki Kakano frá
•lapan heföi forystu i keppninni
eftir stökkið og hana allgóða.
Kakano sýndi mikið öryggi í
stökkum sínum, sem voru 82 m
og 80 m, en svo löngum stökk-
um náði enginn annar keppandi.
Björninn er þó ekki unninn
fyrir japanska piltinn, þar sem
gangan er ekki hans sterka hlið.
Þó á hann enn góða möguleika
til sigurs, þótt flestir spái þvi
hins vegar að baráttan um gull-
ið muni standa á milli Miettinen
frá Firiniandi, Nossov frá Rúss-
landi og Wehiing frá A-Þýzka-
landi.
Úrslit: Stig:
Hideki Kakano, Japan, 224,6
Rauno Miettinen, Finnl., 214,8
Aieksander Nossov, Rússl. 206,1
Kazuo Araya, Japan, 204,5
Ulrich Wehling, A-ÞýzkaJ., 202,6
Yuji Katsuro, Japan, "199,9
Tomas Kucera, Tékkósl., 191,8
Nobutaka Sasaki, Japan, 190,3
Yfirburðasigur Finna
— Norðmenn stóðu aðeins
í þeim í fyrstu lotu
GREINILEGT er að finnska ís-
hockey-Iandsliðið sem mætt er
til leiks í Sapporo, er mjög sterkt.
I fyrsta leik símim lék það
Norðmennina sundur og saman,
og sigraöi með 13 mörkiim gegn
1. Þóttu Finnarnir oft sýna frá-
bæran leik, bæði i sókn og vörn,
og skot þeirra vom slík að norski
markvörðurinn átti ekki minnstu
tök á þvi að verja.
Það var aðeins í fyrstu lot-
unni sem leikurinn var ekki
mjög ójafn. Fyrsta markið skor-
aði Riihiranta fyrir Finnana á
5. mínútu, en siðan breyttu þeir
Linmomma og Mononen stöðu-nni
i 3:0 með mörkum á 7. og 10.
minútu. Norðmenn náðu s'kipu-
iegum upphlaupum við og við og
í einu slíku skoraði Svein Haag-
ensen. Var það á 12. mlínútu.
En strax í annarri iotu komu
yfirburðir Finnanna vel í Ijós,
og iauk henni með 5:0 sigri
þeirra. Mörkin gerðu Keineon á
3. mín., Oksanen á 5. mín., Ranta-
sila á 11. mín. og Mononen á 12.
og 17. mínútu. í þessari iotu
fengu Norðmenn tvivegis allgóð
marktækifæri, en finnski mark-
vörðurinn Jorma Valtonen varði
þá snaggaralega.
Þriðja iotan fór einnig 5:0 fyr-
ir Finna. Þá Skoruðu Dksanen á
7. mín., Mononen á 14. mín., Peit-
onen á 16. min., Rantasila á 17.
mdn. og Turunen á 18. mín. 1
leiiknum var fjórum Finnum og
einum Norðmanni visað af velJi.
Sapporo
í dag
IlAGSKRÁ Oiympiiileikann!i
í Sapporo í dag, verður
þannig:
Kl. 9.00 10 kni ganga kvenna.
Kl. 10.00 Skíðastökk,
lægri pallur.
Kl. 10.00 1500 metra skaiita-
hlaup karla.
Kl. 12,30 íshockey.
Kl. 15.00 Keppt í listhlaupi
á skautnni (parak.)
KI. 16.00 íshockey.