Morgunblaðið - 05.02.1972, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.02.1972, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 1972 1S Björn Br. Björnsson tannlæknir - Minning í DAG fer fram í Kaupmanína- höfn báiför vinar míns, Bjöms Br. Björnssonar, tannlæknis, en þar í borg hafði hann búið síðastliðin 11 ár og þar lézt hann 27. janúar s.l. Með Birni er horfinn af sjón- arsviðinu einn þeirra manna, sem tóku virkan þátt í uppbygg- ingu fiugsins hér á landi að lokinni síðari heimsstyrjöldinni. Svo að segja strax og auðið var hóf hann flugnám og lauk einka- flugprófi í marzmánuði 1947. Tveim árum seinna lauk hann einnig bóklegu atvinnuflugprófi og var í hópi þeirrá fyrstu, sem luku því hér á landi. Hann var aðalhvatamaðurinn að stofnun Félags íslenzkra einikaflugmanna 10. október 1947 og fonmaður þess um árabil. Það félag starf- aði þá með miklum blóma. Það kom sér upp félagsheimili, þar sem margháttuð starfssemi fór íram. Átti félagið þá frumkvæði að merkingu flugvalla fyrir einika- og sjúkraflug víðs vegar um iandið. Björn átti og um ára- raðir sæti í stjórn Flugmálafé- lags fslands. Þótt svo giftusamlega tækist um björgun áhafnar flugvélar- irunair Geylsis af Vatnajöikii í september 1950, sem alþjóð er kunnugt, var þó mörgum ljóst, að sérþjálfað lið til leitar og björgunar, er flugvél týndist í ébysgðum, var í raun og veru ekki til hér á landi, og lagði þá Alþjóðaflugmálastofnunin (ICAO) þá siðferðislegu skyldu á okkar herðar. Bjöm gerðist þá íorgöngumaður, ásamt Þorsteini E. Jónssyni, fiugstjóra og fieiri áhugamörunum, að stofnun Flug- björgunarsveitarinnar þann 24. nóvember 1950. Fyrsta árið var Þorsteinn formaður sveitarinnar, en svo tók Bjöm við og gegndi fonmannsembætti hennar í um t Þökkum inniiega auðsýnda samúð og vinarhug við and- lát og útför, Kristmanns Þorkelssonar, Seljavegi 25. Aðstandendur. t Þökkum innilega öllum þeim er sendu okkur samúðar- kveðjur við andlát og jarð- arför Metu Lund. L,úðvíka Lund og fjölskylda. það bil 10 ácr. Öll þesisi ár var Björn óþreytandi i starfi síniu í þágu Flugbjörgunarsveitarimn- ar. Hamn vann að öflun nauðsyn- legs útbúnaðaæ, að skipulagnimgu starfsins og þjálfun sveitarinnar í að víntna sérhæfð störf við erfiðustu aðstæður. í öllu þessu var hann þátttakandi. Hin meðfædda hjálpsemi og fórnarlund, sem honum var í blóð borin, var driffjöðurin í þessu starfi hans. Árið 1961 flutti Bjöm tanm- iæknisstarfsemi sína til Kaup- mannahafnar, þar sem hamn og kona hans Ellen bjuggu sér fallegt heimili að Duevej 14 á Frederiksbergi og í Frederiks- berg-kirkju fer í dag fram minm- ingarathöfn um þennam góða dreng, sem nú er aliur. Við gömlu félagar hans úr fluginu mimmumst horfins vinar í dag um leið og við sendum frú Ellen og öðrum eftirlifandi ásf vinum hans samúðarkveðjur okk- ar. Björn Jónsson. BÁLFÖR Bjöms Br. Björnsson- ar tannlæknis fer fram í dag í Kaupmannahöfn. Þar var hann búsettur síðasta áratuginn, enda var kona hans dönsk, — Ellen Yde, — tannlæknir að mennt, en dóttír þeirra Birna naut þar skóiagöngu, en hún er einnig tannlæknir. Bjöm fæddist í Reykjavik 14. ágúst árið 1910. Var hann sonur Brynjúlfs Björnssonar, sem fyrstur íslendinga stundaði frá upphafi tannlæknanám í Kaup- mannahöfn og lauk þar prófi. Síðar starfaði hann í Sviss um skeið, en fluttist þá heim til ís- lands. Beitti Brynjúlfur sér fyr- ir stofnun Tannlæknafélagsins, var formaður þess um langt skeið og síðar heiðursfélagi. Kona hans var Anna Guð- brandsdóttir, Reykvikingur að ætt og uppruna, en bæði nutu þau hjón vinsælda og virðingar samborgara sinna. Björn innritaðist í læknadeild Háskóla Islands að loknu stúdemtsprófi árið 1929, en hvarf árið eftir að tannlæknanámi í Kaupmannahöfn. Lauk hann þar prófi og vann þar í borg næstu árin að tannlæknámgum. Vegna Þökkum t innilega auðsýnda samúð og vináttu við fráfall og jarðarför ÁRNA guðmundssonar Böm, stjúpböm, tengdasynir og barnaböm. t Ástkær eiginmaður minn KRISTINN ÞÓRARINSSON Miðbraut 30, andaðist í Landsspítalanum fimmtudaginn 3. febrúar. Elisabet Jónsdóttir. veikinda íöður hans fluttist Björn og kona hans til Islands árið 1938 og tóku . við tann- læknastofúnnd að Hverfisgötu 14 hér í bænum. Bjöm var for- maður Tannlæknafélagsins um árabU eftir heimkomuna, en framhaldsnám stundaði hann í Berlin og við Mayo-Clinic í Rochester, auk þess sem hann sótti námskeið í New York og víöar, m. a. í skurðaðgerðum í sambandi við læknisgrein sina. Má telja að Bjöm hafi verið með lærðustu tannlæknum, auk þess sem hann hafði áhuga á allri tækni og var hagur í bezta lagi. Björn var friður maður, hár vexti og gervilegur og að öllu vel á sig kominn. Hann var ein- stakt prúðmenni i allri fram- göngu og hvers manns hugljúfi er honum kynntist. Gleðimaður var hann og eftirsóttur sam- kvæmismaður, auk þess sem hann tók þát.t i margvislegum félagsmálum. Áhugamál átti hann mörg auk sinnar fræði- greinar og íþróttir stundaði hann lengst af, svo sem sund og skíðaferðir og víða fór hann um öræfi landsins. Björn lauk flugmannsprófi og aflaði sér síðar réttinda til farþegaflugs, þótt hann hyrfi ekki að því ráði. Hann starfaði mikið í félagi einkaflugmanna og var einn af hvatamönnum að stofnun flug- björgunarsveitarinnar og lengst af formaður hennar meðan hann dvaldi hér í landi. Mikinn áhuga hafði Björn á ferðamálum, enda var hann maður víðförull. Sér til gamans og fróðleiks lauk hann prófi leiðsögumanns (guide) í Kaupmcinnahöfn og taldi hann að það hefði komið sér að góðu haldi á ferðum sín- um víðs vegar um Evrópu. Björn unni Islandi og ís- lenzkum öræfum öðru frekar og „inn milli fjallanna“ taldi hann sig eiga heima, þótt hann dveldi erlendis. Þar stóð heimili hans Islendingum opið og margra götu greiddi hann, beint og óbeint og taldi hvorki eftir fé né fyrirhöfn í því efni, en hafði þó aldrei orð um. Heilsu- veill var hann siðustu árin, en Iét það ekki á sig fá að þvi er vinnuna varðaði. Vonuðum við vinir hans að ekki væri um al- varlegan sjúkleika að ræða, en undir uppskurð gekk hann að lokum og var látin að fáum dög- um liðnum. Við sem bezt þekktum Björn kveðjum hann með djúpum söknuði, en duft hans mun hvíla í friði í íslenzkri mold. Votta ég konu hans, börnum og öðrum aðstandendum inni- lega samúð mina, en góðar minningar lifa þótt maðurinn deyi. Krist.ján Guðlaugsson. Fimmtudaginn, 27. janúar s.l. lézt í Kaupmannahöfn Björn Brynjúlfsson Björnsson, tann- læknir. Björn fæddist 14. ágúst 1910 í Reykjavík og voru foreldrar hans Brynjúlfur Björnsson, tannlækn ir og kona hans Anna Guð- brandsdóttir. Hann lauk stúdents prófi 1929 og tannlæknaprófi frá Tannlæknaskóla Kaupmanna- hafnar 1935. Framhaldsnám stundaði hann m.a. í Berlín og Vínarborg 1936 og á Mayo Clinic í Bandaríkjunum 1946. Auk þess fór hann margar styttri náms- ferðir. Hann var mjög vel mennt aður tannlæknir og mikils met- inn, jafnt af starfsbræðrum sín- um, sem sjúklingum, enda ætíð mjög áhugasamur um að fylgj- ast með nýjungum á sínu starfs sviði og ekki sizt, að því er skurð laakningar í munni varðaði, þar sem hann náði mjög gó«ðum ár- angri. Að féíIagismáil'Um staríaði Bjöm af mi'klum áhuga og var m.a. formaður Tannlætknafélags íslands frá 1949—1956. Hefur án efa verið létt að hnifast af áhuga föðurins, Brynjúlfs Bjömsson- ar, sem var ‘mikffi hugsjónamað- ur og íjyrsti tannlæiknirinn hér á landi, er Qauk prófi frá tannlaekna skóla. Beitti hann sér m.a. fyrir stofun Tannlæknafélags íslands og var formaður þess um langt sikieið. Yfir Bimi var ætíð rnikil reisn og virðuleiki, enda ávann hann sér traust allra, sem honum kynntust. Hann var sérstaklega alúðlegur og hjálplegur við yngri starfsbræður sína og leit- uðu þeir því oft til hans, ef um erfið viðfangsefni var að ræða. Mestan starfstlma sir n starf- aði Bjöm hér i borg, cn vann þó síðuistu árin að tannlakninguim í Kaupmannahöfn ásarrit konu simni, Ellen Yde, sem einnig er tannlaiknir. Þrátt fyrir tíimafrck störf á tannlæknastofu sinni og áð fé- lagsmálum tannlækna, helgaði hann flúgmálum og skiðaiþrótt inni mikið af fristundum sínum, enda virtiet honum falia bezt, að hafa ætíð mörg verkefni við að gima. Fyrir hönd starfsfélaganna i Tanniiæknafélagi íslands þakka é.g homum hans miklu og fórn- fúsu störf í þágu félagsins og sendi frú Ellen og öðrum ætt- ingjum hans innilegusfcu samúð- arkveðjur. Magnús R. Gíslason. Halldór M. Halldórs- son, Isafirði — Minning HALLDÓR M. Halldórsson, fyrr- fyrrverandi afgreiðslumaður á Isafirði, andaðist á Sjúkrahúsi ísafjarðar 28. janúar sl., 75 ára að aildii. Járðarför hans fer fram í dag frá ísafjarðarkirkju. Haildór er fæddur 30. desem- ber 1896, og voru foreldrar hans Sigurlína Guðmundsdóttir og Halldór M. Ólafsson póstur og sjómaður. Þau hjón áttu fyrst heima að Úlfsá við Skutuisfjörð en reistu nýbýli í grenmd við Úlfsá, sem þau nefndu Góustaði og þar fæddist Haildór heitinn. Þegar hann var átta ára að aldri fluittust foreldrar hans til Isa- íjarðar og þar átti hann síðan heiima til dauðadags. Halldór fór ungur að árum að vinna við bakaraiðn hjá Finni Thordarsyni, en lærði síðar bók- band hjá Bárði Guðmundssyni bókbindara. Á öðrum tug aldar- innar varð Isafjörður einn mesti S'íldarsöltunarbær landsins og svo var einnig nokkuð fram eftir þriðja áratugnum. Þá eins og ávallt síðar heillaði síidarút- gerðin og síldarvinnan unga sem gamla. Um tvitugsaldur fer Halldór að vinna á síldarplani hjá O. Y. Syre og kemur þá fljótt í ijós verkhyggni hans, dugnaður og stjómsemi, sam- fara einstakri trúmennsku við störf og er hann, þótt ungur sé, gerður að verkstjóra. Hann gegndi verkstjórastarfi við síld- arsöltun um tíu ára skeið, en þá fer skyndilega að dofna yfir sildarútgerðinni á þessum slóð- um. Þá gerist Halldór lifrar- bræðslumaður og rekur lifrar- bræðslu um nokkurt árabil. Um tima vann hann við kaup á fisk- beinum frá Snæfellsnesi og norð an af Ströndum fyrir Björgvin Bjarnason, sem þá rak fiski- mjölsverksmiðju á ísafirði. Nokkru fyrir árið 1940 gerist Halldór afgreiðslumaður og verkstjóri fyrir h.f. Vestfjarða- bátinn og siðar fyrir hf. Djúp- bátinn, þegar hann tók við hlutverki hins fyrrnefnda. Hann gegndi þessu erilsama starfi til ársins 1968. Lengi á þessu tíma- bili var hann einnig afgreiðslu- maður og verkstjóri fyrir af- greiðslu Eimskips og Ríkisskips, en það var of umfangsmikið að hafa þessi störf öll á hendi og lét hann af störfum fyrir Eimskip og Ríkisskip um 1960 að því að ég bezt man. SíðUstu tvö árin, sem hann var vinnu- fær, vann hann hjá ■ Ishúsfélagi ísfirðinga h.f., en síðasta árið hefur hann verið sjúklingur og nú seinustu mánuðina hefur Móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN HERMANNSDÓTTIR frá Fremstuhúsum í Dýrafirði andaðist að Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund iöstudaginn 4. febrúar 1972. Böm, tengdabörn og bamabörn. hann háð harða baráttu við erfiðan sjúkdóm. I því stríði hlaut að koma að þvi að hann varð að lúta í lægra haldi. Á árinu 1942 varð ég, tæplega 21 árs að aldri, framkvæmda- stjóri Vestfjarðabátsins og nokkrum mánuðum seinna, fram kvæmdastjóri Djúpbátsins. Þá var Halldór þar verkstjóri og afgreiðslumaður, meira en helm- ingi eldri en ég. En þrátt fyrir aldursmuninn tókst með okkur þegar í upphafi góð vinátta og trúnaður. Þetta hélzt alla tíð meðan við unnum daglega sam- an. Síðustu fimm árin, sem samstarf okkar átti að vera, var ég fjarverandi meira en hálft árið og þvi var samstarfið eng- an veginn eins náið og áður. Á löngum samstarfsferli man ég að einu sinni varð okkur al- varlega sundurorða, kastaði hann þá iyklakippunni að af- greiðsiunni í mig og sagði öilu lausu. Um nóttina varð mér ekki svefnsamt og um morgun- inn sendi ég lyklana heim til hans. Hann lét ekki á sér standa og opnaði vöruafgreiðsluna á til- settum tíma. Ég kom litlu síð- ar til hans og kvartaði um svefnleysi. Svarið var á þá leið að ástandið hefði verið með líku móti hjá honum. Báðir höfðum við tekið þetta nærri okkur enda skapmenn meiri en góðu hófi gegndi. Það var ekkert meira sagt, en báðir brostu. Næstu mánuðina lögðum við okkur fram við að gera hvor öðrum meira til hæfis en áður hafði verið. Virðing mín á honum óx og vináttan varð bundin sterkari böndum. Allan þann tíma, sem við vor- um samstarfsmenn, treysti ég honum fuilkomlega í störfum, hann var einstaklega samvizku- samur, snyrtilegur i umgengni, og gerði ávallt það sem hann taidi réttast og sannast. Hins vegar fór ekki á milli mála að hann hafði siínar skoðanir á hlutunum og þar lét hann eng- an segja sér fyrir verkum. Hann var hispurslaus í framkomu og viðmót hans var ekki umvaíið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.