Morgunblaðið - 30.03.1972, Side 4

Morgunblaðið - 30.03.1972, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FCMMTUDAGUR 30. MARZ 1972 ÚTI VIÐ EYJAR BLÁR - SKOTFERÐ TIL VESTMANNAEYJA I>undaveioi Ritan annast ung'ann sinn Þegar ég settist niður til þess að skrifa grein um stað, sem skemmtilegt er að heimsækja, datt mér fyrst í hug að skrifa um Herdísarvik á. Reykjanesi, þar sem f jörurnar eru hvað fal legastar og fjölbreytilegastar, þar sem brimið svarrar sí og æ í eilífðarhljómkviðunni, þar sem litbrigði loftsins í veðra- skiptum njóta sín svo vel und- ir dimmbláum fjöllunum og þar sem skáldjöfurinn Einar Bene- diktsson bjó um sinn milli fjöru og f jalls. En þá kom mér auðvitað i hug Ijóð Einars um Vestmannaeyjar, þar sem seg- ir, „Eins og safírar greyptir í silfurhring, um suðurátt hálfa ná Eyjarnar kring,“ og af því að ég hef skrifað svo skammar- lega litið um Vestmannaeyjar afréð ég að bjóða ykkur i stutta ferð til Vestmannaeyja um leið og ég bendi þó á að ómögulegt er að skynja birtu „safiranna", nema horfa á þá með eigin augum. Sá kostur Eyjanna að hvergi er eins vitt til veggja og þar, haf allt um kríng, segir okkur strax að ekki er mögulegt að setjast upp í sinn bíl og aka út í Eyjar. í>ó er hægt að sum- arlagi að aka til Þorlákshafn- ar í sínum bíl og láta kippa honum um borð í Herjóif þá 5 daga vikunnar sem hann siglir á milli lands og Eyja. Algeng- asti ferðamátinn er þó flugleið in, sem tekur jafn langan tíma frá Reykjavík og Hafnarfjarð- arstrætö er að fara í Hafnar- fjörð. Aðrar fastar ferðlr eru ekki tii Eyja, nema Gullfossferðin um hvitasunnuna ár hvert þeg ar stanzað er í Eyjum í þrjá sólarhringa. Það hefur færzt talsvert í vöxt síðustu ár að fólk hefur farið með tjöld út i Eyjar, búið í þeim og skoðað sig um þar sem af nógu er að taka þó að engar afréttir séu þar eða Sprengisandar. Einnig eru ágæt hótel í Eyjum, sem stöð- ugt eru meira notuð af ferða- mönnum. Við skulum hins vegar bregða okkur í Guilfossferð um hvítasunnuna og kanna hvernig Eyjarnar eru kynnt- ar þar. Fyrst siglum við auðvitað í kringum Eyjar og farþegum er kynnt það sem fyrir augu ber. Alls eru Eyjarnar 15 tals ins og er Surtsey þeirra yngst. Allar eru þær hamraeyjar, en grasi vaxnar á kollum og i hlíð um þar sem undirlendi er. Milljónir af sjófuglum búa í Eyjunum, lundi, langvía, fýll, súla, mávar og margar aðrar fuglategundir. Eyjarnar eru snarbrattar í sjó fram og er hægt að sigla mjög nálægt þeim. Á sumrin dvelja lunda- veiðimenn í flestum Eyjanna og veiða þar lunda í þúsunda vis. Er það frábær steik. Um hvítasunnuna er eggja- tíminn og þá flykkjast bjarg- menn í úteyjar þar sem sigið er eftir eggjum, fýls- og langvíueggjum. Skiptir miklu máli að taka eggin á réttum tíma, því að annars verða þau stropuð og fæstum líkar sú soðning, en varptíminn hefst mjög reglulega ár hvert og verpir fýllinn á undan. Fyrsta kvöldið á leiðinni til Eyja er skuggamyndasýning um borð og er þar sýnd lit- myndasyrpa frá Sigurgeiri Jón- assyni í Eyjum. Sú sýning tek- ~3£. * Á sigiingu uni ur drykkianga stund, en þyk- ir þó mjög stutt. Ef við förum skoðunarferð um Heimaey er ágætt að byrja á Þrælaeiði þar sem Ingólfur barðist við þræla Hjörlelfs og vann á þeim. Þá blasir Heima- Horft til suðtira af Heimakletti. (1 Jósm. Mbl.: Sigurgeir í Eyjum). klettur við, höfuðprýði Eyj anna, og í suðri er bæjarstæð- ið þar sem íbúarnir 5500 búa milli róta Helgafells og steins- ins sem aldan leikur sér við. Síðan skoðum við björgin á Heimaey og um hvítasunnuna eins og á Þjóðhátíð Vestmanna eyja, er bjargsig sýnt í Fisk- hellum við dyr Herjólfsdals þar sem bjargið er 200 metra hátt, þverhniípt. Þá ökum við upp á Stór- höfða, en á leiðinni förum við yfir yngsta hluta Heimaeyjar, Ofanleitishraun, sem talið er að sé 5000 ára gamalt, komið úr gíg Helgafells. Mörgum þyk ir spennandi að koma upp á Stórhöfða í 122 metra hæð þar sem er mesta veðravíti á ís- landi, en oft er þar einnig logn og á Stórfiöfða notum við einn i'g tækifærið og skoðum einn af fjölmörgum hellum Eyjanna, Stórhöfðahelli. Á bakaleiðinni stöldrum við hjá Ræningja- tanga, þar sem Tvrkir réðust upp 1627 og óttalegasiti atburð- urinn í sögu Eyjanna átti sér stað þar sem mörg hundruð Eyjaskeggja voru myrt og rænd. Þá rifjast einnig upp fyrir okkur ú mikla barátta, sem háð hefur verið við'Eyjar til öfiunar sjávarfanga, en frá síðustu aldamótum hafa 500 sjómenn drukknað við Vest- mannaeyjar. Þá skoðum við Landakirk.ju, eina elztu kirkju Islands, byggða 1776. Þá má til dæmis halda til byggðasafnsins þar sem er feikilega yfirgripsmikið safn muna úr hinum bragð-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.