Morgunblaðið - 30.03.1972, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1972
5
mi'klu þáttum atvinnu- og mann
líf's í Eyjum og enginn skyldi
láta hjá líða að skoða fiska-
safn Eyjanna, sem er á heims-
mælikvarða í flokki lifandi
fiskasafna. Þar geta menn
vingazt við þann gula, bros-
andi steinbíta og aðra helztu
nytjafiska hafsins við ísland
auk fjölbreytts sjávargróðurs.
Þá er upplagt að fara á
trillubát í einhverja af sjávar-
hellunum við Eyjar, komast i
nálægð við björgin, sigla fram
ála og sker og kynnast undra-
heiminum í bygginigu „safir-
anna“. Ef einhver hefur verið
leiður á lifinu í upphafi slíkr-
ar ferðar, er sú flensa fyrir
björg innan tíðar, því æv-
intýrabústaður er framundan.
Þá er ekki síðra að ganga á
fjöll Heimaeyjar, sem er
mjög gott að ganga á, en fjöl-
breytnin í landslaginu er sí-
breytileg.
Ef gott er veður er slegið
upp balli á þilfari Gullfoss og
dansað næturlangt og ef ein-
hver heldur að það sé kalt má
minna á að samkvæmt veður-
skýrslum siðustu 60 ára, eru
Vestmannaeyjar veðursælasti
staður á landinu þó að hann sé
ekki lygnasti staðurinn, enda
heyrist ekki ósjaldan í útvarp
inu: „Hlýjast var á Stórhöfða í
Vestmannaeyjum. . . stig.“
Ef við læðumst til þess, án
þess að Eyjaskeggjar sjái til,
að líta til meginlandsins, þá
blasir Eyjafjallajökull við í
allri sinni dýrð, TindafjEdlajök-
ull, Hekla, Þrihymingur og
fleiri merk fjöll, en við skul-
um snúa okkur aftur að Gull-
fossi þar sem hann liggur í
hinni öruggu höfn Vestmanna-
eyja, þar sem er heimili fiski-
bátanna 100 og smábátanna
allra einnig. I Gullfossi er
nefnilega verið að gera út leið
angur til þess að sjá bjargsig
og af þvi má enginn missa.
Annars er margt hægt að gera.
Sumir fara til Eyja til þess að
spila golf í Herjólfsdal, sumir
til þess að keppa i sjóstanga-
veiðimótinu um hvitasunnuna,
sumir til þess að kynnast sér-
stæðu náttúrulifi Eyjanna og
einstæðu landslagi, sumir til
þess að slappa af og það er
hvergi betra, þvi fólk á svo
auðvelt með að blanda geði við
umhverfið og finnast það vera
hluti af þvi, en hins vegar er
engan veginn mögulegt að
rekja kosti Eyjanna fyrir ferða
menn i stuttri grein. Það er að
eins hægt að vekja athygli á
nokkrum þáttum, sem grípa
mann strax. Vekja athygli á
Áð í fjallgöngu á Blátindi
I smalaniennsku í Iílliðaey
einum af f jölmörgum stöðum
landsins, sem bjóða upp á við-
kynningu sem slær langt út
flandri um útlenda breiðvegi,
næturklúbba, manndrepandi
hita. Vekja athygli á ferð til
eins af þeim stöðum landsins,
sem allt of margir landsmenn
hafa aldrei séð, en hafa þó
leitað langt yfir skammt með
ferðalögum til fjarlægra landa
Það er að minnsta kosti mín
reynsla eftir ferðalög um fjöl-
mörg lönd að ekkert þeirra
komist í hálfkvisti við ísland
sem land þess, er nýtur ferðar
á fagra staði, þar sem minning
in eignast án nokkurrar fyrir-
hafnar ómengað villiblóm.
— á. j.
Flughraði 950 km á
klukkustund í 10 km hæð,
Flugtímí tíl London og
Kaupmannahafnar um 2Va
klukkustund.
Flugþol án víðkomu er
4200 km.
Rúmgott, bjart,
farþcgarými. búið sann-
kölluðum hægindastólum.
Ákjósanlcg aðstaða fyrir
hínar lipru flugfreyjur
Flugfélagsins til a'ð stuðla
að þægilegri og
eftirmínnilegri ferð.
Flugáhöfn þjálfuð og
menntuð samkvæmt
ströngustu kröfum
nútímans.
|!- Hreyíiarnir þrir, samtals
16000 hestöfl, cru aftast á
þotunni.
Farþegarýmið verður því
hljótt og kyrrlátt.
Reynslan sýnir, að við höfum valið rétta leið
ínn í þotuöldina. Það er Boeing 727, sem nú
nýtur mestrar hylli í heiminum. Rúmlega 900
þotur eru af þeirri gerð i almennu farþega-
flugi,
Jafnt sérfræðingar sem farþegar hafa lært
að meta, hvernig tekizt hefur í Boeing 727
að sameina hraða og þægindi.
FLUGFÉLAC /SLANDS
ÞJÓNUSTA - HRAÐl - ÞÆGINDI
Flugvélin er búin sjálf-
virkum siglíngatækjum og
fullkomnum öryggisút-
búnaði.
Boeing 727.
ilplfl
'ö
•• O- ,