Morgunblaðið - 30.03.1972, Síða 7

Morgunblaðið - 30.03.1972, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1972 Ibúar Kaspahverfisins í Tetuan — matvælaniarkaður. Lif- andi hænsn til sölu. lyndl. Il’verfi þetta í Tangier hefur ekkert breytzt öldium saman, enda er sem komið sé inn í gráa fomeskju og hiugtök eins og hreinlæti og þrifnaður eru enn óþekkt fyrirbæri. Mik ið er af örkumla fó’.ki, betlandi og volandi, sem satt bezt að segja er ekki skriitið, því að hin minnsta húðrispa og sár, hlýtur að vera lífshæittulegt. Ungan mann sá ég með djúp- an skurð á fæti. Hann lá í sól- inni og virtist blunda. En í sár inu, sem úr vall bióð, úði og grúði af flugum. Ég velti því íyrir mér, hvernig á þvi stæði, að fólk lifði slíka áverka af og sannfænðist um að ef það gerð- ist, væri það einungis hunda- heppni fiólksins sjáliís að þakka. íslendingarnir, sem gengu þama urn í svo framandi um- hverfi, minntu á leikskólaböm, sem fara í göraguferðir með fóstrum. J>að vax engu lí’kara en miJli þeima væri snúra, sem ailir héldu sér i. Fremstur gekk svo ieiösögumaðuriinin, enskumælandi Múhameðstrúar maður, sem hafði notið þeirrar fullnægingar lífsins að komast til Mekka. Hann leididi okikur beinustu leið á markað einn, þar sem Islendingamir gátu keypt naagjiu sína af marokk- ónskum leðurvamimgi, listilega skneyttum og útfSúruðum. Þar var verð á vamingnum allt nokikuð háitt, en unnt var að pnútta eftir vild og fslending arnir gerðu það óspart. t>ó sagðd einn ungur maður, sem virtist bera óblandna um- hyggju fyrir ferðamönnunum við mig eitt sinn og leiddi mig afsíðis: „Uss, þú átt ekkert að kaupa i dag. Komdu heldur einn á morgun, þá færðu allt, sem hér fæsf á miklu lægra verði. Leíðsögumaðurinn er á prósentum og allt er helmingi dýrara í dag.“ Ég þakk- aði mainninum fyrir, en hugs- aðd um það eitt, að heldur lit- ist mér iila á að ganga einn um þetta hverfi á mortgun. Ör- yggiskenndin af fylgd Islend- inganna og leiðsögumannsins var fölskvalaus og kannski var hún líka dýra verðsins virði. Það fer litið fyrir einum Is- iendingi þar suður frá — hvað þá ef hann nú lika týnist í ranghöium hverfisins og þessa mannlega sora. ÞaS var eins og allir vörp- uðu öndinni ögn léttar er aft- ur var komið í þægilegt hótel- ið. Menn notuðu sundlaugina, áður en setzt var að kvöld- verðarborði, maturinn var áigætur og um kvöldið var hald ið á næturklúbb niður við ströndina, þar sem skoðaður var magadans. Þar hittum við danska stúlku, sem verið hafði í Marokkó í nokkur ár. Vesalings stúlkan sagði sinar farir ekki sléttar. Hún hafði þann starfa í klúbbnum að bjóða upp ferðamönnum og koma llfi í dansinn. Hún vildS helzt kom ast heim til Danmerkur og hún spurði Okkur, hvort við gætum hjálpað sér. Við töidum það vist. Og þar sem við rædd- um um möguleika þess, að hún kæmist heim, kom stór og mik- ill Arabi, sem augsýnilega leizt ekká á eintal oklíar við kon- una, þreif hana til sin og sprautaði hana með ein- hverju lyfi. Við stóðum upp og ætliuðum að móbmæla þessari meðferð á konunni, sem var að komast í vímu. En maður- inn gerði okkur skiljanlegt í fáum orðum, að Annette væri alsæl hjá sér og við sky’dium ekki voga okkur að hafa áíhyggjur af henni. Auk þess væri hún konan sin. Næsta dag var haldið til Tetuan, fornrar höfuðborg- ar Marokkó. Þar var skoðuð höll Hassans II, Maroikkókon- ungs og bar sú höli öll svip af byggingali.st Máranna með alabastursútflúri og mosaik, sem áreiðanlega hefur tekið óskaplegan tirna að reisa. Þar birtust andstæður Kaspahverf- isins fyrir u.tan —- gullslegið Ungitr Islendingrur á úlfaUlabaki. hásæti konungsins Ijómaði, en skyldi almúginn fyrir utan nokkru sinni hafa liitið það aug um? Koniungurinn situr nú í 1 GODAR FERMINGAR GJAFIR FRÁ KODAK lC 3 Kodak lnstamatlc-X myndavélar, sem ekki nota rafhiöður við flashlampa, Eru til stakar og í gjafakössum. Kodak Instamatic — gjöf sem gleður. HANS PETERSEN BANKASTR. GLÆSIBÆ — SÍMI 20313 — SÍMI 82590 Kodak Instamatic 55-X kr. 1.579.00 Kodak Instamatic 155-X kr. 1.999.00 Kodak Instamatic 255-X kr. 3.057J3O Rabat, borg rúmlega 100 km fyrir norðan Casablanea. Kaspahverfið í Tetuan var engu betra en í Tangier, en þó ofbauð IsLendingnum ekki eins, enda fólkið orðið veraldarvant frá Kaspahverfinu í Tangier. Á leiðinni til Tetuan ókum við fram á úlfaldalest og fyrir jafn virði 50 til 60 íslenzkra króna gat maður fengið að sitja úlf- alda. 1 hópnum voru um 90 Is- lendingar og auðvitað þurftu allir að reyna þessa nýlundu, að sitja úlfalda. Notaðir voru tveir úlfaldar til þess að svala þessari þrá landans og vesa- lings dýrin þurftu að setjast og standa upp að meðaltali 45 sinnum i hitanum og svœkj- unni. En þar var engin misk- unn, eigendur dýranna þunfitu á skildingunium að halda og þvi voru þau pískuð áfram. Hver og einn fékk síðan af sér mynd á úlfaldabaki. Það má næstuim segja að ann ar hver maður I þessum Kaspa- hverfum sé einhvers konar sölumaður. Frá því er komið er inn í þessi hverfi og þar til þau eru yfirgefin fýlgir manni urmull alls konar manna með teppi, töskur, skartgripi og fleira og fleira, og þeir vilja óllmir selja. Tösku eina rauða úr kamelskinni keypti ég í Te- tuan fyrir utan skóla einn, sem skoðaður var. Hún átti að kosta tvö þúsund peseta, en mér tókst ioks að fiá hana fyrir eitt þúsund. Skömmiu sið- ar hiitbum við svo söiumanninn á ný og bar hann sig þá aum- lega, við hefðum prettað sig. Konan min sá þá aumur á manninium og gaf howum tvo vindlingapakka að auki. Varð hann þá harla glaður við og vonandi hefiur hann ekki fengið bágt fyrir viðskiptin hjá yfirboðara sínum. Bawda- rískir vincQingar eru giulis ígildi á þessum sióðum og ekki lakari gjaldmiðill en beinharð ir peningar. Þegar farið var um borð l ferjuna á ný, sem flytja skýldi okkur til Spánar fylgdu þessir litliu kaupahéðnar enn og síð- ustu viðskiptin, sem fram fióru milii þeirra og íslendingann* voru gerð yfir borðistokkinn um leið og skipið fór frá bryggju. Þegar til Spán- ar kom — fannst mér sem ég væri kominn heim. Þanni.g get- ur tilfiwningin verið afstæð og svo framandi getur eitt um- hverfi verið að annað fram andi umhiverfi, sem svipar held ur til þess, sem viðkomandi er vanur — getur orðið sem hans eigið. Eitt er vist, að eftir að hafa kynnzt svo mannlegum sora. sem ég gerði í þessari ferð, met éig enn betux þau •gæði lifsins, sem við ís’lending ar búium daglega við — og tök- um alla jafna ekki eftir. — mf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.