Morgunblaðið - 30.04.1972, Blaðsíða 2
2 MOItGUNBLAÐtÐ, SUISTINrODAGUU 80. APÍS'fLÍ Í972 >
Léttir í Evrópu
- bæði 1 Austri og Vestri
- er vantraustið á Brandt var fellt
KINS ogr frain hefur koniið í
fréttnm ríkti mjög mikil
óvíssa um það hvort ríkis-
stjórn Willy Brandts héldi
velli þegrar vestnr-þýzka Sam-
bandsþingið greiddi atkvæði
á fímmtudag nm vantrausts-
tiiiögu á stjórnina, sem
stjórnarandstaðan bar fram.
Atkvæði féllu þannig að
stjómin stóðst raunina með
aðeins tveggja atkvæða meiri
hluta. Höfðu þá tveir af þing-
mönnum frjálsra demókrata
gsngið í lið með kristilegum
demókrötum og greitt at-
kvæði gegn stjóminni, sem
frjálsir demókratar eiga þó
aðild að.
Fjöldi blaða í Vestur-Evr-
ópu hefur fagnað því að
Brandt og stefna hans héldu
velli, og jafnframt látið í ljós
von um að vestur-þýzka þing-
ið staðfesti á fimmtudag i
næstu viku samninga þá, sem
Brandt hefur gert við Sovét-
ríkin og Pólland.
„GÓÐ TÍ»INDI“
Fréttaritari Mbl. í London
símaði í gær að stórblöðin
The Times og The Guardian
hefðu bæði birt svipaðar for-
ystugreinar um þetta mál á
föstudag. í forystugrein
Guardian segir meðal ann-
ars:
„í>að eru góð tíðindi frá
Bonn að ríkisstjóm herra
Brandts skuli ekki hafa fall-
ið við atkvæðagreiðsluna í
gær. Herra Brandt stefnir að
því að draga úr spennunni í
Evrópu. Herra Barzel (leið-
togi kristilegra demókrata)
hegðar sér eins og hann vilji
halda henni við. Ef Barzel
hefði borið sigur af hólmi í
þessu máli, gætu sum ríki
hafa dregið þá ályktun að
Þýzkaland hefði á ný farið út
á braut ofbeldis. Það væri
rangt hjá þeim, þvi Þýzka-
land i dag er ekki þannig.
Raineir Barzdl.
En grunsemdir í garð Þýzka-
lands eru enn við lýði, og efcki
eingöngu í Sovétríkjunum.“
Blaðið rseðir næst þau
vandræði, sem Brandt á við
að stríða vegna þess nauma #
þingmeirihluta, sem hann
getur treyst á, og þær leiðir,
sem Brandt á um að velja.
Telur Guardian að samninga-
viðræður Barzels og Brandt
gætu ráðið fram úr vandan-
um, eða þá að boðað verði
til nýrra þingkosninga í land-
inu. Varðandi atkvæða-
greiðslu um samninga
Brandts við Sovétrikin og
Pólland, segir í forystugrein-
inni í Guardian:
„Eins og Podgorny forseti
tilkynnti þýzka sendiherran-
um í Moskvu, getur hvorki
Barzel né nokkur annar
breytt ákvæðum samning-
anna. Þýzkaland, sagði forset-
inn, verður að taka samning-
ana eins og þeir eru eða vísa
þeim á bug. Framtíð allra
tilrauna til að draga úr
spennunni í Evrópu byggist á
þvi hvort samningamir verða
staðifestir, sagði hann."
„Þetta er sjálfsagt alveg
rétt,“ heldur blaðið áfram.
„Það bezta, sem Brandt gæti
gert nú væri að bjóða Barzel
nýjar kosningar í skiptum
fyrir staðfestingu á samning-
unum við atkvæðagreiðsluna
á fímmtudag. Þetta væri far-
sælast fyrir Þýzkaland og
áhættumest fyrir Brandt, en
ef til vifl aðgengilegt fyrir
Barzel. Kanslarinn, sem er
svo einstæður stjórnmála-
maður, setti samningana ofar
flokknum, ef ekki væri um
aðra leið að ræða til að fá
samningana staðfesta."
Arás A röngum
FORSENDUM
Um viðbrögð dönsku blað-
anna símar fréttaritari Mbl.
í Kaupmannahöfn, Gunnar
Rytgaard:
Almennur léttir ríkir hjá
dönsku blöðunum yfir þvi að
Willy Brandt kanslari skuli
hafa tekizt að sigra í fyrstu
atkvæðagreiðslunni um Aust-
ursamningana í vestur-þýzka
Sambandsþinginu. íhaldsblað-
ið Berlingske Tidende segir i
forystugrein á föstudag að í
Danmörku, eins og annars
staðar í Evrópu, riki almenn
ánægja yfir því að Willy
Brandt hélt velli sem kansl-
ari. Það þýðir ekki að tekin
verði afstaða til þess hvor
þeirra sé betri kanslari,
Brandt eða Rainer Barzel, seg-
ir í forystugreininni, en í
ánægjunni felst sú tilfinning
að árás kristilegra demókrata
á Brandt hafi verið gerð á
röngurn forsendum og á röng-
um tíma.
„Tilraunin til að fella
Wiliy Brandt.
Brandt var liður í fjárlaga-
umræðunni, en gerð vegna
Austursamningana, sem á að
leita staðfestingar á í næstu
viku. Hefði tekizt að gera
Barzel að kanslara nú, hefðu
Austursamningarnir verið
teknir út af dagskrá um
óákveðinn tima, og stjórnar-
andstaðan hefði losnað við
að bera beina ábyrgð á af-
stöðu sinni til „Austurstefn-
unnar" þýzku.
Austurstefna Willy Brandts,
sem hefur verið mesta og ef
til vill einasta framlag hans á
stjórnmáilasviðinu, hefði verið
skorin niður rétt þegar hún
átti að fara að komast í fram-
kvæmd og bera ávöxt,“ segir
Berlingske Tidende. Lýkur
blaðið máli sinu með þessum
orðum:
„Hefðu Austursamningarnir
fallið með kanslaranum, eða
verði þeim vísað frá við at-
kvæðagreiðsluna í næstu vi'ku,
væri um að ræða þýzka á-
Framliald á bls. 31.
1. maí ávarp
Alþjóðasambands frjálsra
verkalýðsfélaga
Æskulýðsstarf Neskirkju:
Samkoma fyrir ungt
fólk í Neskirkju
„Jesú-rokk“kynnt af hljómplötum
Á alþjóðlegum baráttudegi
verkalýðsins 1. maí kallar Al-
þjóðasamband frjálsra verka
lýðsfélaga ykkur enn á ný tU
baráttunnar fyrir réttlæti og
virðingu hinum viranandi manni
til handa. 1 þessari baráttu verð
um við að sameinast og
tengja krafta okkar yfir landa-
mærin til hjálpar hinum veiku
og kúguðu.
Andstæðingar vorir láta ekkí
landamæri hindra athafnir sin-
ar — við verðum að mæta þeim
á alþjóðlegum vettvangi brynj-
aðir hugsjónum okíkar og órofa
samheldni. Við höfnum grund-
vallarréglum, sem byggðar eru
á eigingirni, gróðafíkn og arð-
ráni annarra. Einkunnarorðin:
Blaðskák
Akureyri —
Reykjavík
Sva.rt: Tafifélag Reykjavíkur
Magnús Ólaf son
Ögmundur Kristinsson.
Hvítt: Skákfélag Altureyrar
Gyifi Þórhailsson
Tryggvi Pálsson.
16. — Bh5xg4.
„Hver er sjálfum sér næstur,"
eru ekki okkar kjiörorð. Að und
anförnu hefur unga flólkið sýnt
æ greinilegar hvar í svéit það
vill skipa sér. Ælskan gengur i
lið með okkur í baráttunni fyr-
ir nýj'U þjóðfélagi, þjóðfélagi
sem Okkur finnst við eiga hlut-
deild í - þjóðfélagi, þar sem rétt
læti, bræðralag og félagsleg
gildi eru hafin til vegs, — ekki
auður, óhóf og forréttindi, né
nokkur maður beygður undir
þvingandi kúgunarvald skrif
finnskualræðis. Auðvaldsöflin
eru sterk, rifkisauðvaldsöflin- enn
sterkari, en við erum ákveðin :
að reka þau á undanhald skref
fyrir skref, unz við höfum unn-
ið verkamanninum rétt til að
móta nýjan og réttlátari hieim.
1. maí í ár, lýsum við yfir at-
vinnulýðræði sem markmiði okk
ar, rétti vinnandi fóiks til að
hafa hönd í bagga um allar þær
ákvarðanir, sem bein áhrif hafa
á afkomu þess. Leiðirnar að
þessu marki eru margar, farar-
tálmarnir einnig. En verkalýðs-
félögin eru staðráðin í að gera
atvinnulýðræði að veruleika.
Þau krefjast meðákvörðunarrétt
ar í fyrirtækjunum, í þjóðféiag-
inu og á alþjóðavettvangi. Til
þess að þessar kröfur náist fram
þarf þína liðveizlu.
Við okkur blasa verkefni, sem
krefjast afstöðu af okkar hálfu:
Pólitísk kúgun og einræði; til-
litsleysi til almennra mannrétt-
inda og réttar verkalýðsfélaga;
kynþáttaundirokun eins og hún
er iðkuð í ýmsum hlutum heims
og sérstaklega af minnihluta-
stjóm S Afríku í eigin löndum
og í Namibiu; djúpið, sem stað-
fest er milli ríkra og fátækra,
milli stétta eða þjóða; hinar
brýnu kröfur þriðja heimsins,
Otto Kerston, forniaður Alþjóða
sanilK'inds frjálsra verkalýðsfél.
þörfin fyrir varanlegan frið og
afvopnun. Þessi verkefni og við
brögð hinnar frjálsu verkalýðs-
hreyfingar við þeim, verða meg-
inverkefnL 10. heimsþings IC
FTU nú i sumar. Lausnir þess-
ara verkefna verða uppistaðan
í stefnu okkar og kröfugerð í
framtíðinni.
Við vitum að" þessar kröfur
munu mæta andstöðu atvinnu-
rekenda, ríkisstjóma, hagsmuna
hópa. Baráttan verður hörð, hún
mun krefjast fóm«u Til aö efla
styrkleika okkar verðum við að
skipuleggja þá sem enn standa
utan samtaka. Ef þú ert félagi
í f rjálsu verkalýðsfélagi,
minnstu þá í dag þeirra sem á-
unnu þér þessi réttindi, ef þú
býrð við harðstjóm og átt í bar
áit'U fyrir þessum réttind-
um, mundu að ICFTU stendur
þér við hlið. Alþjóðleg sam-
heldni þýðir, að við verðum að
þetta að kjörorði voru 1. maí.
uinua3 — nupo jjaAif edíeCif
I KVÖLD kl. 10 verður samkoma
fyrir ungt fólk í Neskirkju, sem
Æskulýðsstarf Neskirkju gengst
fyrir. Þar verður m. a. flutt tón-
list og talað orð og dreift vegg-
spjaldi með frægri Kristsmynd
og sérstæðum texta.
„Dagskráin er sniðin við hæfi
ungs fóllcs," sagði Sigurður Árni
Þórðarson, 18 ára menntaskóla-
nemi, í stuttu viðtali við Morg-
umblaðið um þessa sarmkomu.
„Tvær h'ljómsveitir leika þama
lög úr þekkt'um söngleikjum um
Jesú Krist, önmur lög úr „Jesús
Kristur — Ofurstimi" og hin úr
sömgleiknum „Godspelil", sem er
mimna þekktur. Þá verður kynn-
img á mýjustu plöt'unum með
tónlist í sttl sem kallast „Jesú-
rokk" og hefur átt upptök sín
innan „Jesú-hreyfin'garinnar" f
Bandarí'kjun'um. Þeir, sem leika
og syngja á plötunum, eru allir
liðsmenn „Jesú-hreyfingarinnar“.
Einnig verður mikið talað.
Fimm ungmenni, ailt mennta-
skólanemendiur, munu tala og
eirenig Guðm'undur Einarsson,
æskulýð.sifuilltrúi. Við höfum lagt
Fermingar
í Kristskirkju
LISTI yfir fermiwgarböm í dag
er i Sunnudagsblaði Morgun-
blaðsims á bls. 15, en niður féll
nafn stúliku, sem fermdist í Krists
kirkju í dag, sunmudag, kl. 10,30
f.h. Hún heitir Sigríður Ma>ria
Jónsdóttir, Goðatúni 28, Garða-
hieppi.
mikla vinnu í undirbúnimg þess-
arar samkomu, m. a. látið prenta
veggspjald íplakat) með hinni
frægu felumynd af Kristi og
texta, þar sem lýst er eftir
glæpamanni að nafni Jesús
Kristur."
Aðspurður sagði Sigurður, að
þama væri ekki verið að reyna
að ,,selja“ trúna — „þau ung-
menni, sem þarna tala, vitja
segja frá þvi, sem þau eiga sjálf,
trúna á Jesú Krisit, en ekki selja
hana.“
Bláfjalla-
vegur
kláradur
í næstu viku
„ÞAÐ er hugmyndin að klára
veginn í Bláfjöll eftir helginia,
ef það verðnr hægl að
standa almennilega að því fyrir
veðri", sagði Sigurður Jóhanns
son, vegamálastjóri, þegar Mbi.
spurðist fyrir um Bláfjallaveg
inn í gær.
Enn er eftir að fullgera síðustu
3 km vegarins og var það snjór,
sem háði, þegar hitt var unnið
Nú hefur snjó allan tekið upp
alveg á vegarenda og helzt veðr
:ð vonandi svo, að vegagerðar-
mömuim takist að ljúka við veg
inn. Á því verður byrjað nú eftir
helgina og áteit vegamá'liaistjóri
þetta um viikuverk.