Morgunblaðið - 07.05.1972, Síða 1
64
( TVO
SIÐUR
BLÖÐ )
101. tbl. 59. árg.
SUNNUDAGUR 7. MAÍ 1972
Prentsmiðja Morgunblaðsins
I ljósaskiptunum urðu turnar Háteigskirkju ljósmyndara Morgup.blaðsins, Ólafi K. Magnússyni, mótíf þessarar myndar.
Árásir í S-Vietnam og Kambodiu:
Tugir féllu i bardaga um her-
bækistöð við Pleiku
Eldflaugaárás á Phnom Penh
og mikið mannfall í námunda
við Saigon
Saigon, Phnotn Penih,
6. maí. AP-NTB.
ÁRÁS var gerð á herbæki-
stöð s-víetnamska hersins í
nágrenni Pleiku á miðhálend-
inu í S-Víetnam í nótt og
féllu þar um 60 manns af liði
beggja í nær fjögurra klst.
bardaga. Þá voru gerðar
árásir á mikilvæga brú í
Phnom Penh, höfuðborg
Kamhódíu, og eldflaugar ollu
eldsvoðum víðs vegar í horg-
inni, m.a. var kveikt í hluta
af eldsneytisbirgðum borgar-
búa. Sömuleiðis var harizt í
nágrenni Saigon og mannfall
sagt mikið.
Herstöðin á miðháicndinu í
S-Vietnaim er við þjóðveg nr. 14,
er liglgur milili borgannia Pleitou
og Kontum, nánar tiltekið um
11 kim frá Pleiku. Tuigir komrn-
úmíisikra hermanna höfðu grafið
Tyrkland:
Hryðjuverka-
menn hengdir
Ankara, 6. maí, AP.
ÞRÍR vinstrisinnaðir hryðju-
verkamenn voru hengdir í dögun
í Ankara. Mikill viðbúnaður var
af hálfu lögreglu og hermanna,
þar sem óttazt var að samtök
tyrkneskra hryðjuverkamanna,
sem hafa lýst stuðningi við fang-
ana, gripu tii hefndaraðgerða. —
Hert var á útgöngnbanni og lög-
regluþjónar og hermenn stóðu á
hverju götuhorni.
Menimimiir þrír, sem voru
hengdir í morgum, voru fumd'nir
sekir um að hafa rærnt og myrt
ísraelskam diplómat fyrir eimu
ári og þremur tæknimömmum,
sem störfuðu á vegum Atlante-
hafsbandalagsins, í marzmánuði
síðastliðmum.
Memmirmiir, sem eru allir imn.an
við þrítugt, tóku dauða sinum af
stillimgu og hrópuðu hvatningar-
orð, eims og „Lifi him mikla hug-
myndafræði Marx og Lenins“ og
„Niður með heimisvaldasimina" áð-
ur en snaran var sett um háls
þeirra.
sig inn undir girðingamar utan
um herstöðina eða komizt gegn-
um gaddavírsnetin þar og vissu
hermiennimir ekki fiyrr en þeir
æddu um stöðima og drápu eða
særðu hverm þamn, sem til náð-
ist. Fyrstu fregnir hermdu, að
a.m.k. 27 stjórnarhermenn og 1
bandariskur ráðgjafi hefðu fallið
og meira en 50 aðrir stjórnarher-
menn særzt í árásinni, en 35
hefðu fallið úr liði árásarmianna.
Bardagarnir um stöðina stóðu í
nær fjórar klukkustundir, áður
en tókst að hrekja áréisariiðið
brott.
1 Phnom Penh gerði u. þ. b.
hundrað manna sveit stjómar-
andistæðimga, sem klæddir voru
einkennisbúningi hers Kambodiu,
eldflauga- og sprengjuárás á
mikilvæga brú á þjóðvegi, er
liggur rétt hjá forsietahöllinni.
Árásarliðið laumaði sér í smá-
hópum inin í vamarsveitir Kam-
bodiuihers í suðurhluta borgar-
innar og beindi árásum sínum
aðailega að brú yfir fljótið
Bassac, en hún er við þjóðveg-
inn, sem tengir Phnom Penh
og Saigon. Ekki tókst að eyði-
leggja hana, en tugir eld'flauiga
oll’u eidsvoðum víðs vegar í borg-
inni, nokkrar hæfðu Pcbentomg
Framhald á bls. 31
Kosið
á Ítalíu
1 dag
Rómaborg, 6. maí, NTB, AP.
KOSNINGAR til ítalska þjóð-
þingsins fara fram á morgun,
sunnudag, og á mánudag. Kosn-
ingabaráttunni lauk á föstudags-
kvöld, er stjórnmálaforingjar
fluttu síðustu ræðurnar til kjós-
enda. Fréttum ber saman um að
kosningabaráttan hafi verið
furðu róleg, miðað við það alvar-
lega ástand, sem ríkir í atvinnu-
málum landsins. Sérfræðingar
em á einu máli um að þessar
kosningar séu hinar þýðingar-
mestu í landinu siðan árið 1948.
Við upphaf kosmiingabaráttuinim-
ar dró til verulegra tíðiinda milli
hægri og vinstri öfgamanma, en
forsætisráðlherrann, Giulio Andre
otti hét því þá að stjónn hane,
mimnihlutastjóim kristilegra
demókrata, sikyldi leggja sig í
líma við að halda uppi lögum og
reglu í landiiniu fram yfir kosn-
ingarnar. Er þess jafnvel vænzt
að það verði vatn á myllu þess
flokkis, að það tðksit allbærilega.
Mikill fjöldi ítala, sem sækir
vinniu til Sviss og Vestur-Þýzka-
lands, var í dag á feið heim til
að greiða atkvæði og kváðust
þeir vona að nýrri ríkisstjóirn
Framhald á bls. 31.
Spreng-ju-
gabb
Kaupmannahöfn, 6. maí, NTB.
FARÞEGAFLUGVÉL frá British
Euiropean Airways lenti á Kast-
rup-flugvelli í Kaupmannahöfin í
morgun, eftir að borizt hafði til
eyrna að sprengju hefð'i verið
komið fyrir í vélimini.
Farþegar og áhöfin fóru út úr
vélinni á Kastrup, meðan leitað
vair gaumgæfilega, en engin
sprengja fammsit. Skömmu seinina
var frá því sagt í skntali, að ekfci
hefði verið átt við brezka vél,
heldur tyrkneska.
Vélin var á feið frá Stokkhókni
til London.
Tvö flugvélarán fram
in í Bandaríkjunum
Annar ræninginn stökk út í f allhlíf
yfir Mexikó, hinn á leið til Kúbu
New Orleans, Washington,
Los Angeles, 6. mai — AP-NTB
VOPNAÐUR maður, sem rænt
hafði farþegaþotu frá bandaríska
flugfélaginu Eastern Airlines,
fengið í hendur rúmlega 300.000
doliara og sex fallhlifar m.m. í
skiptum fyrir farþega vélarinnar
— og skipt um flugvél á flug-
vellinum í New Orleans í Louisi-
ana, varpaði sér niður í fallhlíf
yfir Mexíkó í morgun. Hann
hafði fyrirskipað að vélin flygi
til Belize í Honduras, en hún
þurfti að koma við i Marida í
Mexíkó til að taka eldsneyti.
Samtimis var önnur bandarísk
flugvél, Boeing 727-þota frá
VVestern Airlines, á leið til
Kúbu, að skipan vopnaðs flug-
ræningja, sem upphaflega hafði
ætlað lienni að fara til Ifanoi í
Norður-Vietnam.
Rán Eastern Airlines flugvél-
arinnar var mjög svo sögulegt og
margþætt. Það hófst á föstudags-
morgun, er vélin var á leið frá
Allentown í Pennsylvaniu til
Washington. Ræningimn, dökk-
hærður maður á að gizka 45 ára,
kvaðst hafa sprengju i fórum
sínum og krafizt þess að á flug-
vellinum í Washington yrðu sér
færðir 300.000 dollarar, sex fall-
hlífar auk matvæla og ýmiss
konar búnaðar annars. Skyldu
þá farþegarnir fá að fara frá
borði, en vélinni mundi hann
halda áfram. Að þessum kröfum
var gengið og eftir að farþegarn-
ir og ein flugfreyjan voru komin
út úr vélinmi var laigt í loftið
á ný. Þá komu hins vegar vöflur
á rænimgjann — hann var ekki
ánægður með hvað peningaseðl-
amir hljóðuðu á lágar upp-
hæðir — og gerði þá kröfu, að
aftur yrði lent i Washington og
upphæðin afhent í 100, 500 og
1000 dollara seðlum. Eftir að
flugvélin hafði hringsólað í 5y2
klst. yfir borginni var að þessu
gengið.
Næst lá leiðin til New Orleans.
Framhald á bls. 31