Morgunblaðið - 11.05.1972, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.05.1972, Blaðsíða 1
11. MAI 1972 Blað II Malraux í Hvíta húsinu nieð Nixon. Foi'setanum fannst skoðanir Mairaux á kínverskum niálefnum svo athyKÍis- verðar, að hann hauð honum sérstakiesa til Washinffton tii þess að skýra fyrir sér ástandið. Víð- tæk að- stoð við Klna „ER auðugasta land heims- ins reiðubúið að hjálpa snauðasta landi heimsins?" Mao Tse-tung spurði vin sinn franska rithöfundinn André Malraux að þessu fyrir nokkrum árum. Mal- raux er líka góðvinur Nix- ons forseta og átti sérstak- an þátt í undirbúningi Kínaferðar hans. Hann telur spurningu Maos standa enn í fullu gildi. Svarið við henni geti ráð- ið mestu um framtíðar- samskipti Kína og Banda- ríkjanna. „Auðvelt er að gera sér í hugarlund hvaða áhrif muni felast í slíkri ákvörðun for- setans," sagði Malraux á blaðamannafundi skömmu fyrir brottför Nixons frá Bandaríkjunum. „Þetta muhdi jafngilda nokkurs konar Marshall-aðstoð. En þetta er vitaskuld það sem máli skiptir, og allt ann að aðeins samræðuhjal . . .“ Malraux kvaðst ekki vilja ganga svo langf að halda þvi fram, að enginn árangur yrði af ferðinni, þótt Nixon féll- ist ekki á að veita einhvers konar efnahagsaðstoð, „en óhjákvæmiilegt er að byrja á slíku, því að í raun og veru skiptir það sköpum fyrir Kína.“ Malraux benti á, að Banda rikjamenn ættu allt og Kín- verjar ekkert, þeir ættu ekki einu sinni hrísigrjón til þess að flytja úr landi. „Kína er um þessar mundir komið á það stlg, eins og Mao formað- ur hefur komizt að orði, að náðst hefur sá eftirtektar- verði árangur að þjóðin get- ur borðað einn hrísgrjóna- skammt á dag. Engin hung- ursneyð rikir með öðrum orð um í Kína, en samt sem áður enu lifsikjörin afar bág- borin." • VANTAR ORKUVER Malraux vitnaði í ummæli er Mao hefði viðhaft í sam- ræðum við sig. Formaðurinn sagði, að nú væru aðeins 10% ræktanlegs lands ekki í rækt eða ekki tilbúin til ræktun- ar, en þess vegna væri aðeins hægt að auka landbúnaðar- framleiðsluna um 10%. Því þyrftu Kínverjar iðnvæð- ingu. Mao sagði: „Það fyrsta sem ég ætla að gera er að byggja upp léttaiðnað — með öðrum orðum vefnaðarvöru- framleiðslu — og ég hef næg ráð til þess að koma okkur upp léttum vélum, sem nauð synlegar eru fyrir vefnað- inn. En vélarnar verður ekki unnt að starfrækja nema með rafmagni frá orkuverum, og ég get ekki reist orkuver." „Hver mun reisa þau úr því að ég get ekki greitt fyr- ir þau?" hélt Mao áfram. „Það verður það land, sem fellst á að útvega mér tæki tii þess að koma upp þungaiðnaði, þar sem ég verði ekki í að- stöðu til þess að borga fyrr en eftir 30 til 50 ár. Þess vegna er þetta spurning um lán, og aðeins eitt land í heim inum getur veitt slíkt lán. Það land er Bandaríkin," sagði Mao. • VIETNAM-MÁLIÐ DAUTT í samanburði við efnahags aðstoðina telur Malraux mál eiris og Vietnam-striðið skipta litlu máli. „í fyrsta lagi skiptir það ekki lengur miklu máli. Það var mikið stórmál þegar spurningin var, hvort bardagarnir í Indó kína væru til þess háðir að stöðva kínverska kommún- ista. Þá töldu Bandaríkja- menn sig vera að berjast við kínverska kommúnista, og þess vegna væri þetta mál, sem hafði heimsþýðingu. En nú trúir enginn þessu leng- ur. „1 öðru lagi,“ segir Mal- raux, „vilja Kínverjar alls ekki að friður komist á í Indó kína. Kínverjar eru harð- ánægðir með stríðið, sem ógn ar þeim ekki lemgur og rétt- lætir raunar að þeir láti líta út fyrir að Bandaríkin séu ógnunin." Sannleikurinn er sá að sögn Malraux, að Kínverjar hafa engan áhuga lengur á byltingarvandamálum gagn- stætt þvi sem var upp á ten- ingnum fyrir fimm árum þeg ar menningarbyltingin stóð sem hæst og hatrið á Rúss- um og Bandaríkjamönnum al gert. Aðaláhugamál Maos um þessar mundir er að bæta lífs kjörin, segir Malraux, og þó að Bandaríkjamenn veiti að- stoð til þess að þvi marki verði náð, skipti engu máli að þeir séu kapítalistar. • NIXON B.TARTSÝNN Malraux tók undir þau orð Nixons forseta, að viðleitn- in til að bæta sambúðina við Kínverja mundi ekki bera ár angur í fyrsta áfanga. Hann hafði eftir Nixon að for- Framh. á bls. 18 Zulfikar Ali Bhutto, forseti Pakistans: „Við eigum okkar draum um betra líf” FRÁ því hefur verið skýrt, að innan tíðar verði haldinn fundiir þeirra Indiru Gandhi, forsætisráðherra Indlands og Zulfikars Ali Bhutto, forseta Pakistans, um ágreiningsmál ríkja þeira, sem löngum hafa viðkvæm verið og erfið en mögnuðust mjög í átökunum um Bangladesh. Embættismenn beggja aðila hafa haldið undirbúnings- fundi og bera fregnir þaðan því vitni, að þeir hafi fullan hug á að reyna að leysa deilur sínar án frekari blóðsúthell- inga. Báðar þjóðirnar hafa annað við fjármuni sína að gera en eyða þeim í styrjöld, báðar berjast við fátækt og allt of hæga tækniþróun ónóga menntun og ólgu inn- anlands. Hér fer á eftir ágrip af við- tali, sem brezkur blaðamaður, Peter Prestom, átti nýlega við Zulfikar Ali Bhutto. Hann hafði skömmu áður rætt við Mujibur Rahman, forsætis- ráðherra Bangladesh, og segir, að mjög hafi verið ólíkt um- hverfi þessara tveggja manna. Hjá Mujibur Rahman hafi hann órðið að ryðja sér braut gegnum þrömg manna og kvenna, víðsvegar að af land- inu, sem safnazt höfðu saman þar í þeirri von að gera rakið raunir sínar fyrir landsföðum um, sem leitt hafði þjóðina til sjálfstæðis og á nú fyrir höndum að koma henni til manmisæmandi lífs. Hávaðinn var ærandi og inni á sikrif- stofu Mujiburs líf og fjör. Hjá Bhutto var öllu hljóð- ara og einmanalegra um að litast. Háir veggir utmkringdu forsetahöllina og þar var engan mann að sjá utam einin vopnaðan vörð, er gekk fram og aftur um velslegroa gras- flötina. Stórir svartir og gljá- andi bílar embættismanna óku út og inn um hliðið — hvar- vetma var kynrð. Imni í stóru hvítu herbergi sat Bhutto, forseti, einn á stórum, fom- legum og fínum sófa, vel klæddur og stífur í fram- kornu. Viirðulegir þjónar færðu gestinum te í kín- verskum bollum. — Forsetinn talaði um skólaárin í Oxford í Englandi sem „beztu ár ævinnar", vís- aði í Shakespeare og dró sögulegar samlíkingar á ýms- um sviðum, líkti m.a. Bangla- desh í dag við Parísarkomm- únuna 1870. Þetta var þjóðhöfðimgimn Bhutto, alls ólikur mælska stjórnmálamanninum sem á aragrúa ljósmynda, er límdar hafa verið upp við stræti og torg, heldur á ljá í annari hendi og hlújámi í himmi. Hörmungarnar í Austur Bengal virðast fjarlægar og óraunverulegar í glæstum sal- arkynmuim forseta Pakistans. Þó talar forsetinn um hinn skelfilega harmleik, sem þar gerðist — um hörmungamar, sem Yahya Khan hafi leitt yfir þjóðina en eyðir kænlega öllum spurningum, sem kalla á persónulegar staðhæfingar um það, sem pakistanski her- inn aðhafðist í Austur-Pakist- an. • UM BENGALA OG BIHARIA Hann er fúsari að tala um framtíðina. Aðspurður um það, hver verða rnunii örlög 400.000 Bengala í Vestur- Pakistan segir hann miklu skipta, að þeir hljóti ekki slæma rmeðferð. — Ég vil að þeir hverfi heim — ef til þess kemur — með eins gott álit á okkur og Framh. á bls. 2 *

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.