Morgunblaðið - 06.06.1972, Side 1
32 SÍÐUR OG 8 SÍÐUR IÞRÓTTIR
123. tbl. 59. árg.
ÞRIÐJUDAGIJR fi. JTJNÍ 1972
Prentsniiðja Morgunblaðsins
Mesti hamingju
dagur lífs míns
sagði Angela
Davis eftir
sýknunina
San José, 5. júní — AP-NTB
FREGNIN um sýknun banda-
rísku blökkukonunnar Ang-
elu Davis hefur vakið heims-
athygli. Sýknunin kom mörg-
um á óvart, þar eð talið hafði
verið víst að hún yrði fundin
sek um morð, mannrán og
samsæri í sambandi við
flóttatilraunina frá réttar-
salnum í Marin-héraði í
Kaliforníu 1970, þar sem fjór-
ir létu lífið, þ.á m. dómarinn
og þrír sakborningar.
Kvióftómurinm konrvst að niSur-
.stöðu á aðeins 13 klukkustund
um og sýknaöi ungfrú Davis aí
öllum ákærum. Réttarhöldin yfir
Davis höfðu staðið í 13 vikur og
voru orðin ein lengstu, kostnað-
Stórsigur
McGovern?
Los Angeles, 5. júní — AP
SÍÐUSTU skoðanakannanir
benda til að George McGovern
öldiingadeildiai-þing'niaður muni
vinna stórsigur i forkosningum,
sem fram fara í Kaliforníu í dag,
þriðjudag. Skv. skoðanakönnun-
um, sem kunngerðar voru i dag
nýtur McGovern 20% meira fylg
is en Humphrey.
Humphrey lýsti því yfir í dag,
að hann myndi ekki draga sig í
hlé þótt hann biði ósigur. Stjórn
málafréttaritarar eru nú næsta
vissir um að það verði McGov-
ern, sem hljóti útnefningu Demó-
krataflokksins á flokksþinginu í
Miami 10. júlí nk. Kosið er um
273 flokksþingsfulitrúa í Kali-
forniu. Skv. skoðanakönnunum
er Humphrey 3. í röðinm á eftir
George Wallace, sem ekki er
einu sinni á kjörseðlinum.
arsömustu og umdeildustu saka-
málaréttarhöld i sögu Bandarikj-
anna. Þau vöktu einniig heims-
athygli einkum vegona þess, að
ungtfrú Davis er yfirlýstur komm
únisti og meðlimur í bandariska
kommúnistaflokknum.
Kviðdómurinn var skipaður 12
hvítum mönnum, 5 konum og 7
körlum. Þegar sýknunin var les-
in upp kváðu við gífurieg fagn-
aðarlæti stuðningsimanna unigfrú
Davis, sem höfðu fjölmennt í
réttarsalinn.
Eftir að úrskurðurinn hafði
verið lesinn upp, lýsti ungfrú
Davis því yfir, að hún myndi
halda áfram að berjast gegn því,
sem hún kallaði „kúgunarórétt-
Framhald á bls. 12.
Suður-Vietnamar sækja
á í borginni Kontum
Kafbátaveiðiskipið Ticonderoga
slæst í lið með sjöunda flotanum
Saigon, 5. júní — AP
0 Harðir bardagar hafa geis
að unt borgina Kontum
á miðhálendi Suður-Víetnams
undanfarna daga og hafa
Norður-Víetnamar verið
hraktir úr nær öllum hverf-
um hennar.
0 Bandarískar flugvélar
eru nú farnar að nota
sprengjur, sem miðað er með
Laser-geislum, og er ná-
kvæmni þeirra slík, að nær
aldrei þarf að gera tvær árás-
ir á sama skotmark.
0 Flugvélamóðurskipið Tic-
onderoga er nú komið í
hóp þeirra skipa, sem eru
undan ströndum Norður-
Víetnams. Ticonderoga er kaf
Tító hlýlega
tekið í Moskvu
Ekkert minnzt á gamlar deilur
Moskvu, 5. júní — AP
TÍTÓ, forseti Júgóslavíu, kom til
Sovétríkjanna í dag í einnar
viku opinbera heimsókn, sem
ætlað er að bæta samlnið land-
anna. Honum var mjög hlýlega
tekið á flugvelllnum í Moskvu
og þar voru til staðar allir þrír
æðstu leiðtogar Sovétríkjanna,
Brezhnev, Kosygin og Podgorny.
Eins og venjá er, þegar erlend-
ir þjóðarleiðtogar koma í heim-
sókn, var mynd af Tító á for-
síðu Pravda, þar sem æviatriði
hans voru rakin. Að venju var
þar ekkert mimnzt á vináttuslit
landanna 1948 eða þá daga, sem
Tító var eitt uppáhaldsskotmark
blaðsins. Þvert á móti var sagt,
að „félagi" Tító væri ötuil bar-
áttumaður fyrir friði og fyrir
sameiningu jákvæðra afla í bar-
áttunni gegn heimsvalda- og ný-
lendusinnum.
Nikita Krúsjeff tókst að bæta
samkomulagið nokkuð meðan
hann var við völd, en sambúðin
kólnaði mjög þegar Sovétríkin
stjórnuðu innrásinni í Tékkósló-
vakíu 1968. Það fór ekki að hlýna
aftur fyrr en Brezhnev heimsótti
Belgrad í septeraber sl.
Hápunkturinn í heimsókn for-
setans verður, þegar honum
verður afhent Lemín-orðan, sem
hann var sæmdur á áttræðis-
afmæli sinu i síðasta mánuði.
bátaveiðiskip.
Suður-Víetnamar hafa gert
harðar gagnsóknir í borginni
Kontum og nær tekizt að ná
henni á sitt vald. Norður-Víet-
namar hafast við í einu hverfi
og haldið er uppi stöðugum á-
rásum á það. Hins vegar er fjöl-
mennt lið Norður-Víetnama í
grennd við borgina og lítil von
um að hætt verði bardögum þar
á næstunni.
Á norðurvígstöðvunum er einn-
iig barizt af hörku og hrundið var
árás kommúnista á fallbyssu
stöðina Bastogne, sem er 14 km
fyrir suðvestan Hue.
Á suðurvigstöðvunum hefur
verið fremur hljótt undanfarinn
sólarhrimg. Umsátrinu um An
Loc er haldið áfram, en vígstað-
an þar er nær óbreytt. Suður-
Vietnamar hafa enn meirihluta
borgarinmar á sinu valdi.
NÝJAR SPRENGJUR
Fyrir nokkru var farið að
vopna bandarlskar sprengjuflug-
Framhald á bls. 23.
Kista hertogans af Windsor bor-
in inn í kapellu Windsorkastala.
Filippus drottningarmaður og
Ólafur Noregskonungur ganga
fremstir í líkfylgdinni.
Virðuleg
útför
hertogans
af Windsor
Lomdon, 5. júní, AP.
HERTOGINN af Windsor, fyrr-
iim Edward VIII Bretlandskon-
ungur, var lagður til hinztu
hvildar í kapellu Windsor-kastala
í gær. Athöfnin var
lokuð öllum nema nán-
ustu ættingjum og sérstak-
lega boðnum tignum gestum.
Framhald á bls. 12.
Burundi kennir Belgum
um ættbálkastríðið
150 þúsund fallnir, segir
belgískur embættismaður
Uganda, 5. júní — AP
STJÓRN Burundi hefur kennt
belgisku stjórninni um ættbálka
stríðið sem geisað hefur í land-
inu undanfarnar vikur. Burundi
var áður belgisk nýlenda. Það
var útvarpið í Burundi, sem bar
fram þessa ásökun, en útvarpið
lýtur ríkisstjórn.
Fréttir sem borizt haía frá
Burundi að undanförnu, benda
til að þar hafi verið framin hrylJi
leg fjÖJdamorð. Gizkað var á að
um 50 þúsund manns hefðu fallið
í valinn. Sl. laugardag, birti belg
ískt blað hins vegar frétt sem
höfð var eftir háttsettum belgisk
um embættismanni í Dar Es-Sal
am, höfuðborg Tanzaníu. Hann
sagði að miilli 100 og 150 þúsund
manns hefðu fallið.
Embættismaðurinn sagði að
nær allir hinna föllnu væru af
Huto-ættbálknum, en hann gerði
misheppnaða byltingartilraun fyr
ir nokkrum vikum. Síðan bylt-
ingartilraunin var brotin á bak
aftur, hefði Michel Micombero,
forseti látið herinn vinna að út-
rýminigu allra þeirra Huto-
manna, sem einhverja menntun
hefðu hlotið.
Embættismaðurinn sagði enn
fremur að fjöldaaftökum væii
nú að mestu hætt, enda hefði
Fischer:
Rússar vilja fela
tapið á íslandi
Rancho La Costa,
Kaliforniu, 5. júní ■
AP
BANDARISKI skáksnillingm-
inn Robert Fischer hefur nú
flutt æfingabúðir sinar til
Kaliforníu, þar sem hann leik
ur tennis og syndir á daginn,
en liggur yfir skákmn kvöid
og nætur, til að undirbúa sig
undir heimsmeistaraeinvígið
á íslandi i næsta mánuði.
Fi-scher sagði við vini sina
að ísland væri voðalegur stað
ur að tefla á, en Rússar hefðu
viljað ísiand, til að fela ósig
ur Spasskys. „Ósigur hans er
óumflýjanlegur og það er ekki
?inu sinni hægt að sjónvarpa
um gervihnött frá íslandi.“
flestum þorpum Huto-manna nú
verið eytt og íbúarnir myrtir,
menn, konur og börn.
í fyrrnefndri útvarpssendingu
frá Burundi var sagt að Belgar
hefðu haldið völdum sínum í
landinu með því að halda ætt-
bálkunum aðskildum og hindra
allar tilraunir Afríkubúa til sam
einingar. Þá var og neitað ölluin
fullyrðingum um ofsóknir á
hendur Huto-mönnum.