Morgunblaðið - 09.06.1972, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1972
Jón Auöuns dómpróf.:
Friðrik Hallgríms
son dómprófastur
— Aldarminning
ÞETTA er fáorð aldarminning
manns, sem Reykvikingar mega
með virðingu og þakklæti minn-
ast. Og verðugt er að frá Dóm-
kirkjunni berist kveðja. Þar
starfaði sra Friðrik Hallgrímsson
sem dómkirkjuprestur og dóm-
prófastur síðustu tvo áratugi
starfsævinnar.
Hann fæddist í Reykjavík 9.
júní 1872. Var faðir hans Hall-
grímur Sveinsson þá dómkirkju-
prestur en síðar biskup, og móð-
ir frú Elina f. Fevejle, yfirlækn-
isdóttir, hefðarkona og mikil
húsfreyja.
Sra Friðrik ólst upp við ágæt
kjör og fagra heimilishætti.
Hallgrimur biskup var virðing-
armaður og vinsæll mjög, höfð-
ingi í háttum og virtur jafnt í
sölum Alþingis og af alþýðu
manna. Hann var afburða náms-
maður, jafnt I Latínuskólanum
og Hafnarháskóla, og naut aí-
burða vinsælda sem dómkirkju-
prestur. Til hans má vEifalaust
rekja margt það, sem fallegast
var í fari sonar hans.
Frá stúdentsprófi lá leið sra
Friðriks til Hafnar, þar sem
hann stundaði guðfræðinám sam-
tíma náfrænda sínum og vini,
próf. Haraldi Níelssyni. Er hann
kom heim frá námi var hann
skipaður prestur við holdsveikra-
spítalann í Laugarnesi, en þá var
það veglega og mikla hús full-
skipað holdsveiku fólki. Mun
hann fyrstur sjúkrahússprestur
á fslandi skipaður í slíkt emb-
ætti.
Ári síðar fékk hann veitingu
fyrir Utskálaprestakalli og þjón-
aði því um þriggja ára skeið,
en fluttist þá vestur um haf,
þar sem hann þjónaði islenzkum
söfnuðum i aldarfjórðung. Þá
sögu kann ég ekki að segja en
veit af annarra orðum að þar
vestra voru vinsældir hans og
frú Bentínu miklar. Heimili
þeirra var öllum opið, og bæði
meðal safnaða sinna og vestur-
íslenzku prestanna var hann í
miklum metum. Hin staka prúð-
mennska hans og háttvisi hefir
vafalaust komið sér þar vel
meðan stormum var enn ekki
slotað eftir trúmálaátök land-
anna vestra. Ég man þau hjónin,
sra Friðrik og frú Bentinu í fjöl-
menni Vestur-Islendinga sem
sóttu Alþingishátíðina 1930. *ess
varð ekki dulizt, hvern hug land-
amir i vesturvegi báru til þeirra
hjóna.
En leiðin lá „heim“ þegar sra
Friðrik fékk veitingu fyrir öðru
dómkirkjuprestsembættinu eftir
sra Jóhann Þorkelsson 1925 og
hóf þá um sumarið 20 ára loka-
feril starfsævinnar. Eftir próf.
Harald Nielsson látinn tók sra
Friðrik aftur við sínu fyrra
starfi meðal holdsveika fóiksins
í Laugamesi. Hann var skipað-
ur prófastur í Kjalarnesprófasts
dæmi og loks dómprófastur, hinn
fyrsti i Reykjavík eftir nýjum
lögum 1941. Hann gegndi trún-
aðarstörfum fyrir Prestafél. Is-
lands, sat í útvarpsráði, var for-
seti AngMu og fleira mætti telja.
Lausn frá embætti fékk hann
frá 1. des. 1945 og andaðist tveim
árum siðar, en hafði borið aldur
óvenju vel.
Af prestsþjónustu sinni varð
sra Friðrik afar vinsæll. Annar
eins afburða predikari og faðir
hans, Hallgrímur biskup, hafði
verið, var hann nausmast, en
flestir þeir kostir sem kenni-
mann og sálusorgara prýða,
prýddu hann. Hann kunni að
halda á sínu máli en var friðar-
ins maður, sem stormar stóðu
ekki um. Mál hans var ljóst.
Fagnaðarerindið bar hann fram
í gullskálum guðstrúarvissu og
barnslegrar lotningar fyrir
Kristi. Hann unni einfaldleika í
máli og mynd. Kristindómurinn
var honum ekki ráðgáta til að
glíma við, heldur auðsætt mál
og augljós vegur. Þess vegna
varð hann sá æskulýðsfræðari
sem hann var, bæði í kirkju og
útvarpi. Hann skildi börn og böm
skildu hann. Og hann gaf þeim
bækur, sem vom mikið lesnar
og lærdómskver til fermingar,
sem ýrnsir prestar nota énn.
Kunnugir vissu, hver afburða
heimilisfaðir hann var. Þau vom
samhent hjón, samhuga elskend-
ur og vinir, sra Friðrik og frú
Bentína. Og börnum sínum fimm
var hann ómetanlegur faðir. I
heimilinu var gestkvæmt bæði
aí ungum og gömlum. Þar voru
opnar dyr og alúð og gestrisni
beið innan dyra í fallegu heim-
ili, sem frú Bentína Haligríms-
son stýrði skörulega og hafði
búið smekklega.
Fágaðri mann en sra Frlðrik
var torvelt að finna. Flestum
mönnum var hann háttvísari, og
í hópi stéttarbræðra bar hann
i efnum af flestum. Er ég tók
við embætti af honum kynntist
ég því, hver fyrirmyndar emb-
ættismaður hann hafði verið.
Þar, sem í öðru, var hús hans
fágað og prýtt. Vandvirkni og
fegurðarskyn má lesa á hverri
blaðsiðu í embættisbókum hans.
En svo var hann í öllum hátt-
um, sem blaðsíða hver er í þeim
bókum.
Til sra Friðriks HaBgrimsson-
ar renna gamlir vinir hlýjum
hug í dag, þegar liðin eru hundr-
að ár frá fæðingu hants.
Tilboð óskast
R-5358 N.S.U. Prins '63 nýskoðaður. Boddí allt endurnýjað.
Skattur og númer fylgja með.
Til sýnis í dag að Laugarásvegi 1 bakatil frá kl. 9—5.
Upplýsingar í síma 43526 eftir k1. 6.
HEKLAhf.
Laugavegi 170—172 — Sími 21240.
Aðalfundur
Hraðfrystistöðvar Eyrarbakka h/f verðuj*
haldinn í samkomuhúsinu Fjölni, Eyraai-
bakka sunnudaginn 25. júní n.k. kl. 2 e.h.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
UMBÚÐARPAPPÍR
Nýkominn hvítur umbúðapappír frá Finn
landi. Stærðir 40 og 57 cm rl.
Mjög hagstætt verð.
BJÖRGVIIV SCHRAM
u m b o s- & heildverzlun
Sími 24340.
Kodak 1 Kodak I Kodak 1 Kodak f' Kodak
HANS PETERSEN H/f.
BANKASTR. 4 SÍMI 20 313
GLÆSIBÆ SÍMI 82590
Kodak 1 Kodak I Kodak § Kodak S Kodak
BÍLAR TIL SOLU
V. W. 1302 ”71. CORTINA ’67.
OPEL RECORD STATION ’66. CITROEN G.S. ’71.
SUNBEAM VOUGE ’70. SUNBEAM 1250 ’71.
PLAYMOUTH BARACUDA ‘68. SAAB 99 ’70.
VAUXHALL VIVA ’70. SAAB 96 ’68.
FORD CAPRI ’71.
wí^B3ÖRNSSON±cO: cm
SKEIFAN 11 SÍMI 81530