Morgunblaðið - 09.06.1972, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1972
13 \
0
Attræöur í dag:
Ágúst á Hofi
Áttræður er í dag Ágúst B.
Jónsson, fyrrum bóndi á Hofi i
Vatnsdal. Er hann maður ekki
einungis vel þekktur í héraði,
heldur og að heita má landis-
kunmir bæði vegna ýmissa
starfa sinna sem og þess, að
flestum verður hann nokkuð
minnisstæður þeim er kynnast
honum. Fjölmargir hafa og feng
ið af honum ýmist ný eða endur
nýjuð kynni eftir að hann
,jleysti frá skjóðiurmi", og „iét
fBesit flaikka", i bólkum þeim, sem
þeir Andrés Kristjánsson hafa
sameiginlega fært í letur. Með
þessari afmæliskveðju er því
þarflaust að láta fylgja nokkra
kynningu á æviferli Ágústs á
Hofi. .
Meðal þess merkasta í búskap
arsögu Ágústs hlýtuir að teljast
ferili hans sem gangnamanns og
gangnaforingja. Hann fór sex-
tiu haust í göngur samfleytt,
sem mun vera fágætt. Mest af
þeim tím'a var hann jafnframt
’fjallkóngur á Grímstungu- og
Haukagilsheiði, og þótti hann
einistaklega farsæll foringi og
svo ratvís, að aldrei skeikaði í
dimmviðrum, þótt yfir Stóra-
sand væri að fara. Hamn var vel
íþróttum búinn á yngri árum og
göngugarpur með afbrigðum,
svo sem fram kemur í frásögn-
um i Göngúm og réttum af eftir
leitarferðum þeirra Vatnsdæl-
inga, um hávetur, alit fram und
ir jökla.
Ágúst ferðaðist inn Iand-
ið þvert og endilangt á vegum
sauðfjárveikivama, til þess að
skoða fé, er fjáirpestir geisiuðu.
Nú myndi bóndí tæpdega verða
valinn til slikra starfa, en hvort
tveggja er, að þá voru færri
dýralækn-ar, og að Ágúst hafði
vakið athygli fyrir áhuga sinn
otg lagrni á sviði dýraiælkniiniga,
þrátt fyrir litinn skólalærdóm í
þeirn efnum. Er hér tvímælalaust
um að ræða mjög merkan þátt í
störfum hans. Ágúst hefur tekið
mikinn þátt i félagsmálum um
daigana, og gegmt miörgum störf
um fyrir sveit sína og hérað á
þeim vettvangi. Sat hann m.a. i
stjóm Kaupféiags Húnvetninga
um ánabil. Þá átti hann í fjölda
ára sæti í sauðfjársjúkdóma
nefnd, samkvæmt tilnefningu
landlbúnaðamefinda Alþitngis.
Ágúst er íélagsmálamaður og
mannblendinn gleðimaður, sem
kann vel að ganga um veizlu-
saM. Máil sitt bryddir hann g’jarn
an góðiátlegri kimni, sem hann
hefur næmt auga fyrir, og eng-
in dæmi veit ég þess, að honum
verði orðfall hvorki í ræðustól
né í viðræðum við aðra.
Sú mynd, sem birtist af
Ágústi á gleðimótum, mun þó fá
um endast til að kynnast hon-
um til nolkkurrar hlítar. Þæir
stundir er við höfum setið að
skrafi á síðkvöldum hafa sann-
að mér í mun ri'kari mæli, að
hann er ekki einungis fróður
vel um ýmsa hluti og minnugur,
held'Uir og óvemju glöggsikiyggn,
einkum sem mannþekkjari. Hann
fylgist ennþá- vel með pólitísk-
um veðrabrigðum enda gamal-
reyndur liðsmaður á þeim vett-
vangi.
Er þá ótalinn sá þáttur, sem
hvað rikastur er i fari Ágústs
en það er náttúrudýrkunin. Oft
hef ég orðið þess var hve annt
honum er um þá náttúru, liíandi
og dauða, sem skapar velferð
bónd'ans, sé að henni hlúð. Enn-
þá er gleði hans auðsæ við að
handleika fallegt lamb og teyga
gróðiurinn. Sliíkar myndir bis'ta
mér langa gögu úr lífi hins aidr
aða bónda.
Ágúst var kvæntur Ingunni
Hallgrímsdóttur frá Hvammi,
mikilli atgerviskonu, sem látin
er fyrir rúmmum 20 árum. Þau
hjónin eignuðust þrjár dætur og
mun það gleðja Ágúst, að tvær
þeirra eru húsfreyjur á stórbýl
um i sveit, þær Valgerður á
Geitaskarði, gift Sigurði Þor-
bjamarsyni, og Vigdís á Hofi,
gift Gósla Páissyni. Ég þyldst
þó hafa orðið þess var, að hann
metur eigi minnst þriðju sysfcur
ina, Rögnu, sem búsett er í
Hafnarfirði og hefur misst mann
sinn.
Þrátt fyrir háan aldur er
Ágúst enn léttur í máli og létt-
ur á fæti. Þótt sjónin hafi dapr
azit nokkuð er huiguriinn fleyigiur
og nægtalönd minninganna
blasa við. Er sumri hallar mun
oft staðnœmzt i Fljótsdiröigum
og Réttartanga. En málefnum nú
timans er þó ekki kastað íyrir
t>orð, heldur fyiigzt með af á-
huga, sem suma hina yngri skort
ir.
Með þessum linum sendi ég og
kona min Ágústi beztu heillaósk
ir á áttræðisafmælinu. Um leið
og við þökkum kynni liðinna
ára, biðjurn við honum vellam-
aðar til leiðarloka.
1 kvöld bjóða sveitungar og
vinir Ágústi til samsætis í Flóð-
vangi.
Fálmi Jónsson.
Seljum næstu daga á tækifærisverði
áklæði og mottur í eftirtaldar bifreiðar:
Peugot 504 ’72 Daf 44 '67
Taunus 17 M '61 Toyota Crovn '71
Fiat 1100 '59/66 Plymouth '50
Volvo 142—144 ’70 V. W. 1500 63
Sunbeam 1250 '72 Zodiac ’60
Fiat 850 '67/71 Taunus 20 M '68
Skoda 1000 MB Skoda 110 L 71
Voivo 544 ’65 Cortina '70
Volvo 164 '69 Rambler 67
Opel Rekord '63 Moskwitch
Saab 96/64 Chrysler 160
Commer Cob '63
Renault R-8 '63
V.W. 1600 T.L. '71
Útvegum með stuttum fyrirvara áklæði og mottur í allar
tegundir b'rfreiða. Efna og litaúrval.
RITIKBBÚÐIII
FRAKKASTIG 7 SIMI 22677
Jakkinn, sem vekur svo mikla ánægju hjá herrun-
um, að jafnvel dömurnar Iæðast í hann, þegar tæki-
færi gefst.
oAndersen Β> Lauth hf.
Álfheimum 74,Yesturgötu 17, Laugavegi 39.
íbúðarhæð við Holtagerði
Til sölu neðri hæð í tvíbýlishúsi við Holta-
gerði í Kópavogi. Hæðin er um 110 feirm.,
stofa, 3 svefnherb., stór hol, bað, eldhús, allt
1 ágætu ástandi. Ræktuð lóð með bílskúrs-
réttindum. Hagstætt verð og greiðsluskil-
málar, engin áhvílandi lán.
Upp’ýsingar gefuir Jónatan Sveinsson, lögfr.,
sími 83058, eftir kl. 17 í dag og um helgina.