Morgunblaðið - 09.06.1972, Síða 14

Morgunblaðið - 09.06.1972, Síða 14
14 MORGUiNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1972 Seinni tónleikar sænsku sinfóníunnar Stjórnandi: Sixten Ehrling, Einleikari: John Lill. Efnisskrá: H. Rosenberg': Konsert nr. 3. S. Rachmaninoff: Rhapsodía um stef eftir Paganíni. R. Strauss: Ein Heldenleben. ÞAR SEM ufndirritaður kom nokkuð tímanlega á seinnd tón- leika Sinf óní uhl j ómsveitar sænska útvajrpsiins, sem haldnir voru i Laugardal.shöliliinini si. miðvi'kudagskvöld, gafst gott tæfcifæiri til að fylgjast með, hvemig hljómsveitin bar sig að fyrir tónleika, og gætu okkar menn rnargt af því lærí. Þegar hver var komdnn á sinn stað, og tefcið var tii við að stillila hljóð- færdn, blés ekki hver í kapp við annan, eða sargaði í eyrað á næsta manmi. Hér fór allt skipu- iieiga fram, hver eimstakur hljóð- færaflokkur gaf sér góðan tíma og sfililíi af nákvæmnd og natnd, hver tók tididt til annars. Það l'á við að þetta verkaðd sem sérstök atíhöfn. Ef tíil vM er þetta ekki stórt atriði. En ætli margir sdík- ir smámunir hjálpi ekki meðal hljómsvedt að verða að góðri hljómsveit, og góðri að framúr- ötoarandi? Eftir þennan vand- vdrknislega undirbúning hófust svo sjáifir tónleikamir á konsert nr. 3 eftir Sviann H. Rosenberg (f. 1892). Hann átti á síraum tíma srbóran þátt í þróun nýrra stnauma tónlistar í sínu heima- landi, og er taMnn eiitt merkasta tónskáld Svía af aldamótakyn- slóðinni. Þó hygg ég að hann sé fremur ldtt þekktur hérlendis, og hefði því farið vel á þvi að kynna hann nokkrum orðuirn í efmsskrá, en það er atriði, sem forráðamönnum llistahátíðar hafa sýnilega ekki séð ástæðu tii að sdnna, þ. e. að gefa út sérstaka efnisskrá fyrir hverja tónleika, þar sem höfundum og verkum þeirra eru gerð nokkur skiil, sem himgað til hefur þótt sjáifsiagt, tónleiikagestum til fróðledks og skilndngsauka. í þess stað er gef- inn út ófuU'kominn og upplýs- ingasnauður ailsherjarbæklinig- ur, og málið þanniig afgreitt. — Þetta er ekki góð þjónusta, og þyrfti úrbóta við. Svo aftur sé vikið að Rosen- berg og verki hans, kemur í Ijós að hér er um snjallan haglei'ks- mann að ræða. Honum er jafn eðiliiegt að fást við þéttriðin og flókin hljómasambönd, sem og rökrétta þróun kontrapunktsdns. Hljómsveiibaráferðin er einnig snyrtitega tmnin, og verkinu gerð hin beztu skil af hljóm- sveitdnni undir handledðslu Ehrl- tags. EJnsiki pianiistinn John Líill fór með ednteikshlutverkið i Rhapso- díu Rachmaninoffs um stef eftir Pagandni. John Lilll hreppti hin eftirsóttu Tsjækovski-verðlaun 1970, og hefur síðan verið eftir- sóttur einteiikari, enda fairið víða. Það mátti því búast við yfir- burðaleik að þessu sinnd, enda gefur verkið tilefni til að láta gamminn geisa. Og vissulega EGILL R.FRIÐLEIFSSON Sixten Ehrling var hver nóta á sínum stað, tækni glæsiteg og meðferð fág- uð — en heldur ekki meir. Hon- um tókst ekki að hefja tónlist- ina upp í það veldi, sem gerir hana að djúpri nautn. Að minu miati var hér um ósköp venju- lega túlkun að ræða, sem megn- aði vart að snerta m>ann að ráðd. Það er stundum sagt um sæl- feera, að þedr geymd bezta bitann þangað tiil siiðast, og það átti sér svo saminarlega stað hér. Tóna- Ijóð R. Strauss „Ein Heldenleb- en“ er einmitt verkefni fyrir stóra hljómsvedt tii að sanna ágæti sitt, og hér samnifærðist maður um að sá orðsitíír, sem af þessari sænsku hljómsveit fer, er ekki innantómt skjali, heddur hefur við drjúg rök að styðjast. R. Straiuss, sem stundum hefiur verdð kaillaður síðasti rómantík- erinn þýzki, hefiur tilteinikað sér rnargt það bezta frá þeim Liszt, Wagner og Berdliois hvað hljóm- sveitarmeóferð snertir, þótít hann í rauninni standi nær Mahler í listsköpun sinni. Tóniaijóðið er fágættega ved samið llistaverk. Það gerir óvægniar kröfur til hljómsveitairinnar og stjómanda. Það er Mtritot og gdaeisdlegt, hiað- ið dramiajtískri spennu og ein- staklega áhrifaritot, þegar fflutn- inigur tekst svo frábænlega vei sem í þetta siinn. Nú fyrst fenig- um við að reyna hvers Sinfón- íuihijómsveit sænska útvarpsins er megnug, þegar hún í slíku meistaraveriki, er mönuð tii átaka af jafnsnjöllum stjómanda og Sixten Ehriling er. Enda var lófa- klaipp áheyrenda sem þrumu- gangur að ledik lokmum, og hljóm- sveitin þakkaði fyrir siig, með því að endurtaka auikanúmerin firá þvi kvöldáð áður. Þanndig iiauk þessard eftiirminni- legu heimsókn Svíanna. Hafi þeir þökk fyrir komuna. Hinigaðkoma þeiirra er viðburður, sem lenigi miun í miinnum hafður. Þó get ég elcfei stiílllt mig um að finna nokkuð að verkefnavai'iinu. Það hefði óneitantega verið meiri fengur í að heyra hljómsveiitina leitoa verk, sem aldnei heyrast á tónieiikum hér, og ototoar hljóm- sveit vart fær um að flytja, svo sem sumar stoifóniur þeirra Bruckners eða MaJhleins, að ég taii ekfci um saimtíma hljómsveit- arverk, sem sum hver eru óhemju vanidflutt. Að tónaijóðinu „Ein Heidanleben“ edniu undain- skildu, hefðu öli hin varkim geta staðið á einhverri efinisskrá otok- ar úreitu ásitoriifitairtónleifca, og hafa raunar ftest þegar verið færð upp. Var það e. t. v. af ótta við minni aðsókn, að „þekkta teiðin" var farin. Reynslan hefur nefniiega sýnt, að tónlteikagestir eru ótrúlega ihaldssaimdr — þvd betur sem vericið er þektot, þeim mun betri aðsókn. Það er stað- reynd, sem ekki verður fram hjá gengið, hversu dapuirieg sem hún í raiun og veru er, eintoum fyrir þá, sem fást við llisitskiöpun og í mörgum tilvilkum uppstoera etotoi annað en tómilæti fyrir erfiði sitt. Samnaist þettía áþreifiantega á sumum þeim kammiertóndiedlk- um, sem haldndr eru þessa dag- ana, og eru þó undir hatti lista- hátíðar, með öllu þvd auglýsinga- filóði sem því fyigir. TÓNLIST GUÐMUNDUR EMILSSON: Fæðing - og jarðarför Það gerist ósjaldan á Islandi (útverði heimsmenningarinnar), að innlend tónskáld, eða hljóð- færaleikarar, haldi opinbera tón leitoa. Fjö'-di þeirra vekur furðu þegar þess er gætt að flestir, ef ekki allir þessara listamanna, eiga fyrir fjölskyldu að sjá sem þarfnast viðurværis og það verð ur ekki sótt í greipar íslenzkra tónleikahaldara, enda fyrir finnst ekki sú stétt manna hér & landi. Maður skyldi nú ætla að fómfúsu starfi þeirra væri tek- ið opnum örmum, að okkur Is- tendingum væri annt um þessa fáu listamenn, sem við eigum, þessa furðulegu manntegund, sem virðist geta alið sig og sína á Loftinu. En þvi fer fjarri. Svo gjörsamlega eru þeir hundsaðir af almenningi að manni er það hulin ráðgáta hvemig þeir, sem með ærnum tilkostnaði hafa menntað sig í öllum frægustu skólum heims, geta ár eftir ár þrjózkazt og rembzt við, eins og rjúpan við staurinn, í þessari eyðimörk listræns skilnings, sem Island hefur verið, Við heyrum ungan og efnileg an tónlistarmarm leika á hljóð- færi tónverk, sem kostað hefur hann margra mánaða vinnu og sjálfsafneitun, og við sjáum tón leikasal setinn örfáum niðurlút- um hræðum. Við sjáum fagran blómvönd afhentan af ættingj- um, og ef hljóðfæraleikarinn ungi er heppinn birtist stutt „minningargrein" um tónleikana í eitthverju af hinum fjölmörgu menningarritum landsins. Slíkar eru þær aðstæður og loft, sem tónlistarmenn eiga að nærast á. Hvemig getur þjóðin stutt við bak þeirra? Greitt þeim fjár fúlgur úr sjóði almennings? Nei það hvarflar ekki að þeim, það væri til of mikils mælzt. En þeim væri hins vegar mikils virði ef fólk legði sig niður við að samgleðjast þeim, og fylgjast með árangrinum sem þeir ná, ef einhver er. Á þann hátt gæti al menningur bezt stuðlað að fram förum. En á meðan þessu fer fram, slást menningarvitar ls- lendinga með hnúum og hnefum um aðgang að hverjum þeim tón leikum sem einhverju útlenzku ofurstimi þóknast að halda hér, og er skemmst að minnast per- sónuleikans, sem lék Píanókon- sert Tjækovskys hér á dögun- um. En að þeim tónleikum lokn- um var hrópað bravó, klappað, stappað og ég man ekki betur en að samkvæminu lyki á alls- herjar „uppistandi" eins og mjög er í tízku á íslandi um þess ar mundir. Óskandi væri að svo kallaðir tónlistarunnendur sýndu löndum sínum svipaðan á- huga. En dæmin um hið gagn- stæða eru mýmörg. feg minnist minningartónleika um Jón Leifs, sem haldnir voru í Háskólabíói i fyrra, en þá lék Smfóníuhlióm sveit fslands fyrir hálftómu húsi. Ég minnist allra þeirra á- gætu tónleika, sem til skamms tíma voru haldnir á vegum Mus- ica Nova við daufar undirtekt ir. Og ég minnist fyrstu kamm- ertónleikana í Austurbæjarbíói á Listahátíð '72. Þar komu fram listamenn sem léku tónverk eftir Anton Web- ern og Franz Schubert og frum- fluttu þar að auki Tríóið Side by side eftir Atla Heimi Sveins- son. Ég sé enga ástæðu til að leyna þvi, að í Austurbæjarbíói sátu um fimmtíu manns, ef áheyr endur voru þá svo margir. Samt sem áður átti á þessum tónleik- um að frumflytja ísienzkt tón- verk. Hvar voru allir menning- arvitarnir? Eða gerðist yfirleitt nokkuð merkilegt á þessuip tón leikum? Reyndar. Þar fæddist verk sem hefur algjöra sérstöðu. Akróbatísk gletta í fleirum en einum skilningi. Verk, sem vakti svo mikla kátínu áheyrenda að það var engu likara en mörg hundruð manns klöppuðu fyrir þvi og tónskáldinu að loknum flutningi. Verk sem Islendingar eiga sennilega eftir að jarða á svipaðan hátt og Sögusinfóníu Jóns Leifs, og flest önnur ís- lenzk tónverk, en grafa seinna upp úr handraðanum og upp- götva með tilheyrandi orða- gjálfri eftir dúk og disk. Ég leyfi mér fyrir hönd áheyrenda að þakka Atla þetta bráðskemmti- lega verk, og flytjendunum fyr- ir góðan samleik. Kvartett Tónlistarskólans i Reykjavík lék á tónleikunum Kvartett op. 28 eftir Anton We- bern. Þann hug sem liggur að baki verkefnavalinu ber að lofa, og gerðu þeir félagar því ágæt skil. Ég þykist vita að kvartett Weberns sé eitt af fáum „nú- tíma“ stykkjum, sem þeir hafa ráðizt í að flytja og bar flutn- ingurinn þess nokkur merki. Fraseringar voru á stundum ó- sannfærandi og vissrar feimni gætti í meðhöndlun efnisins. Þrátt fyrir það væri þess ósk- andi að Kvartett Tónlistarskól- ans héldi áfram á þessari braut, og kynnti fleiri verk af slíkum toga. Síðast á efnisskránni var Okt ett i F-dúr eftir Franz Schubert. Sannast sagna varð ég fyrir nokkrum vonbrigðum. Ég hefði haldið að þegar svo mörgum fær um tónlistarmöninum væri safn- að saman hlyti árangurinn að verða góður. Samspil var oft í molum og tilþrif öll hin ein- kennilegustu. Grunar mig að þeir áttmenningar hafi ekki ætl að sér nægan æfingartíma, eða hann hafi ekki gefizt, þvi ár- angurinn var langt fyrir neðan getu. Á Listahátíílð '72 er gert ráð fyrir fleiri en einum kammertón leikum. Frumflutt verða mörg ný íslenzk tónverk og verður fróðlegt að hlýða á þau. Skora ég nú á alla sanna listunnend- ur að sýna þeim listamönnum, sem að þeim standa athygli og áhuga. Látum þá ekki leika fyr ir tómum sölum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.