Morgunblaðið - 09.06.1972, Side 17

Morgunblaðið - 09.06.1972, Side 17
MORGONBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 9. JÚNl 1972 17 Er að endurgjalda heimsókn míns góða vinar Ashkenazys sagði Yehudi Menuhin við komuna til íslands í gær LJÚFMENNSKA og rósemi einkenna fiðluleikarann Yeh- udi Menuhin. Það sáum við um leið og hann steig á is- lenzka grund úr flugvél Pan American í gær ásamt konu sinni. Líklega stafar ekki jafn miklum ljóma af nafni nokk- urs núlifandi listamanns, en við fyrstu kynni er látieysið mest áberandi. —• Ég kom hingað á lista- hátið vegna rníns góða vinar Vladimirs Ashkenazys, sagði hann, þegar fréttamaður Mbl. spurði af hverju hann hefði ákveðið að koma og leika fyr- ir okkur. — Sjáið þér til, ég er að endurgjalda komu hans á mína listahatíð í Ba1h í sept ember, en mig hefur langað til að fá hann þangað i mörg ár. Og það Mtur úf fyrir að hann hafi hugisað eins ti'l að fá mig á þessa li'.stahátíð, sem hann ber fyrir brjósti, svc við ákváðum að skiptast á heimsóknum. — Leikið þið sömu verk á báðum stöðunuim? — Já, við munum leika sömu tónlist þar í september sem hér á tónleikunum á mánudag, Eitt verkið höfum við leikið saman áður, Beet- hovensónötuna. Hún er okkur báðum mjög kœr. — Þekkið þér Sinfóníu- hljómsveit Islands nokkuð? Hvað finnst yður um að leika með svo lítiiHi hljómsveit? — Ég þekki hana ekkert, en ég er viss um að hún er nægi- lega stór. Fiðlukonsert Beet- hovens þarf ekki mjög stóra hljómsveit. Ég ieik hann með litlu hljómsveitinni minni — kammerhljómsveitiinnd. Hve stór? Þegar við eruim allir, þá erum við 34 talsine. Og það nægir alveg. Stumdum efkiki nema 25. hér notkkra daga? Hvað hygg- izt þér gera milli tónlaikanna tveggja? — Ég ætla að stanza í fimrn sólarhriwga. Ég æfi auðvitað, en þess. á milii h’.akka ég til að vera bara hér á stað, er ég ekki þekki og kyininasf fólkinu og sjá hvennig það lifir. Ég hef aðeinis einu sininii komið Nú ætlið þér að stanza Yelhudi Menuihin við komuna tii íslands i gær. Ljkixsm. Kir. Ben. LISTAHÁTlÐ í REYKJAVÍK hér áður. Það var fyrir 15 ár- um þegar biluin varð í flug- vélinni minni. Viðdvölin var stutt og það var myrkur. Þetta er einm af örfáum stöð- um norðán skógabeltisiins, sem ég hef komið til. — Þetta hlýtur að vera næstum eina lamdið á hmett- imum sem þér hafið ekki leik- ið í? — Ekki alveg rétt, sagði Menuhin kímiinin. — Ég hef aldrei komið til Kína. Og hann bætti þvi við, að hingað hefði hann koimiið frá Emg- landi, þar sem hann var í tón- leikaferð með kammerhljóm- sveitina sína. Og þantgað fer hann aftur, en nú til að leika inn á hljómplötur. — Ég ætla að leika á plötur með stórkost- liegum jazzfiðluleiikara Steph- an Grappelli. — ★ — Menuh'n kom fyrst fram op inberlega sjö ára í San Frans isco með sinfóníuhljómsveit- inni þar og lék þá Symphonie Espagnole eftir Lalo. Fyrstu tónleikar hans í New York voru árið 1927 og áður en hann hafði náð fjórtán ára aldri hafði hann komið fram í öllum höfuðborgum Evrópu nema Reykjavík. Hingað kem ur Yehudi Menuhin nú fyrst og gefst tvívegis kostur á að Framhald á bls. 31 Færum ykkur mína nýju balletta og einn gamlan sígildan — sagði balletmeistarinn Flemming Flindt FJÓRTÁN manna hópur úr Konunglega danska ballettin- nm, sem ætlar að sýna í Þjóð- leikhúsinu á laugardag, sunnu dag og vegna óhemju eftir- spurnar líka á aukasýningu kl. 3 á mánudag, kom til Keflavíkiirflugvallar nieð Loftleiðaflugvél í gær. 1 hópn- mn eru frægir listamenn, eins og Flemming Flindt, kona hans Vivi Flindt og fleiri. Fararstjóri er Inger Sand, sem íslendingum er að góðu kunn frá fyrri heimsókntim. Flemming Flimdt er helzti dansmeistari Dana síðan Har- aid Lander leið. Hann var lengi sólód'ansari bæði heima i Kaupmannahöfn, við Paris- aróperuna og hjá London Festival Ballet og eftirsóttur dansari á leiksviðum í Evrópu. Hann hefuir Mka samið slna eigin balletta og mun flokk- urinn flytj'a okkur tvo af þeim nú. — Já, það er rétt, við döns- um hér mest mín eigin bal'lett- verk, sagði hann við frétta- mann Mbl. á fluigvellinum. — Við tökum Kennslustundina og Sumardansinn, en svo er- um við með „Lífverðina á Am- ager“ eftir Bournovilie, til að sýna lika gamlan klassískan baliett. Mínir dansar eru full- trúar nýrri ballettdansa. — Þér semjið mikið af ball- ettum eftir verkum Ionescos? — Já, það geri ég. Ég vinn mikið með franska rithöfund- inum Ionesco og akkar sam- vinna hefur smám saman þró- azt og hefur haft mikla þýð- inigu fyrir danska ballettinn. — Hvað er það, sem gerir leikrit Ionescos svo hæf fyrir baliliettdanis að yðar áliti? — Ionesco notar ákaflaga sérstætt, draimatiskt form, sem byggir mjög á sjónrænni skynjun. Þetta veitir mikla möguleika til að nota tján- ingarform hans í baldett. Orð eru í rauninni óþörf hjá hon- um, ef svo má segja. Hann hefur mjög dramatíska foirm- byggingu, sem nota má sem undirstöðu í balleiftinn, jafn- framt því, sem mér finnst hug myndafræði hans ákaflega at- hyglisverð. — Hafið þér komið til Is lands fyrr? — Já, fyrir mörgum árum. Það var árið 1955. Þá dansaði ég hér með ballettflokki og fékk tækifæri til að dvelja hér i 3 daga. Nú hlakka ég reglulega til að skoða Reykja- vík aftur og sjá hvernig hún hefur breytzt og hvað hefur gerzt hér á þcssum tíma. Að lokum sagði Flemming Flindt að Suimardansinn, sem hér verður dansaður, hefði þessi sami fiokkur nýlega sýnt við ákaflega góðar und- irtektir í Dortmund í Þýzka- líallettrneistarinn frægi Fleniming Fiindt og Vivi kona hans, sem er frægur ballettdansari. Danski ballettflokkurinn við koinuna til Keflavíkur. landi og á sl. ári dönsuðu þessir dansarar hann i Torino á Itaffiu að viðstaddri drottn- Irtgu Dana, og vakti það mikla athygli. Meðan þessu fór fram hafði fararstjórinn, Inger Sand, ver- ið að fylgjast með farangrin- um, 21 tösku, en þó var búið að senda leiktjöld með skipi á undan. Þessi fíngerða ball- ettdanismær stóð við renni- borðið og greip töskurnar, sem hún þekkti, um leið og þær komu. Þar skutum við inn spurningum millli þess sem töskurnar komu aðvif- andi. Inger Sand kvaðst hafa komið hér fjórum sinnum áð- ur og dansað. — I fyrsta skiptið var ég svo heppin að koma með Friðbirni Björns- Framhald á bls. 31

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.