Morgunblaðið - 30.06.1972, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1972
í stultumáli
Kínverska gengiö
hækkað
Homg Kong, 29. júní, NTB.
í fréttum frá Hong Komg
segir að Kínverska alþýðu-
lýðveldið hafi ákveðið hæklkum
á gengi gjaldmdðils landsins
um fimm af humdraði miðað
við Homg Kong dollara og
sterlingspund. — Skýrði mál-
gagn kommiúnista í Homg
Kang, New Evening Post, frá
þessu í dag. Áhrif verða vænt-
anlega þau í Hang Kong, að
verð á matvoru hækkar til
muna, þar sem mikið er flutt
þangað af kjöti og fiski frá
Kína.
Flugvélarræningi
tekinn
Bandaríska alríkislögreglan
sagði í dag, að handtekinn
hefði verið 29 ára gamall
maður, Martin J. McNally, í
Detroit, og er hanin grunaður
um að hafa rænt flugvél í
innanlandsflugi í Bandaríkj-
unum fyrir fimm dögum og
stokkið út í fallhlíf yfir Indí-
ana-ríki í Bandaríkjunum. —
Peningarnir fundust fyrir
nokkrum dögum á búgarði í
Perú í Indíana. McNally er
fráskilinn og atvinnulaus. —
Hann sagði FBI-mönnum, að
hann hefði sleppt peninga-
sekknum, þegar hann stökk
út og hefði ekki vitað hvað
af honum varð.
Um tíma var hald manna,
að ræninginn hefði beðið
bana í fallhlífarstökkinu.
Frímerki frá 1847
selt á 7,7 millj. kr.
Eitt af sjaldgæfustu frí-
merkjum heims, tveggja-
pennía Mauritus-frímerki frá
árinu 1847 var nýlega selt á
uppboði í Loodon fyrir fjár-
hæðina 7.700.000 krónur. Vit-
að er um ellefu önnur merki,
af sömu tegund og er eitt
þeirra í einkafrímerkjasafni
Elízabetar drottningar.
Giuilo Andreotti (t.v.) sver embættiseið, sem forsætisráðherra Italiu í Róni 26. þessa mánaðar.
Til hægri á myndinni er Giovanne Leone forseti.
Viðbótarlið sent með
þyrlum inn í Quang Tri
Gagnsóknarliðiö mætir lítilli mótspyrnu
Saiigon, 29. júní — AP
RÚMLEGA eittþúsund snðnr-
vietnamskir landgöngnliðar vorn
í dag fluttir með þyrlum inn í
Quang Tri-hérað, þar sem fyrir
er 20 þúsnnd manna lið sem á
að reyna að ná héraðinu úr hönd
um konimúnista. Landgöngulið-
arnir voru fluttir á svæði við
ströndina fyrir austan héraðshöf
uðborgina Quan Tri.
Sveitunum, sem hófu sókn inn
í Quang Tri í gær, á þrem stöð
um, hefur miðað nokkuð vel á-
fram. Ein þeirra lenti í hörðum
bardögum við hersveitir Norður-
Vietnama fljótlega eftir að kom
ið var iinin í héraðið, en sl. nótt og
í dag hefur verið lítið um átök.
Með sveitunum, sem hófu sókn
í gær, eru bæði skriðdrekar og
stórskotalið og bandarískar og
suður-vietnamskar flugvélar
gera loftárásir á stöðvar Norð-
ur-Vietnama.
Talið er, að Norður-Vietnamar
hafi'um 40 þúsund manna lið á
þessum slóðum og er þvi búizt
við hörðum og langvarandi bar-
dögurn áður en yfir lýkur. Norð-
ur-Vietnamar hafa haft héraðdð
á sinu valdi síðan 1. maí og hafa
því haft nægan tíma til að búast
vel ti! varnar.
Suður-vietnömsku sveitiinar,
sem næst eru borginni Quang
Tri, eru nú í aðeins 10 km fjar-
lægð. Ætlunin er að sækja að
borginni og hertaka hana áður
en lenigra er haldið.
Líbanon
herðir
flugvalla-
eftirlit
Beirút, 28. júní, AP.
Líbanon hefur ákveðið að
herða eftirlit á flugvöllum
lanidsins til að kama í veg fyr-
ir flugrán. Meðal annars verð
ur komið fyrir málimleitar-
tækjum og útbúiin „sprengju-
herbergi". 1 því herbeirgi
verður öfiugt rafeindatæki,
sam spremgir sprengjur í far-
angri áður en homum verður
komið um borð í vélamiar. Þá
verður eimnig fjölgað vörðum,
sem verða á eftirlitsferðum
um flugvellina dag og nótt.
Samstaða með
skæruliðum
Beirut, 28. júní — AP
SULEIMAN Franjieh, forseti Lí
banons, sagði á þingfundi i daig,
að Líbanir vildu halda „bróður
legiri samstöðu“ með skæruiiðium
Palestínu og harnn hvatti lamda
sína til að vera á varðbergi gegn
árásum af hendi ísraela. Fór for
setinn hörðum orðum um aðgerð
ir ísraela að undanförn'u.
Viljainnheimta
stríðsskuldir
— „■- ■■■ ■■■■ ■ ■■■ — — ~
Chichester á heimleið
— er hættur keppni
London, 29. júní. AP.
ALLT bendir til að brezki sæ
garpurinn Sir Francis Chic-
hester hafi ákveðið að hætta
þátttöku sinni i siglinga-
keppninni yfir Atlantshaf, og
stefni heim á leið. Flugvéi
sveimaði yfir bát hans „Gipsy
Moth V“ í gærkvöldi og sendi
hann frá sér merki: „Ég hef
verið veikur. Er frískur núna.“
Chichester hefur verið heilsu
veill undanfarið, eins og fram
hefur komið og þjáist af
blóðsjúkdómi. Hann viidi þó
ekki að læknir kæmi með hon
um í siglinguna frá Plymouth
til Newport á Rhode Island,
og hann hefur afþaikkað boð
um aðstoð.
Sir Francis var í gær-
kvöldi um 300 sjómílur út af
Spánarströnd en nokkrum dög
um áður hafði verið gerð mik
il leit að honum, þar sem ekk
ert hafði heyrzt frá honum
dögum saraan.
Washington, 29. júní. AP.
ÁLYKTUNARTILLAGA var lögð
frani í fiilltrúadeild Bandaríkja-
þings í dag, þar sem skorað er
á ríkisstjórnina að vinda að því
bráðan bug að innheinita stiúðs-
skuldir frá fyrri og síðari heims-
styrjöldinni og eru það sextán
þjóðir, sem skulda Bandaríkjnn-
um fé, sanitals 46 milljarða doll-
ara, að því er talsmaður ályktun-
artillögnnnar, Lester L. Wolf,
telur.
Sagði hann að skuldir við
Bandaríkin frá heimsstyrjöldinni
fyrri næmu um 18 miilljörðum
dollara og hefði ekkert af þvi
verið greitt. í greinargerð segir,
að efnahagur Bandaríkjanna sé
ekki slíkur, að þeir hafi efni á
því að ek'ki verði gerð gangskör
að því að innheimta drjúgan
hiuta þessara skulda.
Þau sextán lönd, sem Wolif tel
ur að ekki hafi greitt skuldir
sínar eru þessi: Armenía, Aust-
urríki, Bellgía, Tékkösl ó vaki a,
Eistland, Frakkland, Bretíland,
Grikkland, Ungverjaland, Italía,
Lettland, Litháen, Pólland, Rúm-
enía, Rússland og Júgóslavia.
Armenia, Eistland, Lettland og
Litháen eru nú hlutar af Sovét-
ríkjunum.
Hæst mun skuld Breta vera,
að því er Wolf segir, eða um
8,5 millljarðar dollara, síðan kem
ur Frakkiand með nær 6 millj-
arða dollara.
Aöeins ektavara
Ekkertannaö.
\bghurt úríslenzkri mjólkog sykraöir ávextirútí.
Ekkert gerfibragöefni, engin btarefni!
AÖeins ektavara.
meó söxuóum mandarínum
AUGLÝSINGASTOFA KRISTÍNAR 3.1*