Morgunblaðið - 30.06.1972, Síða 20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1972
20
r
Styrkur til háskólanáms í Sovétríkjunum
Sovézk stjórnvöld munu væntanlega veita einum íslend-
ingi skólavist og styrk til háskólanáms í Sovétríkjunum
háskólaárið 1972—73. Umsóknum skal komið til mennta-
málaráðuneytisins, Hverfiisgötu 6, Reykjavík, fyrir 20. júlí
nk., og fylgi staðfest afrdt prófskírteina ásamt meðmæl-
um.
Umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
MENNTAMAI ,A KÁBt .N EYT1», 28. jx'iní 1972.
Þriggja dogo snmarleyfis-
ferðir um Snæfellsnes
alla mánudaga frá B.S.Í. kl. 9.
Skoðað Snæfelisnes, Breiðaf jarðareyjar, Dalir, og Borgar-
fjörður. Heim um íúnigvöll.
Gististaðir : Búðdr og Stykkishólmur.
Kunnugur fararstjóri.
Upplýsingar í síma 22300.
Hópferðabílar Helga Péturssonar.
Egilsstaöir:
Góð
spretta
Egilsstöðum, 28. júní —
HÉR á Egilsstöðum hefur rignt
undanfarna daga, en annars hef
ur veðrið verið mjög þokkalegt
það sem af er sumrinu. Sprettan
hefiur verið mjög góð, og nú er
viða slegið, og þegar byrjað að
hirða mikið af heyimu.
Nokkuð mikið er um íram-
kvæmdir. í byggingu eru nýtt
fjölbýlishús og mikið af íhúðar
húsiUim, enda er nú mikið húsnæð
iisdeysi hér. Haldið er áfram við
Lagarfossvirkjun, og miðar því
vel.
Nýliega söng Karlakór Reykja
víkur hér við góðar undirtektir,
og nýlokið er landsþingi Slysa-
varnafélaigs fslands, sem fram fór
á Hallormsstað.
Mikið er um ferðamenn, bæði
erlienda og innlenda, og síðast í
daig komu tveir áætlunarbílar
fulildr af erlendum ferðamönnum.
Þá komu hingað einnig í dag 80
þingeyskar konur, sem eru á ferð
um Austu'riand. — ha.
xrxixm ATVINNA ATVINKA
STARFSMAÐUR ÓSKAST
Óskum eftir að ráða starfsmamn nú þegar eða sem fyrst. Starfið er fólgið í öll-
um venjulegum skrifstofustörfum, svo sem launaútreikningi, verðlagsútreikn-
ingi, frágangi innflutningsskjala og söl ustarfsemi.
Vérzlunarpróf eða hliðstæð menntun er áskilin. Æskilegt er, að umsækjendur
séu innan 30 ára, en hér er tækifæri fyr ir ungan, duglegan og reglusaman mann
til þess að afla góðra tekna við fjölbrey tileg störf. Umsækjendur tilgreini hvaða
kaup þeir óska eftir að fá greitt.
Eiginhandarumsóknir, sem tilgreini menntun og fyrri störf, óskast sem fyrst.
Umsóknum fylgi sem mest af upplýsingum um umsækjendur, þar á meðal ljós-
rit af prófskírteinum og meðmæli, ef fyrir hendi eru. Við lítum á allar um-
sóknir og upplýsingar um væntanlega umsækjendur sem algert trúnaðarmál
og erum reiðubúnir að bíða eftir því, að rétti maðurinn geti losnað úr öðru
starfi, ef með þarf.
SÓLARFILMA, PÓSTHÓLF 5205. REYKJAVÍK
COPPERTONE
ý:.íís3jés^j:::j.
COPPERTONE er Iangvinsælasti sólaráburðurinn í Bandaríkjunum. Vísindalegar rannsóknir, framkvæmdar af hlutlausum aðila, sýna það.
COPPERTONE sólaráburður gerir húðina á eðlilegan hátt brúna og fallega á skemmri tíma en nokkur annar sólaráburður, sem völ er á.
Fáanlegar COPPERTONE-vörur: Coppertone tanning butter, Coppertone olía, Coppertone lotion, Coppertone skíðakrem, Coppertone no-
skote, Coppertone varaáburður, Coppertone shate, Coppertone baby lotion og síðast en ekki sízt Q.T. — quick tanning — frá Coppertone,
sem gerir yður brún inni sem úti og ver yður einnig gegn sólbruna eins og venjulegur COPPERTONE sólaráburður.
VERIÐ BRÚN - BRENNIÐ EKKI
NOTIÐ
Heildverzlunin Ýmir Haraldur Árnason. He.idverziun. — simi 15583.