Morgunblaðið - 24.08.1972, Side 12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. AGUST 1972
12
J
Björn S. Stefánsson;
Skólahald í sveit
um og bæjum
Strjálbýlið í sveitum landsins
og örðugar samffönffur hafa
ráðið nokkru um jiað að skólar
til sveita hafa haft miklu
fámennari árgang'a en skólar í
þéttbýli. Sveitaheimilin Iiafa
haft þiirf fyrir aðstoð barna við
bústörf nokkuð af þeim tíma,
sem börn í þéttbýli eru í skóla,
og börnin hafa eftir því sem
ætia má viljað veita þá aðstoð.
Það hefur valdið nokkru um það
að skólahald hefur verið
styttra fyrir börn í sveitum en í
þéttbýli. I grein þessari verður
rætt nokkuð um það hvað er
heppileg skólastærð og skóla-
tími.
Sveitaíólk og fulltrúar þess
hafa undanfarin &r látið skóla-
mál til sín taka í vaxandi mæli,
og á ég þá við mál barna- og
unglingaskóla. 1 mörgum byggð-
arlögum hefur verið komið upp
myndarlegum skólabyggingum
með rausnarlegu framlagi úr rik
issjóði og hreppssjóði eða
hreppssjóðum. Sveitafólk hefur
viljað að sveitabömin hlytu
ebki lakari skólagöngu en tíðk-
ast meðal frændfólks þess í þétt
býli. Forystan hefur verið í þétt
býlinu, og þar hefur fyrst orðið
það sem menin hafa talið horfa
til framfara í skólamálum, en
sveitirnar hafa komið á eftir
fyrr eða síðar.
Hvað hefur svo fólki, hvort
sem er í þéttbýli eða sveitum,
gengið til með þeim mikla áhuga
sem það hefur sýnt á skólamál-
um og þá helzt eins og hann
hefur komið fram í byggingu
skóla? Auðvitað hafa menn ver-
ið að sækjast eftir þeirri mennt-
un sem alltaf hefur verið yfir-
lýstur tilgangur skólahalds. Svo
kemur til og þá fyrst og fremst
í Reykjavík og stærri stöðum
hér á landi eins og í öðrum lönd
um með líka framleiðsluhætti, að
það þarf að koma börnunum fyr
ir einhvers staðar meðan þau
eru börn. Börnin í Reykjavík,
svo ég taki dæmi, hafa bókstaf-
lega misst bæinn sinn eins og
hann var fyrir stríð í hendur
eða öllu heldur undir hjól 30
þúsund bíla, en það er ekki
fjarri þvi að vera bíll á barn.
Hef ég þá ekki fyrst og fremst
í huga umferðarhættuna, held-
ur það að börnin hafa tapað yf-
irráðum yfir götunum og
athafnafreisi sinu þar, en göt-
urnar voru leiksvæði þeirra.
Svo hafa skipulagsglaðir full-
orðnir íbúar bæjarins þrifið
burtu óregluleg svæði, eins og
þau væru lýti. Ég nefni það sem
ég þekki bezt, Klambratúnið og
nágrenni, en það var sældarreit-
ur barna í allri sinni fjöl-
breytni, en á nú að vera augna-
yndi fullorðinna í frítíma þeirra.
Auk þess sem leikjum er ekki
ætlaður neinn staður I eðlileg-
um tengslum við samastað barn-
anna, heimilin er atvinnu
flestra nú þannig háttað, að þar
eru börn og unglingar vanda-
mál, en áður voru þau liðsafli,
sem þörf var fyrir. Loks er víða
lítið athvarf fyrir þau heima,
þar sem enginn er heima á dag-
inn 5 daga vikunnar. Allt þetta
veldur því að það sýnist vera
nærri réttu lagi að segja með
helzta unglingafræðingi Norð-
manna, að fólk ætti helzt að fæð
ast fullorðið. En einhvers staðar
verða börnin að bíða (þangað
til þau verða fuilorðin). Skólarn
ir eru hentugir til að leysa þessi
vandræði nokkuð og þvi hent-
ugri sem skólinn stendur leng-
ur. Enda er það trúlega ekki
fjarri hugmyndum margra ungl-
inga og stálpaðra barna að
skoða skólann sem hæli, þar sem
þeim er komið fyrir. Væntan-
lega gildir það sem ég segi um
skólann sem hæli og gæzlustöð
helzt í þéttbýli og síður eða ekki
í sveitum, þar sem flesta tima
árs er nokkurt lið í börnum og
unglingúm og suma tíma mikið,
en þau börn sjaldfundin, sem
sækja meira eftir þroska sam-
kvæmt framlengdri stundaskrá
skólans en þeirri viðbótarmennt
un, sem vinnan veitir.
Margir Islendingar hafa sýnt
fram á það hvað langt skólaár
barna og unglinga er ekki síður
hælisvist en menntun með því að
ná þeim námsárangri, sem þarf
fyrir framhaldsskóla með marg-
falt styttri skólagöngu en verð-
ur i löndum þar sem hælisþörf
in er miklu meiri en verið hef-
Vandaður, bráðfallegur
og öruggur
KP5
COMBINETTE
270 lítra
Kæli- og frystiskápur
Efri skápurinn er 60 iítra
frystiskápur. Hann uppfyll-
ir settar kröfur um fryst-
ingu á ferskum matvælum.
Neðri skápurinn er 210 I.
kæliskápur me3 alsjálf-
virkri afhrímingu.
Skápinn er mjög auðvelt
að þrífa. Stál brennt og
lakkað að utan, ABS plast
að innan. Allar hillur og
skúffur lausar. Fallegir litir
og skápurinn er vitaskuld
á hjólum.
Mál: 60 cm breiður, 65,5
cm mesta dýpt, 138 cm
hæð.
Þetta er norsk framleiðsla
eins og hún gerist bezt.
Einar Farestveit & Co. Hf
Raftækjaverzlun
Bergstaðastr. 10A Sími 16995
ur hér. Menn gera ef til vill
elkki miikið með slííoa reymsl'u,
enda erfitt að skjalfesta hana og
komast áfram á henni í nútima-
legu skilríkja- og skjalalandi.
Þó benda í sömu átt athuganir
á þvi hvernig skólatími nýtist til
náms, þar sem hann er orðinn
langur. Það reynist vera furðu
UtiM hluti skólatímans sem nýt-
ist til þess náms og þeirrar
kennslu, sem er yfirlýst
viðfanysefni skólanna.
Þriðja hlutverk skólanna er
hlutverk, sem varðað hefur stöð
ugt fleiri beint síðustu árin og
áratugina og á trúlega mestan
þátt i áhuga forystuliðs sveita-
fólksins á bættu skólaskipulagi.
Við skólagöngu hljóta menn
þau skilriki, sem krafizt er í
landinu til þess að veitast ýms-
ar stöður og störf, og einmitt
þau störf, sem fylgir betri efna-
hagur en skilrikjalausu störfun-
um. Þau skilriki, sem eru þann-
ig ávisun á góð efni, hljóta menn
að vísu ekki fyrr en í framhalds-
skólum, en mér segir hugur að
forystulið sveitafólksins telji
tryggara að haga skólahaldi
í sveitum líkt og gerist í fjöl-
menninu, þar sem það auðveldi
börnum þeirra aðgang að skil-
ríkjaskólunum.
Það má þvi til með að athuga
hvað er góður skóli. Þegar börn
byrja í skóla, hafa þau lært að
nota líkama sinn, þau hafa lært
að beita máiinu og ráða við til-
finningar sínar. Þau hafa lært
að reiða sig á sig sjálf og hafa
hlotið lof fyrir að eiga frum-
kvæði að því að læra meira. Oft
eru höfð á þessu endaskipti í
skólum. Þá mæla aðrir fyrir
hvað þau skuli læra, hvenær
þau skuli læra það (svo til upp
á mínútu), hvar og hvernig, og
þau venjast á að verða öðrum
háð um menntun sína. Þau fá
að vita það, að það, sem er ein-
hvers virði, er það, sem er kennt,
og sömuleiðis, að ef eitthvað
skiptir máli, þá verði einhver til
þess kvaddur að kenna þeim
það. Svona hafa þessi enda
skipti á þroskaskilyrðunum ver-
ið orðuð af öðrum en mér. Hver
er svo útkoman?
Það er ekki einleikið, hvað
margir kennarar telja það miklu
ánægjulegra að kenna börnum
fyrstu skólaárin en árin, þegar
þau fara að nálgast fermingu.
Bendir það ekki til þess, að þá
sé búið að kæfa með þeim heil-
brigða þroskaviðleitni, þá
þroskaviðleitni, sem fékk að
njóta sín í bernsku án reglu-
gerða um það, hvaða framför
manni ber að taka samkvæmt
staðfestri stundaskrá? Marg-
ir þekkja þennan mun að vera
barn þar sem þroskalöngunin
rekur barnið til að biðja um að
fá að spreyta sig á einhverju,
sem er í fullorðna lífinu eða þar
sem stundaskráin og kennarinn
svo að segja fyrirskipa hverja
framför og banna eigin leiðir til
þroska. Þess vegna nýtist tím-
inn svo miklu betur þar sem hug
urinn er á undan verkefninu, og
þá dugar tæplega og jafnvel
spillir fyrir að lenigja skóladag
og skólaár, ef það verður gert
þannig að hugurinn verður ekki
einu sinni á eftir verkefninu,
heldur langt í burtu.
Hér er um það að ræða að
námið miðast við kennarann, og
raunar er verið að gera kenn-
urum rangt til með þvi að segja
að svo sé, þar sem þeirra vinna
er samkvæmt fyrirmælum, reglu
gerð og stundaskrá. í venjulegri
bekkjarkennslu eiga börnin að
ganga í takt eins og kennarinn
ákveður. Það eru þó til aðrar að
ferðir þar sem kennarinn á ekki
kost á að láta bömin ganga i
takt. Þá er sami kennari látinn
hafa á sama tíma börn á ýmsum
aldri og með misjafna greind.
Við slík skilyrði þegar aldur og
hæfileikar eru misjafnir tekur
kennarinn frekar til þess bragðs
að treysta á þann styrk til náms,
sem á upptök sín í nemendun-
um: áhuga, sjálfræði, forvitni og
rannsóknarhneigð, þrek og þol-
inmæði. Allt þetta er venjulega
svo ríkt í eðlilegu barni að það
eru beinlínis mannréttindi hvers
nemanda að vera laus við kenn-
arann öðru hvérju, en það verð-
ur hann þegar hver kennari hef
ur fá börn úr hverjum árgangi
eins og hér er talað um og þarf
að skipta sér á árgangana.
Annað, sem léttir námið, þegar
kennt er blöniduðum alduirs- og
greindarflokkum, er, að kennar-
inn og börnin hafa fyrir sér eðli
legan þroskamun í bekkjunum,
en það sýnir börnunum, hvað
það er eðlilegt að leita aðstoðar
og hvetur þau til náms og léttir
það að hafa stöðugt fyrir augun
um félaga við nám, sem eru ann-
að hvort & þeirri braut, sem þau
eiga að fara eða hafa farið. 1
Bandaríkjunum þar sem eru
nokkur samtök um slika kennslu
hætti, komast menn svo að orði,
að börnin læri á mismuninum í
flokknum. Þetta er auðvitað
ekki framandi sveitafólki og
fólki, sem hefur alizt upp í sveit
og margt hefur gengið i fá-
menna skóla, þar sem kennar-
inn gat ekki annað en blandað
börnum á ýmsum aldri og ýmsu
námsstigi saman, en það sem hér
er nýtt er sú kenning að skóla-
hverfum sem hafa svo mörg böm
að þar mætti hafa venjulega ald
ursskiptingu i bekki, skuli skipt
í þannig blandaða flokka til að
bæta námið. Auðvitað fylgja
þessu að mörgu leyti aðrir
kennsluhættir en í samstæð-
um bekkjum.
Enn einn kostur kannast
menn við að fylgir slíkum blönd
uðum bekkjum eða námsflokkum
barna. I þeim er verulega minni
hætta en í bekkjum stöðluðum
eftir aldri að nokkur nemandi
verði alltaf lakastur í hópi fé-
laga sinna eða að annar verði
alltaf beztur. Hvorugt er heppi-
legt uppeldi.
Ég geri ráð fyrir þvi að for-
ystulið sveitanna muni áfram
vinna að þvi að sveitabörn geti
aflað sér með skólagöngu sömu
skilríkja til lífsgæða og forystu-
lið þéttbýlisinis aflar sínum börn
um. Með þessari grein minni
vildi ég sýna fram á að þetta
næst ekki endilega og ef til vill
atls ekki með yfirborðsjöfnuði
eins og lengd skótaárs og skóla-
tíma yfirleitt, þar sem atvinnu-
hættir og félagshættir í sveitum
bjóða upp á aðra kosti til náms,
og þá kosti ber að nýta, frek-
ar en koma á slikum yfirborðs-
jöfnuði sem kann að vera mesti
ójöfnuður. Það vill svo vel til
að i þessu sýnist geta íarið nokk
uð saman námsþarfirnar, vinnu-
þörf sveitaheimilanna og vinnu-
löngun barnanna og jafnvægi
milli dvalar barna í heimahús-
um og fjarvistar þaðan í skól-
um. Kennsluhættina þarf að
miða við það.
EFTIRMÁLI
Ég skal kannast við það að þá
Framh. á bls. 15
Hausttízkan 1972
HÖFUM ÞEGAR TEKIÐ
FRAM ÚRVAL AF
VETRARFATNAÐI, SVO SEM:
ULLARKÁPUR
(meÖ og án skinna)
SPORT JAKKA
ÚLPUR
STUTTKÁPUR
FRAKKA
NYLONPELSA og
BUXN ADRAGTIR
«
NYJAR VORUR
í HVERRI VIKU
þernhard lax<|al
KIÖRGARÐ!
Smurstöðin Hruunbæ uuglýsir
Smyrjum bíla allan daginn og gerutn við hjólbarða.
Hjólburðuviðgerðir!
Hraunbæ 102, sími 85130.