Morgunblaðið - 24.08.1972, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 24.08.1972, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 1972 í frjálsu riki eftir V S. Naipaul að þykja vænt una vélina, sem ég stjórna, mér finnst gaman að sjá vindtingana koma út úr henni í langri ræmu, svo langri að hægt er að sippa með henni. Mér datt aldrei í hug, að vinna gæti verið svona, að mér þætti öryggi i þvi að vita verk- smiðjuna alltaf á sínum stað og ég geti farið tii vinnu þangaö á hverjum morgni. Á fös'tudögum fáum við 100 vindlinga ókeypis. Á þessum vindlingum er sérstakt vafcns- merki en sumum náungunum frá Pakistan finnst þetta ekki nóg og þeir stela til viðbótar. Einn þeirra hvitu ætlar einu sinni að ganga út eins og kúreki á háum hælum. Þegar þeir stöðva hann og fara að leita kemur í Ijós að skómir hans eru troðfulir af tóbaki. Slíkt gerist öðru hverju. Verksmiðjan er eins og skóli, sem manni fellur ekki fyrst í stað en fer svo að Mka betur. Enginn atast í manni og pen- ingana fær maður í brúnu um- slagi eins og opinber embættis- maður. Eða mennitamaður. Föst vinna, fast kaup. Eftir nokkra mánuði er ég búinn að borga skuldirnar við lánardrottnana heima og svo fer ég að laggja upp fyrir sjálfan mig. Ég geymi peninigana ekki heima eins og faðir minn þessi fáu sent sin. Þeir fara beint á pósthúsið. Ég á mína eigin sparisjóðsbók. Og einn daginn er ég búinn að safna 100 pundum. Ég á þessa peninga. Þeir eru ekki lánsfé. 100 pund. Ég fylist ösryggis- kennd. Ég get ekki lýst því, hve mér finnst ég öruggur. Þegar ég hugsa til þessa, loka ég augun- um og legg höndina á hjartastað. En gleðin er falvölt. Ég gleymi of mörgu. 100 pundin gera það að ég gleymi sjálfum mér. Ég fæ alls konar fllugur. Ég gleymi því, hvers vegna ég er í London. Nú nægir mér ekki leng ur öryggiskenndin. Ég vil fara að ávaxta féð. Ég vil láta starfs fólkið í pósthúsinu skriía í bók- ina mínia i hverri viku. Þetta verður árátta mín. Ég veit, að þetta er tóm vitleysa og ég segi Dayo ekki frá því. Um leið nýt ég þess að eiga þetta leyndar- mál. Og ég fæ mér aðra vinnu til viðbófcar, aðeins vegna þess hve ég nýt þess að vita upp- hæðina vaxa. Ég svipast um og fæ kvöldvinnu við uppþvott á veitinigahúsi. Ég hleð á mig vinnu svo frí- stundir verða engar. Ég fer á fætur klukkan sex. Klukkan sjö fer ég í verksmiðjuna. Dayo sef ur þá enn. Ég kem aftur í kjall- arann ktukkan sex. Stundum er Dayo þar og sfcundum ekki. Klukkan átta fer ég að vinna á veitingahúsinu og kem aftur um eða eftir miðnætti. Fyrir mér er London ekkert nema strætis- vagnaferðir, kvölds og morg- uns og á næturnar, verksmiðj- an, veitingahúsið, kjallarinn. Ég veit að þetta er mér um megn, en i því felst líka ánægja. Þessu má líkja við mann, sem veikist og horast niður. Þá langar hann til að verða enn horaðri, aðeins til að vita, hversu horaður hann getur orðið. Eða eins og feitir menn. Þeir vilja ekki vera feit- ir en vilja líka vita, hversu feit- ir þeir geta orðið. Þeir eru allt- af að horfa á sfcuggamn af sér og það er þeirra laumuspil. Svo nú er ég alltaf þreyttur, þegar ég fer að sofa og þreyttur á morgnana en ég nýt þreytunnar. Það er minn leyndardómur, al- veg eins og peningarnir, sem safnast, 50—60 pund á viku. Og þreytan hverfur alltaf um miðj- an morgun. Mér finnst Dayo muni stríða mér, ef hann vissi, hvað upptek ur huga minn. Hann segir ekk- ert, en ég veit að honum er ekk ert um það, að bróðir hans vinni í veitingahússeldhúsi, þar sem hann er við nám í London. En mánuðir líða, árið líður og ann að ár, kraftarnir endast og pen- ingarnir hrúgast upp og ég finn að þeir auka mér styrlc. Og þess vegna held ég út. Mér er sama, hvað fólk segir og hvern ig það horfir á mig. Ég hataði févana og ég lét mig dreyma um að kaupa ný föt handa Dayo og líka handa mér. En nú er mér sama um föt og mér finnst jafn- vel fróun í þvi að hugsa til þess, að fólk sem sér mig í vinnufötunum á götunum og koma upp úr kjallaranum, mundi ekki trúa þvi að ég ætti 1000 pund, að ég ætti 1200 pund, ætti 1500. Ég trúi því varla sjálfur. Líf- ið í London. Jú, fóik heima sagði, að það væri gott. Ég leit aði það ekki uppi. En nú finnst mér það hafa komið til min. Ég óttaðist það eitt, að kraftar mín- ir entust ekki, að Dayo mundi Ijúka náminu og yfirgefa mig i kjallaranum og lífið mundi taka enda. Það er satt. Þetta voru góðir tímar, þegar Dayo var hjá mér í kjallaranum og ég vann eins og hestur, þegar ég giat farið í verksimiðjuna á hverj- um morgni og í veitingahúsið á kvöldin; þegar - ég gat notið sunnudagsins betur en nokkru sinni fyrr. Stundum verður mér hugsað til fyrsta dagsins og mannanna í gulu olíufötunum og djúpa græna sjávarins. En allt það er nú eins og endur- minning úr öðru lífi, eitthvað sem ég hef ímyndað mér. Geðbilun. Hvernig getur nokkur maður látið gabbast á þennan hátt? Sjáið þið göturn- ar núna? Sjáið þið umhverfið og fólklð, sem ég sá aldrei? Þetta fólk á líka sitt líf. Það á þessa borg. Ég veit ekki, hvar ég hélt að ég væri. Ég hef hagað mér eins og þetta væri draugaborg, þar sem allt gengi sjáifkrafa og í þýðingu Huldu Valtýsdóttiu*. væri bara minn eigin hugar- burður. Frank getur aldrei skil ið þetta. Hann sér aldrei þessa borg eins og ég sé hana. Hann mun aldrei skilja hvers vegna ég vinn svona myrkanna á milli. Hann er að spyrja mig um verkstjóra, sem koma illa fram við mig í verksmiðjunni og fólk, sem ég á í útistöðum við í veit- ingahúsinu. Hann er alltaf að staglast á misrétti, sem ráði ríkj um. Hamn er vinur minn, eini vinurinn, sem ég á. Ég einn veit, hversu mikils virði hann er mér, og það er honum að þakka að ég kemst til sjálfs min. En hann er alltaf að jag- ast i mér. Hann viffl, að ég sé minni máttar. Það er eins og hann sé alltaf að grafa gröf handa mér að detta í. Honum er það mikið í mun að ýta mér fram af og ofan i myrkrið. 1 veitingahúsinu, á biðstöð inni og i strætisvagninum læt- ur hann svona: gáið að ykkur, þessi maður er veikur, þessi mað ur er undir mínum verndar- væng. Þegar hann lætur svona tekst honum að draga allan mátt úr mér. Hann í gljáfægðu skón- um og fallega tvíd-jakkanum. Eins og ég hafi ekki einu sinni getað farið inn í búð og keypt tuttugu tvíd-jakka og borgað út í hönd. En nú eru peningarnir uppurnir og öllu lokið og ég á bara þessi föt og það er ólykt af þeim. Það er ólykt af öllu hér. Heima. Heima eru glugg- arnir opnaðir og alít verður hreint í fersku loftinu. Hér er aiit innilokað. Hér er ekki einu sinni gustur í strætisvögnunum. Einhvers staðar í þessari ELDHUS- innréttingar Fallegar.vandaðar ÓDÝRAR Sýningareldhús á staðnum. Húsgagnaverkstæbi ÞÓftS INGÓLFSSONAR SÚÐAVOGI 44 SÍMI 31360 (gengið inn fra Kaenuvogi)_ velvakandi Velvakandi rakst á þessar vísur í íslendingi-lsafold ný- lega og ækur sér það bessa- ieyfi að birta þær hér: Við mannfræðirannsóknir mikið er fengizt i dag. Það er mældur hver líkamans hluti með aðferðum réttum. Og námfúsir ráðherrar nýta sér allt slíkt í hag, því nú skal það spyrjast, sem áður var hvergi í fréttum. Þeir Magnús og Halldór E. missa ekki á hlutunum tök, þó Moggalýðurinn haldi uppi gagnrýnisskvaldri. Þeir hafa nú sannað, að fólk með hin breiðustu bök eru blásnauðar kerlingar hátt upp á níræðisaldri. 25.7. ‘72. — b.b. • Styð ykkur í landhelgismálinu Hér birtist bréf frá enskum ferðamanni: „Ágætu Islendingar. Sem Englendingi i leyfi í landi ykkar, finnst mér ég ekki geta yfirgefið það án þess að segja nokkur þakfcarorð. Ég óska ykkur til hamingju með menningu ykkar, góða mennt- TIZKUSYNINGAB AÐ HOTEL LOFTLEIÐUM ALLA FÖSTUDAGA KL. 12:30—13:00. Hinir vinsælu íslenzku hádegisréttir verða enn Ijuf- fengari, þegar gestir eiga þess kost að sjá tizku- sýningar, sem islenzkur Heimilisiðnaður, Módel- samtökin og Rammagerðin halda alla föstudaga, til þess að kynna sérstæða skartgripi og nýjustu gerðir tatnaðar, sem unninn er úr islenzkum ullar- og skinnavörum. : f u 3 O - un og hversu hreimt landið er. Sérhver gestur verður að fara í fallegu, hreinu, upphit- uðu sundlaugina ykkar í Reykjavík. Höfuðborg ykkar getur státað sig af þvi að vera laus við reyk og nýtízkuleg hús ykkar með fullkomnum tækjum og eldhúsum verður að sjá til að trúa. Litirnir á fagur lega máluðum húsum ykkar eru eins og í ævintýri, hvar sem er í hinni stórkostlegu höf- uðbörg ykkar og nágrenni hennar. Þið eigið mjög nútimaleg hót el, dásamlegar handgerðar ull- arflkur og afar skemmitilega höfn í Reykjavík. Ferð til Þingvalla gleymist aldrei, né heldur litbrigði fjall- anna, kristaltærir fossar, villt ber, snævi þaktir tindar hæstu fjallanna, skíðabrekkur, hraun mýndanir, islenzku hestarnir Ueizlumntur Smúrt brauð og Snittur SÍLD 8 FISKUR laxárnar, sauðféð; —jafnvel má sjá inn til jökla úr ná- grenni höfuðborgarinnar! Auk alls þessa er loftið hreint og tært. Hægt er að ferðast án þrengsla á ánægjulegan hátt við þægilegt hlfcastig. Þetta er vissuilega iiand, sem nægt er að láta sér líða vel í. Ég hef tekið eftir, að þið reynið mjög að bæta ástand vega ykkar, en þáð hiýtur að vera mjög kostnaðarsamt. Ég er samt viss um að þið sjáið hlutina i réttu ljósi og látið húsin og lífsskilyrðin réttilega skipa fyrsta sæti. Gott er að sjá, hve margir byg'gja eigin hús sjálfir og hjáipa hverjiir öðrum. Þetta er framtak. Landar ykkar hafa ávallt verið reiðubúnir til að visá mér til vegar og segja mér frá landi ykkar og fyriir það er ég þakk látur. Þótt ég sé enginn sérfræðing ur um stjórnmál, vil ég minn- ast á landhelgisdeiluna. Ég get ekki lagt nógu mikla áherzlu á persónulegar skoðanir mínar í því máli og hversu mikilvægt það hlýtur að vera fyrir efna- bagslííf ykkar, að þið öðlizt 50 mílna landhelgi, eins og þið eig ið skilið, þar sem um 80% efna hagslífsins byggist á fiskiðnað- inum. Hvað sem öllum stjórn- málum líður, væri það aðeins heilbrigð skynsemi hjá öðrum þjóðum að viðurkenna þessa landhelgi. Svo einfalt er það mál. Gangi ykkur vel og þökfc fyrir. Kveðjur. Samver Frederieh Bird, Nailsea, Sonierset, England."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.