Morgunblaðið - 07.10.1972, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.10.1972, Blaðsíða 2
I 2 MORGUNiRLAÐIÐ, LAUGARDAGU'R 7. OKTÓBER 1972 Fundi skilanefndar handritanna lokið — fréttatilkynning gefin út samtímis í Kaupmannahöfn og Reykjavík SKILANEFND handritanna i Kanpmannaliöfn lauk öðrum fundi sínum í gær í Reykjavík Off að söffn Jónasar Kristjánsson ar, forstöðumanns Handrita- stofnunar fslands, sem er annar fslendinganna í nefndinni, var gott samkomulag á fundinum, og kvaðst Jónas sæmilega ánægð ur með árangurinn af fundin- urn. Samkomulag varð um að fréttatilkynningin um fundinn eftir helgi skyldi birt samtímis i Kaup- mannahöfn og Reykjavík og er nánari frétta af fundinum því að vænta strax eftir helgi. Á fyrsta fundi nefndarinnar, sem haldinn var i Danmörku í sumar, var aðallega rætt um fyrirkomu lag viðræðnanna og ýmislegt varðandi afhendingu handrit- anna, en á þessum öðrum fundi nefndarinnar var byrjað að ræða um sjálf handritin og skiptingu þeirra. Geysiharður árekstur Tveir menn slösuðust GEYSIHARÐUR árekstur varð milll tveggja fólksbifreiða á Bú- staðavegi um kl. 7.30 í gærmorg- un, og slösuðust ökumenn beggja bifreiðanna og þær eru stórskemmdar. Bifreiðarnar voru að mætast innarlega á Búistaðaveginum, rétt austan við Bústaðakirkju, en þar er gatan í mjórra lagi og virðist sem öðrum bilnum hafi verið ekið eitthvað yfir miðlíniu Igötunnar. Lentu bílarnir saman með vinstri framhomiin og var áreksturinn svo harður, að vélar- hús beggja bifreiðanna gengiu- mjöig saman og bifreiðarnar köstuðust aðeins stutt frá hvor annarri. Öfeumennimir slösuðust báðir, annar hlaut höfuðmeiðsli, en hinn slasaðist mun meira, brotnaði á báðum fótum og öðr- um handlegg og hlaut auk þess fleiri meiðsli. í fyrrakvöld varð minniháttar umferðaróhapp á Bústaðavegi, við gangbraiutarljósin, sem þar eru, er barn varð fyrir bifreið, en hlaut lítil meiðsli. Um kl. 21 í fyrrakvöld varð sextugur mað- ur fyrir bifreið í Kirkjustræti og meiddist á fótum. Slæmt skyggni var og kvaðst ökumaður bifreið- Upplestur í Vestmannaeyjum HÖSKULDUR Skagfjörð, leikari, mun í vetur ferðast um Suður- land og lesa upp úr verkum ís- lenzkra sikálda og rithöfunda. Fyrsti upplestuirinn verður í Bæjarleikhusinu í Vestmanna- eyjum kl. 17 á sunnudag, og mun Höskuldur lesa úr verkum þeirra Davíðs Stefánssonar, Stefáns frá Hvítadal, Steins Steinars, Tómas- ar Guðmundssonar, Jóhanns Sig- urjónssonar og Einars Kristjáns- sonar frá Hermundarfelli. arinnar ekki hafa séð manninn, fyrr en bifreiðin lenti á honum. Undanfarna daga hefnr Hvahir 9 verið í slipp, þar sem gerðar eru ýmsar Iagfæringar á skipinu, áðnr en það fer í landhelgisgæzlustöf. Hefur skipið nú verið málað grátt, eins og sést á þessari mynd. (Ljósm. Mbl. Kr. Ben.) Öll tryggingarfélögin veita viðbótartryggingu við slysatryggingu sjómanna MORGUNBLAÐINU hefur bor- izt athugasemd frá Brunabótafé- lagi íslands við frétt þá, sem birtist í blaðinu í gær um að bráðabirgðalausn hefði fengizt á tryggingamáhim útgerðarinnar með tilboði frá B. f. f frétt þeirri var sagt, að iðgjald tryggingar, sem veitti allt að 2 millj. króna bætnr við dauða eða 100% ör- orku, væri 2.200 krónur. Kom þessi tala fram í fréttatilkynn- ingu frá ríkisstjórninni, en í at- hugasemd B. f. segir, að taian komi hvergi fram í tillögnm fé- lagsins og samanburður byggður á henni sé alrangur. Hið rétta er, að sú lausn hefur verið valin á trygginigamálum útgerðarinnar til bráðabirgða, að Brunabótafélaigið og önniur trygg ingafélög veiti útgerðarmönn- um viðbótarslysatrygginigar fyr- ir skipverja á fiskiskipium og togunum, þar sem iðgjöld eru samikvæmt gjaldskrá félaganna, breytileg eftir starfi um borð, stærð skipa og notkun. Geta út- gerðarmenn því skipt við hvert það tryiggingaíélag, sem þeir sjálfir óska, og eru ekki á neinn hátt bundnir við að tryggja fremur hjá B. í. en öðrum félög- um. Skýrir athugasemd B. í. þetta frekar, og fer hún hér á eftir: „í tilefni af frétt í blaði yðar 6. þ. m. varðandi þátt Bruna- bótafélags fslands í að leysa tryggingaþörf útvegsins, hefur slæðzt sú meinlega villa, að um- rædd trygging koisti 2.200,00 kr. á mánuði. Hið rétta er, að þessi tala kem- ur hvergi fram í tillögum félags- ins, og þvi samanburður, sem byggður er á þessari tölu, með öllu rangur. Tilboð félagsins var fyrst og fremst um að leysa trygginga- þörfina með einni sameiginlegri hópslysatryggingu, er gæti tekið gildi strax og gilti fyrir al'la sjó- menn umdantekningarlaust með- an þeir vasru skráðir á íslenzk skip. Hins vegar að Bnumabóta- félagið hefði tekið og myndi geta tekið vliðbótarslysatryggingar, en iðgjöld eru samfcvæmt gjald- skrá íslenzku tryggingafélag- anna breytileg eftir starfi uim borð, sitærð skipa og notkiun. Síðari lauisnin var valin. Iðgjöld fyrtr slysatryggiragni, er bæti 2.000.000,00 kr. við dauða eða 100% varanlega örorbu, eru sem hér segir fyrir hvern mániuð. Fiskibátar yfir 75 tonn Yfirmenn iðgj. 1 mán. 992,00 kr. Hásetar iðgj. 1 mán. 1.126,00 kr. Fiskibátar undir 75 tonn Öll áhöfnin iðgjöld 1 mán. 1.258,00 kr. Togarar Yfirmenn iðgj. 1 mán. 1.358,00 kr. Hásetar iðgj. 1 mán. 1.542,00 kr. Brunabótafélag íslands.“ BÚR hækkar slysa- tryggingu skipverja — á togurum sínum um 2 millj. tJTGERÐARRAÐ Bæjarútgerð- ar Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í gær að láta tryggja skipverja á togurum BÚR til bráðabirgða á þann hátt, sem tryggingarfélögin hafa gef- ið útgerðaraðilum kost á vegna hluta af þeirri ábyrgð, sem hin nýju lög um slysatryggingu sjó- manna kveða á um. Hin nýjn lög voru eina efnið, sem tekið var fyrir á fundinum, og fóru miklar umræður fram um mál- Rune Gerhardsen: NATO og EBE óskyld mál RUNE Gerhardsen hagfræð- ingur, flutti sl. fimmtudags- kvöld erindi á vegum ungra sjálfstæðismanna um þjóðar- atkvæðagreiðsluna í Noregi um aðild landsins að Efna- hagsbandalaginu. Ræddi hann þar um aðdragandann að kosningunum, lýsti rökum þeim, sem beitt var af hálfu beggja aðila í kosningunum og ræddi síðan um þær ástæður, er hann taldi, að legið hefðu til grundvallar ákvörðun , eirihluta norsku þjóðarinnar. Gerhardsen ialdi, að ekki væri hæu' að draa • neinar ályktanir af kosningunum um aukinn styrk sósialismans í Noregi. All Jir flokkar hefðu klofnað meira og minna, og öll æskulýðssamtök flokkianina nema hægri flokksii'ns og samtök Maóista hefðu ver- ið aðilar að hreyfingunni gegn aðild Noiregs að EBE. — Taldi hanm, að skipting eftir flokkum hefði verið eitthvað á þá leið, að á móti aðild hefðu ver ið um 90% kjósenda Miðiflokks- inis, Sósialiska þjóðarfloikksms og kommúnista, um 40% af fylgi Kristilega flokksinis og Vins-tri flokksins em 90% kjösenda hægri flokksins hefðu verið fylgjandi aðild. Þá takii hanm, að 40% kjósenda Verkaimamnaflokksins hefðu verið með, svipaður fjöldi .á móti, en 20% hefðu setið heima. Gerhardsen sagði, að ekki væri hægt að draga neirsar á- lyktanir um situðmmg Norð- manna við NATO af úrslitumim. A'ndstæðlingar aðildarinmiair heifðu halidið þessum 'málum gjörsam- lega aðskildum, og þeir væru teljandi, sem hefðu breytt af- stöðu sinni til NATO vegna þess arar k osn in g'a h,rí ðar. Meiriihluti norsfcu þjóðarinnar væri með aðild lamdsins að NATO. Gerhardsen sagði, að úrslitin hefðu hins vegar sýnt, að kjöm- ir fullitrúar fólksims væru ekki í nægjanlegum tengsil'um við það, sérsitak'lega ætti þetta við Verka mianmaflokkinn, og sagðd harnm, að gera þyrfti mikið átak til að skapa að nýju tengsl milli flokks og kjósendia. Rune Gerhardsen er maður gramnvaxinn, kvikur I hreyfing- um og frjálslegur í klæðaburði. Hárið er ljóst og ekki smöggt sfcorið. Hamm er ræðumaður góð- ur og í aiila sfcaði góður fuMtrúi þjóðar sinmar. ið, en að þeim loknum kom fram tillaga, sem var samþykkt sam- hijóða, og er hún svohljóðandi: „Lög þessi gem ábyrgð útgerð armamna og útgerðarfélaga á skipverjum og öðrum mönmum, sem ráðnir eru hjá útgerðar- mamni í þágu skips, miklu meiri og víðtækari en verið hefur. Kemur þetita m.a. fram í því að miða bætur við aldur og það hve margir eru á fraimfæri þess, sem fyrir slysi verður. Eru bæturn- ar svo víðtækiar, að ekkert vá- tryggimgafélag hefur fengizt til þess að takast á hendur hina aukrnu ábyrgð samkv. lögumum. Nú hafa váitryg'gingafélögin gefið útgerðaraðilum kost á því að taka á sig hluita af þeirri á- byrgð, sem lögim kveða á um, með ákveðimmi iðgjaldagreiðslu fyrir hækkun bóta- og siysa- tryggimigum hvers manns um tvær milljónir króna tií viðbót- ar fyrri trygginigum. Er þessi lausn gerð til bráða- birgða. Fengizt hefur fyrirheit um emdurskoðun fyrrgreindra laga í þvi skyni að sníiðla af þeim agnúa þá, siem komið hafa í Ijós. Þrátt fyrir það, að ábyrgð þessi, sem nú er kostur á, hafi í för með sér aukin útgjöld sem nema um fimim hundruð þúsumd kr. á hvern togara á ári vegna hæfck- umar iðgjaida, samþykkir útgerð- arráð að fela framkvæmda- stjórunum að tryggja skipverja á togurum B.U.R. til bráðabirgða á framamgreindam hátt, i trausti þess, að þegar samið verður um starfsgrumdvöll togaraútgerðEir- inmar fyrir komiandi ár milli fuiM- trúa L.l.Ú. og ríkisstjórnarinm- ar, verði tekið fufflt tilllt til þeirra aukmi útgjalda, sem hækkun iðgjaldanna hefur í för með sér.“ Athugasemd frá Al- þýðublaðsútgáfunni MORGUNBLAÐINU hefur bor izt eftirfarandi athugasemd frá Alþýðublaðsútgáfunni hf.: Vegna blaðaskrifa undanfama daga, þar á meðal í blaði yðar, vEl stjórn Alþýðúiblaðsútgáifiunn- ar hf. taka fram, að engin breyt- ing hefur verið gerð, eða er fyrir- huguð á stjónnmálalegri ritstjóm Alþýðuiblaðsins. Skrif blaðsins bera þessiu órækt vitni, svó að óiþarft ætti að vera að efna til deilna um þetta mál í blöðum eða á öðrum vettvangi. Jafnóþarft ætti að vera að taka fram, að stjórnmála- skrif blaðsins eru öldungis óháð því til hvaða lögmanns eða lög- manna hér í borginni stjórn fé- lagsins snýr sér varðandi lög- fræðileg málefni. Reykj avík, 6, október (1972 f.h. Alþýðiuibiaðóúbgáfufinar l\f. Benedikt Jónsson, framkvstj.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.