Morgunblaðið - 07.10.1972, Síða 30
30
MORGUNRLAOIÐ, LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1972
Vissir um sigur
Rætt við nokkra þeirra, sem verða
í eldlínunni um helgina
Nú um helgina íara fram fjór
ir leikir í Bikarkeppni KSl og
allar iíkur eru á þvi að þeir
verði ailir jafnir og skemmtileg-
ir og úrslit þeirra eru tvisýn.
Leikimir eru þessir: ÍBV — Vík
ingur, KR — iBK, FH — Hauk-
ar og Valur — lA, þrlr fyrst
töldu leikimiæ fara fram í dag,
só síðasti á morgun. Iþróttasið-
an hafði í gær samband við einn
leikmann úr hverju liði og innti
þá eftir sigurlíkum og fara orð
þeirra hér á eftir.
ÁSGEIR SIGI RVINSSON, ÍBV
— Við reynum náttúrulega að
vinna í dag, en það eru ailir leik
ir erfiðir og þá ekki sízt bikar-
leikimir. Ég þori ekki að lofa
siigri, en við stefnum að því að
sigra í bikarkeppni meistara-, 1.
og 2. flokks, þá íyrst erum við
ánægðir.
ífÍÍIÍí*
GUÐGEIR LEIFSSON, VÍKING
— Ég er svartsýnn á úrslitin
I dag, vegna þess að við erum
illa búnir unddr leikinn. Við er-
um enn þreyttir eftir ferðina til
Fóllands og höfum aðeins tekið
eina æfingu síðan við komum.
Ég vona að við náum jafntefli
i dag og vinnum Vestmannaey-
inga svo á heimavelli og það
er á hreinu að við ætlum að
halda bikarnum.
GfSLI GUÐLAUGSSON, for-
maður knattspyrnudeildar FH
— Ég þori ekki að lofa sigri,
en ég get lofað því að þetta verð
ur mikill baráttuleikur. Hvort
„betra“ liðið sigrar er ég ekki
viss um, því Haukarnir geta ver
ið grimmir. Leikurinn hefur
mikla þýðingu fyrir bæði liðin
og við ætlum okkur að komast
að minnsta kosti í undanúrslit-
in. Auk þess að vera í bikar-
keppninni, er leikurinn einnig
liður i knattspyrnumóti Hafnar
fjarðar og nú er í fyrsta skipti
keppt um bikar, sarh gefinn var
itil minningar um Gísla Hildi-
Ibrandsson.
HERMANN GUNNARSSON,
VAL
— Mér lízt mjög vel á leikinn
á morgun og fullviss um að við
vinnum. Valsliðið hefur misst
mikið af mönnum upp á sið-
kastið, sömuleiðis Akurnesing-
arnir, ég tel að varalið Vals sé
mun sterkara heldur en varalið
Skagamanna og því verði sigur-
inn okkar. Ég held að við eigum
ekki eins lélegan leik og á móti
Ármanni aftur i bráðina, en Ár-
menningarnir hafa alitaif reynzt
ökkur erfiðir.
GUNNAR GUNNARSSON,
þjálfari Hauka
— Leikurinn fer vel fyrir
Haukana og strákarnir hafa
aldrei verið eins ákveðnir i að
vinna nokkum leik. Við erum
heldur á uppleið, FH-ingamir
hafa hins vegar slakað á, eftir
að ljóst varð að þeir kæmust
ekki upp í 1. deild. Við ættum
að geta unnið FH, fyrst við unn
um Breiðablik. Strákamir vilja
hefna fyrir töpin i sumar og ég
held bara að við vinnuim, eigum
við að segja 2:1.
EINAR GUNNARSSON, ÍBK
— Ég er alveg klár á þvi að
við vinnum KR-ingana, ætli mað
ur spái ekki 3:1 fyrir okkur. Við
stefnum að sigri í bikamum, en
það er ágætis áfangi að komast
í 4-liða úrslitin. Við höfum ekki
náð sérstökum árangri i bikam
um áður, en nú verður breyting
á og við komumst ömgglega í
undanúrslitin.
MAGNÚS GUÐMUNDSSON,
KR
— Við reynum að vinna eins
og venjulega og ég er nokkurn
veginn viss um að við gerum
það. Ætli maður haldi ekki
hreinu og þá vinnur KR 2:0. Við
höfum æft vel að undanfömu
og erum harðákveðnir í að vinna
bikarinn.
KARL ÞÓRÐARSON, ÍA
— Það er ómögulegt að segja
hvemig þetta fer, leikurinn ætti
að verða jafn samkvæmt frammi
stöðu liðanna í siðustu leikjum.
Það er bezt að vera ekki að lofa
neinu, en gera þeim mun meira
þegar á hólminn er komið. Það
hefði verið betra að fá leikinn á
heimavelli, Valsaramir græða á
þvi að leika á Melavellinum, en
þeim veitir heldur ekkert af því.
íþróttir um
helgina
KNATTSPYRNA:
Bikarkeppni KSÍ, meistaraflokk-
ur. Laugardagur, Melavöllur kl.
15.00 KR — iBK.
Vestmannaeyjavöllur kl. 15.00
iBV —- Víkingur.
Hafnarfjarðarvöllur kl. 16.15.
FH — Haukar.
Sunnudagur, Melavöllur, kl. 14.00
Bikarkeppni 1. fl. Sunnudaguir
Valur — lA.
Akureyrarvöilur kl. 15.30
Þór — KR.
Vestmannaeyjavöllur kl. 15.00
ÍBV — Þróttur.
KÖRFUKNATTLEIKUR:
Bikarkeppni KKl, sunnudag
Iþróttahúsinu Seltjamamesi
KJ. 19.30, UMFS — IR (b).
Kl. 21.00, ÍS — KR (a).
Islandsmótið 1. fl. kl. 18.00
Vaiur — KR.
HANDKNATTLEIKUR:
Laugardalshöll, sunnudag kl.
19.30. Reykjavikurmótið meist-
araflokkur karla:
Fram — Fylkir,
IR — KR,
Ármann — Valur,
Víkingur — Þróttur.
GOLF:
Sunnudagur kl. 13.30. Bænda-
glíma GR og GN.
Mót GH og GS á golfvelli Hafn
firðinga.
Charlton settnr út
HINN firætgi kmaf)tsipynnugairp-
utr, Bobby Ghairlitom hefur verið
settur út úr liöli siimu Maneiheisit-
er Unáted, og mun ekki leika með
á móti West Ham í diaig. 1 hans
stað kemur inn i United liðið
hiinn firægi markakómgur Mc
Dountgiall, sem United keypti i
siíðusitú viku frá 3. deildar féllag
dnu Boumemiouitlh. McDounigalíl
var markakómigur enstou deilda-
keppninnar í fyrma og áirið þar
áðuir.
LEIÐRÉTTING
ER skýrt var fná valli un'gQimga-
landliðisins i biaðinu í gær var
einnig grein frá fararstjórn með
líi;ð;nu til Luxemiborigar. Fanar-
sitjórndn hefúr hins vegar ekkd
verið valin endanlega emn. Biðj-
um Við veivirðinigar á mfeitökúm-
uim.
Eins og komið hefur fram end urhefimtu Akureyringajr sæti sitt í 1. deild isilandsmóteins í knattspvmii, og töpiiðii þeir engum
leák í 2. doildarkoppninni í ár. Myndin var tekin norðnr á Akuroyri 'um siðnstn heigi er Akureyrúigamir tóku við sigurlauniim
fiínum fyrir 2. deáldarkeppnina. Lengst til vinstri í efri röð er þjálfari liösins, hinn góðkunni kiiatt.spyrniimaóur úr Fram, Jóhann-
e» Atlaaon.