Morgunblaðið - 29.11.1972, Síða 22

Morgunblaðið - 29.11.1972, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 1972 Ingvar Jónsson pðst- varðstjóri — Minning Fæddur 21. apríl 1907. Dáinn 19. nóvember 1972. Ég er alltaf þeirrar skoðunar, að umhverfi æskunnar móti manninn mikið, og jafnvel það umhverfi, sem hann er í áður en hann skynjar æði og um- hverfi hins sanna og rétta hjá sér sjálfum. Þetta er mér í huga, er ég minnist uppruna og einkenna Ingvars Jónssonar, vinar míns og vinnufélaga. Þetta er mér fremur I huga, að sama garði það óskynjaniega í það eru einkenni er bera að ætt og æði okkar beggja. Ingv- ar er fæddur undir sunnlenzkri heiði, þar sem lynggróður og harðgerðar jurtir vaxa við ónóg skilyrði, og jafnvel nakin grjót eru til hlífðar ein fyrir næðingi kulda og bylja. En svipbrigðd vestan heiðar eiga önnur í frjó- um mýrum fyrir austan. Þar er athvarf. Foreldrar Ingvars fluttust með hann ungan til heiimkynna sinria á Suðurlandi, þar sem sí- t Guðrún Sigurðardóttir, Melhaga 13, andaðist i Landspitalanum 21. þ.m. Jarðarförin fór fram í kyrrþey samkvæmt ósk hinnar látnu. Árni Stefánsson, Elín Aðalsteinsdóttir og f jölskylda, Jón Sigurðsson. fext mjógresi mýra veitir frjó- an arð 1 bú bænda, ekki sízt þeirra, sem verða að treysta á eigin vinnu, einyrkja. Áður en öld ræktunar og tækni hóf inn- reið sína í sunnlenzkar sveitir, var hvergi betra að komast af en á jörðum í Flóa, þar sem voru nægar og góðar engjar. Þar var árviss von til heyja, og þar af leiðandi sæmilegrar af- komu. En á heiðskírum degi, hvort heldur er á sumri eða vetri, er víðsýni mikið og sérkennilegt úr Bæjarhverfinu. Fjallasýn til austurs, norðurs og vesturs, og endalaust útsýni til hafs. Slikt verður í draumum æskumanns- ins mótun nýs sviðs, nýrra og sterkra þátta, er verða í óræði sínu undirstaða þess seim grein- ir sálarlíf hans síðar, gefur því einkenni skýr og heillandi, og á stundum aðskilin frá því sem helzt verður í raun á nýjum slóðum hjá þeim sem öðluðust aðra mótun. Svo held ég að hafi verið um Ingvar Jónsson, eins og síðar kemur fram í þessu greinarkorni. Ingvar Jónsson var fæddur 21. apríl 1907 í Óskoti í Mos- feilssveit, þar sem foreldrar hans byrjuðu búskap. Móðir hans var Ingibjörg Árnadóttir, en faðir haris Jón Einarsson. Þau voru systkinabörn af sunn- lenzkum ættstofnum, sönnum og heilsteyptum, dugmikil og treystandi á vinnu og afrakst- ur starfs bóndans, og völdu sér lífsstarf í sveit. Þau bjuggu skamma hríð í Óskoti, en flutt- ust þaðan að Vaðlakoti í Flóa, en það er hjáleiga frá Gaul- t Sonur minn, Hilmar H. Sigurðsson, verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju fimmtudaginn 30. nóvember kl. 3 e.h. Fyrir hönd barna hans og systkina, Anna Risberg. t Utför bróður míns, Geirs Aðils, er lézt 12. þ.m. í Kaupmanna- höfn, hefur farið fram í kyrr- þey. Þakka auðsýnda samúð. Jón Aðils. t Faðir minn, SIGURJÓN S. SVANBERG, beykir, Reykjahlið 10, andaðist 24. nóvember. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju, föstudaginn 1. desember næstkomandi klukkan 15. Guðbrandur Grétar Svanberg. t MJALtHVfT MARGRÉT LINNET verður jarðsungin, fimmtudaginn 30. nóvember frá Fossvogs kirkju klukkan 1.30. Jóhanna G. Erlingsson, Kristján Gissurarson, Erlingur Gissurarson, Pétur Gissurarson, Kristín Gissurardóttir, Öm Gissurarson, Elísabet A. Brown, Margrét R. Brown. tengdaböm, bamaböm og bamabarnaböm. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og útför eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÞORLEIFS ANDRÉSSONAR. Kristín Jónsdóttir, Máffríður Þorleifsdóttir, Andrea Þorleifsdóttir, Sverrir Runóifsson, bamabörn og bamabamaböm. verjabæ. Ingibjörg var fædd þar. Þau Ingibjörg og Jón eign- uðust sex börn, og eru þrjú á lífi: Þóra gift Kjartani Bjarna- syni lögregluþjónd, Laufey gift Halldóri Sigurðssyni starfs- manni við Langholtsskóla, og Árni bóndi í Vaðlakoti. Ingvar Jónsson ólst upp í Vaðlakoti í hópi glaðiyndra systkina, við fjöaþætt og marg- vísleg störf sveitarinnar, mótað- ist ungur af félagshyggju. Hann varð snemma félagslyndur og þekkur og góður félagi. Við- horf hins daglega voru mótuð af anda breyttra hátta, er höfðu skýr og sterk áhhrif á æsku- menn í sveitunum á uppvaxtar- árum Ingvars, og voru boðberi nýrrar aldar í landinu. Ingvar var þegar i æsku einlægur fé- lagshyggjumaður og vaildi það eitt til fylgis er var bundið við- sýni og djarfleik eins og birt- an í hinum víða sjónarhring frá æskuheimili hans. Ingvar fór ungur að heiman. Fyrst var hann við sjó, en hon- um féll ekki sjómennskan, og leitaði því brátt á önnur mið. Hann fluttist til Reykjavíkur og stundaði þar margs konar störf. Hann var um skeið í Páls bæ á Seltjarnamesi, og síðar í Laugarnesi hjá frændfódki sínu, og vann þar margs konar vinnu. Hann minntist alltaf á dvölina í Laugamesi af mikilli ánægju, enda batt hann sanna og trausta vináttu við fólkið þar. Árið 1935 hóf Ingvar störf við pósthúsið í Reykjavík og var þar bréfberi til ársins 1954. Fyrst var hann bréfberi í Mið- bænum. En brátt fékk hann fastahverfi í Vesturbænum og bar þar út af mikilli samvizku- semi og vann traust og vináttu fólksins, svo það dáði hann og virti, treysti honum eins og bezta vini. Ingvar umgekkst fólkið af mikilli háttvisi, og var að öllu leyti til sannrar fyrir- myndar í starfi sínu. Ég efast um, að það hafi verið maxgir embættismenn þá, er voru eins virtir og vinsælir og hann í starfi sínu. Hann naut einnig vináttu og trausts yfirboðara sinna. Ingvar var sannur í starfi sínu dyggur og samvizkusamur. Það er gott og hollt íyrir stofn un að eiga slíkan starfsmann. Árið 1954 urðu þáttaskil á ævi Ingvars. Þá varð hann póstafgreiðslumaður í bréfbera- deildinni og varðstjóri í sömu deild árið 1966. Ingvar var mjög vinsæil í starfi sínu í bréfbera- deildinni eins og í fyrra starfi. Fólkið treysti honum og leitaði til hans sem vinar, holls vinar, er alltaf átti ráð, er dugðu, allt- af sá leið sem var fær. Hann bar ekki á sér korða valds- mannsins, en hann var sannur félagi, hollur og góður, sannur í raun, líöliátur og heill. Hann var einlægur fylgismaður fé- lagshyggju í stéttarmálum, og alltaf boðinn og búinn til að taka virkan þátt í málefnum vinnufélaga sinna. Lífsviðhorf hans voru mótuð af þessu í rík- um mæii. Ingvar kvæntist eftirUfandi konu sinni Lilju Eiríksdóttur 1. maí 1954. Þau vom mjög sam- rýnd og samhuga um að móta skemmtilegt og fallegt heimili. Ingvar reyndist bömum henn- ar sem bezti faðir, hjálpaði þeim og leiðbeindi á ailla Iiund. Ingvar Jónsson varð eins og flestir póstmenn að vinna auka- vinnu utan stofnunarinnar til þess að hafa nægiilegt til hnlfs og skeiðar. Hann vann oft við innheimtu og fleira. En á seinnl áruim vann hann hjá Austurbæj arbíói við margs konar kvöld- vinnu, og var þar i miklu áliti, jafnt hjá húsbændum sínum og viðskiptavinum. 1 þessu starfi endurnýjaðist gömul og góð vin átta hans við frændfóikið frá Laugarnesi, er reyndist honum sem fyrr traust og gott. Bráðlega eftir að ég hóf störf í póstinum kynntist ég Ingvari Jónssyni. Hann varð mér geð- þekkur fyrir margt, en ekki sízt það, að yið áttum sömu slóðirn- ar í æsku. Hann var ef til viU enn meira láglendisbam en ég, sann ari af gerð þess, einkennum og rökum. En hitt var mest, að hann var góður féttagi. Hann sMldi manna bezt, að það var mest og dyggðugast af öllu að hjálpa lítilmagnanum, rétta kjör hans og treysta stöðu hans í samfélaginu. Ingvar vaur sann- ur í þessu, heill og traustur. Frá þvi hvikaði hann aldrei. Ég veit, að ég mæli fyrir marga starfsfélaga hans, að við söknum harxs sem tryggs og góðs vinnufélaga, skemmtilegs starfsfélaga í virikri önn hins gráa hversdagsleika. Það verð- ur svipminna á deildinni hans, þegar hann er þar ekki lengur. En minningin um góðan dreng iifir. Til hennar er gott að hverfa. Ég samhryggist konu hans, Lilju Eiríksdóttur, systkinum hans og öðrum ástvinum. En hluttekning mín er full við leið ariok í þeirri vissu, að leiðin er ekki á enda, aðeins skil á dvöl í áningarstað. Framandi er margt í mannheimum, en ef til vill er það ennþá meira og þver ara, þegar haldið verður af stað úr áningu. Þar tekur það óskilj anlega við. En þau eru landa mæri mest til óvissu. Þar eru dulin skil óskiljanlleg en viss., Jón Gíslason. KVEÐJA FRÁ PÓSTMANNAFÉLAGI ÍSLANDS 1 fjórða sinn á þessu ári sjáum við póstmenn á eftir góðum félaga og hæfum starfsmaixni. Þetta er mikið skarð fyrir jafn- sérhæfða sfcarfsstétt og okkar. Ingvar Jónsson var maður með afbrigðum tnaiustur og trúr, bæði í starfi og sem viniur. Hann hef- ur verið okkur hiinum góð fyrir- mynd og stöndum við í mikilli þakkarskuld fyrir þau áhrif og glöggu spor, sem hann skilur eftir sig. 1 nær fjörutíu ár starfaði Ingvar á pósthúsinu í Reykjavík og tók einatt virkan þátt i félags- starfi PFl. Hann hafði sánar ákveðnu skoðanir á flestum mál- um og var óragur við að láta þær í ljós. Og þótt hann væri ekki alltaf sammála stjóm félags ins á hverjum tíma, þá var hann ævintega hirm trausti félags- maður, þegar á samtakamáttmn reyndi. Póstmenn þakka Ingvari Jóns- syni samveruna. Megi Drottínn blessa minnmgu hans. 1 dag er gerð útfjör Ingvars Jónssonar póstvarðstjóra frá Fossvogskirkju. Ingvar lézt á Borgarsjúkrahúsinu 19. þ.m. eft ir stutta legu. Ingvar Jónsson fæddist í Ós- koti, Mosfellssveit 21. apríl 1907. Hann var sonur hjónanna Jóns Einarssonar og Ingibjargar Áma dóttur er þar bjuggu. Ingvar fluttist ungur með foreldrum og systkinum að Vaðlakotí í Gaul- verjabæjarhreppi og ólst þar upp. 1932 fluttist hann til Reykjavíkur og þrem árum seinna hóf hann störf á póst- húsinu. Fyrstu tvo áratugina sem Ingvar var á pósthúsinu, vann hann sem bréfberi og hafa fáir verið lengur í því starfi, enda hefur það löngum verið tal ið með erfiðari störfum. 1956 var Ingvar skipaður póstaf greiðslumaður og 19*36 póstvarð stjóri og gegndi harin því starfi til æviloka. Ingvar kvæntist 1. maí 1954 eft irlifandi konu sinni Lilju Ei- ríksdóttur. Þeim varð ekki barna auðið en Lilja hafði eign- azt þrjú börn I fyrra hjóna- bandi. Þeim reyndist Ingvar alla tíð sem bezti faðir. Ingvar var hreinskiiinn og skapmi'kiiíl maður, sem jafnan kom til dyranna eins og hann var Mæddur. Þótt hugurinn sé fullur trega við lát hans er mér hugljúft að rifja upp náin kynni, sem ég hafði af þessum göfuga mannL Þeim póstmönnuim fækkar óðum í tölu lifenda, sem ég kynntist er ég ungur hóf störf hjá póst- þjónustunni fyrir rúmum þrem áratugum síðian. Ingvar var einn af þeim fyrstu sem ég kynntist þar, og nú er mér það minnisstætt hvað hann tók mér strax vel og var fús að leið- beina í starfi. Það hlýtur að verá hverjum ungum manni sem er að hefja lífsstarf sitt mikil- vægt að kynnast slíkum mönn- um. Ég veit að þeir sem störf- uðu með Ingvari gátu ekki kos ið sér betri ' vinnufélaga en hann. Hann barðist ötullega fyr ir bættuim kjörum bréfberastétt arinnar á þeiim árum sem hann vann sem bréfberi, oig alla tíð síðan lét Ingvar kjör þeirira sig miklu varða. í þeim efnum var hann ólikur ýmsitm er unnið hafa sig upp hjá stofnunirmd en gleymt sínum fyrri döguim. Nokki'um dögum fyrir andlát sitt áttí ég tal við Ingvar. Hann ræddl við mig um framtíðar- verkefni í sambandi við starfið, og meðal annars ræddi hann um að við færum í ferð uim póstum- dæmi Reykjavíkur, strax og hann hresstist. Sú ferð var aidrei farin. Ingvar átti við vanheilsu að striða síðustu þrjú ár ævinnar og vcwu það mikil viðbrigði hjá manni sem alltaf hafði gengið heill tíl skógar. Oft mætti hann til vinnu þótt sárþjáður væri, og hann vann meðan dagur entist. Ekki mun Ingvari hafa verið um það gefið að skrifuð yrði um hann lofgrein, en þó vil ég minnast hans sem einis bezta og traustasta samstarfsmanns míns í gegnum árin. Að lokum vil ég lofa þá gest- risni, sem ég varð aðnjótandi á heimiii þeirra hjóna og við þig kæra frú Lilja vil ég segja þetta: Mildi þér trega mdnningin um góðan dreng. Blessuð sé minning Ingvars Jónssonar. Reynir Ármannsson. i i SKILTI A GRAFREITI OG KROSSA. Flosprent sf Nýlendugötu 14 sími 16480.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.