Morgunblaðið - 13.12.1972, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 13.12.1972, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1972 Magnús Jónsson: Ríkisst j órnin hverfi úr valdastóli ef tryggj a á þj óðarhag Öráðsía, giftuleysi og stefnuleysi einkennt störf stjórnarinnar — ÉG efast um, að nokkur ríkisstjórn hafi tekið við betra þjóðarbúi en núverandi ríkisstjórn. Ég efast jafn- framt um, að nokkur ríkis- stjórn hérlendis hafi byrjað feril sinn jafn ógiftusamlega með loforðaplagginu ein- stæða og haldið á efnahags- og fjármálum þjóðarinnar af eins mikilli óráðsíu og stefnu- leysi, þótt sleppt sé að minn- ast á giftuleysi hennar í öðr- um stórmálum. Ég er sannfærður um, að það verkefni er hrýnast til að tryggja þjóðarhag, að ríkis- stjórnin hverfi sem fyrst úr valdastólum. Það má þó segja, að nú eigi hún stórt tækifæri til að rétta hlut sinn, en mín spá er sú, að hún velji þau úrræði, sem óskynsamlegust eru, enda er það eitt í samræmi við feril hennar til þessa. Þannig lauk Magnús Jónsson, fyrrverandi fjánmálaráðherra, ræðu sinni á aðalfundi fulltrúa- ráða sjálfstæðisféiag'aona í Pæykjavík s.l. mánudag. 1 ræðu sinni fjallaði Magnús um efna- hagsmálin og þann vanda, sem nú steðjar að þjóðinni. í upphafi rseðu sinnar gerði Magnús nokkra grein fyrir stöðu þjóðarbúsins, þegar vinstri stjómin tók við. Hann benti m.a. á, aS þá hafi rikissjóður skilað 460 milijón króna greiðsluaf- gangi, fjögurra miitjarða gjald- eyriswiairasjóði og viðskiptajöfn- uður hafi verið hagstæður um 400 millj. kr. 1969 og um 650 millj. kr. 1970. Hagur atvinnuveganna hafi verið blómlegur, og jafnframt hafi kjör manna stórbatnað og hafi vísitala fraimfærslukostnað- ar aðeins hækkað um eitt stig frá 1. nóv. 1970 til jafnlengdar 1971. Magnús vék siðan að þeirri fullyrðingu, hvort samansafnað- ur vandi hafi verið kominn haust ið 1971. Sagði hann, að þeirri fuilyrðingu yrði bezt svarað með þvl að leiða forsætisráðherrann sem vitni, en hann hefði lýst yf- ir því í Alþingi, að þjóðarbúið hefði þolað þær miklu kauphækk anir, sem urðu þá um haustið. HVER ER VANDINN? Magnús Vék þá að þeim vanda, sem nú er fyrir dyrurn. Hann sagði, að stefna ríkisstjómarinn- ar hefði beiniinis leitt til þess, að atvinnuvegimir væru á þrotum, ef kostnaðarverðbólgan yrði ekki stöðvuð og að auki veitt veruleg aðstoð til sjávarútvegs og iðnað- ar. Erfitt væri að meta þá fjár- öflun tölulega m.a. vegna mds- munandi aflaspáa, en vist væri að sú fjárþörf væri ekki undir 1500 milljónum króna. Magnús sagði, að forsenda þess arar tölu væri stöðvun verðlags og kaupgjalds á núverandi stigi. Það leiddi aftur af sér minnst 1200 milljón króna nýja fjár- öflun fyrir ríkiissjóð, áframhald- andi eftirgjöf tveggja kaup- gjaldsvisitölustiga frá þvi í sum ar, og engar verðlagsbætur vegna nýrra fjáröflunarskatta. Þá verður að afla eða skera niður áætlaða fjárþörf vegna framkvæmdaáætlunar sem nem- ur um 3.000 milljónuim, og þ. á m. verður að skera mjög verulega niður útgjöld samikvæmt fjár- lagaf rumvarpinu. Ennfremur er nauðsynlegt að skera niður innflutning stórlega ella stefnir að 3.000 millj. króna lækkun á gjaldeyrisvarasjóði, en Hagramnsóknadeildin orðar af- leiðingar slíks svo: „Myndi sam dráttaráhrifa slíkrar þróunar fljótlega gæta og þau verka á móti henni með þeiim hætti, að atvinnurekstur og þar með tekj- ur þjóðarinnar myndu dragast saman." En afleiðingar slíks niðurskurð ar verða hins vegar þær, að tekjur rxkissjóðs af innflutningi minnkuðu, enda miðað við hömlu lausan innflutning i fjáilaga- frumvarpinu. Því leiðir þessi nauðsynlega aðgerð af sér nýja f járþörf eða hallarekstur. Magnús sagði þaS mat allra sérfræðinga, að komið væri á yztu nöf nueð sikuldiaisöfnun er- liendis. Þó er saimt gert ráð fyrir 2,5 miiljarða innstreymi erlends fjármagns árið 1973 eða auikn- ingu erieindra sikuld'a til lanigs ttma um 70% á þremur áruim. Ofan á þetta allt saman bætist svo, að eyða verður áhrifum 6% kauphækkunar í marz og 7% kauphækkunar opinberra starfs- manna með einhverjum hætti, enda er það niðurstaða valkosta- nefndar, í öllum tilvikum, að ekki sé hægt að gera betur en halda við núverandi kaupmætti. ORSAKIRNAR Magnús vék þá að orsökum þessa vanda. Hann sagði, að JOLATRE CRENÍCREÍNAFS JQLASKRZVTÍNGAP, ^/Hafnarfjaróarvtj 03 Kópavofslak. Simi M260 fyrst og fremst ætti stórkostleg- ur glannaskapur ríkisstjórnar- innar eða óstjórn sök á þessu. Að vísu væri hún sífellt að af- saka sig með því, að samdráttur hefði orðið í sjávarútvegi 1971 og útf lu'tiniingsteikjium. Hins vegiar væri rétt hér að minnast þess, að þessir sömu menn hefðu ekki tal ið 50% minnkun á útflutnings- tekjum á árabilinu 1966 til 1969 neitt til að gera veður út af og mætti þvi ætla, að slikir menn kipptu sér ekki upp við smá- muni. Og hver er svo þessi gífur- legi samdráttur í útflutnings- tekjum, sem nú er að riða öllu að fullu? Verðmæti sjávarvöru fyrstu átta mánuði þessa árs er það sama og sl. ár vegna 7,5 til 8% verðlhæ'kkunar eriiendis. Er heild- arútffluitniingur sjávarafurða á ár- inu áætlaður 11,3 milljarðar en var 11,5 milljarðar árið 1971. Spá in fyrir næsta ár miðað við verð lag þessa árs er aö verðmætið verði um 13 milljarðar. Ef tekin er saman útflutningur vöru og þjónustu þá voru tekjur af því árið 1971 um 22,3 milljarð- ar, ári'ð 1972 áætlaöar um 25,9 milljarðar og á næsta ári um 28,3 milljarðar. Hér er því ekki um neitt vanda mál að ræða vegna minnkandi út flutningstekna, heldur er aðalor- sökin kostnaðarverðbólga innan- lands. Segir Framkvæmdastofn- unin þar um: „1 ár hafa kaup- lags og verðlagsbreytingar verið um tvöfalt hærri hér á landi en í flestum öðrum löndum OECD og raunar tvöfalt meiri en hækk- un útflutningsverðlags í ár.“ HVAÐ ER TIL RÁÐA? Magnús vék því næst að þeim valkositum, er nú væru gefnir. Hefðu þingflokkarnir fengið álit nefndarimniar sem trúnaðarmál, en varamálg'agn ríkiætj ómar- innar væri nú búið að birta allar þær leiðir, sem lagt væri til að fara, og væri því ekki hægt að telja það brot á trúniað'i að lýsa valkostuinum. Sagði Magrnús, að kjaraskerð- ing væri forsenda allra vallkost- anoa, enda heíði hlotið svo að fara, því að nœr 50% kaupmátt- araukndng á þremur árum er óhugsaindi, þrátt fyrir góðan vilja. Þetta hefði ríkisistjórnin átt að sjá í fyrrahaiust, en í stað þesra að vara við of miklum kauphækkunum, þá hvatti hún til þeirra og einn ráðherrann reis jafnvel af sjúkrabeðd til að reyna að fá meisri hætokanir fyrir starfsmienn eims fyrirtæikis, er heyrði umdir hanm. Gallirun við þetta væri hins vegar sá, að kjör miainna hafa þegar rýmiað þrátt fyrir verð- stöðvumiina, vegna óhóflegrar skattheimtu og stöðugra verð- hækkania á ýmsum sviðum, sem að vísu er mætt mieð niður- greiðslum, en þær koima hins vegar ekki nema sumum til góða, t.d. væru ellilifeyrisþegar mjög afskiptir þeim. Þá sagði Magnús, að aðferðir til kjaraskerðimigarininiar væru mjög mismumandi taldar eftir valkostum. Ekki væri reifcnað Magnús Jónsson meo neinium laum.ahæklkumum við nýja kjarasammiinga næsta haust, en jafnfraimit gert ráð fyrir að koma þurfi til mjög verulegrar sfcattlagnimigar eða fjáröflunar til ríkissjóðs en þó sína. með mjög misimunandi hætti. Magmis sagðist efcki geta sagt mifcið meiira um þessi áhrif, emda gæti það haft mjög slæmar af- leiðimigar, ef sagt væri fyrirfram frá veigamikhim fjánmálaáform- um. FJÁRLAGAFRUMVARPH) Magnús sagði, að þrátt fyrir að valtoostamieifndin legði erugan dóm á, hverja leið hún teldi fær- asta aí þeim þremur meginleið- um, — gengisfellingu, styrkja- kerfi eða niðurfærslu, þá væri auðséð að hún teldi þær mis- munandi þungbærar fyrir launa fólk. Nú væri ríkisstjórnin búin að lýsa því yfir, að hún myndi aldrei undir neinum kringum- stæðum fella gemgið, — þess vegna kæmi það henni mjög illa, að í gegnum nefndarálitið skini, að nefndarmenn telja gengis- lækkun í einhverju formi útláta minnsta fyrir launafólk. Hitt væri annað, að ríkisstjómin veldi sjálfsagt lökuistu leiðina, — einhver bráðabirgðaúrræði, sem dygðu eimumgis til Skammsi tirna. Magnús sagði, að vandann væri auðvelt að leysa, ef rétt leið væri valin og samstaða næð ist um nauðsynlegar hliðarráð- stafanir. En þess væri einnig að gæta, að vandinn hetfði ekki kom ið til, ef rétt hefði verið á málum haldið er ríkisstjórnin hóf óláns feril sinn, eins og hún átti að hafa alla aðstöðu til. Em svo hefði skipinu verið stjórnað, að það væri strandað. Fj árlagafrumvarpið ætti nú að fara til annarrar umræðu, sem einhver mesta markleysa, sem fyrir þingið hefði verið lagt. Þýð ingarlaust þætti að afgreiða það til þriðju umræðu og þá vafa- samt, að það næði afgreiðslu fyr ir áramót. Væri það í fyrsta sikipti í 14 ár, seirn sOítot 'kæmi fyr- ir. HVAÐ VILL SJÁLFSTÆDIS- FLOKKURINN? í lok ræðu sinnar vék Magnús að því, að eðlilegt væri að spurt væri um stefnu Sjálfstæðisflokka ins í þessum málum. Hann sagði, að menn skyldu í upphafi gæta þess, að til vandræðanna hefði aldrei komið, ef flokkurinn hefði mátt einhverju ráða um stjórn mála. En eins og komið væri, yrði flokkurinn að miða val sitt við, hver úrræði stuðluðu að heil brigðastri efnahagsþróun og bezt um lífskjörum til frambúðar. Hins vegar hlýtur að verða að bíða tillagna ríkisstjórnarinnar áður en flokkurinn tekur endan lega afstöðu og markar stefnu 99 Fást“ - eftir Goethe Þýðing Yngva Jóhannessonar komin út hjá Menningarsjóði KOMIN er út hjá Bókaútgáfu Menningars.jóðs þýðing Yngva Jóhannessonar á hinnm sígilda sorgarleik „Fást“ eftir Goethe. Er það annars vegar þýðing sú á „Fást 1“ seni notuð var, þegar leikurinn var færður upp í Þjóð leikhúsinu, veturinn 1970—71, I sviðsetningu Karls Vilbachs yfir leikhússtjóra í Liibeck — með nokkrum breytingum þó, er þýð andi taldi til bóta — hins vegar rakið í óbundnu máli aðalefni sið ari hluta sorgarleiksins, sem sjaldan er leikinn og þykir all erfiður aflestrar. Hefur Yngvi Jó hannesson þó þýtt nokkra kafla „af því, sem er aðgengilegast eða veigamest,“ eins og hann sjálfur segir í formála. Fyrri hlutann a.m.k. af „Fást“ Goethes þekkja allir, sem eitt- hvað kunna skil á heimsbók- menntuim. Byrjaði Goethe fyrst að fást við samningu leiksins sem ungur maður og hélt því áifram langt fram eftir aldri. í formáia gerir þýðandi stutta grein fyrir höfundinum og verk inu, segir frá uppruna Goethes, sem var af efnuðum foreldrum í Frankfurt og „gekk ungur í þjónustu hertogans í Weimar, þar sem hann átti heima síðan langa ævi, vel metinn sem emb- ættismaður og ráðherra, en þó mest dáður sem það afburða skáld, er hann var í flestum greinum skáldskapar" eins og þar segir — og síðan: „Þegar Goethe kom til Weimar haustið 1775, þá 26 ára að aldri, hafði hann meðferðis nokkra leik ritsþætti um Fást, sem hann hafði fengizt við árin á undan. Sú frumgerð leiksins, hinn svo nefndi „Urfaust", er saga Fásts og Margrétar í aðalatriðum, og var hún með nokkrum viðbótum gefin út árið 1790 sem brot. Síð an liðu enn nokkur ár, unz Goethe tók aftur til við Fást 1797 að áeiggjan Schillers, og þá orti hann kvæðið „Tileinkun", sem prentað er framan við leikritið. Var fyrri hluti Fásts síðan gefinn út 1808 í sinni endanlegu mynd.“ Þess má loks geta, að af síðari hlutanum er hér birtur lokaþátt urinn án nokkurra úrfellinga, enda er hann taiinn mikilvægast ur af þeim hluta verksins. Þessi útgáfa Menningarsjóða er 253 bls. Bókin er unnin í Prent smiðju Hafnarfjarðar h.f.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.