Morgunblaðið - 13.12.1972, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 13.12.1972, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1972 13 Jónas Kri.stiáiisson ver doktorsiitgerð sína „Um Fóstbræðrasogu". Lengst til vinstri situr Sveinn Skorri Höskuldsson, forseti Heimspekideildar Háskóla íslands, og til hægri andmæl- endurnir, dr. Bjarni Guðnason, prófessor og dr. Jakob Benedikísson, ritstjóri Orðabókar Há- skólans. Prjónað utan um rétt- f eðraðar vísur Spjallað við dr. Jónas Kristjánsson um ,yngingu6 hans á íslendingasögunum ,1’Af) GÆTI hugyazt, að þessi niðurstaða min um ald- ur Fósthræðrasögu breytti einhver ju tim álit manna á rit unartíma eiztu ísiendinga- sagna,“ sagði Jónas Kristjáns son, forstöðumaður stofnunar Árna Magnússonar á íslandi, en Jónas varði fyrir helgina doktorsritgerð um Fóstbræðra sögu, þar sem hann kemst að þeirri niðurstöðu, að sagan sé rituð mun síðar, en hingað til hefur verið álitið. „Eigum við ekki að segja, að ég yngi hana um svona 80 ár,“ sagði hinn nýbakaði doktor í viðtali við Mbl. í gær. Jónas sagði að ágreinings- lauist hefði jafnan verið um skyidleika Fóstbræðrasögu og sögu Ólafs helga. Eldra álit var, að elzta saga Ólafs hefði verið óháð Fóstbræðrasögu, en síðan hefðu áhrif komið inn i síðari gerð sögu Ólafs; Heigisöguna, sem svo er nefnd, en hún er elzta heil- lega sagan um Ólaf helga. >ar er ritsamband við Fóst- bræðrasögu og hafa menn tal ið það sýna, að Fóstbræðra- saga hafi verið rituð um eða skömmu eftir 1200. „Ég sný þessu hins vegar al veg við,“ sagði Jónas. „Skyld leikinn við Ólafssöguna er í síðasta kafla sögunnar, þar sem segir frá falli Þormóðar Kolþrúnarskálds á Stiklastöð um. Þessa frásögn tel ég hafa komið inn í Fóstbræðrasögu úr Helgisögunni. Að þessari niðurstöðu kemst ég annars vegar með því að sýna fram á áhrif í Fóstbræðrasögu frá ýmsum yngri söguim, m.a. Laxdælu, sem talin er hafa verið rituð um miðja þrettándu öld. Þess ara áhriía hefur mönnum bara ekki dottið í hug að leita, þar sem slík tengsl hafa til þessa verið talin óhugs- andi. í öðru lagi finn ég áhrií í stil og málfari, sem virðast sýna náin skyldleika við svo- nefndan skrúðstíl, en hans fór ekki að gæta hér á landi fyrr en seint á þrettándu öld og magnaðist mjög með þeirri fjórtándu." — Þú segist vilja miða við 80 ára yngingu á Fóstbræðra- sögu. Hvers vegna 80 ár? — Við getum markað.aldur sögunnar af þvi, að elzta handritið, Hauksbók, er ritað rétt eftir aldamótin 1300. Fóstbræðrasaga hefur því ver ið skriiuð fyrr; einhvern tím ann fyrir þau aldamót. — Nú hefur Fóstbræðra- saga löngum verið talin ör- uggust til viðmiðunar um upp haf ritunar íslendingasagna. Hefur þessi ynging þín á sög unni áhrif á ritunartima ann- arra sagna? — Það er rétt, að Fóst- bræðrasaga hefur jafnan ver- ið talin önnur elzta íslend- ingasagan ásamt Heiðarviga- sögu, og traustasta viðmiðun in um upphaf ritunar fslend- ingasagna. Ég fer nú í ritgerð minni ekki út í aldur annarra sagna, en svo mikið er vist, að ekk- ert handritabrot íslendinga- sagna, er til eldra en frá miðri þrettándu öld. Það gæti hugsazt, að þessi niðurstaða mín um aldur Fóstbræðrasögu breytti einhverju um álit manna á ritunartima elztú ís lendingasagna, en þegar nær kemur; til dæmis að Egils sögu, sem sumir eigna Snorra Sturlusyni — og það finnst mér alls ekki ótrúiegt, þá held ég, að niðurstöður mín ar breyti litlu. — Hvaða áhrif telur þú, að þessi nýi aldur Fóstþræðra- sögu hafi? — Þessar niðurstöður mín- ar gætu orðið til þess, að menn vildu leita áhrifa ridd- arasagna á elztu íslendinga- sögurnar. Það var byrjað að þýða riddarasögur milli 1220 og 1230, þannig að með því að færa aldur Fóstbræðrasögu nær okkur um ein 80 ár, verða áhrif þarna i milli ekki óhugs andi, eins og talið hefur verið til þessa. — Nú færir þú Fóstbræðra sögu fjær atburðum sínum. Teiur þú, að það hafi áhrif á sannleiksgildi sögumnar? — Þeir atburðir, sem sagan fjallar um, gerðust í byrjun elleftu aldar; Þormóður feil- ur á Stiklastöðum 1030. Að minni hyggju er Fóst- bræðrasaga ekki verulega lík því að mikið af munnmæla- sögum sé í henni. í sögunni eru hins vegar mörg bók- menntamóKif; meðal annars ýmsar endurtekningar, sem benda til þess, að sagan sé bókmenntaverk öðru fremur. Hins vegar tel ég, að vísurnar séu eldri en sagan og hafi höfundur hennar prjónað at- burðarásina utan um þær. Um fall þeirra íóstbræðra og fl. meginatburði sögunnar, hafa vafalaust gengið sagnir, en öll smáatriði eru að iíkindum skáldskapur höíundar. — Hvað með höfundinn? — Höfundur Fóstbræðra- sögu er ókunnur, sem höfund ar annarra íslendingasagna. Af þekkingu hans á staðhátt um ræð ég, að hann hafi búið á Vesturlandi, sunnan Gils- fjarðar. — Hvers vegna vaidir þú þér þetta éfni til doktorsrit- gerðar? — Ég er nú búinn að vera við þetta í nokkuð mörg ár. Eftir að ég hafði starfað hjá Fornritafélaginu, að útgáfu Eyfirðingasagna, langaði mig til að skrifa eitthvað um ein- hverja íslendingasöguna og að ráði og hvatningu Sigurð- ar Nordals, varð Fóstbræðra- saga fyrir valinu. — Og hvernig liður þér nú, þegar þetta er búsð? — Ég er einkum feginn að vera laus. Það er sérstaklega sú tilfinning, sem bærist í brjóstinu nú. í mörg ár hef ég varið öllum mínum frí- stundum í þessa ritgerð og því er mikill léttir að vera íaus við hana. — En er ekki eitthvað ann- að þá farið að sækja á hug þinn? — Ekki neita ég því. Og ég vonast til þess, þrátt fyrir allan léttinn nú í bili, að ekki líði mjög langt þangað til ég fer að vinna að nýju viðfangs efni. Glíman við Fóstbræðra- sögu hef ur . bent mér á ýmis- legt athyglisvert og nú leikur mér mikill hugar á að athuga ýms atriði varðandi konunga sögurnar. — f J. Friðartilboði Thieus þegar hafnað í París Undirnefndir starfa þar nú í fyrsta skipti Saigon, París, 12. des. AP. NGUYEN van Thieu, forseti Suð ur-Vietnam, flutti í dag þjóðþing inu friðartillög-ur sem hann sagði að yrðu formlega lagðar fram í París næstkomandi fimmtudag. í tillögunum er m.a. gert ráð fyxúr að vopnahlé verði samið einhvern næstu daga og þegar hafizt lianda við skipti á stríðsföngum. Thieu sagði að hægt væri að hafa skipti á stríðs fönguni allra aðlla. Með því muin hanin hafa átt við að auk 10 þúsund n'orðuir-víet- na.msfcra stríðsfanga í Suður- Víetinaim, yrði sleppt uim 26 þús- und 'skæruiliðuim Viet Comg sem einnig eru í hialdi. Hins vegar minntist hann efckert á 30 þús- und pólitísfca faniga sem í lamd- inu eru, en Noröur-Víetnamar hafa alltaf lagt m LMa áherzlu á að þeir yrðu að öðlast frélsi um leið og aðrir fangar. Samininganofn d Viet Cong, í Pasrís, hafnaði tillögum Thieus al geríega og sagði í svari hennar að „hroki og þrái Thieus sýndu enn einu sinmi að hanrn væri þröskuldur á vegiinuim til friðar“. UNDIRNEFNDIK I PARÍS Tvær undirnefndiir samninga- manna Norður-Víetoaima og Bandarífcjanina héldu með sér fundi í dag, áður en þeir Ki'ssing- er og Le Duc Tho héldu áfram viðræðum sinum. Þetta er í fyrsta skipti á þeiim fjórum ár- um sem Kissinger og Le Duc Tho hafa haldið leynifundi, sem slíkar nefndir starfa. Þetta er taflið benda til þess að báðir aðilar vilji hraða viðræð- unum, svo niðurstöður geti sem fyrst ieigið fyrir. Hins vegar var ekki frekar en venjulega skýrt frá umræðuefni eða árangri. — Appollo 17 Framhald af bls. 1. fræðingur að menimt, var sérstaifc- lega hrifiinn aif yfirborði tun.gls- ins og kallaði það paradis jarð fræðiniga. í grennd við lendingarstað tungíferjunnar er vonazt tíl að geimfaramir finni steina sem urðu til þegar tunglið myndað- ist fyrir uim 4,6 milijörðum ára. Ceman og Schmitt sögðu um- hverfið þarna mjög hrifcalegt. Þar er mikið af stórum björgum og í sumum þeirra glittir á gler og mörg þeima eru örótt eftir loftsteina. Auk vísindastöðvanna sem geimfararnir settu upp, kom Schmitt fyrir sprengihleðslum sem verða sprengdar eftir að þeir fara frá tunglinu. Titringur- inn frá þeim kemur fram á ýms- um mælitækjum sem skilin verða eftir, og líklega einnig mælitækj- um sem fyrri tunglfarar skildu eftir. — Flugfélög Framhald af bls. 1. komulagi fyrir jól eiga reglurnar um nýju fargjöldin að taka gildi 1. apríl næstkomandi. Fulltrúam ir voru sammála um að far- gjaldaflokkar va-ia of margir og of flóknir og nauðsynlegt væri að gera þá einfaldari í sniðum. Hins vegar voru þeir ekki sam- mála um beztu leiöina til þess. í tillögum sem fram hafa kom- ið er gert ráð fyrir fjórum aðal- fargjaldaflokkum: 1) Fyrsta far- rými. 2) „Túrista farrýmí". 3) Ennþá ódýrari fargjöld fyrir ein- staklinga sem verða milli 14 og 45 daga í ferðinni. 4) Fyrirfram- greiðslufargjöld. (Mjög ódýr far- gjöld fyrir einstaklinga sem verða 14 til 45 daga I ferð og hafa greitt hluta af fargjaldinu með 3 mánaða fyrirvara). Aðrir fargjaldaflokkar sem til greina koma em tmglingafar- gjöld og svo sérstök fargjöld fyr ir viku skíðaferðir, sem hafa ver ið vinsælar undanfarin ár. Evrópsku flugféiögin, undir forystu þeirra brezku, vilja svo lækka fargjöldin til að geta bet- ur keppt við leiguflugfélög. Bandaríáku flugfélögin vilja hins vegar ha-kka fargjöld, 'enda er stærri og þó aðallega „fjáðari" markaður þar í landi. Hugsanleg lausn á Ixessu vandamáli væri að farmiðar sem keyptir væru ' i Bandaríkjunum fyrir flug yfir Norður-Atlantshaf, væru dýrari en farmiðar sem keyptir væru i Evrópu fvrir sömu ílugleið. Presta- minningar BÓKAÚTGÁFAN Gnmd hefur sent á markaðinn bók ineð niinn- ingarþáttum 16 fyrrverandi sókn arpresta; „Hugurinn flýgur víða.“ Séra Gnnnar Árnason hefur stýrt verkinu og ritar forspjall. Höfundar auk hans eru, sr. Benjamin Kristjánsson, sr. Gísli Brynjólísson, sr. Sigurjón Guð- jónsson, sr. Páll Þorleifsson, sr. Þorsteinn B. Gíslason, sr. Björn Ó. Bjömsson, sr. Erlendur Þórð arson, sr. Guðmundur Sveinsson, sr. Gunnar Bsnediktsson, sr. Jakob Einarsson, sr. Jón Guðna- son, sr. Jón Skagan, sr. Magnús GuSmundsson, sr. Pétur Magnús son otg sr. Þorsteinn Jóhannes- son. Kápumynd gerði sr. Erlend ur Þórðarson. Stjórn félags fyrrverandi sókn arpresta skipa nú, sr. Jón Skag- an, sr. Gísli Brynjólfsson og sr. Sigurjón Guðjónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.