Morgunblaðið - 13.12.1972, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.12.1972, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1972 SALTFISKUR Á JÓLABORÐIÐ Oxford, Englandi. Þótt nóvember sé enn ekki liðinn, þegar þetta er skrifað, eru fjðlmiðl- ar hér famir að hamra á því að nú sé hver að verða síðastur að panta jólakjötið. Komi maður ekki kjöt- pöntun sinni hið fyrsta til kaup- mannsins, sé alls ekki víst að hann geti uppfyllt óskimar — og hvílík jól ef svo færi. Ég læt mér þetta sem vind um eyru þjóta, því ég veit svo ósköp vel að á Þorláksmessu get ég gengið inn í hvaða kjötbúð sem er og fengið fyrirtaks kalkún eða kjúkling, og það kannski á lægra verði en ef ég panta hann nú, því verði framboð mikið lækkar verðið síðustu dagana. Hér er verð á kjöti og fiski ekki bundið, heldur fer það eftir framboði og eftirspurn og verð stöðvunin, sem hann Heath setti á ný lega nær ekki til kjöts. Ég tek því lifinu með ró, óhrædd um að þurfa að svelta á þessari miklu matarhá- tíð. Þó svo færi, að fjölmiðlamir yrðu sannspáir, aldrei þessu vant, og kjúklingslöpp yrði ekki að hafa úr því komið væri fram í miðjan des- ember, þá geri ég ráð fyrir að sæti, svarti pósturinn minn banki upp á einhvem síðustu dagana fyrir jól og færi mér hangikjöt að heiman. Ég heyrði hér gegnum vegginn um síðustu helgi að nágrannakona mín vestan við mig var að baksa við að baka jólakökuna. Hún er ensk og er vafalaust löngu búin að baka jóla- búðinginn, þvi eigi hann að hafa rétta bragðið á jólunum, þarf hann að vera orðinn nokkurra mánaða gamall. Ég ætla þó ekki að ræða frekar um enskan jólamat nú, þar sem ég gerði honum nokkur skil í dálki þessum í fyrra. ★ Nágrannakona mín austan við mig er frá Mexíkó og um daginn, er jól- in bárust í tal, sagði hún mér m.a. að einn aðaljólamaturinn i hennar heimalandi væri saltfiskur, fluttur inn frá Noregi, að því er hún bezt vissi. Fannst henni merkilegt að heyra, að ísiendingar, þessi mikla þorskaþjóð, sem meira að segja háir stríð út af þorskinum, skyldi ekki skipa honum veglegan sess á hverju veizluborði. Það væri nú það minnsta, sem Islendingar gætu gert til heiðurs þessum afbragðsfiski, sem heldur lífinu í þjóðinni. Rósa, sú mexíkanska, hefur ekki gert neinar ráðstafanir til að ná í saltaðan, þurrkaðan þorsk fyrir jól- in þvi hún og fjölskylda hennar ætla að eyða jóiunum með portú- gölskum vinum og hún þykist viss um að Portúgalarnir hafi haft ein- hver ráð með að ná í saltfisk, því þeir láti sér ekki nægja að borða hann einu sinni á jólunum, heldur allt upp í þrisvar sinnum á aðfanga- dagskvöld og jólanótt. ★ Mexíkanar eru lífsglatt fólk og jólahátíðahöldin byrja hjá þeim 16. desember. Þá er kveikt á jólatrénu og þeir, sem á annað borð hafa ein- hver fjárráð halda hátið hvert kvöld til jóla. Fólk kemur saman til skiptis á heimilum ættingja og vina ig leikur eins konar helgileik, „pos- ada“. Helmingur gestanna fer út með kerti í höndum, syngur söngva og biður þá sem inni eru um húsaskjól, eins og María og Jósep gerðu forð- um. Þeir sem sinni eru svara með söng og síðan er sungið á víxl, þar til gestunum er hleypt inn. Þegar inn er komið er drukkið púns og gestir gæða sér á ávöxtum og ýmsu góðgæti. Hámark kvöldsins, að minnsta kosti i augum barnanna, er þegar stór, skreytt leirkúla, fyllt með góðgæti og smágjöfum, er hengd upp og einn úr hópi gestanna reynir, með band fyrir augunum, að hæfa hana með priki af nægum krafti til að hún brotni svo innihald ið dreifist út um gólf. — Fyrsta ár- ið, sem Rósa og fjölskylda hennar voru hér í Englandi, reyndu þau ásamt fleiri Mexíkönum að útbúa kúlu og halda „posada", en einhvem veginn hafði hátíðin ekki á sér hinn rétta blæ, svo þau ákváðu að reyna þetta ekki frekar fyrr en þau yrðu á ný komin heim til Mexíkó, vænt- anlega að ári liðnu. Jólamatur og jólasiðir eru mjög breytilegir frá héraði til héraðs í heimalandi Rósu og fara að sjálf- sögðu einnig eftir fjárráðum fólks, en fátækt er mikil í landinu. Hin eiginlegu jól, sem Rósa hefur vanizt í Mexíkóborg, hefjast á aðfanga- dagskvöld. Þá kemur fjölskyldan saman til máltíðar, sem hefst með kalkúnssúpu og síðan er borðaður kalkún, fylltur með góðgæti. Á eftir honum kemur svo saltfiskurinn, sem er steiktur og soðinn í olíu með tómötum, ólívum og ýmsu kryddi. Er hann því býsna ólíkur þeim vatnssoðna laugardagssaltfiski, sem Islendingar eiga að venjast. — Á jólanótt er gengið seint til rekkju, en börnin vakna þó fyrir allar aldir á jóladagsmorgun, því þá má opna jólapakkana. Jóiadagur er síðan svipaður og á Islandi, sumir halda sig heima við en aðrir fara I fjöl- skylduboð. Englendingar gera lítið úr komu hins nýja árs, en Mexíkanar fagna því með viðhöfn eins og Islending- ar. (Ég sagði Englendingar, en ekki Bretar, því í Skotlandi bjóða menn nýja árið velkomið með „hog- manay“-hátíðahöldum sinum). Við Rósa vorum því þær einu (ásamt okkar „betri helmingum") hér á ganginum, sem stóðum fyrir ein- hvers konar veizluhöldum á gamlárs kvöld í fyrra. Á miðnætti meðan ég lét mér nægja að syngja „Nú árið er liðið. . . “ í huganum af tillits- semi við erlenda gesti mína, voru Rósa og mexíkanskir gestir henn- ar að borða vínber. Eitt vinber við hvern klukkuslátt á að færa gæfu i, og gengi á hinu nýja ári. Á þrettándanum, þegar siðasti ís- lenzki jólasveinninn heldur til heim- kynna sinna á fjöllum, gæða Mexí- kanar sér á súkkulaðidrykkjum og súkkulaðiköku og börnin fá smá- gjafir. 1 súkkulaðikökunni er falin litil brúða og sá sem fær bitann með brúðunni á að halda boð fyrir viðstadda 24. marz — svo jólahald- ið endist þeim býsna lengi þar syðra. ★ Úr því ég er að tala um þessa mexíkönsku nágrannakonu mína má ég til með að bæta örlitlu við, þótt það eigi ekkert skylt við jólahald. Islenzkar konur eru flestar mjög ánægðar með það fyrirkomulag, sem ríkir í nafnamálum heima á Fróni, þ.e. að konur taki almennt ekki upp nöfn eiginmanna sinna. Finnst okk- ur þetta flestum heilmikið sjálfstæð- istákn. — Þegar ég er að segja er- lendum frá þessu frábæra fyrirkomu lagi er ég venjulega spurð: „En hvað um börnin? Finnst mæðrum það ekki hart að börnin skuli aðeins kennd við feðurna en ekki þær?“ Jú, ég verð að viðurkenna að að þessu leyti sé kerfið ekki nógu gott og mætti úr bæta. Og þá er ég aftur komin að hennl Rósu. Áður en hún giftist bar hún að mexíkönskum sið bæði nafn föð- ur síns og móður. Þegar hún giftist féll móðumafn hennar niður, en föð urnafni sínu, sem er Seco, hélt hún en bætti við nafni eiginmanns sins, sem er Garcia. Heitir hún því nú Rosa Maria Seco de Garcia, en er þó ekki alveg ánægð með það, þar sem forsetningin „de“ þýðir að hún tilheyri eiginmanni sínum, sé eigin- lega „eign hans“, og sem mjög sjálf- stæðri konu finnst henni það full- mikið. En á móti kemur að Gabri- ela litla dóttir hennar er kennd við hana jafnt og föður sinn og heitir því fullu nafni Gabriela Garcia Seco það nafn mun hún bera þar til hún fær sér mann; þá fómar hún móður- nafni sínu fyrir nafn eiginmanns- ins. Sem sagt, þótt við setjum suðræn- ar, latneskar þjóðir venjulega ekki í samband við svokölluð kvenrétt- indi, þá verðum við vist að viður- kenna að i nafnamálum barnanna gera þær mexíkönsku að vissu leyti betur en norrænu valkyrjurnar. Þórdís Árnadóttir. Ingjaldur Tómasson; „í LUNDI NÝRRA SKÓGA“ Þainn 20. okt. 1972 var nokkr um alþingismönnuim og fleiri áhugamönnum um skógrækt boðið af Skógrækt ríkisins að kynnast árangri skógræktar í Skorradal. Við komium að Hvammi upp úr hádegi, og fór- um brátt að skoða skóginn. Fyrst sáum við mikið af ung- um trjám, en eftir því, sem lengra kom inn eftir dalnum, varð skógurinn eldri og stór- vaxnari. Ég varð strax mjög undrandi og hrifinn (það voru hinir líka) bæði af hinum giæsta árangri á tiitölulega stuttum tima og af hinni ógleymianlegu fegurð, sem þama glasir við sjónum. Við vorum á göngu um þennan „sæiunnar reit“ i rúma tvo tima undir leiðsögn Hákonar Bjama sornar og skógarvarðar. Þeir veittu okkur mikla og stór- merkilega fræðslu um skóg- rækt og sögu skógræktar í dallnum. Og ég sannfærðist enn betur um nauðsyn undir- stöðukennslu í skógrækt í öll- um unglingaskólum landsins, og svo fullnaðarkennslu í deild í háskóla eða í sérstökum sikólla. Ég er viiss um að æsku- vandamálin yrðu minni, ef æsk an ætti þess kost að „alast upp“ ef svo mætti segja, með uppeldi nýskóga, og vemdun og endumýjun eldri skóga, bæði með bóklegri fræðslu, vinnu og ekki sízt stórauknum kynnisferðum um skógræktar- svæðin undir leiðsögn kunn- áttumanna. Þegar lokið var göngunni um skóglendið, fenigum við mjög góðan miðdegisverð í Hvammi. Að borðhaldi loknu tóku til máls þrír menn, fyrst Eysteinn Jónsson, forseti sameinaðs þings. Hann lýstá ánægju með hinn mikla áranigur, sem nú væri augljós á skógræktar svæðunum, og þakkaði forystu mönnum skógræktanmála heilla rikt starf, fyrr og síðar; sér- staklega þakkaði hann Hákoni Bjamasyni dugnað, framsýni og óbilandi trú á möguleika skógræktar hérlendis. Hann gat þess, að -Hákon hefði líka sýnt mikla málafylgjuhæfileika til stuðnings skógræktarmál um; nú væri þess ekki þörf lengur, því hinir nýju skógar væru nú í örum vexti fyrir allra sjónum. Eysteinn vakti máls á því, hvað gömlu birki- skógamir væru víða illa fam- ir, væru að „deyja út“. Hann taldi að ekki mætti dragast að bjarga því sem bjargað yrði af þeim, og tííl þesis þyrfti að semja við bændur um friðun og endumýjun þeirra, og einhver hjálp hins opinbera þyrfti að koma þar til. Nauðsyn væri nú að auka fjárveitmgu til skóg- ræktar því nú sæjusit ijóslega hinir miklu möguleikar henn- ar. Skógræktarstjóri þakkaði öll um stuðningsmönnuim skógrækt ar fyrr og síðar, og hvatti til vaxandi stuðnimgs hins opin- bera og aimennings í skógrækt ar málum. Hann lýsti ánægju sinni með þessa velheppnuðu ferð, og gat þess að þama væru nú staddir menn, sem fyrstir gróðursettu tré í Skorra dal. Einn af þeim var Guð- mundur Martetossom, raf- magnsverkfræðingur. Hann minntist þess, þegar hann ásarnt mörgum ungmennafélög- um, sem fjöhnenntu ríðandi á etou blíðviðriskvöldi til þess að gera skógræktairhugsjónina að veruleika með gróðurisetn- ingu fyistu trjáplantnanna í datoum. Hann lýsti htoni miklu h ugsjómagleði, sem eto- kenndi skóggræðsiiufólkið þetta eftirmtanilega kvöid. Ég held að aTOtof margir geri sér ekki greto fyrir þýðtagu SkógrEetotar. Það sem meira og sorgiegast er, að ýmisir vellærð ir mienn hafia lýst megnri van- trú á skógrækt hér, og talið sígræna skóga óþjóðlega meng- un, eins og fram hefir komið oft í fjölmiðlum. Nú nýlega heyrði ég á tai mianna um skóg rækt. Þeir töldu að hér mætti ræteta nytjaskóg — en hann gæti aldrei orðið samkeppnis- fær við erlendan. Ég benti þeim á, að fátt af otekar fram- leiðslu væri nú samkeppnis- fært án opinberra styrteja. Ég er sanrafærður um að skógrækt verður í framtíðinni ektei síður arðbær en aranar landbúmaður. Tek undir það að stómiauðsyn- legt er að alfriða gömlu btoki- skógana, sem viðast eru mjög illa famir, og hjálpa þeim að endurnýjaist. Alla ofbeit verð- ur að stöðva, með löggjöf, ef landeigendur sjá ekki haig ston og sómia. Náttúruvemdajrmál öil þurfa að heyra undir einn hæfan og dugmiktan raann. Hann þarf að hafa rúmit valdsvið, og hann má aíliis etetei gegnia öðiruim störf um, og hann þarf að hafa við- eigandi sérfræðtaga sér til að- stoðar. Haran þarf líka að hafa náið samistarf við bændur og héraðasamtök um náttúru- vemd. Stjómimálaþnais má aTOs ekki blandast í þesisi mál, og ekki ganga út í öfgar etos og því miður hefir átt sér stað undan- farið. Það er eragu likara en sumir umhverfisvemdarar vilji barana allár breyttogar á nú- verandi ó f remdarás tandi lainds tos, og banma meiniháttar fram- kvæmdir, t.d. vatnsvirkjanir jafnvel þótt umhverfið spillist ekki samkvæmt miati þar tii hæfra rnainna. Nú er það lífsnauðsyn lands og þjóðar, að unga fólkið og leiðtogar þess kynni sér skóg- ræktarmiálin sem bezt og ljái þeim lið, bæði hugar og handa. Það ætti að geta betat æsk unni frá htoni stóriskaðlegu bítla- og skemmtanaómennsku með tilheyrandi vto- og eitur- lyfjavandamálum. Æskan þarf að taka upp merki aldamóta- fólksiras með því að Mæða land ið í nýjan búntoig grass og skóga, og stöðva með því alda- gamlan i í.nyrkj uósöma. Bændur þurfa sem fyrst að koma sér upp nytj askóguim, sem víðaist um landið. Þeir eru þegar byrjaðir í Fljótsdal. Skógrætet í stóruim stíl gæti komið i veg fyrir að góðsveit- ir legðust í auðn, etos og því miður er nú staðreynd, Ég vil að lokuim þakka þeim sem stóðu að þessari óvenju skemmtWegu og fróðlegu skóg- arferð. Lika þateka ég Há'koni Bjarnasyni fyrto hanis ágæta braiuitryðjendaistarf í þágu skóg ræktar, oft við iiTOyftostiigan lega örðugleika, vantrú og mik ið mótstöðuiandóf. Það er þó mjög ánægjulegt, þegar menn sjá bugsjómamál sto rætaist, ekki sízt þegar sigur hefur unmizt eftir mikla og oft tví- sýna baráttu. Ég óstea foryistu- möniraum sikógrætetar og þjóð- irani aUini til hamtogju með hinn miikla ánaragur, sem nú þegar er öílum augljós. Fagur er dalur og fyllist skógl. Og frjálsir rraenin þegar aldiir renraa. J. H.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.