Morgunblaðið - 17.12.1972, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 1972
51
Jóla-
sælgæti
Hnetukonfekt.
1 bolli smjör
1% bolli sykur
1 matsk. ljóst sýróp
3 matsk. vatn
1 bolli gróft saxaðar,
ristaðar möndlur
200 gr suðusúkkulaði, brætt
1 bolli smátt saxaðar,
ristaðar möndlur
Sjörið brætt í potti, sykrinum,
sýrópinu og vatninu bætt út í.
Þetta er soðið, hrært vel í, gróft
söxuðum möndlunum bætt út í.
Sett í ferkantað form og kælt.
Hvolft á vaxborinn pappír, helm
ingnum af bræddu súkkulaðinu
hellt yfir, og helmingnum af
smátt söxuðu hnetunum. Vaxbor
inn pappír settur yfir og snúið
við, og botninn þakinn á sama
hátt með bræddu súkkulaði og
hnetum. Ef nauðsynlegt er, má
kæla þetta, til að súkkulaðið
harðni. Brotið í smá bita.
Hnetugott.
IV2 bolli púðursykur
IV2 bolli flórsykur
3 matsk. dökkt sýróp
1 bolli mjólk
1 tsk. vanilludropar
IV2 bolli hnetur.
Blandið saman púðursykri,
flórsykri, sýrópi og mjólk. Sjóð-
ið og kælið. Vanilludropunum
bætt í, hrærið í 2 mín. Hnetun-
um, sem teknar hafa verið i
tvennt, bætt í og haldið áfram
að hræra, þar til glansinn fer
af deiginu. Sett með teskeið á ál
pappír, sem hefur verið vel
smurður. Ef nauðsynlegt er, bæt
ið þá 1 teskeið af heitu vatni í
deigið.
Gamaldags-gott.
2 bollar sykur
% bolli mjólk
100 gr suðusúkkulaði
salt
1 tsk. sýróp
2 matsk. smjör eða smjörlíki
1 tsk. vanilludropar.
Blandið saman sykri, mjólk,
súkkulaði, salti og sýrópi. Hitið
við meðalhita, hrærið í þar til
sykurinn er bráðnaður, sjóðið.
Takið af vélinni, bætið í smjör-
inu og kælið. Til þess að flýta
fyrir kælingunni, má setja pott-
inn ofan í kalt vatn. Vanillu-
dropunum bætt í. Nú er þeytt
vel þar til deigið verður mjög
þykkt og glansinn fer að fara
af. Hér má bæta 1 bolla af söx-
uðum valhnetum i, ef vill. Deig-
ið sett á plötu, skorið í bita með
an það er heitt, og ef til vill
má setja valhnetuhelming ofan
á.
Ef þetta heppnast ekki, er
ástæðan annaðhvort sú,
að deiginu hefur verið hellt of
fljótt á plötuna, eða það hefur
ekki verið soðið nógu lengi.
Bætið í það Yi bolla af mjólk,
hrærið og sjóðið aftur, þeytið
vel.
Ef deigið verður of stíft áð-
ur en því er hellt á plötuna,
hnoðið það þá með höndunum
þar til það verður mjúkt.
„Panocha"
Smyrjið pott að innan. Bland
ið saman í honum IV2 bolla flór-
sykri, 1 bolla púðursykri, %
boila rjóma, % bolla mjólk og 2
matsk. smjöri.
Sjóðið og hrærið vel í, tekið
af hitanum og kælið. Bætið van
illudropum í og hrærið mjög vel
þar til deigið þykknar og glans-
inn fer af. Bætið í 1 bolla af
söxuðum valhnetum. Breiðið úr
deiginu á plötu, skerið í bita.
Sælu-sælgæti.
2 bollar sykur
% bolli ljóst sýróp
V2 bolli heitt vatn
Ví tsk. salt
2 stífþeyttar eggjahvítur
1 tsk. vanilludropar
Blandið saman sykri, sýrópi,
vatni og salti. Sjóðið, og hrær-
ið vel á meðan. Tekið af hitan-
um. Nú er heitu sýrópinu hellt
saman við stifþeyttar eggjahvít
urnar, hægt, og hrært stöðugt í
[ hrærivél á meðan. Haldið áfram
að þeyta, þar til glansinn fer
af deiginu, bætið vanilludropun
j um í. Sett með teskeið á vax-
| borinn pappír, búið til smá
toppa. Ef deigið er full þykkt,
| bætið þá nokkrum dropum af
j heitu vatni saman við.
Með því að setja rauðan mat-
i arlit og V2 bolla af smáttskorn-
um kirsuberjum saman við deig
I ið, fáum við enn eina tegund af
I jólasælgæti.
i.euÐmunD88on&co.HF.
Heildsölubirgdir S.11999