Morgunblaðið - 05.01.1973, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUÐAGUR 5. JANÚAR 19T3
BfLALEIGA
CAR RENTAL
9 21190 21188
14444 25555
miíio/R
JÍUtEIGA-lMflSCOIIiiajJ
14444 S 25555
BlLALEIGAN
AKBliATJT
8-23-47
sendum
HÓPFERÐIR
Til leigu i lengri og skemmri
ferðii 8—34 farþega bilar.
Kjartan Ingimarsson,
simi 32716.
LEIGAH
AUÐBREKKU .44Í46.
- •• •• * r - '■
SÍMI 42600.
Þú
1 lærir
tnultÖ i
MÍMl..
^ _ 10004
K!
w
Lopopeysur
KAUPUM
LOPAPEYSUR
AF ÖLLUM
STÆRÐUM
OG GERÐUM
í DAG OG
NÆSTU DAGA.
HAFIÐ
SAM8AND
SEM FRST.
^AMMACERÐI
AustursLræti 3 Hafnarstræti 17
Hótel Loftleióir Hótel Saga
STAKSTEINAR
Glundroðinn
f letöara l»jóíHnjans í gær
rr fullyrt, að glnndroðakenn-
ingin, sem þeir kalla svo, sé
liðin undir lok. Nú séti
vinstri flokkarnir loks konin-
ír til svo inikils broska, að
þeir væru færir um að vinna
saman án mikilla harmkvæla.
TöUiverð dirfska er nú að
láta slíkt frá sér fara, meðan
vinstri stjórnin, sem enn
höktir við völd, gerir hvært
skammarstrikið á fætur
öðru, og menn geta ekki sam-
einaat innan hennar um smá-
vægilegustu ráðstafanir, hvað
þá það, sem stórhrotnaia er.
Eða eins ogr maður nokkur
orðaði það á dögunum: Hann
lætur ekki að sér hæða
glundroðinn í austri.
f leiðara Þjóðviljans er
bent á, að vinstri flokkarnir
i borg-arstjórn séu fjórir og
er látið að því liggja, að ekk-
ert sé öruggara en þeir
myndu vinna saman eins og
englarnir við að stjórna borg-
inni fengju þeir til þess um-
boð. Sérhver maAur sér að
siik fullyrðing er átíka gáfu-
leg og raunhæf, eins off ef
fullvrt v'æri, að nú hefði orð-
ið svo mikil hugarfarsbreyt-
ing hjá minkinum, að hann
muni framvegis verða til
friðs í hænsnabúunum, bara
ef honum er hleypt inn með
góðu.
Ósamstaða og úthlaup ráð-
herra vinstri stjórnarinnar,
sem skipuð er aðeins þremur
vinstri fkikkum, hefur gefið
þjóðinni forsmekkinn af
hvernig slíkt stjórnarform
myndi reynast.
Menn geta rétt ímyndað
sér hvíh'k hrossakaup við-
gengjust, þar sem fjórir
ósamstæðir vinstri hópar
færu með stjórn.
L.eiðarahöfundiim Þ.jóðvilj-
ans skal vinsamlega bent á,
að Keykvíkingar ern jafn-
framt ísiemkir þegnar og
hafa því ekki farið varhluta
af afleiðmgum þess, að sund-
urlyndis ríkisstjórn fer með
völd í iandinu. f augum
þeirra eru fullyrðSngar um,
að fjórir vinstri flokkar gætu
konúð sér saman um stjórn á
nokkrum hhit gjörsamlega
út í hött.
Vinstri flokkarnir, sem að
vinstri stjóminni hafa staðið,
með eindæma harmkvælum
imdanfarið. eru þeir sömii og
þykjast geta stjórnað borg-
inni, með því þó að bæta enn
einum við. I»eir hafa alla tíð
verið sundraðir innan rikis-
stjórnarinnar og fullvíst má
telja að einmitt sundrungin
verði henni að falii. Reyk-
víkingar hlæja því að dóma-
dagsrugli hjóðviljans, um að
Reykvíkingar vilji fá vinstri
hanaslaginn inn i stjórnar-
skrifstofur sínar. Víttn, sem
Reykvíkingar vilja varast,
gína enn vel viS í stjórnar-
ráði fslands.
Það var ég,
sem felldi það
Gamli maðurinn í Selárdal
harmar nú ekkert meira en
hafa ekki getað þrýst geng-
inu öllu neðar í kok þeirra
Magnúsar og I-úðvíks, —
hefur hann lýst því yfir æ
ofan í æ, að núverandi geng-
isfelling sé alls ekkl nóg og
réttara hefði verið að fella
það talsvert meira en gert
var.
Allir eru sammála þeini
gamla í því, að eins og kom-
ið var, kom almenningi það
skást, að framkvæmd yrði
gengisfeiling. Og vissulega
vildu menn það miklu frem-
ur en alþekktar aðferðir
franisóknar og kommúnista
i efnahagsmálum. Og fyrir
það að geta svo ginkeflt
framsóknar- og komniúnista-
ráðherrana, hefur Hannibai
hlotið nokkurt hrós, — þ.e.
hrós fyrir að viðurkenna eig-
in mistök og vilja bæta úr
þeim.
En þótt Hannibal eigi það
til að láta hjarta sitt slá
nokkurn veginn í takt við tím
ann og geta skUið tiltölnlega
einföld vandaniál, þá verður
það sama ekld sagt um for-
sætisráðherrann. Honum
virðist þvert á móti vera gef-
in sú gáfa meiri en öðrum
möiuium að skiija allt sín-
um skilningi. Nú hefur hann
síðast fengið þá hugmynd, að
gengisfelling sé góð, ef hún
er ekki sprottin af öðru en
heimatilbúnuni vandiu Og
fulÍA'iss þess, að þjóðin muni
þakka þeim manni mest, seni
felldi síðast gengið, þá lýsir
hann því yfir í áramótagrein
sinni i Tímamun, að það hafi
alls ekki verið Hanníliai, sem
lagði fram tillögu um að fella
gengið. Nei, — það var hann
sjálfur, — forsætisráðherr-
ann, seni aldrei ætlaði að
fella gengið, sem persónu-
lega lagði fram gengisfelling-
artillöguna innan ríkisstjórn-
arinnar.
spurt og svarað Hringiö í sima 10100 kl. 10—11 frá mánndegi til föstudags og biðjið um Lesendaþjónustu Morg- unblaðsins.
Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS
Vigdís Stefánsdóttir,
Kleppsvegi 76, Reykjavík
spyr:
„Skiptir máli, hve lengi
maður talar í síma innanbæj
ar, hvað kostnað við símtalið
snertir?'"
Bjarni Forberg, bæjarsíma-
stjóri svarar:
„Vigdís getur talað ótak-
að og það kostar hana ekk-
ert fari hún ekki umfram 400
símtöl ársfjórðungslega, en
þau eru innifalin í ársfjórð-
ungsgjaldinu, 1.100 krónum.
Verði símtöl hins vegar fleiri
en 400, kostar hvert símtal
2.10 krónur og á það leggst
síðan 11% söluskáttur. Kost-
ar það þá 2,33 krónur. Sölu-
skattsálagið var sett 1. apríl
síðastliðinn."
Ólafur K. Magnússon,
Melábraut 58, spyr:
„Fyrir nokkru las ég eða
heyrði í útvarpí kröfur um að
nemendur - Sjómannaskólans
hefðu farið fram á að njóta
námslána úr Lánasjóði ís-
lenzkra námsmanna. Fá þess-
ir menn lán? Eins og kunn-
ugt er afla þeir þeirra út-
flutningsverðmæta, sem ís-
lenzk þjóð lifir á.“
Gunnar Vagnsson, formað-
ur stjórnar Lánasjóðs ís-
lenzkra námsmanna svarar:
„Síðasta Alþingi breytti lög
unum um Lánasjóð íslenzkra
námsmanna á þann veg, að
sjómanna- og véiskólanem-
endur öðluðust rétt til lána
úr sjóðnum."
Markús Porgeirsson,
Sunnuvegi 10, Hafnarfirði
spyr:
„Finnst yður, herra Sigur-
björn Einarsson biskup ekki
full'komin ástæða til þess að
fara þess á leit við presta
þjóðkirkjunnar, að þeir
næsta messudag biðji fyrir
Nixon Bandaríkjaforseta
vegna framferðis hans í Viet-
nam fyrir friðarhátíð krist-
inna manna? Framferði Nix-
ons Bandarikjaforseta hljóta
allir sannkrisfaiir menn að
fordæma.“
Herra Sigurhjörn Einars-
son biskup svarar:
„Ég veit, að bæði ég og aðr
ir prestar hafa á nýliðinni há
tíð bæði i prédikun og bæn
mirunzt Viefcnam og þeirra
óverðskulduðu hörmunga,
sem yfir þá þjóð ganga. AUir
bænarinnar menn munu hafa
þetta í huga þar til styrjöld-
inni lýkur. Ég er þakklátur
hverjum liðsmanni, sem ég
veit um í fyrirbæninni fyrir
valdamönnum og hrjáðu
mannkyni.“
Amalía Jónsdótttr, Lauga-
vegi 157, spyr:
„Hvers vegna er ekki höfð
gangbrautarvarzla á gang-
braut yfir Laugaveg við
gatnamót Höfðatúns? Þar eru
engin gangbrautarljós og
börn, sem sækja þurfa skóla,
þurfa að fara yfir götuna á
leið sinni í strætisvagn. Lög-
regluþjónar eru við gatnamót
in aðeixis á mesta annatíman-
um, enda hafa við þau orðið
ótal umferðarslys og bilar
aka þar um á ofsahraða.“
Guttormur Þormar, yfir-
verkfræðingur hjá gatnamáia
stjóra svarar:
„í Reykjavík eru ótalmarg
ir staðir, sem benda mætti á
líkt og Amalía gerir, þar sem
ef til vilil væri þörf gang-
brautarvörzlu. Nú er varzla
á 5 stöðum í borginni, á Sund
laugavegi, Hamrahlíð, Skeið
arvogi, Langholtsvegi og
Hafnarfjarðarvegi. Að sjálf-
sögðu er alltaf matsatriði,
hvar draga á mörkin, en þess
ir staðir, sem aflir eru í
næsta nágrenni bamaskóla,
hafa verið álitnir það þungir
á metunum, að ekki hefur
annað þótt fært en hafa þar
gangbrautarvörzlu. Þetta er
spurning um kostnað, því að
gangbrautarvarzla er dýr, ef
sinna á öilum ábendinguim
sem berast."
ORÐ 1 EYRA
Lokið er nú jólum
og liðið þetta ár.
Það vita allir útvarpsmenn
alveg upp á hár.
Það vita allir útvarpsmenn
og óláifur jóns,
að stutt er tíðum bilið
milli fræðings og flóins.
Stutt er tíðum biiið
milli memgunar og manns.
þó nú fcaki átján yfir
útlit ráðgjafans.
Þó nú fcaki átján yfir
okkar nýja von,
vitmaðurimn bráðsnjalli,
Bragi Jósiepsson,
vitmaðurinn bráðsnjatTi
og kerlinga'krans.
Það sér á, að þar fer
þokkalegur fans.
Það sér á, að þar fer
þjóðarinnar val:
Heiðar Páll, Hanimes
og Hannibaal,
Heiðarpáill, Hannes
og Helgi Skyr.
Öðruvisi brá mér
áður fyrr.
Öðruvísi brá mér,
er aðrir lébu mest.
En nú er öldin önmur
og iraiiantómið bezt.
Nú er öldin öninur:
Ásatrúarmenn
sófctu fast í sjóði
og sækja í þá enn.
Sótfcu fast i sjóði
sjávarútvegsmenn,
og tjallar oig fcuddar
toga hér eniri.
Tjallar og fcuddair
er tætingslið.
en liaxnesjamenns'kan
á líka við.
Laxnesjamennskan
er landanum góð,
því yrki eg ei að sinni
lengra Ijóð.