Morgunblaðið - 05.01.1973, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.01.1973, Blaðsíða 16
lö MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1973 Útgefandi hf ÁrvaTcu*', R«y;ki]avfk Fremfcvaemda&tjóri Haratdur Sveinaaon. Rrtatjórar Matttiías Johannassen, Eyjóiifur Konráð Jónsaon. Sryrmir Gurtnarsson. Rft srtjóme rf«Wtrú i Þort»jörn Guðmundsson Fréttastjóri Björ-n Jóharvn&son AugiýsingastjÓTÍ Ámi Garðar Kristirvsson. Ritstjórn og afgreiðsla ASalstræti $, sfrni 1Ó-100. Augíýsingaí Aðslwtreaiti *, sími 22-4-00 ÁskriftargjaW 225,00 kr á ménuði innsnlafKte l IwusssSfu 15,00 Ikr eintakið rátt fyrir gengisbreyting- una skömmu fyrir jól var stöðvun bátaflotans yfirvof- andi um áramót og kallaður saman framhaldsfundur Landssambands íslenzkra út- vegsmanna, vegna hins óvissa ástands. Miklir erfiðleikar sköpuðust við ákvörðun fisk- verðs og fundarhöld dag og nótt til þess að tryggja, að vertíð gæti hafizt á réttum tíma. Niðurstaðan varð sú, að fyrirsjáanlegur er 100— 200 milljón króna halli á út- gerðinni nema loðnuveiðin verði svo mikil í vetur, að hún slái öll met. Jafnframt er Ijóst, að af- komuhorfur fiskvinnslustöðv anna eru mjög ískyggilegar. Þannig sagði Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson, forstjóri Sölu- miðstöðvar hraðfrystihús- anna, í viðtali við Morgun- blaðið: „Með þessari fisk- verðsákvörðun og fyrirsjáan- legum hækkunum á fram- leiðslukostnaði vegna um- saminnar kauphækkunar 1. marz n.k. ásamt vísitölu- hækkun og hækkunum flestra kostnaðarliða vegna gengisbreytingarinnar hefur verið gengið mjög nærri afkornu fiskvinnslunnar . . . Þetta er nú annað árið, sem stór hluti fiskvinnslunnar er dæmdur til tapreksturs, því að þótt áætla megi óveruleg- an hagnað á heildargrund- velli, þá er afkoma fyrirtækj- anna afar misjöfn, og er fyr- irsjáanlegt, að a.m.k. þriðj- ungur þeirra er í taprekstri sl. ár og ekki færri á þessu ári. Engan þarf því að undra, þótt fiskiðnaðurinn í heild sé óánægður með þessa af- greiðslu og verulegrar svart- sýni gæti hjá mörgum um af-. komuna á þessu ári. Annars er sagan ekki nema hálfsögð með þessu, því að hér er ekki horft lengra en til vertíðar- loka. Þegar að þeim tíma kemur, þarf að grípa til ráð- stafana, sem a.m.k. jafngilda nýafstaðinni gengislækkun í tekjutilfærslu til sjávarút- vegsins.“ Guðjón B. Ólafsson, fram- kvæmdastjóri sjávarafurða- deildar SÍS, er ekki bjart- sýnni en forstjóri Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna. í viðtali við Morgunblaðið sagði hann, „að í þessu sam- bandi skipti meginmáli, hvernig grundvöllur fisk- vinnslunnar yrði bezt tryggð- ur, en ekki hversu margar krónur yrðu borgaðar fyrir fiskinn". Hins vegar minnti hann á, „að þessi nýja fisk- verðsákvörðun hefði ekki hlotið atkvæði kaupenda, sem auðvitað gæfu til kynna, að þeir teldu sinn hlut ekki nægilega góðan“. Ennfremur sagði framkvæmdastjóri sjáv- arafurðaaeildar SÍS, að „hann teldi núna eins og allt- of oft áður við áramótaupp- gjör af þessu tagi, að stjórn- völd teygðu sig lengra í bjart- sýnisátt en raunhæft mætti telja, því að í raun væri ver- ið að eyða meiru en til ráð- stöfunar væri, og ekkert mætti út af bregða, svo að illa færi“. Þannig er ástandið eftir gengislækkun vinstri stjórn- arinnar. Fyrirsjáanlegur er hundruð milljóna taprekstur á útgerðinni, nema loðnuver- tíðin slái öll met, og ískyggi- legar horfur í frystiiðnaðin- um. En þar með er ekki öll sagan sögð. Þegar samningar stóðu yf- ir um hækkun fiskverðs lof- aði Lúðvík Jósepsson, sjáv- arútvegsráðherra, því, að af- numinn skyldi 2 V2 % launa- skattur af útgerðinni, en sú upphæð í þess stað renna til stofnfjársjóðs fiskiskipa og jafnframt mundi ríkissjóður greiða af sinni hálfu sömu upphæð til stofnfjársjóðs. Hér grípur ríkisstjómin í senn til sömu ráða og hún áður gagnrýndi harkalega hjá öðrum og nýs uppbóta- kerfis. Við ákvörðun fisk- verðs í sambandi við gengis- breytinguna 1968, var ákveð- ið að fiskkaupendur skyldu greiða 10% í stofnfjársjóð umfram fiskverðið og komu þessi 10% því ekki til hluta- skipta. Að þessu sinni tekor ríkissjóður að sér að aflétta 21/2% launaskatti af útgerð- inni og greiða samsvarandi upphæð að auki til stofnfjár- sjóðs fiskiskipa. Þarna er í fyrsta lagi um að ræða greiðslu til útgerðarinnar, sem ekki kemur til skipta milli sjómanna og útgerðar- manna og í öðru lagi er ljóst, að jafnhliða gengisbreyting- unni er angi nýs uppbóta- kerfis að koma fram í dags- ljósið. Gengisbreytingin nægði ekki til þess að tr*yggja rekstrargrundvöll útgerðar- innar. Þess vegna hefur ríkis- stjórnin ákveðið að grípa til styrkja, sem munu nema 70—80 milljónum á þessu ári og jafnframt að þetta framlag verði greitt framhjá sjómönnum og komi ekki til skiptanna. Enn hefur það því gerzt, að ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar hefur gripið til úrræða, sem nú- verandi ráðherrar fordæmdu áður. Jafnframt verður ríkissjóð- ur fyrir tekjumissi af þess- um sökum, sem nemur um 160 milljónum króna, og hef- ur engin vísbending verið gefin um það, hvort nýrra tekna verður aflað í þess stað eða útgjöld skarin niður til þess að mæta þessum tekjumissi. Einnig í þeim efnum er allt látið reka á reiðanum. NYTT UPPBOTAKERFI i í THE OBSERVER ' JlJ..-! Eftir Eric Siiver Venjulegi njósnarinn JERÚSALEM — Njósnir hafa verið stundaðar i ísrael ekki síður en í öðrum löndum, en þar hafa aldrei verið að verki njósnarar fæddir í Isra- el, fólk af þeirri kynslóð sem er með stolti nefnt Sabrar, þangað til nýlega komst upp um samsæri innfæddra Israels- manna og fjandsamlegrar Ar- abastjórnar gegn tilveru ríkis- ins, og landsmenn eru i senn undrandi og reiðir. Fyrri njósnarar hafa annað hvort verið trúðar eða tækifær issinnar, óforbetranlegir stalín istar, innflytjendur frá Rúss- landi, sem hafa verið beittir fjárkúgun, eða hæfileikamenn, sem hafa ekki notið sín. Einn þessara manna var Alexander Yulin, pólitískur liðsforingi í einvalaliði víkingahermanna, Palmach-hersveitinni. Hann gekk á mála hjá Rússum og Egyptum. Hann var einum of óvarkár, bauð ísraelsku leyni- þjónustunni starfskrafta sina og fékk fimm ára fangelsi fyr- ir vikið. Þá voru þrír félagar úr ísra- elska kommúnistaflokknuim eitt sinn gómaðir með leyniskjöl á sér á mótmælafundi. Aharon Cohen hét enn einn njósnar- inn, gamalreyndur brautryðj- andi samyrkjubúanna og sjálf- menntaður sérfræðingur í mál- efnum Araba, sem gerði sér vonir um að hann gæti haldið opnu sambandi milli Jerúsalem og Kremlar. En frægastur allra var Isra el Beer, óopinber ráðunautur Ben-Gurions í hermálum, sem var kallaður „Liddel Hart Isra els“. Berr hafði verið foringi í Alþjóðhersveitinni í borgara- styrjöldinni á Spáni og var staðinn að verki þegar hann af henti sovézkum útsendara dag- bækur forsætisráðherrans og leynileg hernaðarskjöl. Hann dó í fangelsi þar sem hann átti að afplána fimmtán ára dóm. Nú verða dómstólarnir að ákveða hvort fjórir ungir Gyð- ingar, sem voru handteknir ný lega ásamt 40 Aröbum og stað hæft er að hafi verið félagar á- samt þeim í sýrlenzkum njósna og skemmdarverksamtökum, séu af sama sauðahúsi. En eðl- ismunurinn er þegar auðsær. Ehud Adiv hefur verið gerður að tákni fjórmenninganna. Að stjórnmálaskoðunuim hans und anskildum er hann dæmigerður Sabra, fyrirmyndarunglingur. Foreldrar hans voru meðal stofnenda samyrkjubúsins Gan Shmel, þar sem Ehud fæddist og ólst upp. Hann var mynd- arlegur og vinsæll, barðist í fallhlifaliðinu og lék með körfuboltaliði í fyrstu deild. Gan Shuel er á strandlengj unni norður af Tel Aviv og all- ir, sem þar hafa búið, hafá allt af verið mjög pólitiskir. Sam- yrkjubúið er tengt Mapan- flokknum, flokki marxistiskra zionista. Núverandi ritari hans er foringi israelskra ný- vinstrisinna. Á árunum eftir 1950 sögðu nokkrir félagar sig úr flokknum og gengu í komim únistaflokkinn, þegar Mapan sleit öllu sambendi við Moskvu, „Við kennum börnum okkar að vera virkir þátttakendur í stjórnmálum," sagði einn af brautryðjendum samyrkjubús ins nýlega. „Þess vegna verða þau að dansa á línu. Nú hefur eitt þeirra þvi miður stigið víxlspor. Okkur finnst, c.ð við verðum einlhvenn veginin að finna leið til þess að lifa í friði með nágrönnum okkar Aröb- um. Við verðum að komast að samkomulagi við þá og skila landsvæðum til, þess að tryggja friðíinnJ' íbúar samyrkjubúanna eru innhverfari en aðrir ísraels- menn. Þeim er hlíft við ys og þys borgarlífsins. Þeir þurfa ekki að stunda aukavinnu (100.000 ísraelsmenn stunduðu tvöfalda vinnu þegar síðast v&r vitað) tii þess að greiða skatta, kaupa íbúðir og veita sér meira en þeir og þjóðarbú- ið hafa efni á. Rökfimi er sam- tvinnuð llfi þeirra. Hugmynda- fræði er aðalatriði, sérstaklega í Sc.myrkjubúum þar sem áhrif Mapams mega sin mest. Hjá Ehud Adiv virðast þátta skilin hafa orðið í sex daga stríðrnu. Hann hafði verið leystur frá herþjónustu 1966, en var kallaður aftur í herinn í júní 1967. Hann var einn af fallhiífahermönnuinum, sem her tóku gamla hluta Jerúsalem í hörðustu bardögunum, sem voru háðir í návígi í öllu striðinu. Aðeins sex af 30 mönn um úr flokki hans siuppu óskaddaðir. Móðir hans segir að stríðið hafi breytt ho-num, blóðsútheliingarnar og grimmd stríðsins bugað hann. Hann dró sig meira og meira inn í skel, og gekk í hverja vinstriklík- una af annarri en sagði skilið við þær. Loks fór hann frá sam yrkjubúinu og til Haifa, þar sem hf:.nn lagði stund á heim- speki og vann fyrir sér sem þjálifari körfuboltaliðs. Adiv er nú 26 ára og að dómi flestra félaga hans fór hann yfir Rúbíkó stjórnmál- anna, þegar hann gekk í Rauðu fylkinguna, smáklofningshóp úr Byltingarbandalagi maoista. Sumir keppinautar fylkingar- innar lengst til viinstri segja, að í henni hafi aldrei verið fleiri en fimm eða sex Gyðing- ar, O'g það sem einkenndi þessi samtök framar öllu öðru, var, að þau visuðu á bug „sjálfs- ákvörðunarrétti Gyðinga", jafnvel eftir að ráðgerðri bylt ingu væri lokið. Síðan hefur Adiv mótmælt herskyldu, dreift flugumiðum meðal Araba og látið opinskátt í ijós samúð meS palestinskum Fatahskæruliðum. Eins og einn kunningi hans orðar það „var hann alltaf andvígur ofbeldi, en taldi samt leyfilegt að beita öll'um tiltækum ráðum til þess að kollvarpa valdakerfinu, sem hann taldi að vildi beita valdi í deilunum við Araba.“ Venju- legur Sabra var orðinn þátttak- andi í heimsbyitingunni..

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.